Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 Í9
Tölvukjör
S
Canon BJC-80
/
Frábær ferðaprentari!
A4 litableksprautuprentari
720 dpi upplausn
2ja hylkja kerfi <r'
2 bls mín í lit
kr. 22.500
Cation
Canon BJC-250
A4 litableksprautuprentari
2ja hylkja kerfi
720 dpi upplausn
100 blaða arkamatari |(r. 19.900J
Canon BJC-4300
-•) 1 A4 litableksprautuprentari
2ja hylkja kerfi
Þessir nýju\ prentarar 720 dpi upplausn
\ 2 bls mrn 1(1
frá Canon ertu búnir
KjmsCamni
kr. 24.900
nýrri prenttækni sem
gerir ljósmyndir\enn
heimilanna
Sjiis) *Jj ifl, ÍÍií'J'J
iíi'il
Canon
Faxafeni 5 - Slmi 533 2323
tol«ukjar®itn.U
J ólaskemmtun
í Hellisgerði
styrktar alnæmissjúkum
í HAFNARFIRÐI verður haldin
Jólaskemmtun í Hellisgerði alla
sunnudaga aðventunnar. Sérstök
dagskrá verður í gangi alla sunnu-
daga frá kl. 15-18. Garðurinn verð-
ur lýstur með sérstökum hætti þar
sem reynt verður að undirstrika
dulúð og fegurð umhverfisins.
Grunnhugmynd og markmið verk-
efnisins er að undirstrika helga
þætti og friðarboðskap jólanna, segir
í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarð-
arbæ.
Einnig segir að af sviði garðsins
muni söngfólk láta heyra í sér þar
sem leikskólakórar, barnakórar,
kirkjukórai- og karlakórinn Þresth-
munu gleðja viðstadda með hátíðleg-
um söng og uppátækjum. Prestarnir
muni annast og flytja hugvekjur og
friðarboðskap. Leikhópar og jóla-
sveinar muni koma fram samkvæmt
dagskrá. Landsþekktir söngvarar og
leikarar muni eiga sinn sess í dag-
skránni og verði Sigríður Beinteins-
dóttir meðal fjölmargra sem fyrst
komi fram úr þeirri sveit sunnudag-
inn 30. nóvember. Þá verði hand-
verksfólk á staðnum er sýni muni
sína og selji og Kvenfélagskonur
verði með heitt á könnunni í Oddrún-
arkoti og selji rjómavöfflui'.
Morgunblaðið/Þorkell
UNGT fólk vinnur að gerð Rauða borðans.
Rauði borðinn til
Equity Fights AIDS í lið með sér
og hvöttu alla sem komu fram á
Tony-verðlaunahátíðinni viku
síðar til að bera Rauða borðann.
„Rauði borðinn er alþjóðlegt
tákn um samstöðu og samhug
með þeim sem eru smitaðir. Þú
getur lagt þitt af mörkum til þess
að gera alnæmi sýnilegt í þjóðfé-
Iaginu og vakið umræðu sem
nauðsynleg er til forvarnastarfs.
Þetta gerir þú með því að bera
Rauða borðann hinn 1. desem-
ber,“ segir í frétt frá ungmenna-
deild Reykjavíkurdeildar Rauða
krossins.
------------------
Danssýning
á sunnudag
DANSRÁÐ íslands stendur fyi-ir
danssýningu á Hótel íslandi sunnu-
daginn 30. nóvember.
Sjö dansskólar standa að þessari
sýningu, Dansskóli Auðar Haralds,
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar,
Dansskóli Jóns Péturs og Köru,
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar,
Nýi dansskólinn, Danssmiðja Her-
manns Ragnars og Jassballettskóli
Báru.
Fram koma nemendur skólanna á
öllum aldri og á ýmsum stigum í
danskunnáttunni.
Húsið opnar kl. 14.30 og hefst
sýningin kl. 15. Aðgangseyrir er 500
kr. fyrir 5 á ára og eldri.
UNGMENNADEILDIR Rauða
krossins í Reykjavík og Hafnar-
firði ásamt Ný-ung, ungliða-
hreyfingu Sjálfsbjargar, unnu að
því um síðustu helgi að búa til
Rauða borðann til dreifingar á
höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er liður í átaki Ung-
mennahreyfingar Rauða kross-
ins, Alnæmissamtakanna og Al-
þjóðlegra ungmennaskipta fyrir
1. desember sem er alþjóðlegi al-
næmisdagurinn. Sjálfboðaliðar
þessara samtaka sjá um dreif-
ingu Rauða borðans víðs vegar
um landið dagana 28. nóvember
til 1. desember.
