Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bindindishelgi.
'5' .. ••
iG-Mun^D
HÍF opp. Það hefur einhvern tímann verið flaggað í heila af minna tilefni
en heillri þurri helgi . . .
Samgönguráðherra skipar nefnd um framtíð fjarskiptamála
Forvígismönnum OZ
falin stefnumótun
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra hefur skipað Guðjón Má Guð-
jónsson, stjómarformann OZ, for-
mann nefndar sem á að vera ráð-
herra til ráðuneytis um stefnumót-
un í fjarskiptamálum. Samgöngu-
ráðherra segir að skápan nefndar-
innar sé til vitnis um að menn vilji
halda vöku sinni og nýta þau tæki-
færi sem gefist.
Hlutverk nefndarinnar er að skil-
greina stöðu fjarskiptamála hér á
landi og meta hvemig þróun þeirra
geti orðið fram á næstu öld. Inn í þá
mynd kemur hver verði staða
Landssímans og annarra fyrirtækja
á fjarsldptasviði í alþjóðlegu sam-
hengi. Undir það fellur sala á hluta-
bréfum í Landssímanum með hlið-
sjón af æskilegri þróun fjarskipta
hér á landi og heildarhagsmunum
ríkisins og almennings.
Nefndina skipa Guðjón Már Guð-
jónsson, stjómarformaður OZ, Þor-
steinn Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri, Ólafur Jóhann Ólafsson,
framkvæmdastjóri og rithöfundur,
Frosti Bergsson forstjóri og Eyþór
Amalds framkvæmdastjóri. Staifs-
maður nefndarinnar verður
Sæmdundur Norðfjörð fram-
kvæmdarstjóri.
Með nefndinni munu starfa sér-
fræðingar, innlendir sem erlendir.
Fulltrúar úr forsætis-, samgöngu-
og viðskiptaráðuneyti verða nefnd-
inni til aðstoðar. Nefndin mun
einnig njóta ráðgjafar frá Pósti og
síma hf. og alþjóðlegum síma- og
fjármálafyrirtækjum, þ.ám. Erics-
son og Cisco. Gert er ráð fyrir að
nefndin skili áliti í febrúar á næsta
ári.
OZ unnið að stefnumótun
fyrir Ericsson
Halldór Blöndal sagði feng af því
að fá menn úr atvinnulífinu, sem
hefðu mikla þekkingu á fjarskipta-
málum, til að vinna að stefnumótun
í þessum mikilvæga málaflokki
fram á næstu öld. Þama væri sam-
hentur hópur kominn til starfa og
hann vænti mikils af starfi hans.
OZ hefur sl. 3-4 mánuði unnið að
stefnumótun í fjarskiptamálum fyr-
ir Ericsson, sem er eitt stærsta
símafyrirtæki í heimi. Guðjón Már
sagði að fyrir skömmu hefði fyrir-
tækið kynnt skýrslu sína fyrir
stjóm fyrirtækisins. Þessi vinna
myndi nýtast vel í starfi nefndarinn-
ar.
Ekki kom skýrt fram í máli sam-
gönguráðherra hvort nefndin ætti að
gera beinar tillögur um hvemig ætti
að standa að sölu á hlutabréfum rík-
isins í Landssímanum. Hann sagði
einungis að nefhdin kæmi til með að
fjalla um eignarhald á Landssíman-
um. Sjálfur sagðist hann telja að í
samfélaginu hefði komið fram ein-
dregin krafa um að fyrirtækið yrði
selt og nauðsjmlegt væri að hrinda
áformum um söluna í framkvæmd
fyrr en menn hefðu upphaflega
áformað. Núverandi eignarform
væri á margan hátt gallað.
fgilsstöðum • Fossnesti • Gogitvegi • Geirsgötu • lækjorgötu Hofnorliríi • Nesjun við Hornofjörö • Skógorseli • Stórahjollo • Vogum • Ægisiöu
íslenskt barnahús opnað eftir áramót
Heimsókn frá
stærsta barnahúsi
Bandaríkj anna
Bragi Guðbrandsson
BYRJUN næsta árs
standa vonir til að svo-
kallað bamahús verði
formlega tekið í notkun en
þar verður samstarfsvett-
vangur fýrir alla þá sem
koma að rannsókn og
meðferð kynferðisafbrota
gagnvart börnum. Bragi
Guðbrandsson forstjóri
Bamavemdarstofu situr í
undirbúningsnefnd húss-
ins en hann hefur meðal
annars farið til Houston í
Texas til að kynna sér
rekstur slíkrar starfsemi.
„Við höfum verið að
kynna okkur hvemig best
er hægt að koma að þess-
um málum hér á landi þ.e.
á sviði rannsókna og með-
ferðar fyrir þolendur kyn-
ferðisofbeldisins, þ.e.
bömin sjálf og aðstandendur
þeirra," segir Bragi.
- Hvemig er búið að bömum í
Houston sem hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi?
