Morgunblaðið - 29.03.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.03.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 45í I DAG « BRIDS Ijinsjón Guðmiiniliir l'áll Arnarxon í SÍÐASTA mánuði komu út þrjár nýjar bridsbækur hjá Batsford-forlaginu í London. Ein er samsafn greina eftir Tony Forrester, sem birst hafa í The Daily Telegraph (Vintage Forrester). Onnur er ágæt bók um litaríferð eftir Sally Brock (Suit Combinations), og sú þriðja er eftir Mark Horton og Tony Sowter, og fjallar um hvemig læra megi af stjörnu- spilurum (Leam from the St> ars). Spilið í dag er úr síðast- nefndu bókinni og það er stjörnuspilarinn Garozzo sem er í sæti sagnhafa, en kvikmyndastjarnan Omar Sharif er makker hans í norður. Spilið kom upp í tvi- menningi í Beirut árið 1975: Norður 4ÁKG5 V95 ♦ ÁKD4 *K32 Vestur +2 VG2 ♦ 1097652 +9654 Austur +D109873 VKD643 ♦ G8 +— Suður + 64 VÁ1087 ♦ 3 +ÁDG1087 Vestur Norður Austur Suður — 1 lauf 1 spaði 1 grand Pass 2grönd 31\jörtu 41auf Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu Pass 5 lauf Pass 6 lauf Pass 6grönd Allirpass Kerfi NS er sterkt lauf og grandsvar Garozzos lofaði 4 kontrólum (ás=2, kóng- ur=l). Síðan taka við eðlileg- ar sagnir og austur kjaftar frá spilum sínum í tvígang. Utspilið er spaðatvistur, og nú ætti lesandinn að gera upp við sig hvemig best er að spila. Tólf slagir em upplagðir, en þetta er tvímenningur, svo yfirslagurinn er mikil- vægur. Ef austur væri með öll mannspilin í hjarta, myndi renna upp einfold þvingun í lokastöðunni. En eins og sést, er vestur með gosann annan í hjarta og getur hugsanlega valdað lit- inn. Nema, auðvitað, ef hægt er að byggja upp tvöfalda þvingun. Austur á spaða- drottningu og vestur lengd í tígli, svo hvorugur ætti að geta valdað hjartað. En það er ekki sama í hvaða röð slagirnir eru tekn- ir. Garozzo sá fyrir sér enda- stöðuna þegar hann tók strax ÁK í spaða. Spilaði svo öllum laufunum. Þegar síð- asta laufinu var spilað, var vestur kominn niður á fjóra tígla og tvö hjörtu. Hann varð að henda hjartatvisti, og þá kastaði Garozzo tígul- fjarkanum úr borði. Síðan tók hann ÁKD í tígii og þvingaði austur í hálitunum. Þvingunin virkar ekki ef sagnhafi byrjar ekki á að taka tvo slagi á spaðann. « n MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afinæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælis- bams þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1829, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Með morgunkaffinu HOGNI HREKKVISI <> Uún eródnxgð n?eS hárícrá séri olag ts* . .. að láta ham halda að það sé hann sem Qltist við þig. ÉG hef ekki mikla trú á að þetta gangi, þau ætla hvort í sínu lagi í brúð- kaupsferðina. sandi. Er það nú ekki óþarfi? COSPER Pabbi, ég hringdi í öll símanúmerin í minnisbókinni þinni og bauð þeim í kaffi. NlvAk IJmxjóii Margeir Póturxxon STAÐAN kom upp á alþjóðlegu skákmóti í Elgoibar á Spáni um síðustu áramót. Spánverjinn Alfonso Romero-Holmcs (2.465) var með hvítt, en Franco Mata- moros (2.470), Ekvador, hafði svart og átti leik. 19. - Rd3+! (Rýfur vald hvítu drottning- arinnar á a3 peðinu) 20. cxd3 - Dxa3+ 21. Kc2 - exd3+ 22. Bxd3 - Da2+ (En alls ekki 22. - Hxd3?? 