Upphafsmenn Rauða borðans
eru listamannahópur í samtökun-
um Visual AIDS í Bandaríkjun-
um. Þetta eru samtök myndlist-
armanna, listfræðinga og for-
stöðumanna listasafna. Þeir vilja
vekja athygli á því að alnæmi
kemur okkur öllum við. I lok maí
1991 bjuggu fimmtán félagsmenn
til fyrstu 3.000 borðana í höndun-
um á fjórum og hálfum tima.
Þeir fengu álíka samtök leiklist-
arfólks, Broadway Cares og
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Þórólfi
Halldórssyni sýslumanni á Patreks-
firði:
I Morgunblaðinu 27. nóvember
1997 er á bls. 4 grein með fyrirsögn-
•nni „Tugir óskráðra skipa bíða þess
að verða fargað“.
I greininni er m.a. viðtal við Davíð
Egilsson hjá Hollustuvernd ríkisins,
þar sem haft er eftir honum (ekki
bein tilvitnun) að sýslumannsemb-
ættið á Patreksfirði hafi staðið fyrir
leitinni að stálbátnum Þrym „að
beiðni Hollustuverndar ríkisins.“
Af fréttinni mætti ráða að frum-
kvæði að rannsókn málsins hefði að
öllu leyti verið hjá Hollustuvernd
ríkisins. Svo var ekki. Hið rétta er,
að lögreglan á Patreksfirði hóf rann-
sókn málsins að eigin frumkvæði og
að höfðu samráði við ríkislögreglu-
stjóra, enda er það hlutverk lögreglu
að rannsaka meint lögbrot, án tillits
til þess hvort óskir eru settar fram
um slíkt eða ekki. Við rannsókn
wálsins naut lögreglan á Patreks-
firði dyggrar aðstoðar Landhelgis-
gæslu Islands og einnig Siglinga-
stofnunar íslands og Hollustuvernd-
ar ríkisins. í máli sem þessu er enda
mikilvægt að þær stofnanir sem mál-
ið varðar eigi góða samvinnu.
---------------
Verslunin
Jata flytur
VERSLUNIN Jata verður opnuð í
nýju húsnæði á sama stað í Hátúni 2
laugardaginn 29. nóvember.
Verslunin Jata er sérverslun með
kristilegt efni og hefur á boðstólum
mjög fallegt úrval af geisladiskum,
íslenskum og erlendum bókum
ásamt gjafavörum af ýmsum gerð-
um.
Á opnunardaginn verða opnunar-
tilboð í gangi og er opið frá kl.
10-16.
Prentþjónusta
í Kringlunni
NÝTT þjónustufyrirtæki var opnuð
á 3. hæð Kringlunnar í Reykjavík nú
nýlega. Fyrirtæki þetta heitir ATOP
þjónustan, Alhliða tölvu- og prent-
þjónusta.
ATOP sinnir eins og nafhið gefur tii
kynna hvers kyns prentþjónustu og
grafískri tölvuvinnslu, hvort sem er í
litlu eða miklu magni. Nafnspjalda-
gerð, ijósmyndaviðgerðir og Ijósritun
í lit eru dæmi um þjónustu sem ATOP
veitir sínum viðskiptavinum.
Á bakvið fyrirtækið standa þeir
Eiríkur Finnsson og Ingþór Guð-
mundsson en þeir hafa saman þó
nokkra reynslu af gerð auglýsinga
og bæklinga í Svíþjóð og víðar, segir
í fréttatilkynningu.
LEIÐRÉTT
Vantaði höfundarnafn
I GREIN í síðasta sunnudagsblaði,
Englendingurinn, féll niður nafn
greinarhöfundar, Bergljótar Ing-
ólfsdóttur. Er beðist velvirðingar á
því.
Landvegur
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
um að Stórafell hafi boðið lægst í
Árbæjarveg, var sagt að vegurinn
lægi út frá hringveginum að Land-
eyjavegi. Fréttin var byggð á upp-
lýsingum frá Vegagerðinni, en nú
hefur Morgunblaðið verið upplýst
um að vegurinn heitir Landvegur,
ekki Landeyjavegur.
