Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 76

Morgunblaðið - 28.11.1997, Síða 76
JtewU&t -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Kísilgúrnám í Mývatni Mat lagt á áhrif nýrrar tækni STJÓRN Kísiliðjunnar hf. í Mý- vatnssveit hefur ákveðið að láta meta umhverfisáhrif nýrrar tækni við kísilgúrvinnslu í Mývatni. Stjómarformaður Náttúrurann- sóknastöðvarinnar við Mývatn telur að dýpkun vatnsins geti haft alvar- legar afleiðingar fyrir lífríkið. Kísiliðjan hefur leyfi til vinnslu kísilgúrs á afmörkuðu svæði í Mý- vatni til ársins 2010. Við framleng- ingu þessa námaleyfis fyrir fjórum Aram var talið of áhættusamt að hefja kísilgúmám í syðri hluta vatnsins og gengið út frá því að starfsemi verksmiðjunnar hætti þegar núverandi námur tæmdust. Nú er talið að hráefnið dugi til 2002-2004. Tilraunir gerðar næsta sumar Stjórnendur Kísiliðjunnar hafa unnið að þróun nýrrar tækni við hráefnisöflun til að skapa forsendur til áframhaldandi reksturs fyrir- tækisins. Tæknin verður reynd í vatninu næsta sumar en hún felst í því að skorið er lag undan botnlagi vatnsins og er hún því talin raska lífríkinu minna en núverandi að- ferð. ■ Hálmstrá/26-29 Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson HUSFYLLIR var í Stjórnsýsluhúsinu á Isafirði á borgarafundi um húsnæðismál Grunnskólans á ísafirði. Borgarafundur um husnæðismál Grunnskóla fsafjarðar Frystihús var rýmt vegna ammoníaksleka Sakaðir um valdníðslu og slæm vinnubrögð ísafjörður. Morgunblaðið. LEKI kom að loka í ammoníaks- ' *p,kerfi hjá frystihúsinu Snæfelli á Dalvík um hádegisbilið í gær. Húsið var tæmt meðan komist var fyrir bilunina og loftað út. Tjón varð einkum vegna tafa við fiskvinnsl- una. Loki í ammoníaksröri stóð á sér og fór ammoníak og fnykur um sali frystihússins en ekki í frysti- geymslur. Var húsið rýmt meðan FISKISTOFA rannsakar nú tvö til- --»Tik á Patreksfirði, þar sem rökstudd- ur grunur er um að afla hafi verið landað framhjá vigt. Þar sem kæra hefur enn ekki verið gefin út, fást nöfn þeirra fyrirtækja, sem málinu tengjast, ekki gefin upp. gert var við lokann og það hreinsað. Gunnar Aðalbjömsson frystihús- stjóri telur að ekki hafi orðið skemmdir á afurðum sem verið var að vinna og er tjón einkanlega vegna bilunarinnar og tafa á vinnslu. Ekki var unnið frekar við fisk eftir hádegi í gær enda yfirleitt ekki unnið lengur en til kl. 15. Bjóst Gunnar við að vinnsla yrði með eðli- legu móti í dag. Málsatvik eru þau, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að eftir- litsmenn Fiskistofu komu þar að sem fiskur var kominn í fiskvinnsluhús án þess að hann hefði verið vigtaður. Líklegt er að kæra verði gefin út í dag eða eftir helgi. ISFIRÐINGAR fylltu Stjórnsýslu- húsið á Isafirði í gærkvöld þar sem fram fór almennur kynningarfund- ur um húsnæðismál Grunnskóla Isafjarðar. Starfandi meirihluti bæjarstjómar sprakk í gær vegna málsins. Hjá fundargestum kom fram mikil gagnrýni á nýjan meirihluta fyrir að hafa knúið fram samþykkt um að Norðurtangalausninni svokölluðu yrði hafnað á aukabæj- arstjórnarfundi daginn áður en kynna átti bæjarbúum niðurstöður starfshóps um mögulegar lausnir. Túlkuðu margir fundargestir þenn- an starfsmáta sem vanvirðingu við íbúa og töldu ákvörðun sexmenn- inganna, sem mynda nýja meiri- hlutann, fljótfærnislega og bera vott um ófagleg vinnubrögð og valdníðslu. Kolbrún Halldórsdóttir, einn sex- menninganna, vísaði því á bug að um valdníðslu væri að ræða. Fundargestir óskuðu eftir því að hinn nýi meirihluti gerði grein fyrir tillögum sínum í húsnæðismálum og greindi Kolbrún frá því að leita yrði eftir leiguhúsnæði til bráðabirgða til að mæta þeim skorti á kennslu- húsnæði sem fyrirsjáanlegur er á næsta ári, þar til nýbygging verði tekin í notkun. Jafnframt yrði könn- uð hagkvæmni þess að byggja skólahúsnæði við Skólagötu og Austurveg og leysa lóðamál skólans með uppkaupum nálægra húsa. Kol- brún sagði að ef í Ijós kæmi að framangreindar lausnir reyndust ófærar yrði starfshópi falið að hefja viðræður við forystu