Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ
46 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
Flæðilínur -
framför eða
fásinna?
í KJÖLFAR hinnar
Jaörfu úttektar Huldu
$ Ólafsdóttur sjúkra-
þjálfara á vinnuum-
hverfi fiskvinnslufólks
hefur sprottið nokkur
fjölmiðlaumræða. Því
miður hefur hún verið
á fremur neikvæðum
nótum og mótast af
þekkingarskorti og til-
hneigingu til að ein-
falda málin um of. Ein-
blínt hefur verið á einn
þátt, flæðilínur, og sú
tilfinning sem eftir sit-
ur er efi um hvort þær
eigi yfirhöfuð rétt á
sér í nútíma fisk-
*• vinnslu, jafnvel að líðan fisk-
vinnslufólks myndi batna, sem og
hagur fiskvinnslunnar, ef horfið
væri til vinnubragða fyrri tíðar.
Þessu fer fjan-i og rétt að líta á
málið frá fleiri hliðum.
Flæðilínur þær sem framleiddar
Flæðilínur eru ekki
gallalausar, fremur
en önnur mannanna
( verk, en Kristján Þ.
Davíðsson telur kosti
þeirra ótvíræða.
eru á íslandi eru þróaðar og fram-
leiddar í samstarfi margra aðila,
hönnuða, framleiðenda og fisk-
vinnslufólks víða um landið. Þær
hafa rutt sér til rúrris bæði á ís-
landi og erlendis og eru mikilvæg
útflutningsvara. Þótt ætíð megi
gera betur, ekki síst hvað varðar
mannlega þáttinn, er einnig vert að
geta þess sem vel er gert og má
nefna að til dæmis í Færeyjum,
Noregi, Kanada, Bandaríkjunum,
•i S-Afríku og Chile eru í notkun
flæðilínur hannaðar og framleiddar
á íslandi. Alls staðar hafa þær þótt
spor í átt til framfara.
Það er ljóst að flæðilínur eru
hvorki töfralausn né endastöð í
þróun tækjabúnaðar til fiskvinnslu.
Þær eru ekki gallalausar, fremur
en önnur mannanna verk, en kostir
þeirra eru ótvíræðir og
það eru líklega fæstir
sem í fiskvinnslu
starfa sem vilja aftm-
til gömlu „góðu“ dag-
anna og þess fyrir-
komulags sem var fyr-
ir daga flæðilínanna.
Það er nefnilega ljóst
að þótt hægt sé að
gera vel með bakka-
kerfi þá er það dýrara
og óhagkvæmara.
Því hefur jafnvel
verið haldið fram að
flæðilínur væru að
hluta skýring á vanda
fiskvinnslunnar og að
milljónatugum hafi
verið kastað á glæ með fjárfesting-
um í flæðilínum. Ástæðan sé sú að
með tilkomu flæðilína í frystihús-
um hafi afkastamiklir starfsmenn
dottið niður í meðalmennskuafköst.
Orsök þessa er ekki tækin í vinnsl-
unni heldur launakerfín. Hópbónus
er ráðandi fyrirkomulag í fisk-
vinnslu í dag, en flæðilínur, að
minnsta kosti þær sem framleiddar
eru af Marel, hafa boðið upp á ein-
staklingseftirlit, sem gefur mögu-
leika á einstaklingsbónus, síðan ár-
ið 1992.
... * - -•'•'.,.
Hið jákvæða
„gleymist"
Vissulega er það þarft verk að
gera úttekt á starfsumhverfi í
stærsta og mikilvægasta iðnaði
landsins. Þó er vert að hafa í huga
þegar ályktanir eru dregnar að í
rannsókn þeirri sem var kynnt í
fréttum voru bomir saman hópar
sem ekki eru að öllu leyti sambæri-
legir. Bornar eru saman vinnuað-
stæður, tæknilegar og félagslegar,
eins og þær voru annars vegar fyr-
ir áratug og hins vegar fyrir fjór-
um árum.
Einnig er rétt að hafa í huga að
tækninni fleygir fram og á síðustu
fjórum árum hefur margt breyst,
bæði tæknilega og ekki síður fé-
lagslega. Flæðilínur sem og önnur
tæki hafa veríð þróuð áfram og ný
tækni verið innleidd, til dæmis
sjálfvirkar skurðarvélar fyrir bita-
skurð fiskflaka og sjálfvirk innmöt-
un á flokkunar- og pökkunai’vélar.
