Morgunblaðið - 28.11.1997, Page 39
38 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 3§
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÓLGAÍ
UNDRALANDI
RÍKIN í austurhiuta Asíu hafa á undanförnum árum gjarn-
an verið nefnd til sögunnar sem efnahagslegar fyrir-
myndir er önnur ríki gætu dregið lærdóm af. Asísku efnahags-
undrunum hefur gjarnan verið stillt upp gegn hagkerfum
Bandaríkjanna og Evrópu til að sýna fram á hversu stirðbusa-
leg og gamaldags hin síðarnefndu séu. Hagvöxtur undanfar-
inna áratuga hefur verið með ólíkindum í Asíu og Asíuríkin
náð afgerandi forystu á fjölmörgum sviðum iðnaðar og há-
tækni, þar sem Vesturlönd voru áður ráðandi.
Til skamms tíma virtist ekkert geta stöðvað framrás Asíu-
ríkjanna, þrátt fyrir að hægt væri að benda á ýmsa veikleika
í innra skipulagi þeirra. Það kom því flestum sérfræðingum
á óvart er núverandi erfiðleikar hófust með gengisfellingu
tælenska bahtsins í júlí síðastliðnum. Hvert Asíuríkið á fætur
öðru hefur orðið fyrir efnahagslegum skakkaföllum síðan.
Indónesía og Malaysía fylgdu í kjölfar Tælands og Hang Seng-
hlutabréfavísitala Hong Kong tók snarpa dýfu í síðasta mán-
uði.
Nú hefur Suður-Kórea, ellefta öflugasta hagkerfi heims,
hafið viðræður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um neyðaraðstoð
og gífurleg gjaldþrot í japanska fjármálakerfinu hafa vakið
upp ótta um að frekari áföll séu handan hornsins.
Flestir sérfræðingar virðast þeirrar skoðunar að núverandi
vandi sé tímabundinn. Ástæða hans sé ekki síst vanþróað fjár-
málakerfi, á vestrænan mælikvarða, er byggist í of miklum
mæli á vinargreiðum, óeðlilegri fyrirgreiðslu og ofljárfestingu
í fasteignum. Það hafi ekki komið að sök er hagvöxturinn
var sem mestur, en um leið og seglin voru dregin saman
hafi þessar meinsemdir farið að segja til sín.
Sviptingunum nú hefur gjarnan verið líkt við bankakreppu
síðasta áratugar í Rómönsku Ameríku er leiddi til tímabund-
inna efnahagslegra þrenginga en styrkti efnahag ríkjanna
þegar upp var staðið, þar sem tekið var á vandanum af festu.
Talsmenn þessara sjónarmiða telja ekki ástæðu til að hafa
áhyggjur af hinni efnahagslegu ólgu í Asíu. Sterkar undirstöð-
ur og mikill sparnaður tryggi stöðu ríkjanna. Einnig má benda
á að ólgan hefur ekki náð til Singapore, þar sem fjármálastarf-
semi er hvað lengst á veg komin í Asíu.
Þeir eru hins vegar til sem telja ástæðu til að hafa veruleg-
ar áhyggjur af þróuninni. Ekki sé lengur hægt að líta á Asíu
eða einstaka Asíuríki sem afmörkuð svæði. Heimurinn teng-
ist það nánum böndum efnahagslega að sviptingar á einum
stað hafi bein áhrif um allan heim. Lánaviðskipti banka og
sjóða séu dreifð og það sama eigi við um fjárfestingar fyrir-
tækja. Brenni bankar sig, á einum stað sé hætta á að þeir
kippi til sín höndunum á öðrum af minnstu ástæðu. Grípi eitt
ríki til verndaraðgerða, hvort sem er tollahækkana eða gengis-
lækkunar, muni önnur ósjálfrátt fylgja í kjölfarið. Því sé ekki
hægt að afskrifa vandamál Asíuríkjanna sem asískt vanda-
mál, einhvers konar vaxtarverki efnahagsundranna. Veruleg
hætta sé á að þau muni snerta heimsbyggðina alla með einum
eða öðrum hætti.
JAFNARISAMKEPPNI,
MINNIRÍKISREKSTUR
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur.gefið út reglur um hvern-
ig ríkisstofnanir, sem séu að hluta í samkeppni við fyrir-
tæki á opinberum markaði, skuli skilja þann hluta rekstrarins
frá öðrum rekstri. Tilefni þessa er gagnrýni talsmanna einka-
rekstrar, sem hafa talið að ríkisstofnanir geti niðurgreitt sam-
keppnisrekstur með fé frá starfsemi, sem nýtur einkaréttar
eða framlaga úr ríkissjóði.
