Morgunblaðið - 28.11.1997, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Starfað að
mæðra- og
barnavernd
í Bosníu
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
tillögur um samstarf á sviði ung-
barna- og mæðravemdar í Bosníu
og Herzegóvínu. Áætlað er að fyrst
komi hópur lækna, hjúkrunarfræð-
inga og ljósmæðra frá Sarajevo,
Mostar og Tuzla til íslands og í
framhaldi af því fari íslenskir
bamalæknar, kvensjúkdóma- og
fæðingarlæknar til þessara þriggja
staða.
„Að mínu mati hefur sú aðstoð,
sem íslendingar ákváðu að veita í
Bosníu, komið aðmjög góðu gagni,“
sagði Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra í gær. „Þetta eru ekki
háar fjárhæðir á alþjóðlegan mæli-
kvarða, en okkur hefur að mínu
mati tekist að gera mikið úr þessu.“
Ríkisstjómin samþykkti í mars
1996 að veija 110 milljónum til
uppbyggingar í Bosníu og Herzeg-
óvínu á árunum 1996 til 1999. 10
milljónir voru þegar lagðar í sjóð
Alþjóðabankans til styrktar upp-
byggingu. Samþykkt var að 50
milljónum yrði varið til þess að
aðstoða fórnarlömb, sem misst
hefðu fætur í styijöldinni í Bosníu,
og 50 milljónum til aðstoðar á sviði
ungbarna- og mæðraverndar. Til
að skipuleggja þann þátt hefði ver-
ið skipuð nefnd, sem hefði unnið
tillögur í samvinnu við bosnísk
stjórnvöld og Alþjóðabankann. Nú
liggja þær tillögur fyrir.
Þörfin brýn
„Sérþekking íslendinga á þessu
sviði og jþá sérstaklega hjá fyrir-
tækinu Ossuri hefur verið mjög
gagnleg," sagði Halldór. „Síðan
hefur legið fyrir að við höfum vilj-
að hjálpa til i heilbrigðisþjónustu
og ferð þriggja lækna ásamt að-
stoðarmanni mínum var mjög vel
heppnuð. Niðurstaðan er sú að við
förum út í þetta.“
Halldór sagði að ýmsu væri
ábótavant í heilbrigðismálum í
Bosníu. „Það er himinn og haf á
milli þess, sem gerist hér á landi
og þar.“
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur greiði systrum 2,9 m.kr. með vöxtum í 4 ár
Dró ímyndaðar eftirstöðvar
greidds láns frá kaupverði
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt borgarsjóð Reykjavíkur
fyrir hönd húsnæðisnefndar borgar-
innar til þess að greiða systrum í
Reykjavík 2,9 milljónir króna með
vöxtum og dráttarvöxtum frá árinu
1993. Dómurinn byggist á því að
þetta sé sú upphæð sem vantaði á
að húsnæðisnefndin reiknaði rétt
eignarhlut föður þeirra í skuldlausri
þriggja herbergja íbúð sem verið
hafði í eigu hans í 24 ár. Meðal
annars hafi húsnæðisnefndin dregið
ímyndaðar eftirstöðvar láns, sem
búið var að greiða, frá verðinu áður
en systrunum var greitt.
Þegar faðir systranna dó árið
1992 hafði hann endurgreitt að fullu
það lán sem hvfldi á íbúðinni þegar
hann keypti hana árið 1968. Við
uppgjör til systranna voru engu að
síður dregnar frá verði íbúðarinnar
um 1,8 m.kr. vegna uppreiknings
þessa láns. Því mótmæltu systumar.
Þær gerðu einnig ágreining við það
Reiknuðu lægri vexti og hærri fyrn-
ingu en reglugerðir mæltu fyrir um
að þrátt fyrir ákvæði laga hefði
húsnæðisnefnd látið undir höfuð
leggjast að reikna þeim 1% ársvexti
af verðbættu stofnframlagi. Einnig
hafði verið dregið frá þeim 1% árleg
fyming íbúðarinnar en ekki '/2% eins
og reglugerð mælir fyrir um. Loks
hafi endurbætur við lóð hússins að-
eins verið bættar sem nemur rúmum
fjórðungi af kostnaðaráætlun.
Þær kröfðust rúmlega 2,9 milljóna
króna til viðbótar við þær, um það
bil 3,4 m.kr., sem þær höfðu fengið
í hendur við innlausnina.
ímyndaðar eftirstöðvar
dregnar frá
Á þá kröfu féllst Kristjana Jóns-
dóttir héraðsdómari að mestu leyti.
