Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 36

Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Hláturinn lengir lífið BOKMENNTIR Gamansögur HVERJIR ERU BESTIR? Gamansögur af íslenskum íþrótta- mönnum. Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason söfnuðu efni og rit- stýrðu. Prentverk: Asprent / POB ehf. Útgefandi: Bókaútgáfan Hólar, 1997, - 187 síður. „HLÁTURINN lengir lífið“, segir gamalt spekiyrði, og þar sem heil- brigðisyfírvöld telja sig skorta fjár- muni, til þess að annast kropps- og sálarviðgerðir þjóðar, þá hafa ritstjórar bókar, mauriðnir, safnað þúsund og einni gamansögunni enn og gefíð út á bók. Til þess að forð- ast grimm örlög annarra spaugara, þá hætta þeir að segja frá kauðsk- um tilburðum okkar presta við að leiða guðdóminn, mýldan, að hlið þjóðar, - iauma sér í raðir heilsu- ræktenda, láta sem þeir séu að reka enn eina tízkustöðina, gefa henni nafnið: Hveijir eru bestir? Hvergi láta þeir þess getið, hvem lífsins „eliksír" þeir eru að rétta fólki, telja sig þannig hafa losnað undan haukfránum sjónum þeirra ábyrgu manna, sem bijóta um það „heila“, hveiju sæti, að lengist leið milli vöggu og grafar. Um það get eg vitnað, að kraftur lyfsins virðist mikill, því fjárhaldsmaður ellilauna minna kom að mér áðan í hláturs- kasti, með bók pjakkanna á hnján- um, lyfti fagnandi höndum og sagði: Ef þú heldur þessari lífsgleði, þá trúi eg, að þrátt fyrir rúning hins opinbera allan, munir þú skrimta til vors. Hann er réttsýnn og spak- ur að viti, því trúi eg að bröggun mín sjáist, og þar sem mig langar til að lifa til aldamóta, þá ætla eg að lesa bókina aftur og aftur, þegar eg hefi lokið þessu tilskrifi til þín. Eins og undirtitill bókar ber með sér, þá segir hér af íþróttagörpum þjóðar, spaugilegum atburðum lífs og starfs. íslenzk fyndni er, því miður, oft æði kauðsk og klúr, - nærgöngul, um þig, alls ekki mig, ef eg segi sögu. Kannski stafar þessi löstur af feimni, - svo örstutt í tímans rás, síðan við vorum ein- angruð í fjötrum víðáttunnar, - okkur því tregt um mál við gesti, nema smurð séu málbein með þeim legi er færir taktsprota hugsunar úr kolli niðurfyrir beltisstað? Ekki veit eg, en hinu hefí eg tekið eftir, hve afarólík okkar kímni er til dæm- is þeirri brezku. Þeir kunna þá list að gera grín að sjálfum sér á þann undarlega hátt, að þeir gerast speglar allrar mennsku, - tilburð- um okkar við að sýnast menn. Sak- leysið uppmálað, - broddgaltalegir! Ekki dettur mér í hug að horfa til dæmis á Rowan Atkinson, Mr. Bean, án þess að taka útúr mér fölsku tennumar, eftir að hafa þurft að elta þær um gólfíð, er eg var að kynnast gárunganum. Bók þeirra félaga birtir bæði kosti og lesti þess sem eg hefi ver- ið að ræða um. Mestu spaugistarn- ir eru þeir sjálfir, að mínum dómi, það sanna mér upphafs- og lokaorð bókar og innskot þeirra í frásagnir annarra. Þegar þeir ætla „stjörnun- um“ að rita sjálfar, stirðnar marg- ur, minnir mig á setur mínar fyrir framan myndavél, þá eg hefi sett upp gáfusvipinn, en á glanspappím- um birtist eitthvað sem eg kannast hreint ekkert við. Vissulega tekst mörgum sagnamanninum bráðvel til, og beztu kaflana er ráðlegast að lesa ekki eftir að næstu grannar eru gengnir til hvílu, svo þú verðir ekki kærður fyrir truflun á svefn- friði. Grípum aðeins niður í bók: 1967 léku íslendingar knatt- spyrnuleik við Dani, 14-2 leikinn ... Þegar íslendingar breyttu stöð- unni úr 9 - 1 í 9 - 2 heyrðist fyrir- liðinn, Eyleifur Hafsteinsson af Skaganum, segja: „Nú em Danir farnir að þreytast, nú tökum við þá!