23. De8+ - Hd8 24. Dxd8+! - Kxd8 25. Bb4+ og hvítur vinnur) 23. Kc3 - Hxd3+! 24. Dxd3 (Eða 24. Kxd3 - Dxc4 mát) 24. - Da3+ 25. Kc2 - Be4 og hvítur gafst upp því drottn- ingin er fallin. SVARTUR leikur og vinnur. STJÖRNUSPA eftir Franves Drake HRUTUR Afmælisbærn dagsins: Undir rólegu yfírborði þinu ólgar mikið skap, sem þú hefur hugrekki til að temja. Og ævintýraþráin blundar í þér líka. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum. Notaðu daginn til þess að hvíla þig og búa þig undir starf næstu viku. Naut (20. aprfl - 20. maí) Þrjóska getur gengið úr hófi fram. Brjóttu odd af oflæti þínu og náðum sáttum við vini og vandamenn. Vertu einn að öðrum kosti. Tvíburar . . (21. maí - 20. júní) nA Þú hefur komizt vel frá hlutunum og uppskerð nú jafnvægi á öllum sviðum. En mundu að sælan fæst ekki baráttulaust. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú þarft að leggja þig fram við að halda heimilisfriðinn. Vertu tillitssamur og þolinmóður og þá helzt allt eins og það á að vera. Ljóm (23. júlí - 22. ágúst) Þú þarft að gæta þess að fá næga hreyfingu og ættir að leggja kapp á útiveru þennan frídaginn. Haltu þér svo við efnið. Meyja (23. ágúst - 22. september) (Su> Þér finnast of mörg spjót beinast að þér þessa stundina. Hertu upp hugann og segðu nei, þegar það er það sem þú vilt. V* ^ (23. sept. - 22. október) Ástæða þess að þér finnst allt vera að fara úr böndunum er að þú hefur vanrækt vissa hluti of lengi. Kipptu þeim í lag. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Kappkostaðu að halda ró þinni, þótt ýmislegt gangi á, bæði í vinnunni og heima fyrir. Mundu að aðrir treysta á þig líka. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ák Þig langar mest til þess að æpa framan í vinnufélaga þinn. En mundu að sjaldan veldur einn, þá tveir deila. Vertu sanngjam. Steingeit (22. des. -19. janúar) +0 Þú vilt leggja þig fram um að læra nýja hluti og þessi áhugi mun opna þér ýmsar leiðir. íhugaðu þó framhaldið vandlega. Vatnsberi , . (20. janúar -18. febrúar) CsR Haltu starfi þínu og félagslífi aðskildu. Vinnan á að ganga fyrir á vinnustað, en það er óþarfi að taka hana þaðan með sér. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þér líður nú vel því þú hefur fengið laun erfiðis þíns og þá ekki hvað sízt í einkaUfinu. En mundu að ekkert varir af sjálfu sér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöI. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Sölusýning á Grand Hótel Reykjavík á húsgögnum í „antík“ stíl. Allt handunnið, úr gegnheilum mahogny við. Gæðahúsgögn. Einnig til sýnis íkonar, antíkklukkur, styttur o.fl. tilvalið til gjafa. Skartgripaskrín - tilvalin til fermingargjafa, frá kr. 14.800. Stólar, massíft mahogny. Stóll, kr. 18.800 Armstóll kr. 24.800. „Partner“skrifborð (1.80m x 1.90m) kr. 148.000. Skrifborð, með „rulletop" hurð, kr. 124.800. Glerskápur, tvöfaldur, kr. 98.000. Forstofuskápur, kr. 29.900. HOTEt REYKJAVÍK Sigtúni 38, Opið Sunnudag frá kl. 13.00 - 17.00 Mánudag frá kl. 11.00—18.00 Sjón er sögu ríkari! /ntíft -ðlofnnD 1974- munlt Klapparstíg 40, sími 552 7977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.