Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 35
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
„ÞETTA eru ekki skór frekar en pípan hans Magritte er pípa.“
Guðjón Ketilsson opnar sýningu sína í Nýlistasafninu á morgun.
Þetta eru ekki skór
GUÐJÓN Ketilsson opnar sýn-
ingu á verkum sínum í neðri
sölum Nýlistasafnsins á morg-
un, laugardaginn 29. nóvem-
ber, kl. 16. A sýningunni eru
skúlptúrar og Iágmyndir að
stærstum hluta unnin í tré en
einnig mósaík.
Elsta verkið á sýningunni
er 5 ára gamalt og nefnist
Staðgenglar. Pússuð og gljá
fægð svört skópör úr tré
standa í röð eftir endilöngum
veggnum í forsal. Titillinn vís-
ar til einhvers sem einu sinni
var. „Þetta eru ekki skór frek-
ar en pípan hans Magritte er
pípa. Með titlinum er ég líka
að vísa til afgangsins af fígúr-
unni,“ segir Guðjón. Skópörin
gegna hlutverki rósarblaða í
skórós með gyllingu í knúppin-
um. Áttstrendingurinn kemur
aftur fyrir í óhlutbundnum
skúlptúrum. Samruni ólíkra
geómetrískra forma minnir
um leið á einhvern óskilgreind-
an hluta úr húsgagni. Verk
Guðjóns standa á mörkum hins
hlutbundna og óhlutbundna og
nú sem áður kýs hann að
blanda saman þessum tveimur
heimum í von um að standa
utan við skilgreiningarnar.
í sýningarskrá með síðustu
einkasýningu Guðjóns í Nor-
ræna húsinu í fyrra ritar Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingur.
Þar segir hann að í öllum tré-
skúlptúrum Guðjóns eigi sér
stað mjög eindregin hlut-
gerving hins óhlutlæga, hug-
mynda og kennda en umfram
allt timans. Aðalsteinn vitnar í
orð Kristjáns Karlssonar og
segir að áhrifamáttur verka
Guðjóns sé af skáldlegum toga
og stafi af ótvíræðum hæfileika
listamannsins til að „hugsa á
jákvæðan hátt í mótsögnum“.
Handverkið skipar stóran
sess í verkum listamannsins og
Guðjón vinnur hægt og af mik-
illi nákvæmni við hvert smáat-
riði. Tréskóna pússar hann nið-
ur og þekur yfirborðið graníti
og málningu, óljósri að lit og
í mörgum lögum. „Það að ég
skuli vinna svo mikið í tré
fremur en önnur efni hefur
ekkert tilfinningagildi í sjálfu
sér, þetta er bara efni sem ég
kann að vinna með. Reyndar
nýtur útlit trésins sín best í
verki þar sem ég notast við
gervivið.“ Á gulleitum gervi-
viðardregli í Gryfju standa
tvennir skór úr mósaík, hvorir
við sinn endann. Guðjón segir
að þar hafi efnið sjálft beina
þýðingu þar sem örsmá mósa-
íkbrotin myndi eina heild. Auk
þess vísi mósaíkið til listasög-
unnar og fortíðarinnar. Hann
er alltaf spar á liti, segist fylgja
ákveðinni tilfinningu og vona
að hún skili sér til áhorfand-
ans. Tengslum verkanna sé
kannski best lýst sem sjónrænu
samspili.
Stutt- og
heimilda-
myndasýning
NORRÆNA stutt- og heimilda-
myndahátiðin Nordisk Panorama,
var haldin í Helsinki í október sl.
og ætlar Filmkontakt Nord á ís-
landi að sýna verðlaunamyndir há-
tíðarinnar í samvinnu við Norræna
húsið á laugardag. Af þessu tilefni
verður heimildarmynd Ólafs Rögn-
valdssonar, Frambjóðandinn, um
Guðrúnu Pétursdóttur forsetafram-
bjóðanda sýnd kl. 13.
Sænsk heimildarmynd sem vann
1. verðlaun NP ’97, Vision Man,
eftir William Long verður sýnd kl.
