Morgunblaðið - 28.11.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.11.1997, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Ásgrímur Ágústsson 75 ár frá stofnun Karlakórsins Geysis Gamlir Geysismenn með tónleika Takmarkanir á akstri vöru- bfla um gilið SJÖTÍU og fimm ár eru um þessar mundir liðin frá því Karlakórinn Geysir var stofnaður, hann var stofnaður 20. október 1922 en fyrstu opinberu tónleikar kórsins voru haldnir 1. desember sama ár. f tilefni af þessum tímamótum efna eldri félagar í Karlakórnum Geysi til veglegra tónleika í Akureyrar- kirkju á morgun, laugardaginn 29. nóvember og hefjast þeir kl. 17. Á tónleikunum verður flutt fjölbreytt dagskrá, m.a. syngja þeir Jóhann Már Jóhannsson og Örn Birgisson einsöng og tvísöng og Geysiskvart- ettinn syngur. Kórstjóri er Guð- mundur Þorsteinsson. Fyrstu árin starfaði Karlakórinn Geysir undir stjórn Ingimundar Árnasonar og var starfið þróttmik- Aðventu- kvöld í Bægisár- og Bakka- kirkjum AÐVENTUKVÖLD verður haldið í Bægisárkirkju fyrsta sunnudag í aðventu, 30. nóv- ember, og hefst það kl. 21. Kór kirkjunnar syngur nokk- ur aðventu- og jólalög undir stjóm Birgis Helgasonar org- anista, lesin verður jólasaga auk þess sem fermingarböm flytja helgileik. Ræðumaður kvöldsins verður Heiðdís Norðfjörð. Eftir athöfnina selja fermingarbörnin friðar- ljós frá Hjálparstofnun kirkj- unnar. A fullveldisdaginn, 1. des- ember, verður aðventukvöld í Bakkakirkju og hefst það kl. 21. Dagskrá verður með svip- uðu sniði, ræðumaður verður sóknarpresturinn, séra Torfi Stefánsson Hjaltalín. Norrænn jólamatur NORRÆNA félagið á Akur- eyri heldur , julefrokost" fyrir fólk með norrænar taugar 6. desember næstkomandi kl. 17 á Hótel Akureyri. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 2. desem- ber næstkomandi hjá Alice Zackrisson formanni félagsins eða á Hótel Akureyri. ið á þessum fyrstu árum, farið var í söngferðalög um nágrannabyggðir og tóku menn þátt í söngmótum, settu upp söngleiki og plötur voru hljóðritaðar. Kórinn keypti hús- næði undir starfsemi sína, en það reyndist þungur baggi og var síðar selt og minna húsnæði tekið í notk- un. Fyrsta utanför kórfélaga var farin til Noregs árið 1952, en síðan hafa verið farnar nokkrar fræki- legar söngferðir, m.a. til Englands og ftalíu. Þegar komið var fram yfir árið 1985 var svo komið að söngmönn- um hafði fækkað umtalsvert og Karlakór Akureyrar sem starfað hafði frá árinu 1929 sætti sömu ör- lögum þannig að forsvarsmenn kór- anna sáu þann kost vænstan að SPARISJÓÐUR Norðlendinga opnar afgreiðslu í nýju og glæsilegu 400 fermetra húsnæði á Skipagötu 9 á Akureyri mánudaginn 8. desem- ber nk. Sparisjóður Norðlendinga varð til við samruna Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps og Sparisjóðs Akureyrar og Arnameshrepps sl. sumar. Sparisjóðimir sem sameinuðust í Sparisjóði Norðlendinga hafa starf- að á Akureyri í langan tíma og nær sú saga allt aftur til ársins 1884, að Sparisjóður Amarneshrepps var stofnaður. Báðir sparisjóðirnir eru með afgreiðslur í Brekkugötu 1 og 9. Þeim verður lokað um leið og opnað verður