Kristján Þ.
Davíðsson
1/
U
Vönduð vara á afar hagstæðu verði.
Ókeypis teikningar og tilboðsgerð.
Góður magn- og staðgreiðsluafsl.
Við bjóðum allt sem þig
INNRÉTTINGAR
OG RAFTÆKI
i eldhúsið, barnaherbergið, þvottahúsið
og að auki fataskapa í svefnherbergið,
barnaherbergið og anddyrið.
Nettaf^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
/ponix
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SÍMI 552 4420
Vitund fólks og kröfur þess til
starfsumhverfis breytast einnig ört
í samræmi við breyttar áherslur í
þjóðfélagsumræðunni.
I fjölmiðlaumræðu er oft hætt
við að of grunnt sé farið í málefnið
og í stórum fyrirsögnum slegið upp
neikvæðu hliðunum. Augljóst dæmi
um þetta er umfjöllunin um líðan
fólks sem vinnur við snyrtingu
flaka á flæðilínum. Þar er ítrekað
nefnt að óþægindi í úlnliðum og
fingrum hafi aukist hjá starfsfólki
við flakasnyrtingu á árabilinu 1987
til 1993. Þess er hinsvegar lítt eða í
engu getið að líðan í hnjám og
ökklum er marktækt betri og að
óþægindi í hálsi, herðum og mjó-
hrygg eru minni, þótt ekki sé
marktækur munur staðfestur á
þessu atriði. Þegar litið er á þetta
má sjá að áhrif flæðilína á líðan
starfsfólks eru að sumu leyti til
betri vegar, að sumu leyti ekki.
Ný tækni -
betri vinnuaðstæður
Þróun flæðilína og annarra
tækja til fiskvinnslu er hvergi
nærri lokið, hún er stöðugt í gangi
og meðal þess sem nýjasta kynslóð
flæðilína frá Marel er búin, auk
hönnunar sem bætir meðferð
flakanna, er skömmtun inn á
vinnustæðin. Þetta minnkar þörf á
löngum handarteygjum og mun
efalítið koma fram í betri líðan
starfsfólks. Með flæðilínunum er
einnig búið að fjarlægja að mestu
leyti þjónustustörf við snyrtingu og
pökkun, burð á þungum bökkum
og annað strit því tengt.
Auk þessa hafa flæðilínur sann-
að gildi sitt svo ekki verður um
deilt hvað varðar vörugæði, nýt-
ingu hráefnis, sveigjanleika í
vinnslumöguleikum og afkasta-
möguleika. Mun einfaldara var að
setja upp fjölbreytta vinnslumögu-
leika og fylgjast með þeim vinnslu-
þáttum sem þarf að vaka yfir; nýt-
ingu, afköstum, afurðasamsetningu
og gæðum svo dæmi séu nefnd.
Vinnuaflsþörf minnkaði og fram-
leiðni jókst í kjölfar fækkunar á
þjónustustörfum. Og þvert á það
sem margir hefðu ef til vill búist
við fækkar störium ekki í heild
heldur eykst fullvinnsla hér heima
og tekjur þjóðarbúsins með.
Tækninni fleygir fram og innan
fárra ára væntir Marel þess að
geta kynnt vélmenni sem tekur við
því einhæfa og iðulega hættulega
starfi að raða fiski í vélar, til dæmis
hausunarvélar. Þess má einnig
geta að þegar eru framleidd hjá
Marel tæki sem taka við frosnum
fiskstykkjum frá lausfrystum, ís-
húða þau og raða þeim svo sjálf-
virkt í flokkunar- og pökkunarbún-
að. Eitt slíkt tæki vinnur gjarnan á
við tvo til fjóra starfsmenn sem
þyrftu annars að raða ísköldum
fiskstykkjum á færiband, 100 -
200 stykkjum á mínútu allan dag-
inn árið um kring.
