Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 53

Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 53 þjónustu Sjúkrahúss Reykjavíkur að þar starfar einstaklega hæft og metnaðarfullt fólk. Dugnaður starfsfólks við að takast á við næsta vonlausar aðstæður hefur í raun verið ótrúlega mikill. Petta ber að þakka og meta að verðleikum. Vissulega má fagna einstaka góð- um áfanga sem náðst hefur síðustu ár þrátt fyrir allt. Flutningur bamadeildar af Landakoti í Foss- voginn bætti mjög aðstöðu og þjón- ustu við böm og aðstandendur þeirra. Það hafði lengi verið til vansa að helsti slysaspítali landsins veitti enga sérhæfða þjónustu fyrir böm og unglinga. Hjartadeild fékk líka stærri og fullkomnari aðstöðu sem eykur öryggi sjúklinga og auð- veldar að veita þeim góða þjónustu. Þá er uppbyggingin á öldrunarþjón- ustu sjúkrahússins á Landakoti til fyrirmyndar. Ástæða er til þess að hrósa heilbrigðis- og fjárveitinga- valdi fyrir sldlninginn sem sýndur var á þessum þörfum. Vinnubrögð sem ganga ekki Ráðherrar og alþingismenn verða að viðurkenna þann alvar- lega vanda sem þróun síðustu ára hefur skapað. Þeir vita að sjúkra- húsin í Reykjavík þjóna ölium landsmönnum sem þarfnast þeirr- ar sérhæfðu þjónustu sem einungis býðst þar. Hafa verður í huga að íbúum landsins fjölgar frá árinu 1988 til loka þessa árs um nær 8%. A sama tímabili fjölgar íbúum í Reykjavík og í Reykjaneskjördæmi um ríflega 14% en þar er aðalþjón- ustusvæði sjúkrahúsanna tveggja. Skilningur á þessu verður að skila sér við afgreiðslu fjárlaga nú undir jólin. Það er ekki verjandi að viðhafa áfram þau vinnubrögð við fjárveit- ingar sem haldið hafa Sjúkrahúsi Reykjavíkur í viðvarandi uppnámi. Vinnubrögðin birtast í því að fjárlög em afgreidd rétt fyrir jólin með stórfelldri og augljósri fjárvöntun til sjúkrahússins. Strax um áramót- in hefst vonlaus leit að leiðum til þess að komast inn í fjárlaga- rammann. Sparnaðarleitin tekur lungann af tíma stjórnenda og eyk- ur óróleikann á spítalanum þegar reynt er að þrengja enn frekar að starfsfólkinu. Þær leiðir sem gætu minnkað kostnaðinn svo mikið að komist yrði inn fyrir rammann eru siðferðilega óverjandi gagnvart sjúklingum. Jafnhliða þessum ógeð- felldu störfum inni á stofnuninni ganga stjórnendur ítrekað á fund ráðherra til þess að reyna að sann- færa þá um að vonlaust sé að reka spítalann án viðbótarfjárveitinga. Embættismenn ráðherra og borg- arstjóra eru settir í að leita með log- andi Ijósum að aðgerðum sem taka til beggja spítalanna í Reykjavík og gætu leitt til spamaðar. Sú leit tek- ur átta til níu mánuði ársins. Allan þann tíma býr sjúkrahúsið við óvissu um hvort og þá hve mikil við- bótarfjárveiting fáist, greiðslustað- an versnar og starfsfólk er undir stöðugum þrýstingi peningaskorts- ins. Þumalskrúfur Loks þegar þriðjungur er eftir af árinu fæst viðbótarfjárveiting. Skilyrðið er undirritun samkomu- lags um aðgerðir til sparnaðar á næsta ári. Menn standa frammi fyrir því vali að skrifa undir sam- komulag og fá þá viðbótarfé til reksturs ársins sem er langt liðið eða að sitja uppi með gatið úr fjár- lögunum. Menn eru missáttir við aðgerðirnar sjálfar og upphæðirn- ar sem þeim er ætlað að spara eru fremur