Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Astæðurnar að baki óbilgírni Sameinuðu þjóðanna í garð Iraks
Búa enn yfir efna-
og sýklavopnabúri
HINA HÖRÐU deilu íraskra stjórn-
valda við Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
um vopnaeftirlit í landinu og fram-
kvæmd viðskiptabannsins á írak
hefur á undanförnum vikum borið
einna hæst í fjölmiðlum um allan
heim, enda hefur ekki hitnað eins
mikið í kolunum í þessum heims-
hluta frá því stríðinu þar lauk 1991.
írakar halda því fram að Banda-
ríkjamenn ofsæki írak og krefjast
þess að viðskiptabanninu verði af-
létt. En hvaða ástæður liggja að
baki því að Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra leggja svo mikla
áherzlu á að hvergi verði slakað á
klónni hvað varðar refsiaðgerðir
gegji írak, meira en sex árum eftir
að írakar játuðu sig sigraða?
Skýringanna er fyrst og fremst
að leita í viðfangsefni vopnaeftirlits-
manna SÞ, sem hafa því vandasama
hlutverki að gegna að leita að og
eyðileggja gereyðingavopnabúr
Saddams Husseins. Öryggisráð SÞ
kemur reglulega saman til þess að
meta hvort írakar hafi uppfyllt skii-
mála ályktana ráðsins, sem leggur
írökum þær skyldur á herðar að
hætta framleiðslu á og eyða öllum
gereyðingarvopnum, þ.e. kjarn-
orku-, efna- og sýklavopnum, sem
þeir hafa yfir að ráða. Fyrr verður
viðskiptabanninu ekki aflétt.
Og þrátt fyrir að vopnaeftirlits-
mennimir hafi verið að verki í um
sex ár hafa þeir enn ekki séð ástæðu
til að gefa til kynna að óhætt sé að
slaka á banninu; Saddam Hussein
og fylgismenn hans hafa ekki enn
látið af tilraunum sínum til að við-
halda og byggja upp vopnabúr sem
væri hægt áð eyða heilu borgunum
með.
Aðspurður um þetta sagði Walter
Douglas, talsmaður bandaríska
sendiráðsins í Reykjavík, að „eins
lengi og Saddam Hussein býr yfir
efna- og sýklavopnum er hann ógn
við sinn heimshluta. Hann er líka ógn
við afganginn af heimsbyggðinni,
sem er háð hráefnum frá svæðinu.
Astæðumar fyrir því að við fómm í
stríð við Saddam Hussein 1990-1991
eru þær sömu og eru fyrir því að við
viljum viðhalda til hins ýtrasta refsi-
aðgerðum gegn honum. Við viljum
tryggja að hann geti ekki efnt til nýs
ófriðar." Douglas sagði Madeleine
Albright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hafa svarað sömu spum-
ingu á þá leið að hennar hlutverk
væri að sjá til þess að ekki þyrfti að
endurtaka þetta stríð.
„Niður Ameríka"
Skilaboðin sem vopnaeftirlits-
menn Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
fengu við komu sína til Baghdad um
síðustu helgi voru skýr. Stómm stöf-
um var málað á vegg á flugvellinum
„Niður Ameríka". Eftirlitsmennimir
75 - fjórir þeirra Bandaríkjamenn
- voru komnir aftur til íraks, en
þeir voru jafnóvelkomnir og áður.
Og ekkert benti til að þeir myndu
eiga auðveldara með að sinna sínu
vandasama hlutverki.
Eftir þriggja vikna fjarveru stóðu
eftirlitsmennirnir frammi fyrir erf-
iðri spurningu: Hvað höfðu menn
Saddams Husseins gert á þessum
þremur vikum? Augljóst var að þeir
höfðu byrgt fyrir linsur eftirlits-
myndavéla og flutt til búnað sem
vel hafði verið fylgzt með þar sem
hann gæti nýtzt til vígbúnaðar.
