Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
1991
1984
1979
1977
% dJ
1972
% íft'f
/. '
1971
91
1974) 1992
1973 1990
karla
í körfuknattleik
frá 1970, er keppnin
var fyrst haldin
1989 1983) Éj99m (1996
Grindvíkingar og ísfirðingar
leika um bikarinn
þann 14. febrúar
1988 1981 f1994 {1986
1976
1970 11987 1980 1993 1985 1975)
...... .. '
KR Njarðvík Valur Keflavík Haukar Ármann Grindavík Frám
1995 1982
-W v m
S
\1978
ís
■ KRISTJÁN Brooks, miðherji í
ÍR, fór til Lyn í Noregi í gær og
verður hjá knattspyrnuliðinu fram á
föstudag með samning í huga.
■ ANDREAS Thiel markvörður Ba-
yer Dormagen og félagi Héðins
Gilssonar og Róberts Sighvatsson-
ar hefur framlengt samning sinn við
Dormagen til loka keppnistímabils-
ins vorið 1999. Thiel sem var til
margra ára landsliðsmarkvörður
Þýskalands er á 38. aldursári.
■ JÖRN-Uwe Lommel þjálfari Kon-
ráðs Olavsonar og félaga hjá
Niederwiirzbach tekur við þjálfun
Essen í sumar, þar leikur m.a.
Patrekur Jóhannesson. Fyrr í vet-
ur hafði Lommel lýst því yfir að
hann hygðist hætta hjá
Niederwiirzbach í vor þrátt fyrir að
liðinu gengi vel.
■ TÆPAR tvær vikur eru þar til
Ólympíuleikarnir í Nagano hefjast,
en á laugardaginn komu fyrstu
keppendurnir til Japans og komu
sér fyrir í ólympíuþorpinu. Þetta
eru keppendur frá Tævan og Jóm-
frúareyjum. Keppendur verða 2.450
frá 72 löndum og hafa aldrei komið
frá fleiri á vetrarólympíuleika.
■ ZORAN Njegus, 24 ára miðju-
FOLK
maður hjá knattspyrnuliði Rauðu
stjörnunnar í Júgóslavíku mun
ganga til liðs við ítalska meistaralið-
ið Juventus þegar deildarkeppninni
í Júgóslavíu lýkur í júní.
■ ANNAR leikmaður Rauðu stjörn-
unnar er einnig á fórum frá félag-
inu. Nikola Lazetic, sem er 19 ára
varnarmaður, fer til Feyenoord, en
ekki PSV Eindhoven eins og allt
benti til fyrir helgi.
■ TVEIR bandarískir körfuknatt>
leiksmenn, Jens-Uwe Gordon og
Lou Roe, sem leika með Unicaja
Malaga á Spáni féllu á lyfjaprófi
fyrir stuttu; höfðu báðir notað
kannabisefni.
■ BANDARISKI kylfíngurinn Tiger
Woods sigraði á sterku golfmóti í
Tælandi á sunnudaginn. Hann var
átta höggum á eftir Ernie EIs iyrir
síðasta dag, vann það muninn upp
og sigraði síðan á annari holu í
bráðabana. Els hafði forystu alla
þrjá dagana en síðasta hringinn lék
Woods á 65 höggum, sjö undir pari
vallarins, og jafnaði þar með við Els.
■ HAILE Gebrselassie frá Eþíópíu
bætti eigið heimsmet í 3.000 m
hlaupi innanhúss á móti í Karlsruhe
á sunnudaginn. Hann hljóp vega-
lengdina á 7.26,14 mín., en gamla
metið var 7.30,72, sett í febrúar
1996 í Stuttgart.
■ EFTIR hlaupið sagði Gebr-
selassie að hann hefði í huga að
endurheimta heimsmetin í 5.000 og
10.000 m hlaupi utanhúss í sumar
en hann missti bæði metin í hendur
Kenýjamanna sl. sumar.
■ JONATHAN Edwiirds heimsmet-
hafí í þristökki keppti á móti í
Stange í Noregi um helgina og sigr-
aði, stökk 17,26 m. Þá keppti hann
einnig í 60 m hlaupi, vann sinn riðil
en gat ekki keppt í úrslitunum þar
sem þau fóru fram á sama tíma og
þrístökkið stóð yfir. Edwards sagð-
ist hafa æft vel í vetur og verið laus
við meiðsli og hann liti með ánægju
til sumarsins.
