Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 1
88 SÍÐUR B/C 272. TBL. 85. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leyfí til vopnaeftirlits SÞ í höllum Saddams Husseins afturkallað Irakar neita að endurnýja olíusölusamning við SÞ Baghdad, Washington. Reuters. ÍRAXAR neita að endurnýja samn- ing við Sameinuðu þjóðimar, SÞ, um leyfi til að selja olíu til kaupa á mat- vælum fyrr en deilur um samninga, afhendingu á matvælum og banka- ábyrgðir verði leystar. Þeir sneru ennfremur við blaðinu í gær og aft- urkölluðu leyfí sem þeir höfðu áður veitt vopnaeftirliti SÞ til að leita að efnavopnum eða tækjum til fram- leiðslu þeirra í höllum Saddams Husseins Iraksforseta. Sameinuðu þjóðirnar hafa veitt Irökum undanþágu frá viðskipta- banni til að selja olíu fyrir tvo millj- arða dala, um 140 milljarða ísl. kr. til að kaupa matvæli og lyf. Endur- nýja þarf undan- þáguna á hálfs árs fresti og hugðist Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri SÞ, hækka upp- hæðina í þrjá milljarða dala í næstu viku er endurnýja átti samning Iraka og SÞ. Irakar kvarta yfir því að samning- ar sem tengjast olíusölunni taki seint gildi, og að tafir hafi orðið á ábyrgð- um og afhendingu matvæla. í hvert skipti sem olíusölusamningurinn er endumýjaður verða Irakar að leggja fram áætlun um dreifingu matvæla og lyfja. Fullyrða írakar að fulltrúar Bandaríkjanna hjá SÞ komi í veg fyrir að samningar um lyfjakaup taki giidi. Vopnaeftirliti ljúki innan hálfs árs Utanríkisráðherra Iraks, Mo- hammed Saeed al-Sahaf, lýsti því yf- ir í gær að írakar myndu ekki verða við kröfum Bandaríkjamanna um að eftirlitsmönnum SÞ yrði veittur að- gangur að höllum forseta landsins. Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur fullyrt að þær séu 78 talsins og grun- ur leikur á að þar sé að finna tæki og efni til efnavopnaframleiðslu. Daginn áður hafði fundur háttsettra emb- ættismanna, undir stjórn Saddams Husseins, fahist á að veita vopnaeft- irliti og öryggisráði SÞ aðgang að höhunum. íraska þingið samþykkti ennfrem- ur í gær ályktun þar sem mælt er með því að vopnaeftirlitsmenn SÞ ljúki verkefni sínu á næstu sex mán- uðum og að viðskiptabanni á Irak verði aflétt í kjölfarið. Vilja banna refaveiðar BRESKA yfírstéttin reynir nú með öllum ráðum að koma í veg fyrir að frumvarp um bann við refaveiðum, sem lagt verður fram á þingi í dag, verði samþykkt. í gær birti félag veiðimanna heilsíðuauglýsingu þar sem fullyrt var að veiðar væru besta aðferðin til að takmarka viðgang refastofnsins og velja lífvæn- legustu dýrin úr en andstæðingar veiðanna telja þær ómannúðlegar. Það eru þingmenn Verkamanna- fiokksins sem leggja frumvarpið fram og er búist við að flestir þingmenn fiokksins og Frjáls- lyndra muni greiða atkvæði með því. Fylgismenn veiðanna er hins vegar nær eingöngu að finna í íhaldsflokknum. I gær hófust Blencathra-veiðarnar, sem hafa verið stundaðar árlegá í hálfa aðra öld og var Barry Todhunter eirin þátttakendanna. Lokaundirbúningur loftslagsráðstefnunnar í Kyoto í Japan Þrýstingurinn á Astrala eykst Sydney. Reuters. HREYFINGAR umhverfisverndar- sinna lögðu í gær að stjórn Ástralíu að samþykkja bindandi markmið um minnkun útblásturs lofttegunda, sem valda gróðurhúsaáhrifunum, og sögðu að kostnaður Astrala af mark- miðunum yrði miklu minni en stjórnin hefur áætlað. John Prescott, aðstoðarforsætis- ráðherra Bretlands, ræddi einnig við ástralska ráðamenn í Sydney og kvaðst vonast til þess að þeir féllust á að takmarka losun gróðurhúsaloft- tegundanna á alþjóðlegri loftslags- ráðstefnu í Kyoto í Japan sem hefst í næstu viku. „Það er algjör nauðsyn að samkomulag náist í Kyoto,“ sagði hann. Átta Grænfriðungar voru hand- teknir í gær eftir að hafa hengt borða á hafnarbrúna í Sydney þar sem þeir mótmæltu afstöðu johns Howards, forsætisráðherra Ástral- Snýst um sanngirni bindandi marka íu, með orðunum: .