„Þar er elsta bamahús Banda-
ríkjanna sem var stofnað árið
1986 og þjónar það 5.000 börnum
árlega. Allir fagmenn sem koma
að kynferðisofbeldi gagnvart
bömum starfa að þeim málum
sem upp koma undir einu og
sama þaki. Bandaríkjamenn em
afskaplega stoltir af bamahúsinu
í Houston í Texas. Eftir áramót
verður ný bygging tekin í notkun
undir starfsemina þar. Mikil
söfnun hefur staðið yfir til
styrktar starfseminni og nýja
byggingin er rúmlega 7.000 fer-
metrar að stærð og verður
langstærsta bamahús Bandaríkj-
anna sem Hillary Clinton mun
opna formlega.
Auk þess sem ég kynnti mér ít-
arlega starfsemi barnahússins þá
fylgdist ég með réttarhöldum
vestra og skoðaði ýmsar með-
ferðarstofnanir fyrir milligöngu
Ólafs Ásgeirssonar ræðismanns í
Houston. í framhaldi af þessari
heimsókn minni buðum við hing-
að til lands þremur konum sem
hafa mikla reynslu á þessu sviði
og tengjast slíkum málum í
Houston. Þær em væntanlegar
hingað til lands um helgina. Þetta
era þær Ellen Cokinos, fram-
kvæmdastjóri barnahússins í
Houston, og með henni Dana
Zakin, sem er sérfræðingur á
sviði rannsóknarviðtala, og
Maurcen O’Connell, sem séi; um
meðferðarúrræði sem böm og
aðstandendur þeirra eiga kost á.
- Hvernig verja þær tíma sín-
um hér á landi?
„Þær munu skipuleggja innra
starf barnahússins með okkur og
væntanlegt starfsfólk mun síðan í
framhaldi fara til
Houston í starfsþjálf-
un. Næstkomandi
þriðjudag verður
starfsdagur með
starfsfólki barna-
vemdamefnda, lög-
reglu og einnig verður því starfs-
fólki heilbrigðisstétta sem málið
varða boðin þátttaka svo og
starfsfólki ríkissaksóknara og
öðra fólki sem kemur nálægt
kynferðislegu ofbeldi bama.“
Bragi bendir á að þær verði
með opinn fræðslufund fimmtu-
daginn 4. desember sem hefst
klukkan 20 á Grand hóteli. Þar
munu þær fjalla almennt um
kynferðisofbeldi gegn bömum,
einkenni, meðferð og rannsókn
slíkra mála.“
- Hvaða fagfólk mun eiga að-
ild að íslenska bamahúsinu?
►Bragi Guðbrandsson nam fé-
lagsfræði við háskólann 1 Kant-
araborg í Englandi. Hann var
félagsmálastjóri í Kópavogi frá
árinu 1982-1991 og aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra frá
1991-1995 en þá tók hann við
embætti forstjóra Bamavemd-
arstofu.
Eiginkona Braga er Árdís
Ólafsdóttir og eiga þau þrjú
böm.
„Allir þeir sem að slíkum mál-
um koma frá rannsókn og uns
meðferð og stuðningi lýkur.
Þetta era væntanlega barna-
verndamefndir, lögregla, rflds-
saksóknaraembætti, fulltrúar
rfldslögreglu, Bama- og ung-
lingageðdeild og Bamaspítali
Hringsins."
- Er vinna komin langt á veg
við íslenska bamahúsið?
„Fyrir nokkra var skipaður
undirbúningshópur með fulltrú-
um ofangreindra stofnana til að
vinna að stofnun íslensks bama-
húss. Við höfum þegar auglýst
eftir forstöðumanni og húsnæði
er til reiðu. Af tillitssemi við þau
böm sem þar koma til með að
vera höldum við staðsetningunni
leyndri. Vonir standa til að fljót-
lega eftir áramót verði hægt að
opna bamahúsið formlega.
Þar verður t.d. sérstöku her-
bergi komið upp þar sem rann-
sóknarviðtöl fara fram og komið
verður fyrir upptökubúnaði og
öðram nauðsynlegum tækjum
svo hægt sé að forða bami frá sí-
endurtekinni skýrslugerð. Eins
og málum er háttað núna þarf
bamið að tjá sig við marga áður
en yfir lýkur um atburðinn eða
atburðina.
Þá mun fjölþætt meðferð vera í
boði á þessum stað og stuðningur.
Þau böm sem koma
utan af landi eða geta
ekki verið heima með-
an á rannsókn stendur
munu eiga þess kost
að dvelja hér um
skeið.“
- Hefur aðstaða fyrir böm
sem verða fyrir kynferðisofbeldi
verið bágborin til þessa?
„Það hefur vantað alla heild-
stæða skipulagningu á rannsókn
kynferðislegs ofbeldi gagnvart
börnum. Þó margt gott hafi verið
gert í þessum málum breytir það
ekki því að úrræði hefur skort á
sviði meðferðar og áfallahjálpar
fyrir börnin. Okkur hefur skort
þekkingu á þessu sviði og
reynslu. Hvað rannsókn viðvíkur
hefur okkur skort sérhæfíngu,
sérstaklega á sviði rannsóknar-
viðtala.“
Koma frá
stærsta
barnahúsi
Bandaríkjanna