Nokkrir eftirlitsmannanna óttast
að írakar hafi notað tímann til að
framleiða meira af eitur- eða sýkla-
vopnum til að bæta á leyniíegar
vopnabirgðir sínar.
Leitin mun í fyrstu beinast að því
sem írakar gætu hafa reynt að fela
á hinu eftirlitslausa tímabili. Þá snúa
eftirlitsmennirnir sér aftur að því
að reyna að fá aðgang að stöðum
þar sem grunur hefur leikið á því
að leynilegar vopnageymslur sé að
finna en Irakar hafa ítrekað hindrað
aðgang að.
Mestum áhyggjum valda eftirlits-
mönnunum vopnabúr með efna- og
sýkiavopnum sem þeir eru sann-
færðir um að Saddam Hussein haldi
leyndum einhvers staðar. Sýklavopn
á borð við anthrax og botulinum eru
svo bráðbanvæn, en einfalt er að
framleiða þau og geyma á leyndum
stað, að eftirlitsmennirnir eru ekki
tilbúnir að taka orð íraka trúanleg
þegar þeir segjast hafa eytt öllum
slíkum birgðum, einkum þar sem
sérfræðingar einræðisherrans héldu
því áður statt og stöðugt fram að
þeir hefðu aldrei búið yfír slíkum
vopnum.
SÝKLAVOPNABÚR
SADDAMS
Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu
þjóðanna hafa írakar gengist við því að
framleiða sýklavopn í því magni sem
getið er hér að neðan. Óljóst er hve
miklu hefur verið eytt og eftirlitsmenn
SÞhaldaað magnið sémunmeira.
BOTULINUM 19.000 lítrar
Kæfir með því að lama lungun.
Tegund og fjöldi burðarvopna:
100 sprengjur, 16 eldflaugaoddar
ANTHRAX 8.500 lítrar
Mjög banvænt við innöndun gróa
Tegund og fjöldi burðarvopna:
50 sprengjur, 5 eldflaugaoddar
AFLAT0XÍN 2.200 litrar
Veldur lifrarkrabbameini
Tegund og fjöldi burðarvopna:
7 sprengjur, 4 eldflaugaoddar
CLOSTRIDUM PERFRINGENS
340 litrar
Veldur rotnun holds
Tegund og fjöldi burðarvopna: Óþekkt.
RICIN 10 lítrar
Veldur hægfara dauðdaga með því að
blóðrásin stöðvast
Tegund og fjöldi burðarvopna:
Óþekkt magn 15 mm fallbyssukúlna.
Klofningur
innan Isra-
elsstjórnar
Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, sagðist í gær
tilbúinn að láta Palestínumönnum
eftir aukin landsvæði á Vestur-
bakkanum gegn því að þeir hertu
aðgerðir gegn hryðjuverkastarf-
semi. Netanyahu sagði tilboðið
m.a. fela í sér að gengið yrði beint
til lokaviðræðna um yfirráð á
svæðinu.
Þá lýsti Meir Sheetrit, þing-
flokksformaður Likud-bandalags-
ins, því yfir á miðvikudag að hann
væri hlynntur viðræðum um stofn-
un palestínsks ríkis.
Sheetrit sagði óhjákvæmilegt að
palestínskt ríki yrði stofnað fyrr
eða síðar og mikilvægt væri að
Likud-bandalagið hefði frumkvæði
að stofnun þess svo tryggt yrði
að hagsmunamál þess yrðu höfð
til hliðsjónar. Að sögn The Jerusal-
em Post tók hann þó skýrt fram
að þyrfti hann að velja á milli frið-
ar og fullra yfirráða yfir Jerú-
salemborg veldi hann Jerúsalem.
Harðlínumenn innan Likud brugð-
ust ókvæða við ummælum Sheetr-
its.
