Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 28

Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 28
28 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TENGSL MENNING- AR OG ATVINNULÍFS SVO virðist sem gagnkvæmur ótti hafi ríkt á milli at- vinnulífs og menningar hér á landi; menningin hefur ekki vilj- að leita fjárhagslegs stuðnings hjá einkafyrirtækjum vegna þess að þar með hefði hún selt sig mammoni og óhreinkað sig og fyrirtækin hafa óttast að þau hefðu ekki nægilegt vit á listum til að geta valið og hafnað. Þetta kom fram á morgunverðarfundi Verslunarráðs íslands sem hald- inn var á Hótel Sögu í vikunni þar sem Sigurður Gísli Pálma- son, framkvæmdastjóri Hofs sf., og Stefán Baldursson þjóð- leikhússtjóri höfðu framsögu. Eins og fram kom í frásögn Morgunblaðsins af fundinum gæti þetta verið að breytast. Sigurður Gísli sagði að gildi þjóðar væru metin á grundvelli menningar og lista sem ná að þrífast á hveijum tíma og það hljóti því að vera markmið þeirra sem stuðla vilja að öflugu atvinnulífi, yfirvalda og einka- aðila, að hlúa að menningunni. Þekkingarleysi háir forráða- mönnum fyrirtækja hins vegar, að mati Sigurðar, þeir virðast til dæmis hræddir við samtíma- myndlist og vilja helst festa kaup á verkum viðurkenndra, jafnvel látinna, iistamanna. Sagði Sigurður að hér hefði skólakerfið brugðist í uppeldi sínu á listnjótendum. Stefán sagði það sannfær- ingu sína að atvinnulífið hefði hlutverki að gegna í menning- unni og öfugt. Hann taldi að fyrirtæki hefðu á síðustu miss- erum farið að veita meira fé til menningarstarfsemi enda væru augu manna smám saman að opnast fyrir því að kostun list- viðburða gæti verið góð auglýs- ing. Stefán viðurkenndi að lista- 'mönnum hefði lengi staðið stuggur af kostun, fundist þeir vera að selja sál sína, en sá ótti væri ástæðulaus, að minnsta kosti ef gæði listamannanna og fyrirtækjanna væru mikil. Það er mikið ánægjuefni að atvinnulífið skuli í auknum mæli vera að vakna til vitundar um mikilvægi þess að leggja menningunni lið. Listasjóður atvinnulífsins, sem er eins konar bandalag fyrirtækja sem skuld- binda sig til að kaupa listaverk með vissu millibili, hefur nú verið starfræktur um nokkurt skeið og hefur hann gefið góða raun. Tengslin á milli menning- ar og atvinnulífs eru augljós, eins og bent var á á fundinum, hvorugt blómstrar án hins. Eins og Stefán Baldursson benti á er hlutur ríkisins í styrkveiting- um til menningar hins vegar alltaf nauðsynlegur í okkar smáa samfélagi; aukinn stuðn- ingur atvinnulífsins má þannig ekki verða til þess að dregið verði úr opinberum styrkjum til menningarstarfsemi í landinu. EFTIRLIT í HÖLLUM SADDAMS VOPNAEFTIRLITSMENN Sameinuðu þjóðanna hófu fyrir helgina leit í einni af höll- um Saddams Husseins í írak. Hún gekk snurðulaust fyrir sig og engar hindranir voru lagðar í götu þeirra. Þetta eru ákveðin tímamót í samskiptum SÞ og íraka, en sem kunnugt er hafa írakar gert vopnaeftirlitsmönn- um erfitt fyrir. Þeir fylgjast með því, að írakar hafi ekki gereyð- ingarvopn undir höndum. Gífur- legu magni efnavopna, sýkla- vopna, eldflauga og skotpalla hefur þegar verið eytt á vegum SÞ, svo og tækjum og tólum til framleiðslu efnavopna. Full vissa er talin fyrir því, að írakar eigi enn talsvert magn efna- og sýklavopna og það var ástæðan fyrir undirbúningi hernaðarað- gerða gegn hersveitum Sadd- ams á dögunum. Samkomulag íraka og Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra SÞ, sem tókst á elleftu stundu, á að tryggja full- an og óskoraðan aðgang eftir- litsmanna að þeim stöðum, sem þeir telja ástæðu til að kanna. Sameinuðu þjóðirnar eiga