Morgunblaðið - 27.01.1998, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.01.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 B 11 KÖRFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristinn GRINDVÍKINGARNIR Pétur Guðmundsson og Konstantionos Tsartsaris kljást við Valsmanninn Hjört Þór Hjartarson í bikarleiknum á Hlíðarenda. Dæmi- gerður bikar- leikur Góður varnarleikur skilaði Grindvíkingum sigri „ÞETTA var alveg dæmigerður bikarleikur þar sem bæði lið komu mjög grimm til leiks. Við eigum að vera með betra lið, en í bikarkeppni skiptir það hins vegar ekki alltaf öllu máli og oft er það dagsformið sem ræður úrslitum. Við náðum þó að sigra eftir mikinn baráttuleik og erum að sjálfsögðu mjög ánægðir með að vera komnir í úrslitaleikinn,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari úrvalsdeildarliðs Grindavíkur í körfuknattleik, eftir að Grind- víkingar sigruðu Valsmenn, 101:84, í und- anúrslitum bikarkeppninnar á Hlíðarenda á sunnudag. Eg var ekki nógu ánægður með hversu mörg stig við fengum. á okkur í fyrri hálfleik og taldi því best að leggja meira upp úr varnarleiknum í síðari ~ hálfleik. Við náðum svo að herða vörnina þegar líða tók á síðari hálfleikinn og má í raun segja að góður varnarleikur hafi lagt grunninn að þessum sigri. Það er segin saga að sterkur vamarleikur er lykillinn að góðum árangri okkar og þegar við spilum góða vörn þá fylgir góður sóknarleikur yfirleitt í kjölfarið,“ sagði Benedikt. Valsmenn komu ákveðnir til leiks á heimavelli sín- um á Hlíðarenda og höfðu forystu lengst af í fyrri hálfleik. Grindvíkingar virtust ekki alveg finna rétta taktinn til að byrja með, en hleyptu þó heimamönnum aldrei langt á undan sér og var forskot Valsmanna yf- irleitt aldrei meira en tvö til fjögur stig. Undir lok fyrri hálfleiks tóku gestirnir síðan ágæt- an sprett og þegar gengið var til búningsherbergja í hálfleik var staðan 45:44 og forskot Valsmanna því einungis eitt stig. Ekki var svo liðin nema tæp ein mínúta af síðari hálfleik þegar Grindvíkingar tóku forystuna í leiknum og eftir það náðu heimamenn aldrei að snúa leiknum sér í vil á ný. Með þá Darryl Wilson og Konstantionos Tsai-tsaris í broddi fylkingar sigu Grindvíkingar jafnt og þétt framúr og þegar yfir lauk höfðu þeir skorað 101 stig á móti 84 stigum Valsmanna. „Grindvíkingar em einfaldlega með aðeins betra lið en við, en munurinn í þessum leik hefði þó hæglega getað orðið minni,“ sagði Guðni Hafsteinsson, fyrirliði Vals. „Við klikkuðum aðeins á móti svæðisvörn þeirra í síðari hálfleik og tókum nokkur léleg skot, en það þýðir þó ekkert að hengja haus og við komum bara tvíefldir til leiks í næsta deildarleik," sagði Guðni. Bestir Grindvíkinga á sunnudag voru þeir Wilson, sem skoraði 35 stig, og Tsartsaris, sem skoraði 32, en Guðlaugur Eyjólfsson var einnig sterkur og nýtti sín í' tækifæri vel. Hjá Valsmönnum lék best Warren Peebles, sem skoraði 31 stig, en þeir Brynjar Karl Sigurðsson og Guðmundur Björnsson áttu einnig ágæta spretti. Auðvelt hjá ÍS Lið UMFS úr Borgarnesi, sem er efst í 2. deild kvenna, mætti ofjörlum sínum ÍS í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ í íþróttahúsi Kennaraháskólans. IS " sigraði með 55 stiga mun, 88:33. Bestar í f®*^*®* liði ÍS voru Hafdís Helgadóttir, Lovísa AmJson Guðmundsdóttir og Alda Leif Jónsdóttir. skrifar Það sem helst háði UMFS í þessum leik var slök vítahittni og það hve leikmenn liðsins eru litlir, sem gerði þeim erfitt að kljást við hið hávaxna lið Stúdína. í liði UMFS var Halldóra Jónasdóttir best.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.