“ ☆ Við þrettánda mark Dananna sagði Guðmundur Pétursson markvörður: „Ég ætla ekki að halda því fram að ég sé hjátrúarfullur, en ég hef það þó á tilfínningunni að við mun- um alls ekki vinna þennan leik.“ Geta má, að þessi setning er einn- ig hermd upp á annan markvörð við annað tækifæri. Góð bók. Lýsir upp skammdegið. Sig. Haukur Hvers kyns er tölvan? AF SÝNINGU þeirra Baldurs Helgasonar og Birgittu Jónsdóttur í Galleríi Horninu. MYNPLIST Gallcrí Horniö og http://www.xnet. is/scllout TÖLVUUNNAR MYNDIR BALDUR HELGASON og BIRGITTA JÓNSDÓTTIR Opið 14-18. Stendur til 3. desember. SELLOUT er yfirskrift sýningar þeirra Baldurs Helgasonar og Birg- ittu Jónsdóttur sem skoða má bæði í Galleríi Horninu og á Netinu. Það færist nú í vöxt að myndlistarsýn- ingar séu settar upp á Netinu sam- hliða sýningu í „kjötheimi". Kostir þessa eru augljósir: Þeir sem ekki hafa tök á að koma í sýningarsalinn geta engu að síður notið verkanna að einhveiju leyti og fræðst um listamenn og listina og svo getur sýningin lifað á Netinu löngu eftir að hún er horfín úr sýningarsalnum. Þannig getur Netið smátt og smátt orðið lifandi heimildarbrunnur um sýningahald í myndlist. Það er raun- ar sérstaklega viðeigandi að einmitt þessi sýning skuli eiga sér spegil í tölvuheimum því verkin eru öll að einhverju leyti unnin í tölvum og í sumum tilfellum má segja að tölvan sé viðfangsefni myndanna. Birgitta Jónsdóttir hefur áður látið í sér heyra á ýmsum vett- vangi, sýnt myndlist, gefíð út ljóð og haldið úti öflugu starfi á Netinu. Baldur hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum áður og haldið einka- sýningar, en hann er enn við nám í fjöltæknideild Myndlista- og hand- íðaskólans. Meginefni sýningarinn- ar eru þrjár raðir verka, ein eftir Baldur og tvær eftir Birgittu. Myndröðin „Kynjakvistir" er unnin upp úr eldri málverkum Birgittu sem hér hafa verið færð í nýjan lík- ama með aðstoð myndvinnslufor- rita. Nafn verksins lýsir hógværð því í raun er hér frekar um furðu- verur að ræða, goðumlíka svipi sem minna jafnvel dálítið á aðalsfólk frá öðrum sólkerfum eins og það birtist stundum í Star Trek og svipuðu sjónvarpsefni. Myndirnar njóta sín þó ekki vel því útprentunin er gróf og truflar augað; tölvan sjálf er mun betri vettvangur fyrir þetta fólk hennar Birgittu, enda er hún fæðingarstaður þeirra og eðlilegt heimili. Hin myndröð Birgittu er líka fáanleg sem bók eða hefti á sýningunni, en hún heitir „í minn- ingu jólanna". Hér er um að ræða mun persónulegra og heilsteyptara verk en hitt. Með mynd og texta dregur Birgitta varfærnislega fram minningarbrot frá liðnum jólum. Hún nær að fanga vel upplifun barnsins þar sem aukaatriði verða stundum að aðalatriðum og jafnvel einföldustu hlutir geta náð að krist- alla hið illskilgreinanlega inntak jólanna. Þessar myndir líða þó líka fyrir grófa útprentun. Verk Baldurs eru af allt öðrum toga og mynda einfalda en nokkuð áhrifamikla heild. Hér er tölvan allsráðandi, ekki bara í vinnslu myndanna heldur sem sjálft mynd- efnið. í öllum myndunum sex sést tölva Baldurs sem hann hefur gefíð nafnið Sólveig og það sést letrað á lyklaborð hennar og skjá þar sem yfirleitt má finna nafn framleiðand- ans. Myndirnar lýsa sambandi manns við tölvuna á „sexúal" hátt. í þeim umbreytist tölvan að meira eða minna leyti í konu eða að minnsta kosti í kynveru, því í einni myndinni sjáum við tölvumús í formi getnaðarlimar. Önnur mynd sýnir bijóstamús, í einni hefur diskl- ingaraufín