Magnea er forseti
bæjarstjórnar
TVÆR villur voru í baksíðufrétt
Morgunblaðsins í gær, um bæjar-
stjórnarfund á ísafirði. Sagt var að
að í skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
VSO hafi verið mælt með því að
ódýrasti kosturinn við stækkun
grunnskólans væri að kaupa Norð-
urtangann og breyta honum. Hið
rétta er, að VSO Ráðgjöf gerði eng-
ar tillögur og mælti ekki með
ákveðnum leiðum, heldur lagði fyr-
irtækið mat á mismunandi kosti
sem voru fyrir hendi, og mat ofan-
greindan kost ódýrastan. í öðru lagi
var sagt í fréttinni að Þorsteinn Jó-
hannesson, oddviti sjálfstæðis-
manna á Isafírði, væri forseti bæj-
arstjómar. Hann er formaður bæj-
arráðs en Magnea Guðmundsdóttir
er forseti bæjarstjórnar. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
Kristófer Már Kristinsson
í MYNDATEXTA í blaðinu í gær,
með mynd frá útför Ólafs K. Magn-
ússonar, var ranglega farið með föð-
urnafn eins líkmannanna. Kristófer
Már er Kristinsson en ekki Kristó-
fersson, eins og sagt var í blaðinu.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Daniel og Anna Dögg í 4. sæti
í UMFJÖLLUN Morgunblaðsins
um Lotto-danskeppnina féllu niður
nöfn þeirra Daníels Olsen og Önnu
Daggar Gylfadóttur en þau urðu í 4.
sæti í keppni 7 ára og yngri í A-riðli.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Ný bókaverslun
BÓKALAGERINN, verslun Bóka-
útgáfunnar Skjaldborgar, hefur
opnað nýja verslun á Laugavegi 103
í Reykjavík, á móti Nóatúni við
Hlemm. Verslunin býður upp á nýj-
ar bækur frá Skjaldborg og öðrum
bókaútgáfum auk eldri bóka á hag-
stæðu verði að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Skjaldborg. Versl-
unin er opin á sama tíma og aðrar
verslanir við Laugaveg.
Auk verslunarinnar við Laugaveg
rekur Skjaldborg Bókalagerinn í
Ármúla 23 og útibú að Furuvöllum
13 á Akureyri.
Kertasýning
á Kjarvals-
stöðum
KE RTAVE RKSMIÐ JAN
Heimaey. heldur kertasýningu
á Kjarvalsstöðum sunnudaginn
30. nóvember kl. 17 og lýkur kl.
18.30. Forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, mun tendra
fyrsta ljósið.
Forsvarsmenn kertaverk-
smiðjunnar, bæjarstjórinn í
Vestmannaeyjum, félagsmála-
ráðherra, iðnaðarráðherra,
borgarstjórinn í Reykjavík og
nývígður biskup Islands, hr.
Karl Sigurbjörnsson, ásamt
öðrum aðstandendum og
velunnurum átaksins Færum
fótluðum framtíð munu einnig
heiðra sýninguna með nærveru
sinni.
Meðal annars sem verður á
dagskrá mun Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Diddú, syngja jólalög.
Utandyra verða logandi kerti
og við innganginn í húsið mun
lúðrasveit spila jólalög. Inni
verður kveikt á kertum sem
sjást líka utan frá.
í frétt frá framkvæmda-
stjórn sýningarinnar kemui'
fram að Kertaverksmiðjan
Heimaey sé verndaður vinnu-
staður í Vestmannaeyjum.
Kertin séu handunnin, gegn-
umlituð og hafi langan
brennslutíma. Þau hafi verið
ófáanleg í nokkuð langan tíma
en nú síðsumars hafi farið af
stað átak til að auka sölu á
kertunum í þeim tilgangi að
skapa fótluðum og öryrkjum
vinnu og starfsþjálfun. Gífurleg
vinna hafi verið lögð í endur-
skipulagningu á rekstri verk-
smiðjunnar og markaðssetn-
ingu á kertunum sem hafi nú
komið aftur inn á markaðinn í
nýjum umbúðum undir slagorð-
inu Færum fötluðum framtíð.
Markmiðið var að framleiða og
selja 200.000 kerti fyrir áramót
og fyrirsjáanlegt er að tak-
markið næst.
Öll framleiðsla tengd kertun-
um er íslensk. Kassagerðin
framleiðir umbúðimar, Ofna-
smiðjan framleiðir standana
sem eru í verslunum og Hlynur
Ólafsson hjá Auglýsingastofunni
Góðu fólki sá um hönnunina.