Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 8
8 D FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Opinberar framkvæmdir fyrir um 33 milljarða króna á árinu 1998 Fjör á útboðsmarkaði Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á vegum opinberra aðila á þessu ári og mun kostnaður við þær nema um 33 milljörðum króna. Kjartan Magnússon sat Utboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvéla- eigenda þar sem fyrirhugaðar framkvæmd- ir hins opinbera á árinu voru kynntar. UTBOÐSÞING er orðið ár- legur viðburður en hlut- verk þess er að kynna öll helstu útboð verklegra framkvæmda ríkisins og Reykjavík- urborgar og þeirra opinberu stofn- ana sem mest kveður að á útboðs- markaði. Útboðsþing 1998 var hald- ið síðastliðinn fóstudag og fram- sögumenn voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkj- unar, Helgi Hallgrímsson vegamála- stjóri, Steindór Guðmundsson frá Framkvæmdasýslu ríkisins, Jón Leví Hilmarsson frá Siglingamála- stofnun, Viðar Viðarsson frá Lands- síma íslands hf. og Jón Vilhjálmsson frá Verkfræðistofunni Afli. Miklar Qárfestingar fram undan hjá Landsvirkjun Framkvæmdir Landsvirkjunar, sem nú standa yfir við byggingu virkjana, háspennulína og aðveitu- stöðva, taka mið af samningum er gerðir voru á árunum 1995-97 um prkusölu vegna stækkunar álvers , Isals í Straumsvík, álvers Norðuráls á Grundartanga og þriðja ofns Jám- blendiverksmiðjunnar á Grundar- tanga. Fjárfesting Landsvirkjunar á tímabilinu 1996-2000 er áætluð um 23 milljarðar króna. Eru þá meðtal- in fjögur nokkuð stór verk, sem þeg- ar hefur verið lokið við, en þau eru hækkun Blöndustíflu sem lokið var árið 1996, bygging 5. áfanga Kvísla- veitu sem lauk í nóvember síðast- liðnum og framkvæmdir við þétta- virki og endurbætur á varnarbúnaði ' sem einnig var lokið við á síðasta ári. Áætlaður fjöldi ársverka við um- ræddar framkvæmdir er um 1.100 á tímabilinu 1996-2000. Á yfirstandandi ári hyggur stofn- unin á framkvæmdir fyrir 9.522 milljónir vegna nýframkvæmda eða verkefna við endurbætur og endur- nýjun mannvirkja. Hæst ber miklar framkvæmdir við Sultartangavirkj- un og mun kostnaður við þær sam- tals nema um 3,6 milljörðum króna. Framkvæmdimar eru nú að komast á fullan skrið og munu þær ná há- marki á þessu ári. Undirritaðir hafa verið allir meiri háttar samningar um byggingarvinnu og um kaup og uppsetningu vél- og rafbúnaðar. , Eftir er að bjóða út yfirfallið, og gúmmílokuna ásamt viðeigandi mannvirkjum og búnaði. Samið hef- ur verið um að fyrri vél virkjunar- innar verði tilbúin til rekstrar í nóv- ember 1999 og hin seinni í janúar árið 2000. í tengslum við stækkun Búrfells- stöðvar og byggingu Sultartanga- virkjunar og vegna aukins orku- flutnings til Faxaflóa þarf að leggja 94 km langa 400 kV háspennulínu frá Búrfellsstöð til höfuðborgar- svæðisins, Búrfellslínu 3A. Heildar- kostnaður er talinn munu verða um 2,4 milljarðar króna. Framkvæmdir við slóðagerð og undirstöður voru boðnar út um mitt síðasta ár sem og efni í línuna ásamt samsetningu og reisingu mastra og strengingu leið- ara og jarðvírs. Vegna umhverfis- mats hefur orðið töf á verkinu en eigi að síður er stefnt að verklokum í nóvember nk. Þegar hefur verið samið um undirstöður og lagningu. Tilboð í efni, samsetningu og streng- ingu voru opnuð um miðjan desem- ber og standa nú yfir samningar við lægstbjóðendur. Á árinu er fyrirhugað að bjóða út slóðagerð, jarðvinnu og byggingu undirstaðna og allt efni í nýja línu, Sultartangalínu 1, sem mun tengja Sultartangavirkjun við Búrfellsstöð. Verklok eru áætluð í september 1999 og kostnaður áætlaður 165 miljjónir króna. Akveðið var að ráðast í að auka afl Búrfellsstöðvar þegar ákvörðun lá fyrir um stækkun álversins í Straumsvík. Samhliða endumýjun vatnshjóla verða rafalar endurbætt- ir. Framkvæmdir vegna þessa hófust árið 1996 og verður lokið á þessu ári. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður 506 milljónir króna. Tengivirkið við Búrfellsstöð verður stækkað á árinu vegna teng- ingar hinna nýju Búrfellslínu 3A og Sultartangalínu 1. Samið hefur ver- ið við Siemens AG í Þýskalandi um kaup á rofabúnaði en bygging rofa- húss er nú í útboði. Heildarkostn- aður er áætlaður 711 milljónir króna. Mannvirki Sogsstöðvanna þriggja, við Ljósafoss, Irafoss og Steingrímsstöð, eru komin til ára sinna og hefur því verið ákveðið að endurbæta búnað og mannvirki og tryggja öruggan rekstur þeirra til næstu 30-40 ára. Heildarkostnaður er áætlaður 604 milljónir króna. Lokið við Kröfluvirlg'un Nú standa yfir framkvæmdir við að ljúka Kröfluvirkjun en verkið er hluti af þeim framkvæmdum sem þörf er á vegna orkusölu til stækk- unar álversins í Straumsvík og ál- vers Norðuráls á Grundartanga. Framkvæmdir hófust um mitt ár og á þessu ári verður ráðist í endur- bætur á raf- og stjómbúnaði fyrir vélasamstæðu 1. Áformað er að öll- um framkvæmdum við Kröfluvirkj- un verði lokið í haust en heildar- kostnaður við framkvæmdimar er áætlaður 419 milljónir króna. Hágöngumiðlun. í júní í fyrra hófst vinna við að auka miðlunar- rými á vatnasviði Þórisvatns og felst verkið í því að stffla Köldukvísl við Syðri-Hágöngu og mynda þar lón sem geymir vatnið frá sumri til vetr- ar. Ráðgert er að ljúka verkinu í haust og heildarkostnaður við það er áætlaður 372 milljónir króna. Á árinu verður einnig unnið við stækkun tengivirkis á Brennimel (172 milljónir), stækkun tengivirkis og varastöðvar Rangárvallastöðvar (110 miUjónir), og lagningu Norður- álslínu 1 og 2 frá Brennimel í Hval- firði til álvers Norðuráls á Gmndar- tanga (100 milljónir), svo eitthvað sé nefnt. 7,6 milljarðar til vegamála Um 7,6 milljörðum króna verður varið til vegamála á árinu. Helstu framkvæmdir vegagerðarinnar verða vegna lagningar hringvegar um Mosfellsbæ og vegatenginga við Hvalfjarðargöng. Þá verður einnig unnið við þvemn Gilsfjarðar, teng- ingu Norður- og Austurlands, hring- veg í Hróarstungu og hringveg á Skeiðarársandi. Mikilvægt er að vegamannvirki séu vel undirbúin og því leggur Vegagerðin mikla áherslu á áætl- anagerð. Framkvæmdir sem áætlað er að ráðist verði í á næstu ámm em nú í undirbúningi og má þar nefna framkvæmdir við breikkun Reykja- nesbrautar frá Breiðholtsbraut að Fífuhvammsvegi sem áætlað er að kosti 180 milljónir, gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar og Skeið- arvogs (430 milljónir), lagningu bundins slitlags á Þingvallaveg 130 milljónir, framkvæmdir við Borgar- fjarðarbraut, Barðastrandarveg (100 milljónir), veg við Búlandshöfða (470 milljónir), veg um ísafjarðar- djúp (100-150 milljónir á ári, Siglu- fjarðarveg (220 milljónir), Grenivík- urveg (300 milljónir), norðausturveg í Axarfirði (100 milljónir) og hring- veg í Berufirði (100 milljónir). Meira fé til viðhalds en nýframkvæmda Nokkur óvissa ríkir um breikkun Gullinbrúar í Reykjavík sem mun kosta um 200 milljónir. Ekki er gert ráð fyrir henni á áætlun Vegagerð- arinnar í ár en Reykjavíkurborg hefur óskað eftir viðræðum