umbreyst í konusköp og í annarri sjáum við hvar lyklarnir á lyklaborðinu eru að breytast í lít- il stinn bijóst. Með agaðri framsetninu tekst Baldri að gera úr einfaldri hugmynd verk sem hafa fjölþætta tilvísun og bjóða upp á ýmsar vangaveltur. Styrkur hans er að hann skuli aldr- ei skera úr um túlkun verkanna heldur láta sér nægja að breyta til- finningu sinni fyrir tölvunni í mynd- ræna framsetningu. Myndirnar eru líka ákaflega vel unnar og til að undirstrika realismann í þessum til- búnu fantasíum lætur Baldur ramma eins og af ljósmyndafilmu vera utan um hveija mynd. Þetta er skemmtilegt verk sem sameinar hreint konsept og tölvuvinnslu. Það er ekki alveg ljóst hvers vegna sýning þeirra Baldurs og Birgittu ber yfirskriftina „Sellout". Vonandi er það ekki vegna þess að þau telji sig með þessu vera að svíkja einhvern málstað. Kannski er það bara í voninni um að verkin á sýninguni seljist upp. Þess bera að geta að vefútgáfa sýningarinnar er mjög vel unnin og vel þess virði að skoða hana jafnvel fyrir þá sem séð hafa sýninguna sjálfa. Vefir á borð við þennan benda til þess að þess sé ekki langt að bíða að orðin „HTML á Macint- osh“ fari að birtast við hlið „olíu á striga“ í verkaskrám listasafnanna. Jón Proppé Píanóverk um árstíðirnar TÓNLIST III j 6 m <1 i s k a r TCHAIKOVSKI/EDDA ERLENDSDÓTTIR Tchaikovski: Les Saisons, Petites Pieces. Edda Erlendsdóttir piano. Hljóðritað í París, l.,2.,3. maí 1997/Olivier Manoury - Edda Er- lendsdóttir 1997. HÉR er ég með í höndum ein- staklega fallegan og „öðruvísi" hljómdisk, bæði að útliti og inni- haldi. Á honum leikur Edda Er- lendsdóttir stutt píanóverk eftir Tchaikovski - sem sjaldan heyr- ast, nema etv. nokkrar perlur í flokkinum Petites Pieces. Les Saisons op.37b, eða Árstíð- irnar, eru stemmningar sem tengdar eru mánuðunum tólf með skáldlegri yfirskrift einsog Við arininn (janúar), Söngur lævirkj- ans (mars - af öllum mánuðum!), Stjörnunætur (maí!), Söngur haustsins (október) o.s.frv. Við heyrum líka Karnival (febrúar), Bátsöng (júní) og uppskerulag í ágúst. Allt eru þetta mjög fallegar og fínar tónsmíðar, hver með sín- um hætti, og kominn tími til að hafa þær allar á einum stað til að kynnast þeim í heild sinni, ekki síst í svo vandaðri túlkun sem hér gefur að heyra. Ekki er hinn lagaflokkurinn síðri og í honum nokkur yndisleg smáverk (m.a. Næturljóð op. 19 nr 4, Söngur án orða op. 2 nr 3, Rómansa op. 5 og Chanson Triste op. 40 nr 2), framúrskarandi fal- lega leikið. Ekki er nú mikið meira um þetta að segja, músikin - einsog hún er, píanóleikurinn við hæfi (ekki alltaf hægt að nota sömu lýsingar- orðin) sem og hljóðvinnsla og frá- gangur allur. Albúmið er með innihaldi „a thing of beauty", á franska vísu. (Erlendsdóttir með rússneska loð- húfu, sem minnir á „Loksins er haustið komið!“, skrifar um verkin og tilurð hljómdisksins á frönsku og ensku). Oddur Björnsson Ruglumar BÆKUR Sjálfshjálparfræði REGLURNAR Margreyndar aðferðir við að vinna hjarta draumaprinsins eftirEUen Fein og Sherrie Schneider. Útgef- andiH.M.M. 1997,149 bls. REGLURNAR er enn ein „sjálfs- hjálparbókin" frá Ameríku sem falbýður gulltryggða hamingju. Nú er það leiðin að „hjarta drauma- prinsins" sem er til sölu fyrir allar konur, átján eða áttræðar, fegurð- ardísir eða venjulegar útlits, ef marka má upplýsingar á bók- arkápu. Höfundar, þær Fein og Schneider, efast ekki um söluvör- una sína: „Fylgdu reglunum," segja þær, og prinsinn mun „ekki aðeins kvænast þér, hann mun líka verða hugfanginn af þér að eilífu! Við lofum að þið verðið „hamingjusöm til æviloka". Við lofum himna- sælu.