Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 20
I
20 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997___________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
A fímmta hundrað á námstefnu VIB
VEL á fimmta hundrað manns
sóttu námstefnu sem Verðbréfa-
markaður Islandsbanka stóð fyrir
síðastliðinn miðvikudag. Á nám-
stefnunni var farið yfir stöðuna á
verðbréfamarkaði og möguleikar
í fjárfestingum kynntir einstakl-
ingum.
Að sögn Margrétar Sveinsdótt-
ur, forstöðumanns einstaklings-
þjónustu VÍB, var þetta mun meiri
aðsókn en búist hafði verið við.
„Þetta er allt annað en við áttum
von á og þegar hefur verið ákveð-
ið að halda aðra námstefnu nk.
miðvikudag þar sem færri komust
að en vildu. Þarna var auðvitað
verið að ræða efni sem fólk hefur
áhuga á en í gegnum tíðina hefur
aðsóknin ekki verið svona mikil.
Þetta er hins vegar mjög ánægju-
legt og greinilegt að mikill áhugi
er til staðar."
Margrét segir að þarna hafi
verið saman kominn mjög bland-
aður hópur fjárfesta á öllum aldri.
Mestur áhugi hafi verið á þeirri
þróun sem verið hafi á hlutabréfa-
mörkuðum, bæði hér á landi og
erlendis að undanförnu enda hafi
miklar hræringar verið á þessum
mörkuðum. Þá hafi fólk mikið
verið að velta fyrir sér hvaða
tækifæri væru fyrir hendi í sínum
fjárfestingum. „Kjarninn í okkar
ráðleggingum er að það sé eigna-
skiptingin sem ráði mestu um
árangur í ávöxtun sparifjár. Þar
þarf 'að taka með innlend og er-
lend verðbréf, að sjálfsögðu í
þeim hlutföllum sem henta hverj-
um og einum,“ segir Margrét.
Hún segir að hvað horfurnar á
hlutabréfamarkaði varði þá séu
horfurnar í efnahagslífinu mjög
góðar. Hins vegar eigi ákveðin
hagræðing enn eftir að koma
fram, t.d. hjá þeim fyrirtækjum
sem hafi verið að sameinast á
undanförnum misserum og því sé
gert ráð fyrir að ávöxtun hluta-
bréfa verði ekki alveg jafn góð á
næsta ári og í ár, en þó hugsan-
lega á bilinu 12-15%.
Þá séu horfur á skuldabréfa-
markaði einnig góðar og því
megi reikna með um 6-8% raun-
ávöxtun þar. Ávöxtun á hluta-
bréfamarkaði verði því að líkind-
um nokkru meiri en á skulda-
bréfamarkaði en á móti komi að
áhættan sé mun minni í skulda-
bréfum.
Mest horft á sjón-
varp íBretlandi
Frankfurt. Reuters.
BRETAR horfa meira á sjónvarp
en aðrar Evrópuþjóðir og sitja að
meðaltali í tæplega fjóra tíma á dag
fyrir framan sjónvarpstækið sam-
kvæmt nýrri könnun þýzks ijöl-
miðlamarkaðsfélags, IP Deutsch-
land.
í fyrra horfðu Bretar að jafnaði
í 229 mínútur á sjónvarp á dag, sjö
mínútum lengur en ítalir og Ung-
verjar, þær þjóðir Evrópu sem
horfðu næstmest á sjónvarp.
Þýzkumælandi Svisslendingar
eyddu minnstum tíma fyrir framan
sjónvarpið — 138 mínútum á dag
— og næstir komu Austurríkismenn,
sem horfðu í 141 mínútu. Þjóðverj-
ar horfðu að jafnaði í 195 mínútur.
íþróttir vinsælastar
Áhorf í Bandaríkjunum minnkaði
um nokkrar mínútur í 239 mínútur
í fyrra, en Vestur-Evrópubúar
horfðu á tækið í 200 mínútur að
meðaltali, 5% meir en 1994.
Könnunin var gerð 1996.
íþróttir reyndust vinsælasta sjón-
varpsefnið í Evrópu og horfðu 26%
á slíkt efni, en næst komu skemmti-
efni (24%) og framhaldsmynda-
þættir (19%).
í 17 löndum Evrópu á hvert heim-
ili eitt sjónvarpsviðtæki að meðal-
tali að sögn IP og nú er svo komið
að sama sem enginn munur er á
sjónvarpstækjaeign í Austur- og
Vestur-Evrópu.
Kapal- og gervihnattaþjónusta
hefur aukizt hvarvetna í Evrópu og
í fyrra var þriðja hvert heimili, sem
átti sjónvarpstæki (80,9 milljónir),
tengt kapli eða gervihnetti.
í Hollandi voru flest heimili
kapal- eða gervihnattatengd, eða
99_%, en fæst í Grikklandi (1%) og
á Ítalíu (2%).
Mafían á Wall Street
Daily Telegraph.
ALRÍKISLÖGREGLAN í Banda-
ríkjunum vinnur nú að rannsókn á
umfangi mafíunnar í viðskipta-
hverfinu Wall Street í New York.
Á þriðjudag voru 19 menn hand-
teknir vegna gruns um ólögmætt
verðbréfabrask og eru fimm þeirra
taldir tilheyra glæpasamtökunum.
Ekki er ljóst hversu mikið um-
fang samtökin hafa í viðskipta-
hverfinu. James Kallstrom, yfir-
maður alríkisskrifstofunnar í New
York, segir þó alls ekki koma á
óvart að þau reyni að hreiðra þar
um sig þar sem mafían hafi aldrei
látið möguleika á gróða fram hjá
sér fara.
Mafían er talin starfa í samráði
við ákveðna verðbréfasala sem telja
einstaklinga á að fjárfesta í ákveðn-
um hlutabréfum. Kaupendur eru
síðan þvingaðir til að halda bréfun-
um þar til þau hafa náð ákveðnu
verði. Að sögn Mary Jo White, sem
starfar hjá saksóknara í suðurhluta
New York, var fjölskyldu eins af
fórnarlömbunum hótað hnífstung-
um en öðru haldið út um glugga
þar til það hafði samþykkt skilmála
mafíunnar.
,