IBÍ um flutn- ing á knattspymuvöllunum á Torf- nesi á nýtt svæði í Tungudal og gert yrði ráð fyrir skólabyggingu þar. Bæjarstjórinn hættur Stjórnsýsla Isafjarðarbæjar virð- ist vera að lamast vegna húsnæðis- mála grunnskólans, en á fundinum var upplýst að Rúnar Vífilsson skólafulltrúi og Þórunn Gestsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra, hefðu sagt upp störfum sínum vegna óá- nægju með framvindu mála. Fyrr um daginn sagði Kristján Þór Júlí- usson upp starfi sínu á sömu for- sendum. Bæjarstjórinn/4 Afli framhjá vigt? Héraðsdómur leitar til EFTA-dómstóls vegna skaðabótamáls I fyrsta sinn sem ráð- gefandi álits er leitað Morgunblaðið/Þorkell Loftfím- . leikar ÞAÐ er víst eins gott fyrir bygg- ingaverkamennina, sem undir- búa uppsetningu byggingar- krana þar sem verið er að reisa tölvuháskóla við hlið Verslunar- skólans, að þjást ekki um of af lofthræðslu. Þessi kappi virtist fullkomlega rólegur þar sem hann dinglaði í körfunni í lausu lofti í umtalsverðri hæð. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur farið fram á ráðgefandi álit frá EFTA-dómstólnum í Lúxem- borg vegna skaðabótakröfu starfs- manns, sem sagt var upp hjá einkafyrirtæki, á hendur ríkinu fyrir að hafa ekki lagað íslenzk lög réttilega að samningnum um Evr- ópskt efnahagssvæði. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenzkur dómstóll leitar álits EFTA-dómstólsins á túlkun á ákvæðum EES-réttar og löggjöf, sem leidd er af honum. í fréttatilkynningu frá EFTA- dómstólnum kemur fram að mála- vextir eru þeir að starfsmanni fyr- irtækis var sagt upp störfum, en áður en uppsagnarfrestur hans rann út var fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta. Abyrgðarsjóður launa hafnaði kröfu starfsmannsins um greiðslu launa í uppsagnar- fresti með vísan til þess að starfs- maðurinn væri systir eins eigenda fyrirtækisins, sem ætti 40% hlut í því, og með vísan til að kröfunni hefði verið hafnað sem forgangs- kröfu í þrotabúið samkvæmt ákvæðum laga um gjaldþrota- skipti. Telur ríkið ekki hafa Iagað lög- gjöf að EES-samningnum Starfsmaðurinn hefur höfðað skaðabótamál á hendur íslenzka ríkinu og byggir á því að íslenzka ríkið beri skaðabótaábyrgð á því að hafa ekki lagað íslenzka lög- gjöf réttilega að EES-samningn- um. EES-löggjöfin, sem um ræð- ir, er tilskipun ráðherraráðs ESB nr. 80/987/EBE um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vernd til handa launþegum, verði vinnuveitandi gjaldþrota. Tilskip- unin er hluti af EES-samningn- um. Héraðsdómur Reykjavíkur leitar álits EFTA-dómstólsins á túlkun tilskipunarinnar og sérstaklega á túlkun 10. greinar og 2. máls- greinar 1. greinar hennar, en sam- kvæmt síðarnefndu greininni er heimilt að gera sérstakar undan- þágur frá meginreglum tilskipun- arinnar. Með heimild í þeirri grein hafa íslenzk stjórnvöld gert fyrir- vara, sem lýtur að rétti tiltekinna aðila, sem hafa yfirsýn yfir fjár- hagsstöðu félags sem tekið er til gjaldþrotaskipta, sem og maka þeirra og tiltekinna ættingja. Jafnframt er leitað álits á því hvort einstaklingur geti átt rétt á skaðabótum frá ríki, sem á aðild að EES-samningnum, í því tilviki að löggjöf ríkisins hafi ekki verið réttilega löguð að tilskipuninni. Ók ölvaður og óskaði aðstoðar lögreglu HÆSTIRÉTTUR svipti mann ökuréttindum í 3 ár og dæmdi hann til greiðslu 70 þús. kr. sektar fyrir ölvunarakstur. Maðurinn ók heim eftir sam- kvæmi. Hann fann ekki hús- lyklana og notaði farsíma í bíln- um til að hringja í lögreglu og biðja um aðstoð. Lögreglan furðaði sig á því að engin önnur fór voru í ný- föllnum snjónum við húsið en bílför og fótspor að og frá bíln- um. Maðurinn kvaðst ekki muna hvemig hann hefði kom- ist heim. Ekki vænkaðist hagur strympu daginn eftir, þegar kunningi mannsins gaf sig fram við lögreglu og sagði að maður- inn hefði óskað eftir að hann bæri ljúgvitni og segðist hafa ekið honum heim. Maðurinn var yfirheyrður aftur og kvaðst þá ekki geta úti- lokað að hafa ekið sjálfur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.