Setning reglna af þessu tagi er mjög til bóta og stuðlar að
því að ríkisfyrirtæki geri sjálf hreint fyrir sínum dyrum í
þessum efnum, þannig að ekki þurfi að koma til ítrekaðrar
íhlutunar samkeppnisyfirvalda.
En reglur af þessu tagi stuðla ekki aðeins að því að bæta
ríkisreksturinn og draga úr ójafnri samkeppni; ef rétt er á
haldið munu þær verða til þess að dregið verði saman í ríkis-
rekstrinum. í formála Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra
að reglunum kemur fram að meðal markmiðanna með reglu-
setningunni sé að gera allan kostnað við samkeppnisstarfsemi
á vegum ríkisins sýnilegan til að auðvelda mat á því hvort
henni verði betur sinnt af einkafyrirtækjum.
Það leiðir af sjálfu sér, að þegar farið hefur fram fjárhags-
legur og jafnvel stjórnunarlegur aðskilnaður samkeppnis-
rekstrar ríkisfyrirtækis frá öðrum rekstri liggur yfirleitt í
augum uppi að það er þarflaust með öllu að ríkið sinni þess-
um rekstri. Það á til dæmis við um sölu Pósts og síma á sím-
tækjum og öðrum búnaði, sem virðist liggja í augum uppi að
einkafyrirtæki eru fullfær um að sinna.
Kosið um sameiningu sveitarfélaga í tveimur sýslum
Hreppum landsins
gæti fækkað um níu
AF MÁLI forsvarsmanna í
sveitarfélögunum sem
teknir voru tali var að
heyra að líklegra væri en
ekki að sameining yrði samþykkt í
báðum sýslunum. Verði það niðurstað-
an fækkar hreppum landsins um níu
í tveimur sýslum landsins.
16% fólksfækkun síðustu 10 ár
íbúum í Vestur-Húnavatnssýslu
hefur fækkað um 16% síðastliðin tíu
ár. Þar verður kosið um sameiningu
sjö hreppa og sveitarfélaga, þ.e.
Hvammstanga, Ytri-Torfustaða-
hrepps, Fremri-Torfustaðahrepps,
Staðarhrepps, Kirkjuhvammshrepps,
Þverárhrepps og Þorkelshólshrepps.
Öll standa sveitarfélögin sameiginlega
að rekstri Laugabakkaskóla en tvö
þeirra, Þverárhreppur og Staðar-
hreppur, halda uppi skóla heima í
hreppi fyrir yngstu börnin. Verði sam-
einingartillagan felld í einum hrepp
verða greidd atkvæði á ný innan þeirra
hreppa sem samþykktu sameining-
una.
Mestur hluti tekna til
sameiginlegra verkefna
Langmestur hluti tekna sveitarfé-
laganna rennur til skólamála og rekst-
urs heilsugæslu, brunavarna og ann-
arra sameiginlegra verkefna í sýsl-
unni. Þá eru sveitarfélögin einnig að
taka yfir málefni fatlaðra sem hefur
aukinn kostnað í för með sér þótt
vissulega komi tekjur í staðinn. Dæmi
eru um bekkjardeildir í sveitarfélög-
unum með sex börnum. Verði samein-
ing samþykkt í öllum sveitarfélögun-
um verða að jafnaði 17-22 börn i
bekk í hveijum árgangi.
Björn Hermannsson, sveitarstjóri í
Ytri-Torfustaðahreppi, kveðst telja að
afstaða innan hreppsins til sameining-
ar sé misjöfn milli manna en telur þó
að sameining verði samþykkt.
„Menn telja þó að þetta gæti staðið
tæpt hérna. Helst er horft til þess að
útgjöld gætu hækkað við sameiningu.
Gert er ráð fyrir því í tillögum undir-
búningsnefndar fyrir sameiningu að
það verði svipuð innkoma hjá öllum
sveitarfélögum vegna álaga. Væntan-
lega gætu því útgjöldin hækkað héma
og fasteignagjöldin jafnast út. Einnig
er hitaveitan hérna ódýr og sumir
óttast að hitaveitukostnaður hækki
og verði svipaður og á Hvamms-
tanga," segir Björn.