við Vegagerðina um heimild til að hraða verkefninu og er borgin reiðubúin að lána fé fyrir framkvæmdinni. Samkvæmt langtímaáætlun í vegamálum verður tæpum 36 millj- örðum króna varið til vegamála á tímabilinu 1999-2002. Langstærstur hluti fer til nýrra þjóðvega, þ.m.t. lagning bundins slitlags, eða 15,6 milljarðar króna og viðhalds eldn þjóðvega eða 14,6 miljjarðar. Á tímabilinu 2003-2006 er í fyrsta sinn gert ráð fyrir því að kostnaður við viðhald þjóðvega verði hærri en kostnaður við nýframkvæmdir og frá 2007-2010 er ráðgert að verja 17,5 milljörðum til viðhalds þjóðvega en 15,8 milljörðum til nýrra þjóð- vega. 3 milljarðar til fjárfestinga hjá Landssúnanum Landssími íslands hf. mun verja um þremur milljörðum króna til verklegra framkvæmda á árinu. Þetta er töluverð aukning frá fyrra ári þegar rúmlega tveimur milljörð- um var varið í þessu skyni. Helstu verkefni ársins verða vegna staf- ræna dreifikerfisins en um einum milljarði verður varið til lagningar breiðbands í dreifikerfinu og 500 milljónum til lagningar þess milli sveitarfélaga. Mest áhersla verður lögð á breiðbandslagningu á höfuð- borgarsvæðinu, í Stykkishólmi, á Akureyri og Egilsstöðum. Þá verður 700 milljónum króna varið til fjár- festinga í byggingum, m.a. vegna byggingar fimm þúsund fermetra póstmiðstöðvar í Höfðahverfi í Reykjavík sem ráðgert er að taka í notkun á næsta ári. Þá verður ráðist í framkvæmdir vegna endurgerðar gamla Kvennaskólans við Austurvöll sem á að hýsa mötuneyti Landssím- ans. Fram kom í máli Viðars Viðars- sonar að húsnæði Landssímans og Islandspósts er metið á um tvo millj- arða króna og verður unnið að marg- víslegum viðhaldsverkefnum þess á árinu. 10 milljarðar til nýfram- kvæmda hjá borginni í heild fara um 10 milljarðar króna til nýframkvæmda á árinu 1998 af hálfu Reykjavikurborgar og borgarfyrirtækja. Þar af fara 853 milljónir til stofnkostnaðar fræðslu- mála á árinu og verða stærstu verk- efnin bygging íþrótta- og hátíðarsal- ar við Rimaskóla, stækkun Mela- skóla og viðbyggingar við Háteigs- skóla og Fossvogsskóla. Gert er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra leik- skóla á næsta ári, þ.e. við Mururima og Seljaveg, og að leikskóli í Selási komist vel á veg. Stofnkostnaður leikskólabygginga er áætlaður 250 milljónir króna. Stofnkostnaður á sviði íþrótta- og tómstundamála er áætlaður 347 milljónir króna. Stærsta verkefnið á sviði íþrótta- og tómstundamála er bygging Sundlaugar í Grafarvogi. Þá verður nýtt íþróttahús byggt fyr- ir starfsemi íþróttafélagsins Þróttar í Laugardal. Á vegum veitufyrirtækjanna þriggja, Hitaveitu, Rafmagnsveitu, og Vatnsveitu, ber hæst fram- kvæmdir Hitaveitu við raforkuver á Nesjavöllum. Áætlaður heildar- kostnaður er áætlaður 4,5 milljarðar króna en á þessu ári verður rúmum 3,6 milljörðum varið til raforkuvers- ins sem tekið verður í notkun í árs- lok. Rafmagnsveitan mun eiga og reka háspennulínu frá raforkuver- inu til borgarinnar og heildarkostn- aður við lagningu hennar er áætlað- ur 390 milljónir króna. Af öðrum framkvæmdum má nefna framkvæmdir við nýja aðalæð hitaveitunnar frá Reykjum og dælu- stöð þar. Samtals mun Hitaveitan verja 440 milljónum til framkvæmda við dreifikerfið. Olíubryggja í Örfirisey Stærsta verkefni Reykjavíkur- hafnar er bygging olíubryggju í Örfírisey sem lokið verður árið 1999 og er heildarkostnaður við hana áætlaður 600 milljónir króna. Heild- arkostnaður við nýframkvæmdir hafnarinnar mun nema 531 milljón króna á