í engu að gefa eftir fyrir harð- stjóranum í Bagdad, slíkri ógn sem umheiminum stafar af ge- reyðingarvopnum hans. EF ÞAÐ ER RETT sem Elena í Vanja frænda segir, að snilli sé dirfska, fijálslyndi og víðsýni - þá var Sturla Þórðarson snillingur. Allt eru þetta einkenni verka hans, snilldartaka á stíl og efni. 3Sturla hefur sem rithöfundur • enga sérstaka kæki eins og Brandur ábóti, sem virðist halda sérstaklega upp á lýsingarorðið hrikalegur, eða höfundur Árna sögu byskups, sem er hallur undir orð sem hefjast á stór-, einkum stórlega sem hann ofnotar stórlega (segir stórlega nær og stórlega mikið) eða höfundur Arons sögu sem notar atviksorðið örvænt í tíma og ótíma. En það er einnig þó nokkurt uppá- haldsorð höfundar Fóstbræðra sögu sem bregður fyrir sig málvillum, ef ekki vill betur til. I Arons sögu er einnig notað orðalagið fannst á sem víða má sjá, en þó oftast sem eðlilegan stílsmáta. Höfundur Áma sögu byskups hefur gaman af að fara byggðum , en það er ekkert séreinkenni hans, höfundur Njálu hefur einnig gaman af að nota þetta orðatiltæki. En hann hefur enga sérstaka stílkæki, ekki frekar en Sturla Þórðarson. 4Í Sturlungu segir að þær sögur • sem gerðust á íslandi eftir andlát Brands byskups Sæmunds- sonar í upphafi 13. aldar hafi verið „lítt ritaðar, áður Sturla skáld Þórð- arson sagði fyrir Íslendinga sögur, og hafði hann þar til vísindi af fróð- um mönnum, þeim er voru á önd- verðum dögum hans, en sumt eftir bréfum þeim, er þeir rituðu er þeim voru samtíða, er sögurnar eru frá. Marga hluti mátti hann sjálfur sjá og heyra, þá er á hans dögum gerð- ust til stórtíðinda. Og treystum vér honum bæði vel til rits og einurðar HELGI spjall auk að segja frá, því að hann vissi eg alvit- rastan og hófsamast- an“. Slík eftirmæli era engin tilviljun. En orðalagið „íslendinga sögur“ verður ávallt ein af ráðgát- um íslenzkrar ritlistar. Og hveijum er gefið vald til að breyta því af fullkomnu purkunarleysi eða geð- þótta í íslendinga sögu? 5Lýsing Sturlu Þórðarsonar í • íslendinga sögu á Þórði Þor- valdssyni Vatnsfirðingi er hin sama og á Gunnlaugi ormstungu í sögu hans. Bent hefur verið á að lýsing- ar Gunnlaugs og Hallfreðar vand- ræðaskálds Óttarssonar í sögu þeirra séu harla keimlíkar og má það til sanns vegar færa. Það eru þó varla nein stórtíðindi, svo mikil sem víxláhrifin eru í fornum sögum. Hallfreður var einsog Gunnlaugur: mikill og sterkur, nefljótur og jarp- ur á hár og fór vel en Gunnlaugur ljósjarpur á hár og fór allvel einsog segir í sögu hans. Þá voru þeir skáld góð en „níðskár" notað um báða. Hitt er merkilegra - og raunar stórmerkilegt - hvað lýsing Sturlu á Þórði Þorvaldssyni er lík Gunn- laugi ormstungu og mætti draga þá ályktun af því að höfundur Gunnlaugs sögu hafi notað lýsingu Sturlu í íslendinga sögu, en ekki öfugt. Rithöfundar gefa pesónum sínum oft svipmót þeirra sem þeir þekkja úr umhverfi sínu en enginn lýsir lifandi manni uppúr sögulegu skáldverki. Höfundur Gunnlaugs sögu réð því, hvernig hann lýsti skáldinu, en Sturla var bundinn af staðreyndum. Margir samtíma- menn Sturlu þekktu Þórð Þorvalds- son og vissu hvernig hann leit út, þótt Sturla Sighvatsson dræpi þá bræður unga, Þórð og Snorra, eins- og lýst er í íslendinga sögu. Sturla Þórðarson lýsir Þórði svo að hann hafí verið herðabreiður, nefljótur og þó vel fallin í andliti, eygður mjög og fasteygur, ljósjarpur á hár, skapmikill. En Gunnlaugi er lýst svo í sögu hans að hann hafí verið herðimikill, nefljótur og skap- felligur í andliti, svarteygur (sem er hið sama og eygður mjög og fasteygur), ljósjarpur á hár og fór allvel, hávaðasamur og mikill í öllu skaplyndi. 