80% útsvarstekna ráðstafað
sameiginlega
Hann segir það engu að síður sína
tilfinningu að sameiningin verði sam-
þykkt í hreppnum. Málið snúist orðið
meira um það hvort unnt sé að snúa
við varnarbaráttunni hjá minni sveit-
arfélögunum.
„Það hefur verið fólksfækkun í
hreppunum öllum og þeir eiga orðið
fullt í fangi með að standa við það
sem þeir eru bundnir af samkvæmt
lögum. íbúafjöldi innan sveitahrepp-
anna sex er innan við 300 manns í
hveijum hreppi og það breytir tölu-
verðu gagnvart framlagi úr Jöfnun-
arsjóði hvorum megin við 300 íbúatal-
an er. Jöfnunarsjóðsframlagið yrði um
16 milljónum kr. hærra fyrir
sveitarfélögin sem eitt en sitt
í hveiju Iagi. Fjármagnið er
hægt að nota í uppbyggingu
og til að fjölga atvinnutæki-
færum,“ segir Björn.
Hann bætir því við að nú
þegar sé 80% af útsvarstekj-
um allra sveitarfélaganna ráðstafað
til sameiginlegra verkefna eins og
skólans, heilsugæslustöðvarir.nar og
héraðsnefndar, en í hennar höndum
eru öll félagsleg mál, brunavarnir og
fleiri mál sem eru sameiginlega rekin
af hreppunum öllum.
„Það eru í sjálfu sér ekki stórir
málaflokkar sem sveitarstjórnarmenn
Kosið verður um sameiningu sjö sveitarfélaga
í Vestur-Húnavatnssýslu og fjögurra í Austur-
Skaftafellssýslu á morgun. Sameiginlegur
drifkraftur til sameiningar í báðum sýslum
er aukinn kostnaður sem hreppamir bera af
fræðslumálum og vilji til að hagræða á því
sviði og einfalda alla stjómsýslu.
Kosið um sameiningu í V-Húnavatnssýslu
Hvar er kosið og hvenær?
Austur-Skaftafellssýsla
Kjörfundur verður í Bæjar-
hreppi frá kl. 12-18 í fundarhúsi
Lónmanna, í Nesjum
verður kosið í Mána-
garði frá kl. 12-22, í
Höfn í Heppuskóla frá
kl. 10-22, í Mýrum
verður kjörið í Holti frá
kl. 12-18, í Hofshreppi
verður kosið í Hofgarði
Við samein-
ingu verða
17-22 börn í
hverjum bekk
frá kl. 12-18 og loks í Borgarhafn-
arhreppi í HroIIaugsstöðum frá kl.
12-18.
Þar sem kjörfundur stendur til
kl. 22 í Höfn hefst talning atkvæða
hvergi fyrr en kjörfundi er lokið
þar. Talið verður á hveijum stað
fyrir sig og er búist við að úrslit
liggi fyrir upp úr kl. 23.
Vestur-Húnavatnssýsla
Kjörfundur hefst alls staðar kl.
12 í Vestur-Húnavatnssýslu og
stendur í lengsta lagi til kl.
22. Kjörfundur verður í
Staðarhreppi í Barnaskóla
Staðarhrepps, í Fremri-
Torfustaðahreppi verður
kosið í Laxalivammi, í Ytri
Torfustaðahreppi í félags-
heimilinu Ásbyrgi, í
Hvammstangahreppi í félagsheimil-
inu á Hvammstanga og þar verður
einnig kjördeild fyrir Kirkju-
hvammshrepp, í Þverárhreppi í
Vesturhópsskóla og í Þorkelshóls-
hreppi í félagsheimilinu Víðihlíð.
Talning atkvæða á að hefjast í hverri
kjördeild kl. 22. Gert er ráð fyrir
að úrslit liggi fyrir upp úr kl. 23.
hafa hvort eð er með að gera hver í
sínu sveitarfélagi," segir Björn.
Hann á von á því að þátttaka í
kosningunum verði góð og um fátt
annað sé rætt þessa dagana í allri
sveitinni.
Góð samvinna í
Austur-Skaftafellssýslu
í Austur-Skaftafellssýslu verður
kosið á morgun um sameiningu Hofs-
hrepps, öðru nafni Öræfasveitar,
Borgarhafnarhreppur, öðru nafni
Suðursveitar, Hornafjarðarbæjar og
Bæjarhreppa sem í daglegu tali kall-
ast Lón. I febrúar 1994 var sameining
Hafnar, Mýrarhrepps og Nesjahrepps
samþykkt og stofnað sveitarfélagið
Hornafjörður.
