Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 69

Morgunblaðið - 28.11.1997, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRAMTÍÐ ARHLJ ÓM- UR REYKJAVÍKUR „Verið viðbúin, ég er á leiðinni,“ voru lokaorð Dereks Dahlarge í símtali við Morgunblaðið vegna endurkomu sinnar til Reykjavíkur í dag. Hann er sagður meðal fremstu plötusnúða heims og geta fengið fólk til að dansa nóttina á enda. DEREK Dahlarge. HANN er sagður fjörugur kappi, gleðipinni danstónlistarinnar, konungur plötusnúð- anna og hæfileikaríkur hljóðblandari laga. Nýjasta verk hans er tvöfaldur diskur, FSUK að nafni eða The Future Sound of the United Kingdom. Derek Dahlarge er í fremstu víglínu á nýjum og víðfeðmnum bít-vellinum (Big Beat), stundum jafnvel kallaður Herra stuð. Fyrirtækið Hljóðráðuneytið, Ministry of Sound hafði áður gefið út plöturnar Framtíðarhljómur New York borgar og Framtíðarhljómur Chicago með góðum árangri og ákveðið var að ráðast í Framtíðarhljóm Bretlands og réð fyrirtækið Der- ek Dahlarge í verkið. FSUK heppnaðist og hefur selst vel. Platan er nú sennilega mest selda dans- tónlistarplatan á íslandi, en á henni eru meðal annars lög eftir þekktar hljómsveitir hér á landi og tónlistarmenn eins og Underworld, Monkey Mafia, Leftfield og Howie B. Ferðalög víða um lönd „Fyrir utan FSUK hef ég verið á ferðalögum víða um lönd til dæmis í Brasilíu og Bandaríkjun- um,“ segir Derek, „hinsvegar hlakka ég til að vera aftur í Reykjavik, þvi þar mxœzm eru Ijómandi góðir áhorf- _______ endur. Ég hef það líka á I tilfinningunni hvað það er ---------------------- sem hreyfir við fólki og kemur limunum á dansgólfið." Hann segist einnig spila undir öðrum nöfnum eins og Ceasefire og með Jon Carter undir heitinu Naked AIl Stars. Annars spilar hann oftast í klúbbum í Bretlandi. Hann er líka eftirsóttur í vinnu við endurhljóðblandanir á þekktum lögum nýrra sem gamalla tónlistarmanna, jafnvel á Purple Haze laginu eftir Jimi Hendrix. Maður næturínnar byijar á miðnætti Hann segist vera maður næturinnar og verður í kvöld gestur á útgáfutónleikum Súrefhis í Tungl- inu Lækjargötu sem hefjast um miðnætti. Á laug- ardaginn verður hann svo á sérstakri hátíð Hljómalindar í Tunglinu ásamt DJ Rampage eða Robba rapp og DJ Fingaprint eða Frikka. Derek Dahlarge er íri sem vakti almenna at- hygli árið 1989 með Ceasefire og plötunni Tricks- hot undir merkjum Wall of Sound fyrirtækisins. Núna segist hann vera önnum kafinn allan sólar- hringinn bæði sem plötusnúður og hljóðblandari og við eigin tónsmíðar. Hann biður í lok símtalsins um skilaboð: „Verið viðbúin, ég er á leiðinni.“ íþróttaskór Fleece peysur Æfingagallar Barnagallar Töskur Úlpur °9 Reykjavikurvegi 60, Hafnarfirði - Sími 555 2887 - Sendum í póstkröfu FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 69 KRINGLUNNI 4. SÍMAR 533 1717 og 533 1718 r J~opptilboð IWALDF1 ökklaskór Teg: 4 Litur: Svartir Stærðir: 36—41 Verð nú kr. 2.495 V Ath: Hlýfóðraðir Póstsendum samdægurs T oppskórinn Veltusundi v/ Ingólfstorg, sími 552 1212 y Teg.2 Bh. kr. 1.680 Buxur kr. 750 Teg. 4 Bh. kr. 1.970 Buxur kr. 1.285 Ath. erum flutt að Laugavegi 40a, sími 551 3577

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.