Morgunblaðið - 29.03.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 1S
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Dagskrá
helguð friði
DAGSKRÁ Listaklúbbs Leikhús-
kjallarans mánudagskvöldið 30.
mars kl. 20.30 er tileinkuð friði í
heiminum. Það eru Samtök her-
stöðvaandstæðinga sem standa að
þessari dagskrá og minnast þess að
30. mars 1949 samþykktu Islend-
ingar aðild að NATÓ.
Guðrún Helgadóttir, rithöfundur,
flytur stutt ávaip. Skáldin Einar
Ólafsson, Eyvindur P. Eiríksson,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Margrét
Lóa Jónsdóttir, Vilborg Dagbjarts-
dótth-, Þorgeir Þorgeirson og Þor-
steinn frá Hamri lesa úr verkum
sínum. Tríó Tómasar R. Einarsson-
ar leikur af fingrum fram milli upp-
lestraratriða, en það skipa, auk
Tómasar, þeir Eyþór Gunnarsson
og Jóel Pálsson. Kynnir er Halldóra
Friðjónsdóttir.
Almennt miðaverð Listaklúbbs-
ins er 700, kr. en 400 kr. fyrir félaga
í klúbbnum og fyrir félaga í Sam-
tökum herstöðvaandstæðinga, en
þeir standa að þessari dagskrá.
Áður auglýstri ljóðadagskrá er
frestað til haustsins.
-----------------
Öðling'ar FÍH
djassa í Múlanum
í SÖLVASAL Sólon íslandus,
djassklúbbnum Múlanum, leika
Öðlingar FÍH í kvöld kl. 21. Öðling-
ar eru tónlistarmenn sem eru orðnir
sextugir og á tónleikunum rifja þeir
upp gamlar djassendunninningar.
Óðlingarnir eru Friðrik Theo-
dórsson, básúna og söngur; Björn
R. Einarsson, básúna; Skapti Ólafs-
son, trommur og söngur; Guðmund-
ur Nordal, klarinett; Edwin
Kaaber, gítar; Guðmundur Stein-
grímsson, trommur; Ami Elfar, pí-
anó; og Hans Jensson, tenórsaxa-
fónn.
-------♦“♦-♦-----
Síðustu sýningar
Borgarleikhúsið
Feitir menn í pilsum
SÍÐASTA sýning á hrollvekjandi
gamanleiknum Feitir menn í pilsum
verður miðvikudaginn 3. apríl. Leik-
endur eru Eggert Þorleifsson, Hall-
dóra Geirharðsdóttir, Hanna María
Karlsdóttir og Jóhann G. Jóhanns-
son. Leikstjóri er Þór H. Tulinius.
LISTIR
Listasafn Einars
Jónssonar opnað
eftir umbætur
LISTASAFN Einars Jónssonar
hefur nú verið opnað að nýju eftir
miklar umbætur, utanhúss sem
innan, sem staðið hafa frá því í maí
á síðasta ári.
Safnið er elsta listasafnsbygging
landsins en það var vígt á Jóns-
messunni árið 1923 og verður því
75 ára á þessu ári. Safnið er í eigu
íslenska ríkisins en Einar gaf þjóð
sinni öll sín verk, unnin og óunnin
og tók ríkið formlega við gjöfinni
árið 1914.
Einar Jónsson teiknaði sjálfur
safn sitt og valdi því stað efst á
Skólavörðuholtinu en safnið var
fyrsta byggingin er þar reis. Líta
má á safnið sem stærstu högg-
mynd hans en þar bjó hann sér
ennfremur vinnustofu og heimili.
Fjái'veiting til framkvæmda var
fengin úr Endurbótasjóði menn-
ingarstofnana og var raunkostnað-
ur 30.400.000 kr. Byggingarverk-
takar voru SM-verktakar ehf.,
arkitektahönnun var í höndum
Teiknistofu Ögmundar Skarphéð-
inssonar, en umsjón og eftirlit
hafði Framkvæmdasýsla ríkisins.
Einar og hin danska eiginkona
hans, Anna, bjuggu sér heimili á
efstu hæð safnsins og undu þar uns
Einar lést árið 1954. Ibúð þeirra,
sem nú er hluti af safninu, er í senn
fábrotið listamannsheimili og um-
hverfi heimsborgara, prýtt sér-
stæðum húsgögnum og listmunum.
Leitast hefur verið við að færa
safnið í upphaflegt ástand. I sýn-
ingarsal á efri hæð hefur hið upp-
haflega terrasso-gólf verið endur-
bætt og nýrri lýsingu komið fyrir.
Þar eru og sýnd verk sem prýddu
salinn er safnið var vígt.
Þórunn Þorgrímsdóttir sýning-
arhönnuður veitti ráðgjöf við end-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UR einum af sölum Listasafns Einars Jónssonar.
urbætur í sýningarsölum, lýsingu
hannaði Páll Ragnarsson,
ljósameistari Þjóðleikhússins, og
Amar Herbertsson myndlistar-
maður hafði umsjón með málara-
vinnu í aðalsal safnsins.