Þorsteinn Geirsson, formaður und-
irbúningsnefndar, segir að fyrir rösku
einu ári hafi sameiningu sveitarfélag-
anna fyrst borið á góma. Sveitar-
stjórnirnar allar samþykktu að taka
þátt í könnunarviðræðum um málið.
Umræða á þessu ári hefur síðan leitt
til þess að kosið verður um málið á
morgun.
Þorsteinn segir að það sem mæli
með sameiningu séu stærri einingar
með meiri hagkvæmni í rekstri og
nefnir sérstaklega að aðstæður allar
séu aðrar til sameiningar nú en áður
vegna bættra samgangna.
„Öll málefni hafa verið rædd sem
hafa verið á borði sveitarstjórna.
Fræðslumálin eru þó stærstu málin
hjá þeim öllum þar sem sveitarfélögin
hafa tekið þau að sér. Það kemur í
ljós að mjög fámennir hreppar ráða
ekki einir út af fyrir sig við mála-
flokka af þessari stærð nema í sam-
vinnu við aðra. Fyrst menn þurfa
hvort eð er að hafa samvinnu við
önnur sveitarfélög er kannski ekki
annað eftir en að stíga síðasta skref-
ið. Hornafjörður er reynslusveitarfé-
lag með heilbrigðismál og það gæti
verið undanfari að því að sá mála-
flokkur færist yfir til sveitarfélag-
anna,“ sagði Þorsteinn.
Hann segir að samvinna hafi verið
milli sveitarfélaganna síðustu áratug-
ina um ýmis mál, eins og t.d. bruna-
varnir og starf heilbrigðisfulltrúa.
Einnig standi allir hrepparnir að
rekstri héraðsbókasafns og fram-
haldsskóla.
Enginn hrepparígur
„Út af standa smærri einstök mál
sem fylgja helst hveijum sveitarhreppi
sem tengjast aðallega búskap og eru
ekki viðamikil. Það var álit undirbún-
ingsnefndar, sem skipuð var fulltrúum
frá öllum sveitarféiögunum að svo
mikið hefði breyst í þjóðfélaginu í
sambandi við stjórnsýslu að hún þyrfti
að færast saman á einn stað. Það
væri borin von að halda henni úti í
mjög smáum einingum," segir Þor-
steinn.
Þorsteinn segist ekki kannast við
hrepparíg í Austur-Skaftafeilssýslu.
Mikil og góð samvinna hafi verið milli
sveitarfélaganna.
íbúaflöldi í sameinuðu sveitarfélagi
í Austur-Skaftafellssýslu yrði um
2.500 manns. í Bæjarhreppi hafa ver-
ið innan við 50 íbúar í þijú ár. Sam-
kvæmt reglum mætti því _ leggja
----------- hreppinn niður. í Hofs-
hreppi og Borgarhafnar-
hreppi eru um 110 íbúar
í hvorum hreppi.
„Við höfum reynt að
hafa góða kynningu á
“1“““““““ málinu án þess að halda
úti sérstökum áróðri. Við héldum
kynningarfundi í öllum hreppsfélög-
unum og ekki varð vart við mikla
andstöðu við sameininguna," sagði
Þorsteinn.
Hann reiknar með góðri þátttöku
í kosningunum í sveitunum er reynsl-
an sýni að mun minni þál'Jika er
jafnan í stærri bæjarfélögunum.
Stjórnsýslan
þarf að fær-
ast saman á
einn stað
Reuters
ANATOLI Tsjúbajs og Borís Jeltsín ræða málin. Jeltsín hefur lýst því yfir að hann muni standa við bakið
á aðstoðarforsætisráðherra sínum þrátt fyrir harða gagnrýni á hann.
Lifir umbóta-
stefnan Tsjúbajs?
Anatólí Tsjúbajs hefur verið sagður helsti
hvatamaður umbótastefnunnar í Rússlandi um
leið o g hann hafí reynst höfuðóvinur hennar
eftir að hann varð ber að siðleysi og spill-
ingu, segir Urður Gunnarsdóttir. Æ fieiri
krefjast afsagnar hans og segjast vera þeirrar
skoðunar að umbótastefnan sé svo vel á veg
komin í Rússlandi að ekki verði aftur snúið.