Hlutverk stjórnenda
mikilvægt
Notkun flæðilína er ein sér engin
töfralausn. Það sem úrslitum ræð-
ur er skynsamlegt skipulag og góð
stjómun þeirra sem ráða fyrir
hverjum vinnustað. Margir stjórn-
endur nýta sér með góðum árangri
að færsla fólks á milli starfa eykur
fjölhæfni og fjölbreytni auk þess
sem það tryggir að ætíð em tiltæk-
ir margir starfsmenn sem kunna
hvert starf. Einnig má ætla að
samvinna verði betri þegar starfs-
menn öðlast innsýn reynslunnar af
störfum vinnufélaga sinna.
Það sem skiptir máli í vinnuum-
hverfi í fiskvinnslufyrirtækjum,
rétt eins og í öðrum fyrirtækjum,
eru ekki aðeins vélarnar og tækin
sem notuð era við framleiðsluna
heldur miklu fremur góðir og hæfir
stjómendur sem nýta sér mögu-
leika tækninnar og gera sér jafn-
framt grein fyrir mikilvægi þeirrar
auðlindar sem er mannauður fyrir-
tækisins.
Höfundur er sjávarútvegs-
fræðingiir og starfnr sem
sölustíórí hiá Mnrel hf.
JÓN Sigurðsson er
óneitanlega einn
merkasti og framsýn-
asti stjórnmálamaður
sem Islendingar hafa
átt. Stjórnmálamenn
dagsins í dag mættu
margt læra af Jóni
forseta, t.d hvað varð-
ar stefnuna í mennta-
málum.
Hvað hefði Jón for-
seti sagt uni mennta-
stefnuna?
Árið 1842 skrifaði
Jón forseti grein sem
heitir „Um skóla á Is-
landi“. Þar lagði Jón
mikla áherslu á að auknu fjár-
magni væri varið í eflingu skólans
því „engum peningum er varið
heppiligar enn þeim, sem keypt er
fyrir andlig og líkamlig framför".
Hann gagnrýndi harðlega yfirvöld
síns tíma fyrir að veita lítið fjár-
magn í skólana.
Hann sagði einnig að það væri
„hryggilegt að vita, hversu að vel-
ferð landsmanna og framför henn-
ar skuli vera svo lítils metin, að
Jón Sigurðsson
er einn merkasti
stjórnmálamaður sem
—7-------------------------
Islendingar hafa átt og
telur Þorvarður Tjörvi
Ólafsson að margt
megi af honum læra.
engin úrræði skuli verða höfð til
að bæta úr bráðustu nauðsyn
landsins t... ] samt ítrekar meiri-
hluti embættismanna-nefndarinn-
ar fleirumsinnum - og eg er viss
um það er sannfæring hans - að
hann gjöri engan veginn lítið úr
mentun, og vilji jafnvel bæði
fjölga kennerum, bæta við fleiri
bekkjum, lengja skólatímann og
auka við lærdóminn - en það má
ekki kosta nema svo ofboð lítið.
Það er ómetanligt hvað slíkar
sparnaðarreglur hafa skaðað Is-
land og skaða það enn í dag, því þó
það sé fátækt land þá er þó engan-
vegin svo vesælt, allrasízt nú, að
það geti ekki haldið við svo góðum
skóla sem það þarf.“
Pólitískan vilja til að efla
menntun hefur skort
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
farið með stjórn menntamála í
meira en sex ár. Líklegt er að Jón
forseti yrði lítt hrifinn af þeim
„sparnaðarreglum" sem þeir hafa
farið eftir. íslendingar verja hvað
minnstu fjármagni til menntamála
af öllum ÖECD löndunum, aðeins
fjögur lönd verja minna!
Grunnskólinn fær ekki nóg.
Framlög á hvern grannskólanem-
anda eru um tvöfalt hærri á hinum
Norðurlöndunum en á íslandi.
Framhaldsskólinn fær ekki nóg.
Á síðasta ári voru samþykkt ný
framhaldsskólalög þar sem m.a. er
gert ráð fyrir eflingu verknáms.
Það voru orðin tóm. Ríkisstjórnin
samþykkti um hæl 200 milljóna
króna niðurskurð til framhalds-
skólanna.
Háskóli íslands fær ekki nóg.
