Morgunblaðið - 27.01.1998, Síða 3

Morgunblaðið - 27.01.1998, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 B 3 IÞRÓTTIR KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA Reuters MICHAEL Jordan með knöttinn í leiknum gegn Utah. Hann gerði 32 stig en Greg Ostertag, sem er til varnar, og samherjar fögnuðu sigri að leikslokum. Lára Hrund bætti met Ragnheiðar LÁRA Hrund Bjargardóttir, SH, bætti tæplega 11 ára gamalt íslandsmet Ragnheiðar Runólfsdóttur, IA, í 400 m fjórsundi kvenna á Stórmóti Búnað- arbankans og VISA sem fram fór í sundlaug Hafnarfjarðar um helgina. Synti Lára á 5.01,53 mín. og bætti gamla metið um 74/100 úr sekúndu. Tím- inn er einnig stúlknamet, en sjálf átti Lára Hrund fyrra stúlknametið. Á sama móti bætti Öm Arnarson, SH, eigið piltamet í 50 m skriðsundi er hann kom í mark á 23,59 sek. Nú náði Utah að sigra í Chicago Seattle vann Los Angeles Lakers á heimavelli á laugardagskvöld- ið í uppgjöri þeirra liða sem hafa hæsta vinningshlutfall í deildinni, 101:95. Vin Baker gerði 213 stig og tók 10 fráköst fyrir heimaliðið og Gary Payton fylgdi á eftir með 20 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar. „Sigurinn var okkur mikilvægur bæði vegna stöðunnar í deildinni og ekki síður tilfinningalega," sagði Baker í leikslok. „Vinningurinn tryggði einnig þjálfara okkar, Ge- orge Karl, sæti stjómanda vestur- strandarliðsins í Stjörnuleiknum," bætti Baker við. Það að Seattle hef- ur hæsta sigurhlutfall liða í vestur- deildinni þýðir að þjálfari þeirra hlýtur þetta eftirsótta embætti. Shaquille O’Neal var atkvæða- mestur leikmanna Lakers með 30 stig auk þess að taka 12 fráköst. Á sama tíma og þessu fór fram náði Denver að binda enda á eina mestu raunagöngu liðs í NBA-deild- inni frá upphafi er það sigraði Los Angeles Clippers 99:81 í Los Angel- es. Kvöldið áður hafði Denver tapað sínum 23. leik í röð og jafnað met Vancouver Grizzlies frá árinu 1996. Anthony Goldwire gerði 20 stig fyr- ir Denver og hefur ekki gert fleiri stig í einum leik á ferlinum í NBA- deildinni. Johnny Newman fylgdi honum fast eftir með 19 stig en alls gerðu sex leikmenn liðsins einn tug stiga eða meira. Reggie Miller skoraði 32 stig er Indiana, undir stjórn Larry Birds, tókst að vinna gamla félag þjálfara síns, Boston Celtics, í annað sinn, að þessu sinni 95:88. Á sunnudagskvöldið tókst leik- mönnum Utah Jazz að gera nokkuð sem þeim lánaðist aldrei í úrslita- keppninni sl. vor, þ.e.a.s. að vinna Chicago Bulls á þeirra heimavelli. Karl Malone fór mikinn í leiknum og gerði 35 stig auk þess að taka 11 fráköst í þessum átta stiga sigri Utah, 101:94. Þetta var annar ósig- ur Chicago á heimavelli á leiktíðinni og fyrsta tap þeirra fyrir liði af vesturströndinni í nærri þrjú ár eða frá því að Michael Jordan sneri á ný til liðsins að loknu leyfi sem hann tók sér frá körfuknattleik. Jordan gerði 32 stig nú. „Þetta er ekkert stórmál í mínum augum,“ sagði Jeff Hornacek, leik- maður Utah. „Það vegur ekki þungt að vinna Chicago í deildarkeppn- inni, meira máli skiptir að leggja þá í úrslitakeppninni." „Mér er meinilla við að tapa,“ sagði Jordan. „Ekki hvað síst á heimavelli, það kemur sér illa fyrir sjálfstraustið." Tap Chicago þýðir að það verður Larry Bird sem stjórnar liði austur- strandarinnar í stjörnuleiknum en ekki Phil Jackson, þjálfari meistar- anna. „Eg er dauðfeginn að losna við það verkefni," sagði Jackson í leikslok. FOLK ■ PAULO Sousa fékk í gær leyfi frá Dortmund til að ganga þegar til liðs við Inter á Ítalíu, sem greið- ir þýska félaginu 15 milljónir marka (um 608 millj. kr.). Portú- galski miðherjinn var samnings- bundinn Dortmund út næsta tíma- bil en mátti fara ári fyrr. ■ SOUSA, sem er 27 ára, hafði til- kynnt Dortmund að hann vildi leika við hliðina á Ronaldo hjá Int- er, en félagið var ekki tilbúið að láta hann fara vegna mikilvægra verkefna liðsins á næstunni. En fé- lögin náðu samkomulagi þegar ljóst varð að Sousa hafði gert samning við Inter frá og með júlí nk. ■ DORTMUND greiddi Juventus 7,5 millj. marka fyrir Sousa 1996 en hann var aldrei ánægður hjá þýska félaginu. „Við urðum að láta hann fara þegar boð um 15 milljón- ir marka kom því við hefðum feng- ið minna fyrir hann í júlí,“ sagði stjómarmaðurinn Ottmar Hitz- feld. ■ ANDRE Agassi tapaði óvænt fyrir Alberto Berasategui í 16 manna úrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis um helg- ina. ■ PELE, sem er almennt þekktur sem einn besti ef ekki besti knatt- spymumaður sögunnar frekar en íþróttamálaráðherra Brasilíu, ætl- ar að hætta sem ráðherra í maí til að geta tekið að sér að lýsa leikjum frá Heimsmeistarakeppninni í knattspymu. Hann áætlar að taka aftur við ráðherrastöðunni í ágúst. ■ LÖG í Brasiliu heimila ekki ráð- herram að taka sér tímabundið frí frá störfum en Pele sagði í samtali við blað í Brasilíu að hann yrði af milljón dolluram, um 70 millj. kr., á ári vegna starfa sinna fyrir ríkis- stjómina. ■ ULF Kirsten, miðherji Lever- kusen, fær að leika með liði sínu á móti Werder Bremen 7. febrúar. Hann var úrskurðaður í níu vikna bann fyrir að gefa mótherja oln- bogaskot í andlitið í liðnum mánuði en refsingunni var breytt í átta vikna bann í gær. ■ DANIELE Dichio var í gær keyptur til 1. deildarliðs Sunderland á Englandi frá Sampdoria á Ítalíu á „innan við eina milljóna punda,“ eins og Peter Reid, knattspymustjóri enska félagsins orðaði það. ■ DICHIO, sem er 23 ára fram- herji, fór til Ítalíu frá QPR í fyrra- sumar en hefur ekkert fengið að leika þar á bæ; var síðan leigður til Lecce þar sem hann gerði þrjú mörk í tveimur leikjum en fékk svo ekki fleiri tækifæri. Bróðuriega skipt á Akureyri Stjaman sótti KA heim á Akur- eyri um helgina í 1. deild karla í blaki og skemmst er frá því að segja að liðin skiptu leikjunum bróður- lega á milli sín; Stjarnan vann þann fyrri á fostudagskvöldið 3:1, en heimamenn þann síðari 3:0. Guð- bergur Egill Eyjólfsson, sem skipti í KA um áramótin, stjórnaði upp- spilinu ágætlega á köflum og það verður að telja líklegt að hann styrki liðið meira í framhaldinu. Vignir Hlöðversson og Emil Gunn- arsson voru einna skárstir í Stjörnuliðinu sem á nú í hörkubar- áttu við KA um sæti í úrslitakeppn- inni. Hörkubarátta á Húsavík