14. Svensk Roulette eftir Anders
Gustafsson fékk stuttmyndaverð-
launin, sýnd kl. 15.15. Að auki
gefst gestum kostur á að sjá
sænsku heimildarmyndina Their
Frozen Dream eftir Jan Troell kl.
16 ef næg þátttaka fæst.
Aðffaneiir er ókevDÍs.
Skemmtidagskrá
við sýningarlok
í TILEFNI sýningarloka sölusýn-
ingarinnar SELLOUT, Baldur
Helgason og Birgitta Jónsdóttir, í
gallríi Horninu, ætla þau að bjóða
upp á skemmtidagskrá á sunnu-
dagskvöld kl. 21. Þar verður upp-
lestur þekktra og minna þekktra
skálda, tónlist, söngur og eitthvað
fyrir augað. Aðgangur er ókeypis.
----------» ♦ 4---
Opið hús á vinnu-
stofu Aðalbjargar
OPIÐ hús verður á vinnustofu Aðal-
bjargar Erlendsdóttur fatahönnuð-
ar, Nýlendugötu 13 (bakhús),
laugardaginn 29. október, frá kl.
13-18.
Þar verður til sýnis og sölu hand-
málað silki í ýmsu formi s.s. slæð-
ur, púðar og myndir. Vinnustofan
verður síðan opin allan laugardaga
í desember á sama tíma og eftir
samkomulaeri.
Af Stellu töffara
BÓKMENNTIR
Skáldsaga
MORÐIÐ í
STJÓRNARRÁÐINU
eftir Stellu Blómkvist
Utg. Mál og menning
1997. 233 bls.
STELLA Blómkvist er harðsoð-
inn lögfræðingur sem gengur hart
fram í því að kaupa skuldir og ann-
ast um alls konar smákrimma. Hún
gengur líka upp í því að segja helst
ekki heila setningu, hvorki við sjálfa
sig né aðra án þess að láta nokkur
vel valin blótsyrði og önnur kjarna-
orð fylgja með. Hún er feiknalega
illa liðin vegna þess hve harðsvíruð
hún er en ekki virðist það valda
henni hugarangri. Nema þvert á
móti.
Hún er kvödd til sem réttar-
gæslumaður Sæma súlu því það
hefur verið framið morð í stjórnar-
ráðinu, hvorki meira né minna.
Fórnarlambið er Halla, ung og fög-
ur kona á uppleið sem hefur ekki
beinlínis verið vönd að meðulum við
að koma sér áfram. Heyrst hafði
mikil rimma milli hennar og Sæma
á morðdaginn en hann var einn af
mörgum elskhugum hennar og ligg-
ur beinast við að ætla að hann hafi
framið verknaðinn.
Fer nú í gang hröð og atburða-
rík rás þar sem Stella er vitanlega
aðalhetjan. Við sögu koma spilltir
stjómmálamenn, klámhundar og
meira og minna bjálfalegir lög-
reglumenn. Vinkona Höllu, Lilja,
er og leidd til sögunnar og eftir
nokkurn tíma virðist eins konar
traust myndast milli hennar og
Stellu.
Ekki er hægt að kvarta undan
því að lognmolla ríki á síðum bók-
arinnar. Það er sýknt og heilagt
verið að bijótast inn í íbúð Höllu,
sem vinkonan Lilja hefur raunar
erft, undarlegur maður kemur bréfi
til Stellu þar sem ýmsar vísbending-
ar eru gefnar sem gætu bent til
að morðið tengist spilltum stjórn-
málamönnum. Stellu sjálfri er rænt
meðan brotist er inn í íbúð hennar,
o.s.frv.
Auðvitað er það svo hin snjalla
Stella sem að lokum verður fyrir
árás morðingjans og lýkur svo þess-
ari sögu - og Stella lifir af og
væntanlega fær morðinginn makleg
málagjöld.
Og hvað á svo að segja um svona
sögu? Hún er of hrá til að hægt sé
að kalla hana verulega afþreyingu.
Stella er of einlit til að vekja áhuga
og hún verður ósköp þreytandi í
þessum töffaraskap.
Höfundarnafnið er vitanlega dul-
nefni og skal engum getum að því
leitt hver skýlir sér þar. Það er ugg-
laust ekki viðvaningur á ritvelli því
kunnáttusamlega er á penna haldið.