í dómi hennar segir að fyrir liggi
að veðskuldir sem stofnað var til
vegna kaupa á íbúðinni hafi verið
uppgreiddar og samkvæmt afsali
hafí manninum borið réttur til að
njóta verðhækkunar á verði íbúðar-
innar allrar ef hann greiddi eftir-
stöðvar lánsins að fullu eftir að hafa
átt íbúðina í 20 ár. Þá hafi húsnæðis-
nefnd reiknað eignarhluta mannsins
á grundvelli framreiknaðs kaupverðs
íbúðarinnar þrátt fyrir að lög geri
ráð fyrir að miðað sé við stofnfram-
lag. Einnig hafi nefndinni láðst að
reikna með breytingum kaupverðs
samkvæmt byggingavísitölu fram til
þess tíma er farið var að nota láns-
kjaravísitölu eins og rétt hefði verið.
Einnig var fallist á þá kröfu að hús-
næðisnefndinni sé skylt að taka mið
af ákvæðum reglugerða og reikna
annars vegar 'A% en ekki 1% fyrn-
ingu fyrir hvert ár eignarhaldstíma
og hins vegar 1% vexti af verðbættu
stofnframlagi. Loks hafi húsnæðis-
nefndinni ekki tekist að sýna fram
á að í lögum eða reglugerðum, sem
giltu við innlausn íbúðarinnar, hafi
verið að finna ákvæði sem heimili
að framreikna ímyndaðar eftirstöðv-
ar lána og draga þær frá verði íbúð-
arinnar, eins og gert var við skuld-
lausa íbúðina í þessu máli.
Aðeins að einu leyti féll dómur
húsnæðisnefndinni í vil. Það var
varðandi það að systurnar voru ekki
taldar hafa sannað að verðmæti
endurbóta á lóð hússins væri 69.000
en ekki 20.000. Samkvæmt því var
krafa systranna lækkuð um 49 þús-
und krónur og borgarsjóður fyrir
hönd húsnæðisnefndar Reykjavíkur
var dæmdur til að greiða þeim 2.903
þúsund krónur með vöxtum frá 1993
og dráttarvöxtum frá 1994, auk 350
þúsund króna í málskostnað.
Borgarfjarðarbraut frá Flókadalsá að Kleppjárnsreykjum
Ráðherra staðfestir
mat á efri leiðinni
GUÐMUNDUR Bjamason umhverf-
isráðherra hefur staðfest að úrskurð-
ur skipulagsstjóra ríkisins um að
fallast á lagningu Borgarfjarðar-
brautar frá Flókadalsá að Klepp-
jámsreykjum eða eftir svokallaðri
efri leið, sem í matsskýrslu nefnist
leið 3, 3a og 3b, skuli óbreyttur
standa. Deilur hafa staðið um vegar-
stæðið, sem til stóð að lægi gegn
um jörð Stóra-Kropps. Jón Kjartans-
son, bóndi á Stóra-Kroppi, kvaðst í
gær fagna þessari niðurstöðu.
„Niðurstaða ráðuneytisins er sú
að fyrirhuguð lagning brautarinnar
samkvæmt þessari nýjustu hugmynd
sé viðunandi frá öllum umhverfis-
sjónarmiðum, sem ber að taka tillit
til,“ sagði Guðmundur í gær. „Hún
hafí ekki neikvæð áhrif á umhverfí,
náttúruauðlindir og samfélag. Það
er hins vegar rétt að taka líka fram
að þetta breytir í raun ekki í neinu
okkar fyrri úrskurði um að sú leið,
sem kölluð var leið 1, er auðvitað
fullgild líka.“
Skipulagsstjóri ríkisins birti 22.
ágúst úrskurð þar sem fallist var á
tillögu Vegagerðar ríkisins og Hönn-
unar hf. um lagningu Borgarfjarðar-
brautar eftir efri leið. Atta íbúar
Reykholtshrepps kærðu þann úr-
skurð tæplega mánuði síðar og vilja
þeir að vegurinn verði lagður sam-
kvæmt svokallaðri neðri leið, eða leið
1. Sú leið myndi liggja frá Varmalæk
að Kleppjámsreykjum um land
Stóra-Kropps. Miklar deilur hafa
staðið um vegarstæðið í rúmlega tvö
ár.
Ljóst hvert framhaldið verður
Jón Kjartansson, bóndi á Stóra-
Kroppi, kvaðst í gær fagna þessari
niðurstöðu. „Það er í mínum huga
ljóst hvert framhaldið verður," sagði
hann. „Það er útilokað að sú leið að
fara yfir túnið á Stóra Kroppi verði
farin því að vilji hreppsnefndar,
Vegagerðar og skipulags ríkisins
hefur verið virtur og æðra stjóm-
vald, umhverfísráðherra, hefur stað-
fest þennan vilja. Ég fagna því inni-
lega að málið er komið í þennan far-
veg og minni á að hreppsnefnd hafn-
aði kærunni samhljóða."