Völsungsstúlkur tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í bikar- keppninni og eru komnar í undan- úrslit eftir að þær skelltu nágrönn- um sínum úr KA í 5 hrina leik á laugardaginn. Framan af leik var útlitið ekki gott hjá Húsavíkurliðinu sem tapaði fyrstu tveimur hrinun- um, en unnu næstu tvær. KA-stúlkur byrjuðu betur í úr- slitahrinunni og voru alltaf skrefi á undan allt þar til Völungsstúlkur náðu að jafna 8:8 en eftir það var jafnt á flestum tölum. Völungsstúlk- ur náðu síðan að höggva á hnútinn og innbyrða tvö síðustu stigin og breyta stöðunni úr 16:16 í 18:16 eft- ir tveggja tíma baráttuleik. „Jafn- ara gat þetta ekki verið. Við ætluð- um alltaf að vinna og það tókst en ég neita því ekki að bekkurinn var orðinn nokkuð stressaður á tímabili en þetta hafðist", sagði Sveinn Hreinsson, þjálfari Völsungs í leiks- lok. Birna Baldursdóttir lék best fyrir KA ásamt uppspilaranum Höllu Halldórsdóttur, en hjá Völsungi léku þær Ágústa Þorsteinsdóttir og Jóhanna Gunnarsdóttir mjög vel. Bai’áttan um sæti í úrslitakeppninni stendur einnig á milli sömu liða og línur ættu að skýrast fljótlega hvort liðið kemst áfram. Stúdínur skelltu liði Þróttar N. 3:0 í Hagaskólanum á laugardaginn og það var nokkuð ójafn leikur þar sem gestirnir urðu fyrir mikilli blóðtöku strax í byrjun fyrstu hrinu þegar Jóna Harpa Viggósdóttir meiddist og þurfti að yfirgefa leik- völlinn fyrir fullt og allt. Eftir það náðu gestimir aldrei að sýna sitt rétta andlit. Hinn nýi lettneski upp- spilari stúdína, Agita Zavica sýndi þó að þar er á ferðinni sterkur leik- maður en hún fyllir skarð Önnu G. Einarsdóttur fyrrverandi uppspil- ara sem hélt utan til náms. Wachter meiddist ANITA Wachter frá Austurríki snéri sig illa á hægra hné þegar hún datt á risasvigsmóti á Ítalíu á laugardaginn. Liðband tognaði illa og hún verður ekki með á Ólympiuleikunum í Nagano í næsta mánuði. Wachter missti skíðin sitt til hvorrar handar og datt og rann um 80 metra niður brautina í Cortina D’ampezzo. Binding- arnar brugðust og hún losnaði ekki úr skiðunum og því fór sem fór. Wachter er þrítug, hefur tekið þátt i heimsbikarmótum frá 1984 og varð m.a. Ólympíumeistari í tvíkeppni 1988 og varð þá önnur í risasvigi og tvíkeppni. Hún ætlaði að keppa á Qórðu Ólympíuleikunum í röð í Nagano og hugðist hætta keppni eftir þetta túnabil. írar vilja ekki Wimbledon ÍRSKA knattspymusambandið áréttaði í gær að það væri á rnóti því að enska úrvalsdeild- arliðið Wiinbledon flytti til Dublin en írskir fjölmiðlar gerðu því skóna fyrir helgi að sambandið væri að gefa eftir í inálinu. Einn af eigendum Wimble- don heinisótti írsk félög f lið- inni viku og í blöðum kom fram að enska félagið hefði tryggt sér stuðning 17 írskra félaga í tengslum við fyrirhug- aðan flutning. Irska dagblaðið Suiiday Tribune sagði auk þess að Wimbledon hefði ráðið belgíska lögfræðinginn Jean- Louis Dupont, verjanda Jean Marc Bosman í frægu máli, til að fá opinbera staðfestingu á því að félaginu væri heimilt að ilytja hvert sem væri iiman Evrópusambandsins. BLAK SUND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.