Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 5

Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 5
MORGUNB LAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 D 5 VIÐSKIPTI HVERSU OFT BORÐAR ÞU BRAUÐ? REYKJAVÍK REYKJANES LANDIÐ ALLT 3,48 '= E *o =o 3 £ 2f CQ E 2,21 ‘3 O'C 3 CQ jQ 3,44 «o ■3 . J3 '3 E «0 !g S ■£ ™ to cq E 2,18 «o'= 3 CU 2 m >r 2 m JQ Eg nota þetta merki oft Eg nota þetta merki nær eingöngu 12 12 % 38 36 Eg nota stundum þetta merki 34Í34 Hversu oft borðar þú I I Myllubrauð? I I Samsölubrauð? Eg nota ekki en hef þrófað það 12 10 Eg hef aldrei prófað þetta merki 0 1 ----L--J Eg hef aldrei heyrt um þetta merki Svaraði ekki spurningunni 1" □□ Heimild: Neyslu- og lifstilskönnun Gallup um á annað borð ætlað að standast samkeppni við innflutning. „Hvað neytendur varðar þá er það þeirra besta vopn að viðskipta- hömlur hafa verið afnumdar á flestum sviðum þjóðfélagsins. Frjáls innflutningur veitir inn- lendri framleiðslu mikia samkeppni og því er lítil hætta á að einstök fyrirtæki hér á landi geti náð markaðsráðandi stöðu með sam- runa.“ í einokunarstöðu gagnvart stórmörkuðum? Nokkur skipting hefur átt sér stað milli Samsölubakarís og Myll- unnar hvað stórmarkaði varðar á undanfömum misserum. Myllan hefur t.d. verið nánast allsráðandi innan verslana Hagkaups en Sam- sölubakarí hins vegar setið eitt um hituna í verslunum Bónuss og 10-11. Eins og sjá má í töflunni hér á síðunni lauk hinni hörðu samkeppni milli Myllunnar og Samsölubakarís með jafntefli, ef marka má neyslu- og lífsstílskönnun Gallup. Þar sést að fjórðungur aðspurðra borðar nær eingöngu Myllubrauð eða Samsölubrauð og skiptist þessi hópur jafnt milli fyrirtækjanna tveggja. Þá borða 38% aðspurðra oft Myllubrauð en 36% borða oft brauð frá Samsölubakaríi. Þegar litið er til þess hvar fólk kaupir brauð sést að mun fleiri kaupa brauð sín í stórmörkuðum en bakaríum, en staða Myllunnar og Samsölubakarís er einmitt mjög sterk í stórmörkuðum. Raunar má telja nær öruggt að ekkert bakarí á höfuðborgarsvæð- inu geti keppt við Mylluna og Samsölubakarí í magni og verði og því má ætla að verulega muni draga úr samkeppni á þessu sviði brauðmarkaðarins. Vigfus Kr. Hjartarson, fram- kvæmdastjóri Bakarameistarans, segir að skipta megi brauðmark- aðnum í tvennt. Annars vegar sé þar um að ræða brauð til stórmark- aða þar sem varan sé seld pökkuð og því ekki með eins ferska ímjmd og ný úr bakaríum, sem myndi hinn hluta markaðarins. „Hins vegar hefur Myllan alltaf verið að færa sig meira inn á svið bakaría með því að setja upp lítil bakarí innan stórmarkaðanna. Þeir hafa því verið að ganga meira á hluta smærri aðilanna á mark- aðnum og það segir sig sjálft að eftir því sem fleiri bakarí eru sett upp í stórmörkuðum og eftir því sem stórmörkuðum fjölgar á höf- uðborgarsvæðinu, þá hlýtur að þrengja nokkuð að smærri aðilum á þessum markaði.“ Gæti dregið úr harðri verðsamkeppni Hörður Kristjánsson, bakara- meistari í Austurveri, dregur upp aðra mynd af þessum samruna. Hann bendir á að samkeppni hafi verið gríðarlega hörð á undanfórn- um árum og það hafi leitt til þess að smærri bakarí hafi orðið á milli stóru aðilanna og orðið að lækka verð umtalsvert. „Við seldum t.d. brauð í Bónus lengi vel eða allt frá því Bónus byrjaði og fram til 1996 en þá pakkaði ég saman enda var verðið komið niður úr öllu valdi. Eg lít því svoh'tið björtum aug- um á þetta. Ég held að þetta geti ekki leitt nema gott af sér. Þessum ógurlegu tilboðum hlýtur nú að Mnna og verðlag í