í Skipagötu og hafa húseignir sjóðanna í Brekkugötu verið seldar. Samruni sjóðanna tók gildi 1. júlí sl. og þá tók Sparisjóður Norðlend- inga við allri starfsemi, réttindum og skyldum sjóðanna tveggja. Stofnfé hins nýja sjóðs nam tveimur milljónum króna og skiptist jafnt milli eigenda að stofnfé Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps og Sparisjóðs Akureyrar og Amarneshrepps. Starfsfólki fjölgað Jón Bjömsson, rúmlega þrítugur Akureyringur, hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri og kom hann til starfa 1. september sl. Jón sagði í samtali við Morgunblaðið að allir 15 starfsmenn sjóðanna væru ráðnir áfram. Eftir flutninginn myndi þeim fjölga um einn og gert væri ráð fyr- ir enn frekari fjölgun starfsmanna í nánustu framtíð. „Starfið leggst mjög vel í mig og -þetta er afar spennandi tækifæri sameina kórana og var það gert formlega árið 1990 þegar Karlakór Akureyrar - Geysir var stofnaður. Hópur manna sem starfað hafði í Geysi vildi halda merki hans á lofti og hafa þeir starfað saman undir nafninu Karlakórinn Geysir-eldri félagar, en ganga í daglegu tali undir nafninu Gamlir Geysismenn. Eldri félagar hafa víða farið á liðn- um árum, tekið þátt í söngmótum og efnt til tónleika víða um land auk þess að syngja í Dyflinni á ír- landi. Auk Ingimundar stjómaði Árni Ingimundarson kóraum lengi vel, Pilip Jenkins, Áskell Jónsson, Sig- urður Demetz Franzson, Ragnar Björnsson og Michael Jón Clarke hafa einnig séð um kórstjórn. sem við fáum hér á markaðnum. Nýja húsnæðið er sérlega vel heppnað og vel staðsett og það ríkir spenna meðal starfsfólks. Við finn- um fyrir miklum meðbyr og þetta er eina bankastofnunin sem er í eigu Akureyringa og Eyfirðinga á Akureyri. Við bindum því miklar vonir við að fólk beini til okkar auknum viðskiptum. Sparisjóðirnir í landinu hafa verið að gera mjög góða hluti og við ætlum okkur ekki minni hlut en þeir,“ sagði Jón. Eiginfjárstaða sterk Ekki er endanlega búið að sam- eina ársreikninga sjóðanna, en 30. júní sl. var eigið fé þeirra um 270 milljónir króna. Innlán námu 775 milliónum króna á samtíma 0g,út- TAKMARKANIR á akstri vörubif- reiða um Kaupvangsstræti, Odd- eyrargötu og Spítalaveg hafa tekið gildi, en bæjarstjórn samþykkti um síðustu mánaðamót að takmarka umferð um þessar götur. Felast þessar takmarkanir í því að akstur vörubifreiða með leyfilegri heildar- þyngd meiri en 12 tonn er bannað- ur um þessar götur nema vegna nauðsynlegra flutninga að og frá aðliggjandi hverfum. Umferðar- merki sem gefa þessar takmarkan- ir til kynna verða settar upp á næstunni. Stæðum lokað hluta úr morgni Mjög hefur borið á því að gjald- frí bifreiðastæði austan Skipagötu eru öll orðin upptekin þegar versl- anir eru opnaðar á morgnana, en einkum er það starfsfólk ýmissa fyrirtækja í miðbænum sem leggur bifreiðum sínum á þessum stæðum og standa þær þar allan daginn. lán námu um 696 milljónum króna. „Báðar þessar stofnanir stóðu vel og voru með mjög sterka eiginfjár- stöðu.