Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 51
AÐSENDAR GREINAR
Andstæðingar kvótakerfisins
ANDSTÆÐINGAR
kvótakerfisins mynda
fjóra hópa. í fyrsta
lagi eru margir sjó-
menn andvígir frjálsu
framsali kvóta því að
það hefur smám sam-
an í för með sér hag-
ræðingu, fækkun
sldpa og sjómanna. En
þeir hafa á röngu að
standa um eigin hag.
Hagur útgerðarinnar
er um leið hagur sjó-
manna, þegar til
lengdar lætur. Þeir
sjómenn, sem þurfa að
færa sig eitthvað ann-
að, geta gert það
smám saman og munu finna góð
störf við sitt hæfi, fái kvótakerfið að
skila jafnmiklum arði inn í þjóðar-
búið og það getur gert.
I öðru lagi eru sumir vestfirskir
útgerðarmenn andvígir aflakvótum.
Þeir búa nálægt gjöfulum fiskimið-
um og telja, að sóknarkvótar (til
dæmis takmarkanir á leyfilegum
veiðidögum) henti sér betur. En
þeir hafa á röngu að standa um eig-
in hag. Sóknarkvótar skaða alla út-
gerðarmenn, þótt þeir skaði ef til
vill hina vestfirsku minna en aðra. í
stað þess að útgerðarmenn einbeiti
sér að því að landa leyfilegum afla
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
með sem minnstum til-
kostnaði, eins og við
aflakvóta, reyna þeir að
veiða sem mest á sem
skemmstum tíma, hvað
sem það kostar, og
standa að lokum uppi
með allt of stóran og illa
nýttan flota.
í þriðja lagi eru sumir
menntamenn andvígir
því, að útgerðarmenn fái
að ráðstafa arðinum af
fiskveiðum. Þeir vilja, að
ríkið geri hann upptæk-
an með veiðigjaldi. Þeir
telja væntanlega, að þeir
geti haft meiri áhrif á þá
Andstæðingar kvóta-
kerfísins hafa, segir
Hannes H. Gissurar-
son, langflestir á röngu
að standa um eigin hag.
32 stjómmálamenn, sem mynda
hverju sinni meiri hluta á Alþingi,
um ráðstöfun fiskveiðiarðsins en á
rúmlega fjögur þúsund hluthafa í út-
gerðarfyrirtækjum. Fyrmefndi hóp-
urinn muni til dæmis frekar hlusta á
óskir þeirra um hærri laun háskóla-
prófessora, styrki til íslensku óper-
unnar og niðurgreidd námslán til
bama efnafólks. En þessir mennta-
menn hafa á röngu að standa um eig-
in hag. Þeir era ekki líklegir til að
geta haft meiri áhrif á stjómmála-
menn en útgerðarmenn. Þetta ættu
þeir að hafa lært af reynslunni. Þess-
ir menntamenn hafa verið ósparir á
ráð um það, hvað gera eigi við þá
rúmlega 100 milljarða króna upp-
hæð, sem þingmeirihlutinn hefur nú
þegar til ráðstöfunar árlega. Ekki
hefur verið hlustað á þá. Þeir hafa
enga tryggingu fyrir því, að frekar
verði hlustað á þá um ráðstöfun
þeirrar 10 milljarða upphæðar, sem
hugsanlega fengist í ríkissjóð með
veiðigjaldi.
Ólíkt hinum þremur hópunum
hefur hinn fjórði ekki á röngu að
standa um eigin hag. Smábátaeig-
endur eru andvígir aflakvótum,
því að þeir vilja veiða eins mikið og
þeir geta innan einhvers konar
sóknarmarka. En smábátaeigend-
ur eru ekki í raun að berjast fyrir
varanlegum sóknarkvótum, því að
þeir vita eins vel og aðrir, að þeir
eru óhagkvæmir. Þeir era aðeins
að tryggja sér aflahlutdeild í afla-
kvótakerfinu íslenska. Þetta hefur
þeim tekist vonum framar á síð-
ustu áram. Undanlátssemi stjórn-
málamanna við þennan háværa, vel
skipulagða og freka þrýstihóp sýn-
ir einmitt, hversu varasamt er að
treysta þeim fyrir fiskveiðiarðirl^"
um.
Höfundur er prófessor i stjómmála-
fræði i Háskóla íslands.
28
hver mínúta
eftir kl.ig:oo
á kvöldin
50
kr.
PÓSTUR OG SÍMI
jólatilboðin
láta ekki á sér standa!
700 ríöa f/öktfrí mynd
Super Black Line myndlampi
(slenskt textavarp, sjálfvirk
stöðvaleitun, Nicam Stereo hljóðkerfi,
barnalæsing, svefnrofi o.fl.
Black Matrix myndlampi,
breiðtjaldsstilling. Nicam stereo,
70 stööva minni, tvö Scarttengi,
NTSC afspilun, ísl.textavarp,
fjarstýring o.fl.
DAEWOO
6 hausa myndbandstæki meö
NTSC afspilun, allar aðgerðir á skjá,
tfmaupptaka, fjarstýring,
Show View o.fl.
Moulinex matvinnsluvél
Kraftmikil ryksuga 1200 W,
stillanlegur sogkraftur,
fylgihlutageymsla og dregur
inn snuruna.
Tefal straujárn 1625
Brauðbökunarvél.
Bakar 1 kg. I einu, 750 W
Vélin bakar að nóttu til og þú
snæðir volgt brauð að morgnil
SONY cfd-vio
1400 W, rofar fyrir aukagufu
og sprey, PTFE botn og
sjálfnreinsibúnaður.
Masterchef 650 - Hin sívinsæla frá
Moulinex hakkar, hrærir, rífur,
hnoðar, sker....
PHILIPS HQ3810
Feröatæki með útvarpi, kassettutæki
og geislaspilara, FM/AM samræmd
upptaka, tengi fyrir heyrnatól.
3 hausar m/tvöföldum hnífum,
stillanlegum blöðum og
hleðsluraf hlaða.
erum l n®sla ^ús’v'^ 'Kr.*
á íslandi
RflFTffKJílUERfíUN ÍSLflNDS If
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • S(mi 568 8660 • Fax 568 0776