bakaríum hlýtur að hækka í kjölfarið. Það þarf líka að hækka því það er búið að halda bakaríunum niðri svo lengi. Ég vona því að við getum farið að stilla verðin eins og þau eiga að vera því það er alveg Ijóst að ekki er hægt að reka bakarí til frambúðar á því verði sem verið hefur," segir Hörð- ur. Hann segist raunar þegar vera farinn að sjá merki þessa því á til- boði sem Myllan hafi verið með í Nóatúni um síðustu helgi hafi verð- ið verið komið í 159 krónur sem sé um 30 króna hækkum frá þeim til- boðum sem verið hafi í gangi á meðan samkeppnin hafi verið hvað hörðust. Af ofangreindu má ætla að sam- runi Myllunnar og Samsölubak- arís, hljóti hann náð fyrir augum Samkeppnisstofnunar, muni hafa veruleg áhrif á þessum markaði. Þó virðist erfitt að halda því fram að þetta nýja fyrirtæki sé komið í einokunarstöðu enda eru alltaf til staðar fleiri valkostir. Auk þess má ætla að hörð samkeppni milh stór- markaða muni halda verði niðri að einhverju marki. Það leikur enginn vafi á því að með þessum kaupum hefur samn- ingsstaða beggja fyrirtækja gagn- vart stórmörkuðunum styrkst verulega. Þá má ekki gleyma því að í harðnandi samkeppni verður hillupláss í stórmörkuðum sífellt verðmætara og getur það skapað fyrirtækjum vaxtartækifæri á nýj- um sviðum. Hagnaður GM tvöfalt meiri en fyrir ári Detroit. Reuters. - GEMERAL MOTORS bflafyrir- tækið skilaði rúmlega tvöfalt meiri hagnaði á fjórða ársfjórðungi 1997 en á sama tíma árið á undan og jókst hann í 1,7 milljarða dollara úr 786 milljónum 1996 þegar verkföll háðu fyrirtækinu. A móti 4,3 milljarða dollara ágóða á fjórða ársfjórðungi í fyrra vó 4 milljarða dollara sérstök greiðsla. Burtséð frá slíkum aukakostnaði nam rekstrarhagnaður GM á fjórð- ungnum 1,5 milljörðum dollara, eða 2,03 dollurum á hlutabréf, og hafði aukizt úr 848 milljónum dollara, eða 1 dollar á hlutabréf. Sérfræðingar í Wall Street höfðu spáð að rekstar- hagnaður GM á fjórðungnum yrði 1,99 dollarar á hlutabréf. Norður-Ameríkudeild GM skilaði 636 milljóna dollara ársfjórðungs- hagnaði samanborið við 117 milljón- ir dollara ári áður. Síðla árs 1996 leiddu verkföll í Bandaríkjunum og Kanada til þess að fyrirtækið missti af 700 milljóna dollara hagnaði að því er áætlað er. Afkoma bílapartadeildar batnaði, en hagnaður alþjóðadeildar minnk- aði í 197 mihjónir dollara úr 353 milljónum dollara ári áður. Hagnað- ur GM í Evrópu minnkaði í 31 millj- ón dollara úr 99 milljónum dollara árið á undan. Skýringin á sérstökum ágóða á fjórða ársfjórðungi 1997 var sú að GM seldi Raytheon Co. deild sína Hughes Electronics fyrir 10,1 millj- arð dollar. Skýjum ofar sem verðugur leiðtogi fartölva IBM er í sjöunda himni yfir velgengni ThinkPad fartölvanna því engar aðrar fartölvur í heimi- num hafa fengið fleiri verðlaun. Og það er engin tilviljun því ThinkPad hefur fullkamna tengi- og samskiptamöguleika, stóran og vandaðan skjá ásamt þjálu lyklahorði í fullri stærð. Gæöin stíga þú IBM ekki til höfuðs því ThinkPad fartölvan er á ótrúlega lágu verði. IBM Sr pentlum’ ThinkPad 51ÖE) 168,000,-) örgi&rvi: Intel PBntium 133MHz MMX. Vinnaluminni 16MB EDU, stækkanlegt i 64. Harfidivkur: 1.6GB. Sk|ár: 12,1" DSTN litaskjár. Margmiðlun: Hljóðkort, hljóðneml, hátalarar. Raihlaða: 3,5 klst, NiMH rafhlaða. Hugbúnaður Windows 95, IBM Antivirus. Við bióðum takmarkað magn á VBrði sem á sór ekki hliðstaðu. CQ> NÝHERJI Skaftahlið 24 • Sími 569 7700 Slób: http://www.nyherji.is Netfang: nyherji@nyherji.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.