UMBÓTASINNAR í Rúss-
landi eru heldur rislágir
vegna þeirrar útreiðar sem
helsta fyrirmynd þeirra og
talsmaður, Anatólí Tsjúbajs, hefur
hlotið í fjölmiðlum og hjá Borís Jelts-
ín Rússlandsforseta. Tsjúbajs, sem
hefur átt trygga fylgismenn á Vestur-
löndum, hefur kallað yfir sig reiði
manna og kröfur um að hann verði
endanlega látinn víkja verða æ hávær-
ari. Enn er of snemmt að segja til
um hvort Jeltsín sleppir vemdarhend-
inni af Tsjúbajs og hvaða áhrif slíkt
mun hafa en margt bendir til að
umbótastefnan í Rússlandi sé svo
langt á veg komin að brotthvarf
Tsjúbajs muni ekki hafa úrslitaáhrif
á það hvort hún lifir eða deyr.
Það er engum vafa undirorpið að
Jeltsín er helsta ráðgjafa sínum í efna-
hagsmálum og einum aðalhöfundi
umbótastefnunnar öskureiður, þrátt
fýrir að hann neiti að reka hann.
Tsjúbajs, sem missti fjármálaráð-
herraembættið, en heldur aðstoð-
arforsætisráðherrastólnum, gerðist
sekur um siðleysi en ekki lögbrot að
mati forsetans er hann þáði sem svar-
ar til 6,3 milljóna kr. fýrirfram-
greiðslu fyrir bók um einkavæðingu,
sem enn hefur ekki verið skrifuð og
óvíst er hvort komist nokkurn tíma á
prent. Fyrirframgreiðslan er ekki í
nokkru samræmi við þær upphæðir
sem tíðkast að greiða höfundum í
Rússlandi.
Hún á sér enda hugsan-
lega aðra skýringu en rit-
snilld Tsjúbajs. Bókaútgáf-
an sem hyggst gefa út bók-
ina er í eigu Uneximbank
í Rússlandi og því hefur verið haldið
fram að með fyrirframgreiðslunni
hafi stjóm bankans verið að endur-
gjalda Tsjúbajs stóran greiða er hann
seldi bankanum hlut í ríkisfyrirtækj-
um fyrir lágar upphæðir. Málið á sér
rætur í gjörspilltu kerfmu í Rússlandi
og hefur verið rakið aftur til kosninga-
baráttunnar fyrir forsetakjörið á síð-
asta ári.
Fyrrihluta árs 1996 var staða Jelts-
íns í kosningabaráttunni afleit og
kommúnistinn Gennadíj Zjúganov
hafði um 20% forskot á forsetann.
Jeltsín sá sitt óvænna og kallaði
Tsjúbajs til aðstoðar en forsetinn hafði
neyðst til að reka hann úr embætti
aðstoðarforsætisráðherra nokkrum
mánuðum áður að kröfu andstæðinga
sinna. Tsjúbajs sneri aftur til að
tryggja forsetanum endurkjör, hvað
sem það kostaði, og stjómvöld og
fjölmiðlar í Rússlandi veittu þegjandi
samþykki sitt.
Fjölmiðlar í hendur
kaupsýslumanns
Þeir þögðu þunnu hljóði er sást til
aðstoðarmanna Tsjúbajs þar sem þeir
bám kassa fulla af fé út úr stjórnar-
byggingum. Það sama var uppi á ten-
ingnum þegar Tsjúbajs færði litlum
hópi fjárfesta eignir stjómarinnar á
silfurfati. Mótmælaraddir heyrðust
vart og fjárfestarnir þökkuðu fyrir sig
með því að dæla fé í kosningabaráttu
Jeltsíns. Þegar endurkjör Jeltsíns var
tryggt vörpuðu kaupsýslumenn, i
Rússlandi og á Vesturlöndum, öndinni
léttar og klöppuðu Tsjúbajs lof í lófa
fyrir vel unnin störf.
Nú er hins vegar að koma í ljós
hvaða verði endurkjör Jeltsíns var
keypt. Fjölmiðlar fylktu sér að baki
Jeltsín og sýndu hvers þeir voru
megnugir er þeir lögðust á eitt að
halda fram ágæti forset-
ans og koma í veg fyrir
að andstæðingar hans
gætu kynnt sjónarmið sín.
