Morgunblaðið - 28.11.1997, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný sálma-
bók með
nótum
komin út
NY sálmabók íslensku Þjóðkirkj-
unnar verður tekin i notkun nú á
aðventunni og komu fyrstu ein-
tökin úr bókbandi siðdegis i gær.
Dreiflng hennar hefst strax, en
hún hefur að geyma sömu sálma
og eldri útgáfa auk 57 nýrra
sálma sem eru aftast í bókinni.
„Helsta markmið með útgáf-
unni er að auka og styðja við og
hvetja til þátttöku í almennum
safnaðarsöng í kirkjunni og þess
vegna er sálmabókin með nótum
og í tónhæð sem miðast við al-
mennan safnaðarsöng," segir
Edda MöIIer framkvæmdasljóri
Skálholtsútgáfunnar, sem séð
hefur um útgáfuna. Kirkjuráð
skipaði vinnuhóp í ársbyrjun
1996 til að hefja vinnu við útgáf-
Morgunb!aðið/Ámi Sæberg
ÓLAFUR Skúlason biskup fylgist með þeim Karli Sigurbjörnssyni biskup, Herði Áskelssyni, organista f Hall-
grímskirkju og Jóni Helga Þórarinssyni, sóknarpresti í Langholtskirkju, syngja upp úr nýju sálmabókinni.
una og sátu í honum sóknar-
prestarnir sr. Jón Helgi Þórar-
insson og sr. Karl Sigurbjörns-
son, sr. Kristján Valur Ingólfsson
rektor Skálholtsskóla, Haukur
Guðlaugsson söngmálastjóri og
Hörður Áskelsson organisti.
í formála bókarinnar segir
m.a.: „Útgáfa þessarar bókar er
stefnumarkandi. I fyrsta sinni
eru allir sálmar í Sálmabók ís-
lensku þjóðkirkjunnar prentaðir
með nótum. Bókinni er ætlað að
efla almennan safnaðarsöng,
auka íjölbreytni laga og texta og
örva til frekari endurnýjunar
sálma, texta og tónlistar í kirkj-
unni.“
Meðaleinkunn______Meðaleinkunn__________________7,3
Lesskilninqur 7,0 Lesskilninqur 7,5
Málnotkun 6,5 Málnotkun 7,3
Stafsetning 6,3 Stafsetning 7,4
Ritun 5,9 Ritun 6,3
Tólur og talnaskilningur 6,8 Tölur og talnaskilningur 7,8
Rúmfræði og mælingar 6,8 Rúmfræði og mælingar 7,6
Utkoma úr samræmdum könnunarprófum í grunnskólum
Meðaleinkunn í stærðfræði
6,8 í 4. bekk en 7,5 í 7. bekk
MEÐALEINKUNN grunnskóla-
bama í 4. bekk í samræmdu könn-
unarprófi í íslensku var 6,6 og með-
aleinkunn nemendanna í sam-
ræmdu stærðfræðiprófí var 6,8.
Meðaleinkunn bama í 7. bekk í
samræmdu íslenskuprófí var 7,3 en
7,5 í stærðfræðiprófinu. Sam-
ræmdu könnunarprófin voru hald-
in 14. og 15. október sl.
Samræmdu könnunarprófin
vom samin með hliðsjón af Aðal-
námskrá grunnskóla og hefur
Rannsóknastofnun uppeldis- og
menntamála fyrir nokkm birt
heildamiðurstöður prófanna þar
sem sýnd var svokölluð normal-
dreifing einkunna. I bréfi sem
stofnunin sendi hins vegar foreldr-
um eða öðram forráðamönnum
bamanna er sýnd hefðbundin ein-
kunnagjöf úr prófunum og svoköll-
uð safntíðni yfir landið allt, sem
segir til um hversu hátt hlutfall
nemenda, sem tóku prófin, er með
ákveðna einkunn og lægri.
Þar kemur fram að 3% nemenda
í 4. bekk vom með 3 eða lægri ein-
kunn í íslensku, 48% nemenda vom
með 6,5 í einkunn eða lægri og 84%
þeirra sem tóku prófið fengu 8 eða
lægri einkunn. 6% gmnnskóla-
bama í 4. bekk fengu 3,5 eða lægri
einkunn í stærðfræði, 34% þessara
bama fengu 6 eða lægri einkunn en
22% fengu hærri einkunn en 8.
9% með 5 eða lægri
einkunn f fslensku
Enginn nemendanna í 7. bekk
var með einkunn undii- 3 í íslensku-
prófinu en 9% þeirra sem þreyttu
prófið vom með 5 eða lægri ein-
kunn í prófinu. 44% fengu 7 eða
lægri einkunn en um fjórðungur
nemendanna fengu 8,5 eða hærri
einkunn í íslenskuprófinu.
3% bama í 7. bekk fengu 3 eða
lægri einkunn í stærðfræði. 12%
vom með 5 eða lægri einkunn og
22% hópsins vom með 6 eða lægri
einkunn í stærðfræðiprófinu. Rúm
10% fengu yfir 9 í einkunn í stærð-
fræði.
Fá böm með einkunn yfír 9
nægilega krefjandi verkefni?
I bréfi Rannsóknastofnunar upp-
eldis- og menntamála til foreldra
og forráðamanna bama í 4. bekk
gmnnskóla segir um niðurstöður
prófanna: „Námsstaða þeirra nem-
enda, sem fengu 3,5 eða lægra á
prófunum, er alvarleg. Þessir nem-
endur ættu að fá stuðning eða sér-
kennslu tímabundið eða um lengri
tíma. Sérstakan gaum ætti að gefa
að þeim nemendum sem em á bil-
inu 4 til 5. Flestir í þessum hópi
þurfa á stuðningi að halda til að bil-
ið milli þeirra og jafnaldranna auk-
ist ekki.