ST0LT
Nokkiir fremstu íþróttamenn
þjóðarinnar voru í eldlínunni
um helgina, bæði hér heima og er-
lendis. Frjálsíþróttamennirnir
Vala Flosadóttir, Jón Arnar
Magnússon og Guðrún Arnardótt-
ir á bráðskemmtilegu stórmóti
ÍR-inga í Laugardalshöll og Krist-
inn Björnsson skíða-
maður í brekkunum í
Kitzbuhel í Austumki,
svo dæmi séu tekin. Úr
nógu var sem sagt að
velja íyrir íþróttaá-
hugamenn og ekki
skemmdu beinar útsendingar
sjónvarpsstöðva fyrir þeim sem
áhuga hafa á íþróttum í hæsta
gæðaflokki; Islenska útvarpsfé-
lagið - Stöð 2 og Sýn - bauð upp á
hvorki fleiri né fæm en þrettán
beinar útsendingar; frá knatt-
spýrnu í Englandi og á Ítalíu,
körfuknattleik á ísafirði og
Reykjavík, amerískum fótbolta í
San Diego og skíðum í Austurríki
og RÚV vai1 með Stórmót ÍR í
frjálsum og skíði í Austurríki í
beinni.
Árangur frjálsíþróttafólksins í
Laugardalshöli lofar góðu, en
framundan er Evrópumót bæði
innan- og utanhúss. Vala á titil að
verja á því fyrrnefnda og gaman
var að sjá hve nálægt hún var að
bæta Evrópumetið í stangar-
stökki; Vala sýndi að hún kemst
hærra en hún hefur þegar gert og
fróðlegt verður að fylgjast með
henni í Valencia á Spáni á EM
innanhúss. Ljóst er að Jón Arnar
og Guðrún eru iíka til alls vís.
Með fúllri virðingu fyrir öllu
öðru voru það þó líklega svigmótin
tvö í Kitzbiihel sem landsmenn
biðu eftir með mestri eftirvænt-
ingu. Þeir eni farnir að fylgjast
grannt með Kristni Björnssyni,
eftir óvæntan og glæsilegan ár-
angur hans í Park City í haust,
þegar hann varð annar á fyrsta
heimsbikarmóti vetrarins í svigi.
Nú eru sjö slík að baki, Ki-istinn
hefur reyndar aðeins skilað sér í
mark í tveimur, en athyglisvert er
að í bæði skiptin hefur hann náð á
verðlaunapall.
Ki-istinn var ekki ánægður með
sjálfan sig um helgina en vert er
að gefa orðum þjálfara hans,
AustuiTÍkismannsins Christians
Leitners, gaum. Hann segist, í
samtali við blaðið í dag, ekki hafa
miklar áhyggjur þó að Kristinn
hafi ekki náð sér á strik í Kitz-
búhel, hann eigi góða möguleika á
Ólympíuleikunum í Nagano. Þjálf-
arinn segir brekkuna þai- henta
Kristni betur, því hún sé brött og
verði örugglega hörð. „Við skulum
sjá til hvað gerist þá.“
Leitner bendir á að ekki megi
gera óraunhæfar kröfúr til Krist-
ins; ekki megi ætlast til að hann
komist á verðlaunapall í hverju
einasta heimsbikarmóti. „Hann
hefur sýnt að hann er kominn í
fremstu röð og ég held að íslend-
ingar ættu að vera stoltir af hon-
um.“
Full ástæða er til að taka undir
þessi orð þjálfarans. Kristinn er
nánast að stíga sín fyrstu skref í
heimsbikarkeppninni og árangur-
inn til þessa - á þeim mótum sem
hann hefur náð að klái-a - er auð-
vitað frábær. Og meira býr í
stráknum. Óþarfi er að magna
upp væntingar í hvert einasta
skipti sem hann stígur á skíði; gef-
um honum aðeins meiri tíma.
Skapti
Hallgi'ímsson
„Er í fremstu röð -
íslendingar ættu að
vera stoltir af Kristni“
Ætlar körfuknattleiksmaðurinn ÖLAFUR JÓN ORMSSON að vinna tvöfaltí vetur?
Sé ekki eftir
hvfldinni
ÓLAFUR Jón Ormsson hefur leikið vel fyrir KFÍ í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í vetur. Þótt hann sé einungis 21 árs er
hann orðinn leikreyndur í efstu deild, en hann hóf að leika í
meistaraflokki 1991, með KR. Á sunnudag undirstrikaði Ólafur
hæfni sína er hann gerði 21 stig í góðum sigri ísfirðinga á
Njarðvíkingum í undanúrslitum bikarkeppninnar.