Þrýstingur frá
Bandaríkjasfjórn
Mikil reiði greip um sig meðal
harðlínumanna í stjóm Netanyahus
er fréttir bárust af því fyrr í vik-
unni að hann hygðist bjóða Palest-
ínumönnum frekara land og hótuðu
nokkrir ráðherra hans að ijúfa
stjómarsamstarfið ef af því yrði.
Netanyahu, sem hefur verið und-
ir miklum þrýstingi frá Bandaríkja-
stjórn um að liðka fyrir frekari frið-
arviðræðum við Palestínumenn.
Reuters
Fjöldamorð verði
rannsökuð
Hindraði ANC morðákæru
á hendur Winnie Mandela?
AFGANSKIR stjórnarandstæð-
ingar við eina af fjöldagröfum
skammt frá bænum Shibargan.
Talið er að þar sé að finna leifar
um 2.000 liðsmanna Talebana
sem drepnir voru eftir að hafa
verið teknir til fanga í maí sl.
Abdul Rashid Dostum, foringi
VALDABARATTA á sér nú stað
milli tveggja fylkinga öfgasamtak-
anna Hinn vopnaði flokkur íslams
(GIA) í Alsír og samkvæmt fréttum
dagblaðsins Le Matin hyggjast
liðsmenn fylkinganna fremja
fjöldamorð á óbreyttum borgurum
til að sanna styrk sinn.
Baráttan stendur um völd í Fra-
is-Vaiion hverfi f Algeirsborg en
stjórnarherinn lokaði hverfinu í
einna samtaka stjórnarandstæð-
inga, kennir pólitískum andstæð-
ingi sínum, Abdul Malik, og
sveitum hans um morðin. Bæði
Dostum og leiðtogar Talebana
hafa óskað eftir því að Samein-
uðu þjóðirnar (SÞ) rannsaki
málið.
gær að ósk íbúa þess.
Rúmlega 65.000 manns hafa
fallið í átökunum í Alsír frá 1992.
Stjórnvöld hafa alla tíð kennt bók-
stafstrúarmönnum um þá ofbeldis-
öldu sem gengið hefur yfir landið
á undanförnum árum en mannrétt-
indasamtök segja æ fleira benda
til að ofbeldisverk séu framin í
skjóli eða að undirlagi stjórnar-
hersins.
YFIRHEYRSLUR sannleiks-
nefndarinnar svokölluðu í Suður-
Afríku vegna máls Winnie Mad-
ikizela-Mandela, fyrrverandi eig-
inkonu Nelsons Mandela forseta,
hafa vakið spurningar um hvers
vegna hún hefur ekki verið ákærð
fyrir morð og hvort Afríska þjóðar-
ráðið (ANC) hafi reynt að hindra
það.
Vitni sem hafa komið fyrir
sannleiksnefndina hafa sakað
Winnie Mandela um að bera
ábyrgð á að minnsta kosti sex
morðum og hrottalegum barsmíð-
um lífvarða hennar á ungum
blökkumönnum á síðasta áratug.
Jerry Richardson, foringi lífvarð-
anna, var dæmdur til dauða fyrir
að myrða eitt fórnarlambanna,
Stompie Seipei, 14 ára dreng, en
dómnum var síðar breytt í lífstíð-
arfangelsi. Winnie Mandela var
hins vegar aðeins ákærð fyrir
mannrán.
Nokkur vitna sannleiksnefndar-
innar hafa sagt að Winnie Mand-
ela hafi sjálf tekið þátt í barsmíð-
um lífvarðanna á ungum blökku-
mönnum á heimili hennar í Sow-
eto, útborg Jóhannesarborgar.
Eitt vitnana, Katiza Cebukhulu,
sem hefur búið í Bretlandi, sagðist
hafa séð Winnie Mandela stinga
Seipei til bana með skærum. Sá
vitnisburður vekur spurningar um
hvers vegna hún var ekki ákærð
fyrir morð þegar mál hennar og
lífvarðanna var tekið upp í dóms-
kerfinu fyrir sex árum.