þessu ári. Nýlega var ný hreinsi- og dælu- stöð fyrir skólp gangsett við Ána- naust en áætlaður kostnaður við stöðina og dælukerfið, sem tengist henni, er 2,3 milljarðar. Fram undan er bygging annarrar eins stöðvar austan Laugarness og stefnt er að því að henni verði lokið árið 2000. Barnaspítali byggður og Flugstöð stækkuð Á vegum Framkvæmdasýslu rík- isins verður um 1.487 milljónum króna varið til framkvæmda á þessu ári. Miklar framkvæmdir eru m.a. fyrirhugaðar vegna stækkunar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á ár- inu og mun Framkvæmdasýslan bjóða út framkvæmdir vegna jarð- vinnu fyrir 300 milljónir króna vegna þeirra. Heildarkostnaður við framkvæmdimar nemur 1,1 millj- arði króna og verklok eru áætluð ár- ið 2000. Nýbygging Bamaspítala í Reykjavík verður einnig boðin út á árinu. Fjárveiting nemur 200 millj- ónum á árinu en heildarkostnaður við verkið er áætlaður 900 milljónir króna og áætluð verklok em árið 2000. 150 milljónum króna verður varið til nýbyggingar D-álmu sjúkrahússins í Keflavík á árinu en heildarkostnaður er áætlaður 380 milljónir og fyrirhuguð verklok em árið 2000. Um 100 milljónum króna verður varið til nýbyggingar og endurbygg- ingar Menntaskólans í Reykjavík á árinu en heildarkostnaður við fram- kvæmdirnar er áætlaður um 700 milljónir. Þá verður 50 milljónum varið til endurbóta Menntaskólans á Laugarvatni og 100 milljónum til fyrsta áfanga við endurbyggingu Þjóðminjasafnsins. Þá verða fram- kvæmdir við Safnahúsið við Hverfis- götu boðnar út ásamt nýbyggingu sambýla við Dimmuhvarf í Kópavogi og Berjahlíð í Hafnarfirði auk ým- issa viðhaldsverkefna. Á árinu verða einnig boðin út verk vegna snjóflóðavai-na í Neskaup- stað, á Patreksfirði, Seyðisfirði og Flateyri, endurinnréttingar Nátt- úmfræðistofnunar Austurlands, inn- réttingar sendiráðs í Berlín, breyt- ingar í stjómarráðsbyggingum, ný- byggingar sýsluskrifstofu og lög- reglustöðvar í Stykkishólmi og end- urinnréttingar fangelsisins á Litla- Hrauni. Þá verður hafist handa við jarðvinnu og nýbyggingu annars áfanga Háskólans á Akureyri. Aukið fé til hafnarframkvæmda Nokkuð hefur dregið úr hafnar- framkvæmdum á síðustu áram en útlit er fyrir aukningu á næstunni. Samkvæmt hafnaáætlun verður framkvæmt fyrir 633 milljónir á þessu ári en auk þess verða 246 milljónir veittar vegna svokallaðra flýtiframkvæmda þannig að unnið verður fyrir samtals 879 milljónir í málaflokknum í ár. Mun framlag ríkisins til hafna hækka úr 567 millj- ónum króna á árinu 1997 í 693 millj- ónir árið 2000. Á þessu ári verður steinbryggja við Stykkishólm end- urbyggð og verður 30 milljónum króna varið til verksins. 45 milljónir verða veittar vegna dýpkunar og smíði stálþils í Sundahöfn, 39 millj- ónir vegna lengingar Norðurgarðs á Sauðárkróki, 26 milljónir til fyrsta áfanga vegna smíði stálþils á Eski- firði, 32 milljónir vegna dýpkunar innsiglingar á Djúpavogi, 35 milljón- ir til endurbyggingar trébryggju við Vogarhús á Höfn í Homafirði, 51 milljón til endurbyggingar Friðar- hafnarkants í Vestmannaeyjum og 20 milljónir vegna þekju á Norður- garð í Sandgerði. Ráðgert er að flýta nokkrum verkum, sem em á áætlun 1999-2000 og vinna þau á þessu ári. Má þar nefna dýpkunarframkvæmdir og smíði stálþils vegna 2. áfanga Fiski- hafnar á Akureyri, (143 milljónir) smíði stálþils á Raufarhöfn (53 millj- ónir) og Eskifirði (81 milljón) og dýpkun hafnarinnar í Sandgerði (50 milljónir).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.