Olafur gekk til liðs við KFÍ síð-
astliðið sumar eftir ársfrí frá
körfuknattleik og flutti þá til ísa-
fjarðar ásamt unn-
Eftlr ustu sinni, Hafdísi
Edwin Guðrúnu Hilmars-
Rögnvaldsson dóttur, en þau urðu
svo lánsöm að eign-
ast dóttur hinn 3. desember -
Berglindi Marín.
Ólafur átti eitt sinn við bak-
meiðsl að stríða og ákvað því að
hvíla sig á körfuknattleik um skeið
eftir að hafa leikið með KR við góð-
an orðstír, en íhugaði hann
nokkum tíma að hætta í íþróttinni?
„Það kom til greina. Það var erfitt
að byrja aftur, því ég snerti bara
ekki körfubolta í heilt ár. Ég ákvað
að taka mér góða hvíld og ég sé
ekki eftir því. Mér líður svo vel um
þessar mundh- að ég get beitt mér
að fullu, í stað þess að vera aðeins
hálfur maður,“ segir Ólafur.
Hvernig vildi koma þín til KFÍ
til?
„Ég þekki Friðrik [Stefánsson,
leikmann KFI] mjög vel. Hann er
mjög góður vinur minn. Einnig
þekki ég Guðna [Guðnaspn, þjálf-
ara] frá veru minni í KR. Ég komst
að samkomulagi við hann og mér
líður mjög vel hérna.“ Pessi
staður er engum líkur hvað
stemmningu á körfuboltaleikjum
varðar. Hvemig tilfinning er að
upplifa slíkt?
„Ég hef aldrei kynnst öðru eins,
ég verð að viðurkenna það. Þetta
eru áhorfendur á heimsmæli-
kvarða. Áhugi fólksins er gífurleg-
ur. Ég held að ekkert íslenskt lið
eigi jafngóða áhorfendur og við, al-
veg sama í hvaða íþrótt það er.“
Hvenær hófst þú að leika
körfuknattleik oghvers vegna?
„Ég byrjaði tólf ára gamall. Ég
var í handbolta og fótbolta, en síð-
an fór ég á körfuboltaæfingu hjá
KR með vinum mínum. Nokkrir
jafnaldra minna, sem ég umgekkst,
voru mikið í körfubolta og í dróst
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
ÓLAFUR Jón Ormsson, leikmaður KFÍ, var mættur til vinnu
sinnar á bæjarskrifstofunum á ísafirði í gærmorgun.
inn í þetta þannig. Strax á tólfta ári
hætti ég öllu hinu; einbeitti mér að
körfuknattleik. Mér gekk bara svo
vel í körfuknattleiknum. Mér finnst
þetta langskemmtilegasta íþrótt
sem ég hef verið í.“
Hvað gerir körfuknattleik svona
skemmtilegan?
„Hann er svo fjölbreyttur. Það
er mikið um að vera allan tímann,
stöðug átök. Margir segja að
körfuknattleikur sé ekki einu sinni
líkamleg íþrótt, en menn þurfa
bara að horfa á einn leik til að sjá
að það er rangt. Þetta er bara svo
skemmtileg íþrótt. Allir geta leikið
körfuknattleik upp að vissu
marki.“
Hvert er markmið ykkar á þessu
tímabili?
„KFÍ var mjög nálægt því að
komast í úrslitakeppnina í fyrra og
markmiðið í vetur er að gera betur.
Nú er stefnan sett á toppinn. í
fyrri umferðinni unnum við Hauka,
Njarðvík og Keflavík, þrjá leiki í
röð. Núna vorum við að vinna
Njarðvík aftur - og Grindavík fyrir
skömmu. Það sem hefur komið
okkur í koll er að við höfum misst
einbeitinguna þegar við leikum
gegn lakari liðunum. Ef það hefði
ekki gerst, vænim við efstir núna.
Við erum að vinna efstu liðin leik
eftii' leik, en síðan gerist eitthvað
hjá okkur í hinum leikjunum, hugs-
anlega er það vanmat. En ég stend
fastur á því að við eigum góða
möguleika á að vinna titil í vetur,
jafnvel að vinna tvöfalt [í bikar- og
deildarkeppni]. Við eigum engu
minni möguleika en aðrir á því,“
segir Ólafur.