byggðar á óskhyggju en raunsæi og nákvæmum útreikning- um. Rekstraráætlun komandi árs er þó ætlað að byggja á sparnaðar- tölum samkomulagsins og standist þær ekki fá stjórnendur og starfs- fólk vænan skammt af skömmum. Auk þess er Reykjavíkurborg hót- að með því að borgarsjóður skuli greiða hallann ef spítalinn geti ekki haldið sig innan fjárlaga. Þótt Rík- isspítalar fari fram úr fjárlögum af því að þeirra vandi er einnig ærinn er nokkuð ljóst að sá halli verður að lokum greiddur af ríkissjóði, enda ráð fyrir því gert að ríkið standi straum af rekstrarkostnaði sjúkrahúsa í landinu. Fólk sér í hendi sér að þessar að- ferðir sem kenna má við þumal- skrúfur taka óhemju orku frá stjómendum og brjóta niður vinnu- anda stofnunarinnar. Tíma stjórn- enda sem ætti að fara í að þróa þjónustu, byggja upp starfsfólk, styrkja eftirlit, gæði og hagræði þarf að eyða í látlausa varnarbar- áttu gegn eyðileggingu spítalans. Fortíðarvandann verður að leysa Upphæðirnar sem ber á milli fjárveitinga í fjárlagafrumvarpi og þess sem forráðamenn Sjúkrahúss Reykjavíkur telja að þurfi á næsta ári eru háar og kunna að vaxa mönnum í augum. En horfi menn raunsætt á þann vanda sem safnast hefur upp undanfarin ár sjá þeir að óskir spítalans eru eðlilegar og ábyrgar. Ástand húsnæðis og tækjabúnaðar er orðið svo slæmt vegna sveltiáranna að óverjandi er að bregðast þar ekki við. Ekki er nóg með að múr hrynji úr húsum, þök leki og vatn og vindar smjúgi meðfram gluggum. Spítalinn getur ekki brugðist við athugasemdum opinberra eftirlitsaðila eins og vera ætti. Þrengslin í aðalhúsnæði spít- alans í Fossvogi má rekja til þess að ekki hefur fengist nema hluti af því framkvæmdafé sem áætlað var að þyrfti vegna sameiningar Borg- arspítalans og Landakots. Hvorki sjúklingum né starfsmönnum er bjóðandi upp á núverandi aðstæður enda hefur mikil starfsemi verið flutt suður í Fossvog án þess að nægilegt rými bættist þar við. í frumvarpinu eru sömu lágu upp- hæðirnar ætlaðar Sjúkrahúsi Reykjavíkur til viðhalds og tækja- kaupa og verið hafa undanfarin ár. Til nýframkvæmda er ekki ætluð ein króna. Það er eins og höfundar frumvarpsins hafi lokað augum og eyrum fyrir ítrekuðum lýsingum á ofangreindu ástandi. I nýút- kominni skýrslu nefndar um for- gangsröðun í heilbrigðiskerfinu er bent á að eðlilegt sé að ætla sjúkra- húsum 3-5% af útgjöldum til tækja- kaupa. í frumvarpi til fjárlaga er Sjúkrahúsi Reykjavíkur áætlað u.þ.b. 1% af rekstrarfé til þessara þarfa eins og mörg undanfarin ár. Niðurskurður sem birtist í frum- varpinu á rekstrarfé til starfsem- innar er ekki síður óskiljanlegur. Það hefði ekki komið á óvart ef sjúkrahúsunum í Reykjavík hefði verið ætlað að minnka rekstrar- kostnað frá því sem starfsemin kostar í ár um samtals 205 milljón krónur. Það er sú upphæð sem sam- komulag heilbrigðisráðherra, fjár- KM90: Verð frá kr. 29.830 stgr. m/hakkavél. Margir litir. Fæst um land allt. 50 ára frábær reynsla. /■/■ Einar Farestveit&Co.hf Borgartúnl 28 TT S62 2901 og S62 2900 KitchenAid DRAUMAVÉL HEIMILANNA! málaráðherra og borgarstjóra frá 12. september sl. gerði ráð fyrir að sparaðist á næsta ári með þeim að- gerðum sem grípa á til. Þótt það sé meira en vafasamt að sá spamaður