Við íslendingar verjum þjóða
minnst innan OECD í háskóla-
menntun. Auka þyrfti fjárframlög
til HÍ um 250 milljónir til að ná
því marki sem þau voru árið 1991
þegar Alþýðubandalagið fór síðast
með stjórn menntamála. Ríkis-
stjórnin gerir hins vegar aðeins
ráð fyrir 60 milljóna króna aukn-
ingu í fiárlögum fyrir næsta ár.
Þetta eru sorglegar
tölur. Ráðamenn þjóð-
arinnar hafa mikið
rætt um nauðsyn þess
að forgangsraða í
þágu menntunar og
að nauðsynlegt sé að
auka framlög til
menntamála. Efndirn-
ar hafa hins vegar
verið engar. Pólitísk-
an vilja hefur skort.
Og á meðan mennta-
kerfið er svelt heldur
sukkið og svínaríið í
bankakerfinu áfram.
Orðræða ríkisstjórn-
arinnar um að pening-
ar til að verja í mennt-
un séu ekki til fellur um sjálft sig
þegar sukkið í bankakerfinu er
skoðað.
Síðan árið 1993 hefur 1,3 millj-
arður farið í bíla, risnu og ferðir
hjá ríkisbönkunum. Háskóli Is-
lands biður um 250 milljónir en
fær sextíu. Ríkisbankarnir eyða
hins vegar 678 milljónum í bíla-
styrki og 205 milljónum í risnu.
Bankastjórafrúr fá hátt í hálf
kennaralaun á mánuði frá bönk-
unum. Og ríkisstjórnin vogar sér
að halda því fram að engir pen-
ingar séu til, það verði að skera
niður í menntakerfínu eins og
annars staðar! Pólitík er spurn-
ing um rétta forgangsröðun og
trúverðugleika. Núverandi ríkis-
stjórn skortir hvorttveggja.
Afrek ríkisstjórnarinnar í
menntamálum felast ekki í efl-
ingu menntunar. Afrek hennar
felast í því að hafa velt kostnaðin-
um við menntakerfið yfir á náms-
menn og afnema þannig í reynd
jafnrétti til náms. Á síðustu árum
hefur verið gerð atlaga að Lána-
sjóði íslenskra námsmanna, þá
hafa verið tekin upp innrituriar-
gjöld, efnisgjöld, fallskattur,
bókaskattur og svona mætti
áfram telja - listinn er langur og
nú á að lengja hann enn, það á að
„heimila“_upptöku skólagjalda við
Háskóla Islands. Fyi'ir 155 árum
sagði Jón forseti að það væri
hlutverk stjórnvalda að sjá til
þess „að svo verði hagað til að
enginn kraptur [...] mistist, sem
stoðað gæti til velferðar alls fé-
lagsins, heldur að sérhverjum
stæði vegur opinn til að nema það
sem honum væri best lagið“. Rík-
isstjórnin hefur hins vegar vegið
harðlega að þessum grundvallar-
rétti um jafnrétti til náms sem
hefur lifað í takt við réttlætis-
kennd þjóðarinnar allt frá dögum
Jóns forseta.
Þjóðfélag framfara
og jafnaðar
Menntastefna ríkisstjórnarinnar
sem felst í afnámi jafnréttis til
náms og því sem Jón forseti nefnd
„spamaðarreglur“ er atlaga að
framtíðinni. Islendingar eru fjórða
yngsta þjóðin innan OECD, um
fjórðungur íslendinga eru á
grannskólaaldri. Möguleikar okk-
ar til að skapa þjóðfélag framfara
og jafnaðar á næstu öld era fólgnir
í að nýta þann mannauð sem býi' í
æsku landsins. Látum ekki
skammsýni ríkisstjórnarinnar
hindra okkur á þeirri för. Því eins
og Jón forseti minnir okkur á:
„eptir því sem [þjóðirnar] eru
daufari og afskiptaminni um að
læra sem allramest það, sem nyt-
samt og fróðligt er bæði innan og
utanlands, eptir því standa þær
neðar í röð [hinna] menntuðu
þjóða“.
Höfunilur er formaður Verðnmli,
samtnka ungs alþýðuhandalagsfólks
og óháðra.
Jón forseti og
menntamál
Þorvarður
Tjörvi Ólafsson