Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 25 ERLEIMT Lögreglustjóri Washington D.C. hrökklast frá Konameð hreinan skjöld tekurvið Washington. Daily Telegraph. Reuters Valtað yfir svikna vöru SONYA Proctor, 43 ára blökku- kona, hefur verið sett yfirmaður lögreglunnar í bandarísku höfuð- borginni, Washington D.C. Er henni ætlað að koma á röð og reglu í kjölfar spillingarmála en borgarbúar lifa í ótta um að of- beldi fari þar vaxandi þrátt fyrir að morðum hafi fækkað. Proctor er fyrsta konan sem gerð er að yfirmanni borgarlög- reglunnar í Washington. Hún þykir hafa hreinan skjöld og er búist við því að hún gangi hart fram í því að uppræta spillingu. Hún tekur við af Larry Soulsby sem neyddist til að segja af sér í fyrradag eftir að upp komst að hann leigði lúxusíbúð og greiddi aðeins þriðjung af eðlilegri leigu og deildi henni með undirmanni, Jeff Stowe, sem kærður hefur verið fyrir að kúga peninga út úr kvæntum mönnum sem stund- uðu vinsælan hommabar, Follies Theater. Bjó með fjárkúgara Stowe var yfir þeirri deild lög- reglunnar sem rannsakaði fjár- kúgunarmál en leiddist sjálfur út í iðju af því tagi. Notaði hann myndir, sem teknar voru á barn- um, til að kúga fé út úr viðkom- andi, m.a. með því að hóta þeim að þær yrðu sendar eiginkonum þeirra ef þeir ekki borguðu. Biekkti Stowe einnig eiganda lúxusíbúðarinnar til þess að leigja sér íbúðina á innan við hálfvirði á þeirri forsendu að hún yrði notuð undir leynilega lögreglustarfsemi. Skiptu Stowe og Soulsby leigunni, 650 dollurum á mánuði, á milli sín en þeir hafa verið góðir vinir og deildu íbúðinni. Báðir eru nýskildir við eiginkonur sínar. Aðrir leigj- endur í húsinu, þeirra á meðal Janet Reno dómsmálaráðherra, borga 1.700 til 2.500 dollara á mánuði fyrir sambærilegar íbúðir. Konur eru í auknum mæli fengnar til þess að koma skikk á málin í Bandaríkjunum er spilltir lögregluforingjar hafa neyðst til að segja af sér sakir hvers kyns hneykslismála. Misjafnt er hversu vel þær hafa enst í starfi. Proctor gerir tilkall til þess að hljóta fasta skipun en hún hefur starfað í lög- reglu borgarinnar í 24 ár. Ólíklegt er þó að hún gegni starfinu nema til bráðabirgða, því nýskipaðir til- sjónarmenn með fjármálum höfuð- borgarinnar, sem eru í slæmu ástandi, vilja að utanaðkomandi maður verði skipaður lögreglu- stjóri. Líklegastur til að hljóta stöðuna þykir Willie Williams, 54 ára blökkumaður sem var lög- reglustjóri Los Angeles þar til hann missti starfið fyrir hálfu áru eftir að hafa orðið fórnarlamb pólitískrar valdabaráttu. Morðum fækkar Morðum hefur fækkað frá fyrra ári, eru 271 það sem af er ári eða 95 færri en á sama tíma í fyrra. Áhyggjum veldur hins vegar að enn hefur lögreglunni ekki tekist að upplýsa nema tæpan helming þeirra. Óttast er að raðmorðingi gangi laus því fimm konur hafa verið myrtar í sama hverfi með stuttu millibili. LÖGREGLAN í Bangkok notaði valtara til þess að eyðileggja ókjörin öll af eftirlíkingum er- lendrar merkjavöru sem fram- leidd var í leynilegum verk- smiðjum í Thailandi. Var þar um að ræða myndbönd, tón- bönd, geisladiska, fatnað, úr o.fl. en talið var að verðmæti fengsins hafi verið 12 milljónir bat, eðajafnvirði 21 milljónar króna. Evans hættir hjá Random House New York. Reuters. HAROLD Evans, fyrrverandi rit- stjóri The Sunday Times og The Times í Bretlandi, hefur látið af störfum hjá bandaríska útgáfufyr- irtækinu Random House, en orð- rómur er á kreiki í New York um að dagar hans hjá fýrirtækinu hefðu brátt verið taldir. Eigandi Random House, Si Newhouse, hækkaði nýlega Ann Godoff í tign og gerði hana að aðalritstjóra, en þeirri stöðu hafði Evans gegnt. Þá þótti sýnt að Evans ætti ekki framtíðina fyrir sér í fyrirtækinu. Halla fór undan fæti hjá Evans er hann keypti útgáfuréttinn að endurminningum Dick Morris fyrir tvær og hálfa milljón dala, en þeg- ar til kom seldist bókin mjög illa. Morris var ráðgjafi Biils Clintons, Bandaríkjaforseta, en var síðar bendlaður við vændiskonu og kaupin á útgáfuréttinum að endur- minningum hans urðu ákaflega umdeild á siðferðisforsendum. Alnæmis- smitað blóð í eiturlyf Genf. Reuters. EIN ástæða þess að alnæmi breiðist út með ógnarhraða í A-Evrópu og fyrrum Sovétlýð- veldum kann að vera sú að framleiðendur eiturlyfja nota alnæmissmitað blóð í þau. Þetta kom fram hjá sér- fræðingum Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar. Telja þeir illmögulegt að hafa hendur í hári framleiðendanna til að upplýsa þá um hættuna sem af þessu hiýst. MEÐAN BlfíGÐIR ENDAST Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld. NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP. ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.