náist allur með aðgerðum sam- komulagsins væri rökrétt að ætla ráðuneytunum að skera burt þá upphæð. Niðurskurðurinn á rekstr- arfé til núverandi starfsemi er hins vegar samkvæmt frumvarpinu 900 milljónir króna, þar af kemur ríf- lega 400 milijóna króna niðurskurð- ur í hlut SHR. Hvað vill þjóðin? Frumvarpið tekur auk þess ekk- ert á uppsöfnuðum halla sjúkrahús- anna í Réykjavík en í lok þessa árs verður hann samtals rúmlega 700 milljón krónur. Fólk hefur vissulega velt því fyrir sér hvort markviss, pólitísk hugsun búi að baki því að þjarma svo illi- lega að sjúkrahúsunum í Reykjavík. Hvort tilgangurinn sé sá að svelta þau til sameiningar og þar með Sjúkrahús Reykjavíkur út úr hönd- um Reykjavíkurborgar. Eða þá að rýra þjónustu þeirra svo mildð að ló-öfur um einkarekin sjúkrahús verði kröftugri. Sé þetta tilgangur manna ættu þeir að segja það berum orðum og takast á í opnum, pólitískum um- ræðum um hvort þjóðin vilji gjör- breytingu á núverandi heilbrigðis- kerfi. Það væri mun siðlegra en að neyða fram byltingarkenndar breytingar með því að brjóta og bramla og fóma í leiðinni hagsmun- um sjúkra og slasaðra sem þurfa á þjónustu sjúkrahúsanna að halda. Ég á erfitt með að trúa því að ráðamenn séu meðvitað að brjóta niður sjúkrahúsin í Reykjavík í oF^ angreindum tilgangi. Mun líklegra er að það markmið að ná fram hallalausum fjárlögum hafi leitt þá í freistni og lokað augum þeirra fyrir raunverulegum vanda sjúkra- húsanna. Vilji þeir koma í veg fyrir hrun þjónustunnar verða þeir við afgreiðslu fjárlaga komandi árs að bregðast við veruleikanum sem við blasir. Þjóðin fyrirgefur ekki að sjúkrahúsin sem eru sérhæfð í því að takast á við alvarlegustu sjúk- dóma og slys verði eyðilögð. Um það verður engin sátt. Höfundur er formaður stjómar Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þú getur gert frábær kaup í myndbandsupptökuvélum í Japis, hér eru nokkur dæmi. Panasonic Panasonic NV RX10 Vélinni fylgir vegieg taska og 4 spólur VHS-C 14x sjálfv. aðdráttur (Digit.) © Ljósnæmi 0,3 Lux © Gleiðhornsiinsa Sjálfvirk stilling á focus og mynd « Program AE 3 stillingar • Crystal Clear myndstilling Panasonic NV SX3 • SVHS-C © 14x stillanl. aðdráttur (Digit.) • Ljósnæmi 1 Lux • Hifi Stereo : Super Image skjálftavörn Gleiðhornslinsa Program AE 3 stillingar Crystal Clear myndstilling Fjarstýring Auto power saver Antiground shooting Panasonic NV RX50 VHS-C • 25x stillanl. aðdráttur (Digit.) e Ljósnæmi 0,7 Lux e Gleiðhornslinsa Super Image skjálftavörn 4 myndeffectar ■ Program AE 3 stillingar Crystal Clear myndstilling • Auto power saver Antiground shooting • Fjarstýring Panasonic NV VX10 e VHS-C e 17x stillanl. aðdráttur e Ljósnæmi 0,3 Lux e 3'Litaskjár Gleiðhornslinsa e Sjálfvirk stilling á focus og mynd Program AE 3 stillingar Crystal Clear myndstilling e Fjarstýring Panasonic NV RX20 VHS-C o14x stillanl. aðdráttur (Digit.) e Ljósnæmi 0,3 Lux e Gleiðhornslinsa e Sjálfvirk stilling á focus og mynd e Program AE 3 stillingar e Crystal Clear myndstilling Auto power saver e Antiground shooting e Fjarstýring JAPIS -hljóma betur BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI SÍMI 562 52

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.