Höfundurinn býr til sniðugt „plott“
og með því að vanda sig ívið meira
og sýna virðingu þeirri merku bók-
menntagrein sem góðar sakamála-
sögur eru er ekki hægt að segja
annað en efniviðurinn sem upp er
lagt með sé mæta vel boðlegur.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Afmælisveisla
BÓKMENNTIR
Skáldsaga
HOBBITINN
eftir J.R.R. Tolkien, myndskreytíng
eftír Alan Lee, Þorsteinn Thoraren-
sen íslenskaði. Útgefandi: Fjölva út-
gáfan. Reykjavík 1997.304 síður.
HOBBITINN eftir J.R.R. Tolkien
kemur nú út i annað sinn á íslandi
í nýrri þýðingu Þorsteins Thorar-
ensen. Bókin kom fyrst út árið 1978
í þýðingu Úlfs Þ. Ragnarssonar og
Karls Ágústs Úlfssonar. Tilefni út-
gáfunnar að þessu sinni er sextíu
ára afmæli verksins og er íslenska
útgáfan hlekkur í útgáfu á verkinu
um allan heim. Hér er ekkert til
sparað í útliti eða prentun. Gulllita
stafir á forsíðunni ofan á mynd-
skreytingum eftir Alan Lee sem
einnig hefur myndskreytt allt verk-
ið frábærlega með svarthvítum
myndum við upphaf hvers kafla og
nokkrum heilsíðu lit-
myndum inni í hveijum
kafla. Þetta eru vatns-
litamyndir og klassísk-
ar barnabókamyndir í
gamaldags stíl sem
maður fær aldrei leið
á. Ég öfunda það barn
sem á eftir að sitja og
horfa á þessar myndir
tímunum og dögunum
saman.
Aðdáendur Hobbit-
ans geta með góðu
móti haldið uppá af-
mælið sitt.
Þýðing Þorsteins er
til fyrirmyndar. Þó
verkið hafí verið þýtt
áður má alltaf þýða góð verk aftur.
Fólk víðsvegar um heiminn hefur
hingað til ekki séð eftir orkunni sem
það eyðir í að verða samferða hobb-
itum um víðan völl.
Stórbrotin ævintýri einsog Hobb-
itinn, Lísa í Undralandi, Múmín-
álfarnir, ísfólkið,
Fimm-bækurnar,
Bróðir minn Ljóns-
hjarta, Lína langsokk-
ur, ævintýri H. C.
Andersen og mörg
önnur hafa komið sér
vel fyrir á óbijótanlegri
hillu í huga manns.
Þetta eru ævintýri sem
maður vill eiga minja-
gripi úr heima hjá sér.
Eins og þessi útgáfa
af Hobbitanum er að
hluta til; minjagripur
og afmælisgjöf, vegna
þess sess sem Hobbit-
inn skipar í hugum og
hjörtum fólks. Og út-
gáfa þessi er að öllu leyti höfundin-
um og aðstandendum hennar til
sóma.
Ég óska sögunni Hobbitanum til
hamingju með sextíu ára afmælið
hinn 21. september síðastliðinn.
Kristín Ómarsdóttir
J.R.R.
Tolkien
Lagersalan Bíldshöfða 14
Opnum lagersölu á Bíldshöfða 14,
laugardaginn 29. nóvember
Opiö frá kl. 13-18
• Mikið úrval af búsáhöldum,
bökunarform í miklu úrvali
• Mikið verkfæraúrval
• Hillur í barnaherbergið,
geymsluna, skórekkar o.fl.
• Strauborð og þurrkgrindur
• Byssupokar, veiðivesti,
peysur cg bolir
• Barómet og hitamælar
• Eldhúsvogir og baðvogir
• Burstavörur, gólfþveglar
og gluggasköfur
• Vörutrillur, ruslavagnar,
hjólbörur
• Snúrustaurar, úðunarkútar
• Slöngur — allar stærðir og
slöngutengi
• Browning skotvesti
Mikið úrval af öðrum vöruflokkum
Gerið góð kaup á lagersölunni
Opið alla daga frá kl. 13—18. “