Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fótboltamenn gefnir Lista- safni Sigurjóns Olafssonar LISTASAFN Sigurjóns Ólafssonar hlaut nýverið að gjöf frummyndina að höggmyndinni Fótboltamenn sem listamaðurinn gerði árið 1936. Gefendur eru hjónin Guðrún og Ólafur Ó. Johnson. Frummyndin, sem er úr gipsi, verður innan tíðar steypt í brons og væntanlega sýnd í safninu sumarið 1998. A Kaupmannahafnarárum sínum gerði Sigurjón Ólafsson þrjú verk um knattspyrnumenn. Stærst þess- ara verka, Fótbpltamaður, er nú í eigu Listasafns íslands, Markmað- ur er í eigu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, en lengi vel var ekki vit- að hvar verkið Fótboltamenn var niðurkomið. Frummyndin hafði ver- ið sýnd í tvígang í Danmörku árið 1937, en síðan seld óþekktum einka- aðila. Það var ekki fyrr en árið 1991, eftir að auglýst hafði verið eftir verkum Sigurjóns í Danmörku, að danskur arkitekt, Svend Albinus, gaf sig fram. Hafði hann keypt frummyndina af Sigurjóni seint á fjórða áratugnum. Vorið 1997 var verkið flutt til ís- lands, þar sem hjónin Guðrún og Ólafur Johnson festu kaup á því og færðu Listasafni Sigurjóns Ólafs- sonar að gjöf. Nú fer einnig í hönd merldsár fyrir Listasafn Sigurjóns Ólafsson- ar, því haustið 1998 verða 10 ár liðin frá vígslu þess og 90 ár liðin frá fæðingu Sigurjóns. Verður þessara tímamóta minnst með útgáfu bókar um líf og list Sigurjóns og stórri yf- irlitssýningu á verkum hans bæði í safnbyggingunni á Laugamesi og í Hafnarborg, lista- og menningar- stofnun Hafnarfjarðar. SIGURJÓN Ólafsson - Fótboltamenn, 1936, gips. WŒLAM i e SCITITRESMIÐAVELAR 20 ár á Islandi í tilefni af 20 ára árangursríkri samvinnu hafa SCM Group spa og IÐNVÉLAR HF. ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum mest seldu vélarnar úr SCM- Iðnaðarlfnunni og úr MINIMAX- lín- unni fyrír minni fyrirtæki og skóla á sérstoku tilboðsverði. fcscm SAM BYGGÐAR VÉLAR Bandslípivélar Fræsarar Hjólsagir o.fl. PLÖTUSÖG, Sl 320 Afréttari, F410 Pykktarhefill, S520 Fræsari, T130 SCM Group spa IÐNVÉLAR HF. Stærsti framleioandi Stærsta vélasala landsins heims á trésmíðavélum Einkaumboð á Islandi fyrir SCM Group spa Ath! sölustjóri SCM verður til viðtals 2.-5. des. Vinsamlegast pantið tíma. Hvaleyrarbraut 18 - 24 - 220 Hafnarfirði Sími 565 5055 - Fax 565 5056 Pétur kynnir disk sinn í Fasching Pétur Östlund djasstrommuleikari hefur sent frá sér geisladisk sem gagnrýnandi Orkester Journal segir heilsteyptustu djassplötu áratugarins. I samtali við Guðjón Guðmundsson segir Pétur frá nýja disknum og djasslífi sínu í Svíþjóð. PÉTUR Östlund trommuleikari hefur sent frá sér sinn fyrsta geisladisk undir eigin nafni. Disk- urinn nefnist Power Flower og hef- ur hann fengið afar lofsamlegan dóm í Orkester Journal í Svíþjóð. Pétur á að baki 40 ára feril sem djasstrommari og hefur leikið með mörgum af þekktustu djasstónhst- armönnum sögunnar. Á Power Flower leika með Pétri Eyþór Gunnarsson píanó, Þórður Högna- son, bassi og tenórsaxófónleikarinn Frederik Ljungkvist. Á efnis- skránni eru lög eftir Pétur og nokkur þekkt djasslög. Það er Jazzís á Islandi sem gefur