En á þeim tima sem liðinn
er frá kosningunum hafa
flestir áhrifamestu fjölmiðlarnir kom-
ist í hendur kaupsýslumanna og hópa
fjárfesta sem hafa verið ófeimnir við
að beita þessum nýju eignum fyrir
sig.
Bankarnir sem fjármögnuðu kosn-
ingabaráttu Jeltsíns bjuggust við því
að vera verðlaunaðir fyrir framlag
sitt og brugðust því ókvæða við þeg-
ar Tsjúbajs og starfsbróðir hans,
Borís Nemtsov, hugðust breyta við-
skiptaháttum hins opinbera, láta af
vinargreiðum fyrir fjársterka stuðn-
ingsmenn og taka upp heiðarlegri
starfshætti.
Fjölmiðlum var sigað á stjórnvöld
og þá ekki síst Tsjúbajs, sem lá vel
við höggi, og voru árásirnar svo hat-
rammar að enn hriktir í stoðum
stjórnkerfisins.
Hversu mikill er skaðinn?
Það reyndist vera brenglað siðferð-
ismat Tsjúbajs sem kom honum í
vanda, þar sem hann þáði milljónirn-
ar sex af stjórn bankans sem hann
hafði verið afar hliðhollur. Tsjúbajs
hafði reynt að sannfæra Rússa og
vestræna fjárfesta um að hann hygð-
ist gera breytingar á viðskiptahátt-
unum í Rússlandi en sökk svo sjálfur
á kaf í fen siðleysis.
Skaðinn er augljós. Helstu aðstoð-
armenn Tsjúbajs voru reknir og hann
missti annað tveggja ráðherraemb-
ættanna, var vængstífður en heldur
þó enn lífi í pólitískum skilningi.
Spurningin er hins vegar hversu
mikill skaðinn er til langs tíma. Full-
yrt hefur verið að dregið hafi mjög
úr líkunum á umbótum á skattkerf-
inu, hernum og ellilífeyriskerfinu, og
Rússland, sem virtist á leið út úr
langvarandi efnahagslægð, verði
stefnulaust um nokkurn tíma. Um-
bótasinninn Jegor Gajdar orðaði það
svo að menn væru tilbúnir að ganga
býsna langt til að koma í veg fyrir
að kommúnistar kæmust aftur til
valda, en að þegar menn gerðu samn-
ing við „djöfulinn sjálfan“, yrðu þeir
að gjalda þess.
Dagar Tsjúbajs taldir?
Margir eru þeirrar skoðunar að
dagar Tsjúbajs í stjórninni séu taldir
vegna hneykslisins og það á ekki síð-
ur við á Vesturlöndum, þar sem
menn hafa hingað til talið hann eina
helstu trygginguna fyrir því að um-
bótastefnan nái fram að ganga.
Á meðal þeirra sem krefjast af-
sagnar hans er leiðarahöfundur stór-
blaðsins The New York Times sem
segir Tsjúbajs bæði helsta
hvatamann og höfuðóvin
umbóta. Ólíklegt sé að
Rússland væri komið eins
langt á veg í átt að lýð-
ræði og frjálsum markaði
ef Tsjúbajs hefði ekki notið við. Hann
hafi hins vegar orðið sér til minnkun-
ar með því að þiggja fyrirfram-
greiðsluna og eigi að víkja.
„Tsjúbajs hefur verið ófeiminn við
að hygla mönnum og fyrirtækjum til
að greiða fyrir umbótum... En
umbætur eru komnar það langt á
veg í Rússlandi að ekki þarf lengur
að beita hvaða siðlausu brögðum sem
er til að koma þeim á. Það kann vissu-
lega að reynast Jeltsín erfitt að skilja
við svo mikilvægan aðstoðarmann en
hann verður að koma Tsjúbajs frá
áður en frekari blettur fellur á um-
bótastefnuna."
Nemtsov með í fallinu
Sigurvegarinn í málinu er að
margra mati Viktor Tsjernómyrdín
forsætisráðherra. Hann hefur virst
síður hallur undir áhrif kaupsýslu-
manna en Tsjúbajs, þótt hann hafi á
síðustu vikum sýnt einum helsta og
fjársterkasta andstæðingi Tsjúbajs,
Boris Berezovskí, sem Jeltsín rak úr
öryggisráði sínu í haust, meiri vin-
semd en áður. Berezovskí er talinn
vera maðurinn á bak við herferðina
á hendur Tsjúbajs.
