Morgunblaðið - 28.11.1997, Qupperneq 62
‘62 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jólakort KFUM og
KFUK komið út
KFUM og KFUK í Reykjavík hafa gefið út
jólakort til styrktar starfi sínu eins og undan-
farin ár. Kortið er dökkgrænt með gyllingu
og hvítu en á því er mynd af gamalli, ís-
lenskri torfkirkju og mynd af kolu, gömlu
íslensku ljósmeti, felld inn í áletrunina Gleði-
leg jól. Kortið hannaði Bjarni Jónsson mynd-
listarmaður.
Kortin eru til sölu á skrifstofu félaganna,
Holtavegi 28. Þau eru send til kaupenda þeim
að kostnaðarlausu ef keypt eru 10 eintök eða
fleiri.
Fundur um Palestínu
FIMMTÍU ár verða liðin laugar-
daginn 29. nóvember frá því að
Allsheijarþing S.Þ. samþykkti hina
umdeildu og örlagaríku ályktun
um skiptingu Palestínu í tvö ríki,
gyðinga og araba.
Að frumkvæði Sameinuðu þjóð-
anna var 29. nóvember síðan gerð-
ur að alþjóðlegum samstöðudegi
með baráttu Palestínumanna fyrir
sínum þjóðarréttindum. Félagið
Ísland-Palestína var stofnað á
þessum degi, 29. nóvember 1987,
og er því 10 ára. Dagsins verður
minnst með fundi í Lækjarbrekku
við Bankastræti, laugardaginn 29.
nóvember, og hefst hann kl. 14.
Svavar Gestsson, alþingismaður,
flytur ávarp en einnig verður flutt
tónlist og lesið upp.
Gáfu Grafarvogskirkju
trjáplöntur
LIONSKLÚBBURINN Fjörgyn,
Grafarvogi, og Skeljungur gáfu
nýlega trjáplöntur á lóð Grafar-
vogskírkju. Á myndinni eru frá
vinstri: Gísli Jónsson, Friðrik Han-
sen Guðmundsson, Haukur Aðal-
steinsson, Magnús Ásgeirsson,
Einar Þórðarson og Ólafur Odds-
son.
Tómstundahúsið í nýtt húsnæði
TÓMSTUNDAHÚSIÐ flutti starfsemi sína í nýtt húsnæði að Nethyl
2, Artúnsholti, um síðustu mánaðamót.
Verslunin er opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14.
Kattholts-
dagur í
Dýraríkinu
DÝRARÍKIÐ Grensásvegi verður
með Kattholtsdag laugardaginn 29.
nóvember þar sem fulltrúar Katta-
vinafélags íslands verða þar með
heimilislausa ketti úr Kattholti.
Viðskiptavinum Dýraríkisins
verður boðið að ættleiða kött og fá
að auki matargjöf frá fyrirtækinu
9 Lives.
í Kattholti er nú á áttunda tug
óskilakatta og er því ástandið með
versta móti. Þessara katta biður
aðeins svæfíng ef ekkert heimili
fæst innan ákveðinna tímamarka,
segir í fréttatilkynningu frá Dýra-
ríkinu.
ASÍ ályktar um félags-
lega húsnæðiskerfið
Á SAMBANDSSTJÓRNARFUNDI
Alþýðusambands Islands í vikunni
var samþykkt ályktun um félags-
lega húsnæðiskerfið þar sem m.a.
var skorað á ríkisstjómina að fjölga
heimildum til nýrra félagslegra
íbúða um a.m.k. helming.
í ályktuninni segir að stöðugt
hafí dregið úr framlögum ríkisins
til nýrra félagslegra íbúða á undan-
fömum ámm og í fmmvarpi til fjár-
laga fýrir næsta ár sé aðeins gert
ráð fyrir 170 nýjum íbúðum á næsta
ári. Veitt framkvæmdalán til bygg-
inga og kaupa á félagslegum íbúð-
um hafí verið 570 á ári að meðal-
tali á ámnum 1990-1995.
Fram kemur að hugmyndir ASI
og félagsmálaráðuneytisins um
framtíð félagslega íbúðakerfísins
fari saman í megin atriðum. ASÍ
hafí alltaf látið félagslega íbúða-
kerfíð sig miklu skipta og nú hafí
félagsmálaráðherra skipað starfs-
hóp til að semja lagafmmvarp um
félagslegar íbúðir. í þeim starfshópi
séu a.m.k. tveir fulltrúar frá sveit-
arfélögunum en enginn frá Alþýðu-
sambandinu og er í ályktuninni
skorað á félagsmálaráðherra að
skipa fulltrúa frá ASÍ í starfshópinn.
Fjallað er um fmmvarp um húsa-
leigubætur, sem nú liggur fyrir Al-
þingi, og sagt að þar sé tekið á
tveimur mikilvægum atriðum til
styrktar leigjendum. Annars vegar
að öllum sveitarfélögum verði gert
skylt að greiða húsaleigubætur og
hins vegar að þær nái til alls íbúðar-
húsnæðis. Hins vegar lækki raun-
gildi bótanna umtalsvert, einkum
hjá þeim tekjulægstu, og skorar
sambandsstjóm ASI á Alþingi að
taka inn í fmmvarpið ákvæði um
að bætumar verði ekki skattlagðar.
„Við þurfum eitthvað
svo stórfenglegt að
Gísli Sigurðsson veltir fyrir sér hvort
hús aldarinnar sé að finna í Bilbao.
Lesbókin í blaðinu á laugardaginn.
það skipti sköpum og
komist í fjölmiðla
um allan heim.“
R/CtP