diskinn út. Pétur hefur búið um árabil í Sví- þjóð. Hann er eftirsóttur trommu- leikari þar í landi og stundar tón- listarkennslu meðfram spila- mennsku. Pétur sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann væri að sjálf- sögðu ánægður að vera loksins bú- inn að gefa út disk undir eigin nafni þótt það hafí ekki verið sér neitt sérstakt keppikefli. Engir tónleikar eru ráðgerðir í kringum útgáfuna til kynningar að öðru leyti en að tónleikar verða á djass- klúbbnum Fasching í Stokkhólmi næstkomandi þriðjudag. Þar leika með Pétri Frederik Ljungkvist á saxófón, Daniel Karlson á píanó og bassaleikarinn Yoshuhido Mori sem Pétur segir að sé eftirlætis bassaleikarinn sinn í Svíþjóð. Mori lék með Pétri hér á landi í hljóm- sveit Sigurðar Flosasonar fyrir nokkrum misserum. Ein heilsteyptasta djassplata áratugarins Pétur segir að nýlega sé búið að dreifa disknum til fjölmiðla í Sví- þjóð og þegar hefur birst umfjöllun í Orkester Journal, tímariti hljóm- listarmanna í Svíþjóð. Þar fékk diskurinn afar lofsamlega dóma. Gagnrýnandinn, Albrecht von Konow, segir í lok greinarinnar að Guðmimdm Rapi GeiM Úr hinni væntanlegu bók minni: „Það er mismunandi hvað menn ræða um þegar þeir ræða um fyrir- myndarþjóðfélag. Það sem þáttak- endurnir á ráðstefnunni árið 1996 ...sögðu var einkum það að hér vaeri enginn her, og að strið hafi ekki verið háð á landsmælikvarða allt frá landnámi. Deilur hafi verið leystar á friðsamlegan hátt, til dæmis þegar kristni var tekin upp á Þingvöllum áriö 1000.“ Power Flower sé tvímælalaust ein af heilsteyptustu djassplötunum á þessum áratug. Pétur segist ekki vita til þess að hann sé á leiðinni til íslands til að spila á næstunni. „Það var talað um að ég kæmi heim vegna útgáfunnar en það verður ekkert af því. Annars geng- ur lífið vel í Svíþjóð og ég hef haft nóg að gera á þessu ári. Þetta er svolítið upp og niður og var t.d. fátt um verkefni í fyrra. í sumar var ég með sextett, básúnu, trompet, ten- ór- og altsaxófón og bassa. Við spil- uðum m.a. lag af Power Flower en að öðru leyti hef ég ekki verið að spila þetta efni. Á þriðjudag verða hins vegar fyrstu tónleikamir með sænska upplaginu af Power Flower,“ sagði Pétur. Hann segir að það breyti litlu þótt skipt sé um hljóðfæraleikara. Sumt af efni plötunnar er skrifað og þá breytist ekki annað en im- próviseringar. „Það gerist hvort eð er þótt sömu hljóðfæraleikaramir séu til staðar. Við Frederik eram líka með það nokkuð á hreinu hvemig þetta eigi að hljóma og ég hugsa að hinir fylgi okkur bara. Þetta em líka fín- ir spilarar og ég held að tónleik- arnir í Fasching verði ekki lakari en þeir í Múlanum í fyrra.“ Með sveit Reds Mitchell Pétur starfar einnig nokkuð með Joakim Miller sem hann segir að sé eftirtektarverðasti djassleikar- inn af ungu kynslóðinni í Svíþjóð. Djassklúbburinn Fasching fagnar 20 ára afmæli í vikunni og verður margt um dýrðir í tilefni af því. Núna um helgina leikur Pétur með Communicational, gömlu hljóm- sveit bassaleikarans sáluga Reds Mitchell sem Pétur lék með á sín- um tíma. - kjarni raálsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.