“ Jón Björnsson er viðskiptafræð- ingur að mennt. Hann hefur starfað sem sölu- og markaðsstjóri hjá inn- anlandsflugi Flugleiða og sem ráð- gjafi hjá Hagvangi. Áður en Jón réðst til starfa hjá Sparisjóði Norð- lendinga vann hann í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Hann er kvæntur Sigrúnu Björk Jakobsdóttur og eiga þau eitt barn. Laugardaginn 6. desember verð- ur afgreiðsla Sparisjóðs Norðlend- inga í Skipagötu opin almenningi milli kl. 12 og 16, þar sem starfsemi sjóðsins verður kynnt og boðið upp á veitingar. Þeir sem erindi eiga í miðbæinn finna því fá laus stæði þar og verða að leggja í útjaðri miðbæjarins. Nú hefur verið ákveðið að gera tilraun í desember, þannig að þess- um stæðum verður lokað á virkum dögum frá kl. 7.45 á morgnana til 10.15, en það er gert í þeirri von að starfsfólk á miðbæjarsvæðinu leggi bifreiðum sínum fjær hjarta mið- bæjarins og skapi þeim sem sækja þurfa þjónustu í miðbæinn mögu- leika á gjaldfríum stæðum í næsta nágrenni við göngugötuna. Einnig má benda á að á miðbæjarsvæðinu eru oftast næg laus gjaldskyld bíla- stæði. Starfsfólki fyrirtækja á miðbæj- arsvæðinu er bent á að nægt pláss er fyrir bifreiðar á svæðinu austan Glerárgötu, sunnan Strandgötu með aðkomu frá gatnamótum Strandgötu og Norðurgötu og er gönguleið að Ráðhústorgi ekki nema um 200 metrar. Fjölskyldu- skemmtun í Alþýðu- húsinu KVENFÉLAG Akureyrarkirkju heldur fjölskylduskemmtun í Ál- þýðuhúsinu sunnudaginn 30. nóv- ember og hefst hún kl. 15. Meðal dagskráratriða er söngur Gerræðiskórsins, Kryddpíur sýna dans, Margrét Sigurðardóttir og Kristín Alfreðsdóttir syngja við undirleik séra Arnar Friðrikssonar og þá verður tískusýning, sýndur verður jólafatnaður frá Kátum krökkum, skinnfatnaður frá Sigríði Sunnevu og fbt frá Tískuverslun Steinunnar og Sportveri. Haukur Ingimarsson leikur á harmóníku. Sýningarfólk er á aldrinum fjögurra til 82 ára. -------------- Vígsluafmæli Hrafna- gilsskóla í ÁR á Hrafnagilsskóli í Eyjafjarð- arsveit 25 ára vígsluafmæli en skól- inn var vígður 3. desember 1972. í tilefni afmælisins verða þema- dagar í skólanum 2.-5. desember nk. og laugardaginn 6. desember verð- ur afmælishátíð í skólanum. Sýning á vinnu nemenda verður opnuð kl. 12.30 og kl. 13.30 hefst afmælisdag- skrá í íþróttahúsi skólans. Að dag- skrá lokinni er gestum boðið að þiggja veitingar. Ibúar Eyjajfarðarsveitar, Sval- barðstrandarhrepps, gamlir nem- endur og aðrir velunnarar skólans eru sérstaklega boðnh- velkomnir. Messur LAUFASPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Svalbarðskirkju kl. 14 á sunnudag, 1. sunnudag í aðventu. Byrjum jólaundir- búninginn á að sækja kirkju. Altarisganga. Fjölskyldur fermingarbarna eru sérstak- lega hvattar til að sækja kirkju þennan dag. Fermingarfræðsla fyrir allt prestakallið verður í Svalbarðskh-kju kl. 11. Kyrrð- ar- og bænastund verður í Grenivíkurkirkju kl. 21 á sunnudagskvöld. Sparisjóður Norðlendinga á Akureyri Opnar afgreiðslu í nýju húsnæði Morgunblaðið/Kristj án JÓN Björnsson, sparisjdðsstjöri Sparisjóðs Norðlendinga, fyrir framan húsnæði stofnunarinnar á Skipagötu 9. Starfsemi sparisjóðsins verður á jarðhæð hússins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.