Þeir nemendur, sem era með
heildareinkunn 5,5 til 7,5, standa
sig í meðallagi. Nemendur sem eru
með 8,0 eða hærra standa sig vel á
prófunum. Foreldrar og kennarar
ættu að huga að því sérstaklega
hvort þeir nemendur, sem fá 9,0
eða hærra, fái nægjanlega krefj-
andi verkefni til að glíma við í skól-
anum.“
Skv. mati stofnunarinnar á nið-
urstöðum úr prófum í 7. bekk er
námsstaða þeirra nemenda, sem
fengu 4 eða lægra á prófunum al-
varleg. Bent er á að gefa verði
þeim nemendum sem em á bilinu
4,5 til 6 sérstakan gaum.
Varar stofnunin einnig við því að
líta á útkomuna úr prófunum sem
dóm um námsgetu bamanna eða
frammistöðu viðkomandi skóla.
Niðurstöðumar eigi að vera hjálp-
artæki til að bregðast við náms-
stöðu hvers bams og til að aðstoða
foreldra og kennara við að koma til
móts við þarfir þess.
IBESTA BÓKIN um getnað,
meðgöngu og fæðingu
k
%
I
lÖ
&
!
VX MIRIANÍST0PPARD
.eðga"^
JSS-
• Áreiðanleg, nútímaleg og
auðskilin bók um fæðingu
bams og umönnun á fyrsta
æviskeiði. • Fjallað er um efnið
bæði frá sjónarhóli móður og
bams. • Ljósmyndír, teikningar,
ómsjármyndir og línurit
— samtals yfir 500 litmyndir.
• 350 bls. í stóru broti.
3,980 kr,
e
FORLAGiÐ
Laugavegl 18 • Sími 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sími 510 2500
Verkfall Sinfóníunnar
Fresta varð
upptökum
fyrir Naxos
VEGNA verkfalls hljóðfæraleikara
í Sinfóníuhljómsveit íslands tekst
ekki að ljúka upptökum á tónlist
Sibeliusar, sem Naxos, stærsti út-
gefandi klassískrar tónlistar í heim-
inum, fyrirhugar að gefa út. Runólf-
ur Birgir Leifsson, framkvæmda-
stjóri hljómsveitarinnar, segir að
samningamenn hafi verið mjög ná-
lægt samningum þegar upp úr þeim
slitnaði í fyrrinótt.
f þessari viku var Sinfóníuhljóm-
sveitin að taka upp tónverk eftir
finnska tónskáldið Sibelius. Sér-
stakur hljóðupptökustjóri kom til
landsins á vegum Naxos til þess að
sjá um upptökurnar. Búið var að
taka upp Finnlandíu og sinfóníu nr.
4, en ekki tekst að ljúka upptökum á
sinfóníu nr. 5 vegna verkfallsins.
Upptökustjórinn er farinn af landi
brott, en Runólfur Birgir sagði
stefnt að því að hann kæmi aftur í
febrúar og til að Ijúka upptökum.
Runólfur Birgir sagði að ekki
væri hægt að útiloka að þessi vinnu-
stöðvun hefði áhrif á samstarf Sin-
fóníuhljómsveitarinnar við Naxos.
Það væra margar hljómsveitir sem
vildu komast á samning hjá Naxos.
Það hefði verið gefið í skyn að það
yrði hugsanlega önnur hljómsveit
féngin í að klára upptökumar.
Reynt yrði að koma í veg fyrir að
hljómsveitin missti samninginn og
það væm góðar líkur á því að það
tækist.
Samningar voru að takast
Samninganefndir deiluaðila vom
á fundi hjá ríkissáttasemjara til kl.
4 í fyrrinótt, en þá slitnaði upp úr
viðræðum. Runólfur Bii-gir sagði að
þessi niðurstaða ylli vonbrigðum,
sérstaklega í ljósi þess að menn
hefðu verið mjög nálægt samning-
um. Samkomulag hefði verið að
takast um flestöll atriði, þar á meðal
um vinnutímaskilgreiningu, þegar
hljóðfæraleikarar hefðu breytt kröf-
um sínum. Við það hefði allt farið í
hnút.
Ekki hefur verið boðaður nýr
sáttafundur í deilunni.
-----------------
Enginn póst-
ur sendur
til Kanada
PÓSTUR og sími hefur sent frá sér
tilkynningu um að póstur verði ekki
sendur héðan til Kanada meðan á
allsherjarverkfalli póststarfsmanna
í Kanada stendur.
Verkfallið hófst 19. nóvember, og
segir Póstur og sími að kanadíska
póststjórnin hafi tilkynnt um verk-
fallið og að ekki sé hægt að taka við
pósti sem berst til landsins. Því séu
þeir, sem hyggjast senda póst til
Kanada, vinsamlegast beðnir um að
athuga að póstur verður ekld send-
ur héðan meðan á verkfallinu stend-
ur.
-------♦-♦-♦-----
Kveikt á
jólaljósum í
miðbænum
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, tendr-
ar jólaljósin í miðbænum við hátíð- 1
lega athöfn við Sólon íslandus í
Bankastræti á morgun, laugardag,
kl. 10.
Léttsveitin undir stjóm Jóhönnu ;
Þórhallsdóttur, syngur jólalög. Á
sama tíma kveikja kaupmenn í mið-
borginni á skreytingum í verslunum
sínum og opið verður til kl. 18.