“ Hvorki meira né minna! Ekki slæm kaup í svona bók. Fein og Schneider gangast auðvitað við því að það er hægt að giftast, jafn- vel, „án þess að fara eftir reglun- um“ en þá ábyrgjast þær ekki „að hjónabandið verið farsælt." Skiljan- lega. Það væri í hæsta máta ósann- gjöm krafa og þykir eflaust flestum næg fyrir sú ábyrgð sem þær hafa tekist á hendur með því að lofa reglukonum vist í himnaríki. I bókinni eru 35 reglur (og 12 góð ráð í kaupbæti) sem amma hennar Melanie (vinkona höfunda) notaði á þeim tíma þegar karlmenn voru karlmenn og konur konur. Þá var allt svo gott og konur kunnu sitt hlutverk í lífinu. Nú á dögum, eins og við vitum, hefur hins vegar bannsett kvenfrelsið ruglað konur í ríminu, þær villst úr eldhúsinu út á vinnumarkaðinn og þær hafa illu heilli Iært „í langskólanámi að verða gerendur sem hafa stjórn á lífi sínu og starfsferli.“ Fein og Schneider em að upp- lagi kvenfrelsissinnar, enda nú- tímakonur. En eftir að hafa dreymt í uppvextinum um að verða „for- stjóri fyrirtækisins, ekki kona for- stjórans", viðurkenndu þær fyrir sér hvað það er sem hver kona hlýtur að þrá innst inni: að giftast. Hjónaband vilja þær, „alla róman- tíkina, brúðarkjólinn, blómin, gjaf- irnar, hveitibrauðsdagana, allt þetta.“ Það rann einnig upp fyrir þeim að þær þurftu „á reglunum að halda“ eftir að hafa „lent aftur og aftur í ástarsorg". Þessar miklu hugsjónakonur mynduðu líka „neð- anjarðarhreyfingu" (sjálfsagt inn- an um alla hræðilegu femínistana) til að láta „galdrana" ganga, mynd- uðu í raun, eins og „konur hafa gert frá örófi alda [...] samskipta- net til að ná árangri". Nú hugsa kannski sumir (femín- istar), „Hvað eru þær að rugla, blessaðar konurnar?" En hægan nú; ruglurnar hafa sannanir: „Kona sem við þekkjum og fór eftir reglunum er nú gift stórkost- legum manni sem reynir ekki að losna við hana til að „fara út með strákunum.“ Ef farið er eftir regl- unum þá mun draumaprinsinn nefnilega koma fram við þá lukku- legu „eins og drottningu" og það þarf sko engar áhyggjur að hafa af því að hann „eltist við aðrar konur, hvorki nágrannakonuna aðlaðandi né bijóstamikla einka- ritarann". Konur verða að skilja að karlar eru öðruvísi en konur. í sambandi karls og konu er það „karlmaður- inn sem á að ráða ferðinni"; það er til dæmis hann sem „á að bera upp bónorðið". Og þetta er ekki neitt sem þær stöllur eru að finna upp, ekki aldeilis; „karlinn er i eðli sínu drottnunargjarn.“ Þannig viðurkenna reglurnar „ákveðna, einfalda staðreynd, nefnilega að karlar vita hvað þeir vilja“. Varúð: „Það er almennt vitað að karlar ganga eins langt og þeir geta á fyrsta stefnumótinu." (Sjá regla 14: Aðeins kossar á fyrsta stefnu- mótinu. Ath. einnig reglu 15: Haltu ró þinni varðandi kynlífið og aðrar reglur um náin kynni.) Þessi bók á eflaust mikið og gott erindi við íslenskar konur, átján eða áttræðar; það er löngu tímabært að reka það slyðruorð af Fróni að þar vaði allt uppi í kvenfrelsisbryðjum. Svei mér þá ef þessi bók gæti ekki orðið síð- asti naglinn í líkkistu Kvennalist- ans! (Ef þetta er ekki næg ástæða til að fjárfesta í bókinni, mundu þá, að ,,[R]eglurnar spara þér stórfé í sálfræðiþjónustu“. Og þá er gott að hafa í huga reglu 31: Ræddu reglurnar ekki við sálfræð- inginn þinn. Að ógleymdri reglu 32: Ekki brjóta reglurnar, og reglu 35: Vertu þægileg í sambúð.) Geir Svansson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.