Ástralir telja þig hafa rangt fyrir þér, Howard.“ Evrópusambandið hefur lagt til að iðnríkin minnki útblástur gróður- húsalofttegunda um 15% frá því sem það var árið 1990 á árunum fram til 2010. Breska stjórnin hefur lofað að minnka útblásturinn í Bretlandi um 20% á þessum tíma en Bandaríkja- stjóm vill hins vegar halda honum í sama horfi og var árið 1990. Segja Ástrali ýkja kostnaðinn Stjórn Ástralíu vill ekki gangast undir slík bindandi mörk, segir þau ósanngjörn og leggja of miklar byrðar á Ástrala, helstu kolaútflytj- endur heims. Howard hefur sagt að tillaga Evrópusambandsins myndi valda auknu atvinnuleysi og efna- hagstjóni, sem hann áætlar að yrði um níu milljarðar ástralski-a dala, andvirði 430 milljarða króna. Alþjóðlegu umhverfisverndar- samtökin WWF báru brigður á þetta mat og sögðu að kostnaður Ástrala yrði miklu minni, eða 51 milljón ástralskra dala, sem svarar 2,4 milljörðum króna. „Rannsóknir okkar sýna að Ástralar geta náð helstu markmiðum um alþjóðlegar takmarkanir útblásturs gróðurhúsa- lofttegunda með einfóldum og ódýr- um hætti með því að stöðva eyðingu kjarrlendis,“ sagði David Butcher, framkvæmdastjóri WWF í Ástralíu. Ástralir ruddu 470.000 hektara kjairlendis árið 1995 og 17,4% út- blásturs gróðurhúsalofttegunda í landinu það ár eru rakin til brennslu trjáa sem ekki voru nýtt. Reuters Harðlínu- menn reiðir VEGGMYNDIR sem sýna Benj- amin Netanyahu, forsætisráðherra Israels, klæddan arabfsku höfuð- fati, voru hengdar upp í Jerúsalem í gær. Yfir myndunum stendur „Lygarinn" en Netanyahu til- kynnti í gær að hann væri reiðubú- inn til að láta Palcstinumönnum eftir aukin landsvæði gegn ákveðnum skilyrðum. Netanyahu hafði áður fordæmt fyrri ríkis- sfjórn fyrir að láta Iand í skiptum fyrir frið. Samskonar myndir voru birtar af Yitzhak Rabin, fyrrverandi for- sætisráðherra, skömmu áður en hann var myrtur 1995. Öfgasinn- aðir hægrimenn höfðu þá staðið fyrir áróðursherferð gegn honum. ■ Klofningur innan ísraelsku/22 Reuters Leiðtogar ANC vitna gegn Winnie Jóhannesarborg. Reuters. EINN af ráðherrunum í suður- afrísku stjóminni, Azar Cachalia, sakaði í gær Winnie Mandela, fyrr- verandi eiginkonu Nelsons Mandela, forseta landsins, um að hafa horft framhjá eða tekið þátt í glæpsam- legum athöfnum. Kvaðst Cachalia telja að lýsa ætti Winnie óhæfa til að gegna opinberum embættum. Þessa vikuna eru vitnaleiðslur fyrir suður-afrísku sannleiksnefnd- inni vegna fullyrðinga um að Winnie og öryggisverðir hennar hafi pyntað og myrt ungmenni á heimili hennar. í gær báru háttsettir menn í Afríska þjóðarráðinu (ANC), Caehalia og Murphy Morobe, for- maður fjármála- nefndar þings- ins, vitni gegn Winnie, þar sem þeir lýstu því ógnarvaldi sem öryggisverðir hennar hefðu haft í samfélagi svartra í Suður- Afríku og til- raunum Afríska þjóðarráðsins til að fá hana til að reka verðina. Sögðu þeir ljóst að hún hefði haft vit- neskju um óhæfuverk þeirra og jafnvel tekið þátt í þeim. ■ Hindraði ANC morðákæru/22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.