Hreppsnefnd Reykholtsdalshrepps
samþykkti í upphafí þessa mánaðar
með fimm samhljóða atkvæðum að
biðja umhverfisráðherra að staðfesta
úrskurð skipulagsstjóra ríkisins.
Guðmundur sagði að hlutverk sitt
hefði eingöngu verið að skera úr um
það hvort um viðunandi leið væri að
ræða.
Gerir ekki upp á milli leiða
„Þannig að ég er ekki að gera upp
á milli þessara leiða, enda annarra
að velja heldur en umhverfisráðu-
neytisins," sagði hann. „Það er
ákvörðun framkvæmdaraðila og
skipulagsyfirvalda á svæðinu.“
Hann sagði að umhverfisráðuneyt-
ið hefði ekki fjallað um kostnað við
lagningu hvors vegar, en ljóst væri
að efri leiðin væri nokkuð dýrari.
„Þetta er nýr kostur og hefur
stundum verið kallaður málamiðl-
unarleið," sagði ráðherrann. „En
hann er nú ekki meiri málamiðlun
en svo að mér sýnist menn skiptast
með og á móti alveg eins og var
með hinn kostinn."
Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir
Glaðst yfir
góðum afla
JÓN Bergkvistsson á Fáskrúðs-
firði, sem stundað hefur sjóinn frá
blautu barnsbeini, hefur vænan
golþorsk á loft. Ægir Kristinsson,
vigtarmaður við höfnina, fylgist
með, en frændi Jóns og samstarfs-
maður, Bergkvist Ó. Erlingsson,
lætur ekki trufla sig við vinnuna.
Rangar upplýs-
ingar í tollskjölum
Dæmdur í
7,5 millj.
króna sekt
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
mann til að greiða 7,5 milljónir í
sekt fyrir rangar upplýsingar á toll-
skjölum vegna innflutnings á fjór-
um bílum. Maðurinn ætlaði að kom-
ast hjá greiðslu aðflutningsgjalda,
samtals um 3,7 milljóna króna.
Maðurinn vísaði m.a. til þess að
brot hans hefði aðeins náð til þess
að afhenda tollskjöl, en afgreiðsla
hefði verið stöðvuð. Hann hefði því
engan ávinning hlotið. Þá hefði
hann haldið að tollayfirvöld myndu
aðeins endurákvarða tollverð bif-
reiðanna.
Hæstiréttur vísaði til þess að í
tollalögum væri ákvæði um að refs-
ing við broti sem þessu skyldi vera
sektir að lágmarki tvöfaldri en að
hámarki tífaldri þeirri fjárhæð sem
undan væri dregin, auk varðhalds
eða fangelsis. Brot mannsins hefðu
verið stórfelld. Samkvæmt þessu
bæri að dæma hann til að greiða
7,5 milljónir í ríkissjóð, en sæta 12
mánaða fangelsi ella.
Að auki var maðurinn dæmdur
í þriggja mánaða fangelsi, en sú
refsing fellur niður að þremur árum
liðnum, haldi hann almennt skilorð.
Þjóðminjasafnið áfram á sama stað
Horft er til húss ^
atvinnudeildar HÍ
ÁKVEÐIÐ var á ríkisstjórnarfundi í
gær að Þjóðminjasafnið yrði áfram á
sama stað og húsnæðisvandi þess
yrði leystur til framtíðar m.a. með
því að kaupa hús atvinnudeildar Há-
skólans og hugsanlega fá viðbótarlóð
frá Háskólanum svo breyta megi að-
stöðu í suðurenda safnahússins.
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra kynnti þessar hugmyndir á rík-
isstjómarfundinum og var samþykkt
að leita viðræðna við Háskólann.
„Menn hafa verið með ýmsar vanga-
veltur um framtíðaraðstöðu fyrir
safnið en nú var ákveðið að það yrði
á sama stað. Stefnt er að því að búið
verði að koma því í skaplegt horf
árið 2000,“ sagði menntamálaráð-
herra. Sagði hann þessar hugmyndir
hafa verið ræddar við fulltrúa Háskól-
ans og að vilji væri fyrir hendi þar
til að ganga til viðræðna. Til ráðstöf-
unar eru m.a. 85 milljónir króna úr
endurbótasjóði menningarbygginga.
Með kaupum á húsnæði atvinnu-
deildarinnar segir ráðherra ætlunina
að fá inni fyrir skrifstofur Þjóðminja-
safnsins og með því að fá lóð við
suðurenda hússins sé hugmyndin að
bæta aðstöðu þess frekar. Þær hug-
myndir hafa þó ekki verið útfærðar
nánar. Hann segir að húsnæði at-
vinnudeildarinnar losni þegar Nátt-
úrufræðihús verði tilbúið.