Tsjernómyrdín lýsti því yfir við
brotthvarf Tsjúbajs úr embætti fjár-
málaráðherra að hann myndi hafa
umbótastefnuna í heiðri sem fyrr.
„Af einhverri ástæðu hafa allir
ákveðið að allt sé að breytast, allt
sé slæmt og brotthvarf eins eða
tveggja manna úr stjóminni kalli á
hörmungar. Stefna_ stjórnarinnar
mun ekki breytast. Ég ber ábyrgð á
því gagnvart þjóð minni,“ sagði
Tsjernómyrdín.
Forsætisráðherrann virðist hafa
séð til þess að Tsjúbajs tók að nokkru
leyti annan umbótasinna með sér í
fallinu. Til að koma til móts við
stjórnarandstæðinga á þingi án þess
að reka Tsjúbajs, ákvað Jeltsín að
ráðherrar mættu aðeins gegna ein^
embætti. Fjórir aðstoðarráðherranna
gegndu öðru embætti en aðeins
Tsjúbajs og Nemtsov, ein helsta von-
arstjarna Jeltsíns og umbótasinna,
urðu að sjá af öðru ráðherraembætt-
anna og er talið að Tsjernómyrdín
hafi ráðið því.
Rússneskir stjórnmálaskýrendur
segja forsætisráðherrann hafa séð
ofsjónum yfir frama Nemtsovs og
því hafi hann orðið að láta orkumála-
ráðuneytið af hendi, þrátt fyrir að
hann hafi ekki tengst bókarhneyksl|
inú.
Tsjernómyrdín hefur enn einu
sinni bjargað Jeltsín úr vanda. Hann
á ágætt samstarf við kommúnista á
þingi, rússneskir blaðamenn segja
hægan talanda og óljósa hugmynda-
fræði hans róa kommúnista því hann
minni þá á valdamenn á sovéttíman-
um. Honum tókst t.d. fyrir skemmstu
að fá kommúnista til að hætta við
að bera fram vantrauststillögu á
stjórn hans og taka fyrir fjárlaga-
frumvarp hans og ræða umbætur í
skattamálum. Síðarnefndu málin tvö
strönduðu hins vegar á reiði komm-
únista vegna Tsjúbajs.
Umbætur komnar vel á veg
Fullvíst má telja að hefði máT
Tsjúbajs komið upp fyrir tveimur eða
þremur árum, hefði það komið í veg
fyrir frekari umbætur. Nú vonast
stjómvöld og fjárfestar hins vegar til
þess að áhrifin verði skammvinn, þrátt
fyrir að margir búist við þvi að þau
verði mikil fyrst í stað, ekki síst á
erlendar fjárfestingar.
Athyglin sem málið hefur vakið
varð til þess að verðfall varð á mörk-
uðum. Rússneskir bankar, sem marg-
ir hvetjir standa tæpt, kunna að grípa
til þess að hækka vexti. Erlendir fjár-
festar verða að hafa mánaðar fyrir-
vara á, ætli þeir að hætta viðskiptum
í Rússlandi og því munu áhrifin ekki
vet'ða að fullu ljós fyrr en undir árslofy:
Sumir fjánnálasérfræðingar hafa
hins vegar verið svo bjartsýnir að
halda því fram að komist á jafnvægi
á heimsmarkaði á næstu vikum, muni
Rússar ekki biða mikinn skaða. Vari
niðursveiflan lengur, t.d. þijá mán-
uði, sé hins vegar hætta á ferðum.
Fljótt á litið virðast ijárfestar ekki
mjög óttaslegnir og verð á
rússneska hlutabréfamark-
aðnum hefur meira að
segja hækkað örlítið að
nýju-
Það er til marks um þaý
hversu vel á veg umbætumar erú
komnar að mati Sergei Markovs, pró-
fessors í stjórnmálafræði við Moskvu-
háskóla, en hann fagnar hneykslis-
málinu sem kostaði Tsjúbajs fjármála-
ráðuneytið og góðan orðstír. „Það
sýnir okkur að umbætumar lifa póli-
tísk deilumál af... Þetta sýnir að
hugmyndir Tsjúbajs, stefna han^
taka honum sjálfum fram.“
Endurkjör
Jeltsíns dýru
verði keypt
Áhrifin að
fullu Ijós um
áramótin