Vill verða varaforseti
Winnie Mandela átti sæti í
framkvæmdastjórn ANC en lét af
öllum störfum sínum innan flokks-
ins áður en réttarhöldin hófust.
Hún sneri þó aftur í desember
1993 þegar hún var kjörin forseti
kvennadeildar flokksins. Hún var
kjörin á þing í fyrstu kosningunum
eftir afnám aðskilnaðarstefnunnar
í apríl 1994 og var skipuð aðstoð-
arráðherra lista, menningar, vís-
inda og tækni. Nelson Mandela
vék henni síðan úr stjórninni tæpu
ári síðar vegna gagnrýni hennar
á stjórnina.
Winnie nýtur enn mikilla vin-
sælda meðal fátækra blökku-
manna og herskárra félaga í Afr-
íska þjóðarráðinu og stefnir nú að
því að verða kjörin varaformaður
ANC á flokksþingi í desember.
Líklegt er að varaformaðurinn
verði varaforseti Suður-Afríku
árið 1999 þegar Nelson Mandela
lætur af embætti forseta.
Sakaðir um
yfirhylmingu
Lundúnablaðið The Times segir
í forystugrein að Cebukhulu hafi
stefnt lífi sínu í verulega hættu
með því að snúa aftur til Jóhann-
esarborgar og saka Winnie Mand-
ela um morð. Blaðið sakar einnig
forystumenn Afríska þjóðarráðs-
ins um að hafa hindrað að Cebukh-
ulu vitnaði gegn Winnie Mandela
þegar mál hennar var tekið upp í
dómskerfinu.
„Nokkrir háttsettir félagar í
ANC virðast vera viðriðnir sam-
særi um að nema Cebukhulu burt
með leynd til Zambíu. Frú Mand-
ela var því aðeins ákærð fyrir
mannrán og komst að lokum hjá
fangelsisdómi. Nokkrir þeirra, sem
reyndu að hindra framgang rétt-
vísinnar þá, eiga sæti í ríkisstjórn-
inni nú.“
The Times bætir við að óljóst
sé hvers vegna sannleiksnefndin
tekur málið upp nú, en hún var
stofnuð til að rannsaka mannrétt-
indabrot og pólitíska glæpi sem
framdir voru á tímum aðskilnaðar-
stefnunnar. „Dráp á börnum eru
yfirleitt álitin sakamál sem dóm-
stólar eiga að fjalla um. Nefndin
hefur umboð til að senda lögregl-
unni ákveðnar tillögur. Tutu erki-
biskup [formaður nefndarinnar]
ætti að óska eftir nýjum réttar-
höldurn."
Blaðið telur mjög ólíklegt að
Winnie Mandela verði ákærð fyrir
morð, þar sem það þjóni ekki hags-
munum forystumanna ANC. Þeir
vilji hins vegar fyrir alla muni
koma í veg fyrir að hún verði vara-
formaður flokksins og síðar vara-
forseti landsins og noti því sann-
leiksnefndina til að grafa undan
henni.
„Þessu pólitíska markmiði fylgir
ekki ástríðufull réttlætiskennd,"
segir The Times og bætir við að
verði Winnie Mandela leidd fyrir
rétt megi búast við mörgum spurn-
ingum sem geti komið forystu
Afríska þjóðarráðsins illa. „Hversu
mikið vissi forysta ANC um
meinta ógnarstjóm hennar I Sow-
eto? Hver ákvað að hún ætti að
komast hjá fangelsisdómi fyrir sex
ámm? ANC vill að Frú Mandela
tapi í næsta mánuði og hverfi síð-
an af vettvangi stjórnmálanna.
Óvíst er að þeir nái fýrmefnda
markmiðinu og mjög ólíklegt er
að seinni draumurinn rætist.“
Blóðug átök yfirvofandi
París. Reuters