Ríkisstjórn íslands hefur pantað
tvær bronsafsteypur af höggmynd
Einars Jónssonar „í minningu
skiptapa dr. Charcot" sem Einar
vann eftir sjóslysið mikla árið 1936,
er franska vísindaskipið Pourquoi-
Pas? fórst út af Mýrum. Verður
annarri afsteypunni ráðstafað hér
á landi en hin sett upp í bænum St.
Malo á Bretagneskaganum í
Frakklandi.
Safnið verður opið laugardaga
og sunnudaga kl. 13.30-16 fram til
1. júní en frá þeim tíma og fram til
15. september alla daga nema
mánudaga á sama tíma.
Burtfararpróf
Einleikstónleikar Evu Mjallar
EVA Mjöll Ingólfsdóttir fíðlu-
leikari heldur einleikstónleika í
Fella- og Hólakirkju þriðjudag-
inn 31. mars næstkomandi. Á
efnisskránni eru verk eftir
Sergei Prokofíev, Shostakovich,
D-moIl partitan fyrir einleiks-
fíðlu eftir Johann Sebastian
Bach og sónata eftir Cesar
Franck.
Til gamans og uppörvunar
fyrir tónelsk börn mun 8 ára
dóttir Evu Mjallar, Andrea,
leika stutt verk eftir Wieni-
awski á tónleikunum en hún
byrjaði að leika á fíðlu aðeins
tveggja ára gömul og er nú
nemandi í tónlistarskóla í New
York fyrir börn með sérhæfí-
leika.
Að undan-
fórnu hefur
Eva Mjöll
haldið tónleika
í Kanada og
Bandaríkjun-
um, hina síð-
ustu í Weilsaln-
um í Carnegie
Hall 8. mars.
Meðleikari á
píanó var
ung rússnesk listakona, Svetl-
ana Gorokhovich, sem starfar
nú í New York eins og Eva
Mjöll.
Eva Mjöll stundaði nám við
Tónlistarskólann í Reykjavík í
sex ár, en hélt þá utan til náms,
fyrst við Konunglega Tónlistar-
háskólann í Brussel, síðan í Genf
og Amsterdam þar sem hún naut
leiðsagnar frægra kennara af
Austur-Evrópu og rússneska
skólanum. Hefur það sett mark
sitt á leik hennar og tónmyndun
á fíðluna. Eva Mjöll leikur á
vandað hljóðfæri sem á sér
merka sögu, smíðað af Gofriller í
Feneyjum um 1720.
Eva Mjöll hefur ekki haldið
tónleika á Islandi síðustu sjö ár
enda verið búsett erlendis, með-
al annars í Japan þar sem hún
hélt tónleika; var efni þeirra
gefíð út ájgeisladiski fyrir þrem-
ur árum. í samvinnu við áður-
nefnda Gorokhovich er hljóðrit-
un á nýjum geisladiski framund-
an.
í Grensáskirkju
TÓNLEIKAR á vegum Tónlistar-
skólans í Reykjavík verða í Grensás-
kirkju mánudaginn 30. mars kl.
20.30. Tónleikam-
ir eru burtfarar-
próf Valdimars
Mássonar
bassa-baríton frá
skólanum. Anna
Guðný Guð-
mundsdóttir leik-
ur með á píanó.
Á efnisskra eru
lög eftir Áma
Thorsteinsson,
Sveinbjöm Svein-
bjömsson, Karl O. Runólfsson, ljóð
úr ljóðaflokkum eftir Franz Schubert
og Ralph Vaughan Williams, aríur
eftir G. Fr. Handel, Mozart og
Puccini.
Eva Mjöll
Ingólfsdóttir
Valdimar
Másson
♦ AUGLÝSINGASTOFUR 7.000 íslenskar Ijósm/ndir á geisladiski
♦ PRENTSMIÐJUR Myndasafn með yfir 22.000 myndum
r
♦ UTGEFENDUR Ný Heimasíða www.islandia.is/pg
ÍSLENSKA LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN, SÍMI 554-3911, GSM 898-3911.
vorfgrð tll Millorca, 13. * 36. Itfðf í fararstjórn
Allar aðstæöur til aö æfa sveifluna fyrir sumariö eru hinar ákjósanlegustu
á Mallorca og hitastigiö einkar þægilegt fyrir íslenska golfara eöa um
25 °C. Staðgreiðsluverð 77,300 kr. á mann, miðaö viö tvo í íbúð.
Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá fiugvelli erlendis, 6 golfhringir, íslensk fararstjórn,
skattar og gjöld. Hægt er aö nota ATLAS- ávísun aö upphæö 4.000 kr.
■ . .
orca
Samvinn
Austurstrœti 12: 569 1010 Hótel Saga viö H
Akranes: 431 3386 Akureyri: 462 7200 Vestmannaeyj
www.samvinn.is