6Þessar athugasemdir hef ég •ritað inní eintak mitt af Sturl- ungu en þar stendur einnig: Til athugunar: í íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar, 192 kap. segir um Þórð kakala: „Er þar mikil saga frá Þórði“ og litlu síðar: „Er frá honum mikil saga“. Af þessu má sjá að Þórðar saga er eldri en þessi kafli íslendinga sögu og Sturla forð- ast að endurtaka hana. En svona pennaglöp koma einnig fyrir í Njáls sögu, þegar lýst er kvonfángi Marð- ara Valgarðssonar. Guðbrandur Vigúfsson segir að Sturla hafí ritað bæði Þórðar sögu kakala og Þorgils sögu skarða og séu þær eldri en íslendinga saga. Aldur Þorgils sögu er óvissari en Þórðar sögu. Auk þess sýnir lýsing- in á Þórði Þorvaldssyni Vatnsfirð- ingi og Gunnlaugi ormsstungu að íslendinga saga er eldri en áður var talið, skrifuð eftir 1272 hafa merk- ir fræðimenn einsog Björn M. Olsen og Pétur Sigurðsson talið, en það er of seint með tilliti til Gunnlaugs sögu. Guðbrandur Vigfússon sýndi fram á að Lambkár ábóti skrifaði Prestssögu Guðmundar Arasonar. Hann bjó hjá Sturlu á Staðarhóli 1242 til um ’47. Þórður kakali deyr 1256 en Þorg- ils skarði er veginn tveimur árum síðar. Þórðar saga er rituð fyrir 1255. M. \ * '4 J|J , . aa. nj a pýIB > Vsjite i g&f fa• WS? ! W* pi Í%M to m'*n IW hb ÍW Ív->y= fýrö ?! | i § ■ \\! ; av wmf. • :v.;; [íM' ... iii wn ■(■•■■',; -vv' x k.-l1 :■■■".<&■ " i ,'i.r V ‘iv'* í', li.lMij i' i»i i , i ‘ v i-i é Nf. t 'I ij L V Lw • - ,y ISV. 1» .. »i.-. j r.'vVfi EDINBORG. Morgunblaðið/Ámi Sæberg. GLUGGI Leifs Breiðfjörð í St. Giles-dómkirkjunni. kóngafólki ekki undanskildu. Þessi til- komumikli gluggi er eftir islenzkan lista- mann, Leif Breiðfjörð, sem stundaði nám í Edinborg og hefur nú endurgoldið það með frábæru listaverki sem er augnayndi gestsins og aðdráttarafl. Á leiðinni út úr kirkjunni heyrðist leiðsögukona segja frá þesspm glugga og nefndi bæði Reykjavík og ísland. Þá er staldrað við; leitað að þessari fallegu kveðju frá íslandi. St. Giles-kirkjan er meira en 1000 ára gömul. Hún var að sjálfsögðu kaþólsk í upphafi en varð síðan höfuðstöðvar kal- vinsku eða skotzu kirkjunnar sem á rætur í kenningum John Knox, siðskiptafrömuð- arins mikla sem átti athvarf á þessum slóð- um á erfiðum tímum. Og nú er þessi gamla kirkja einskonar höfuðstöðvar mótmæl- enda á þessum slóðum. í kynningabækl- ingi er sagt að Leifur Breiðfjörð sé þekkt- ur á alþjóðavettvangi fyrir list sína. Þar er einnig sagt að efni gluggans sé sótt í mikilvægan grandvöll kristinnar trúar. Þar er vitnað í ljóðlínur eftir Burns um bræðralag og dýrð náttúrunnar. En þar eru einnig ástin og kærleikurinn í nánum tengslum við sólina og þessar frægu ljóðl- ínur þjóðskáldsins: My love is like a red, red rose. Það er óvænt og skemmtileg upplifun fyrir íslenzkan ferðalang að standa andspænis slíku listaverki í jafn gamalli og sögufrægri kirkju; það lyftir andanum og eykur manni trú á raunveru- leg verðmæti. Og það er framhald af þeirri frægu og mikilvægu bók sem nefnd hefur verið Landnáma þótt hér sé um annars konar landnám að ræða en þegar síyrkjandi víkingar komu askvaðandi austan yfir hafið einsog minkar og gerðu usla þar sem írskir munkar höfðu hreiðr- að um sig til að losna við gargið í því alþjóðlega fuglabjargi sem ýmist er kallað samtími, eða tízkuheimur. Falleg kveðja frá íslandi í BÓK JÓNS ÞÓR- arinssonar um Sveinbjörn tónskáld Sveinbjörnsson sem er í fremstu röð ís- lenzkra ævisagna er ijallað um þjóðsönginn og dvöl Svein- björns í Edinborg. Þar er sagt að sr. Matt- hías hafi ort fyrsta erindi lofsöngsins Ó, guð vors lands í Edinborg og leggur þá þegar hart að Sveinbirni að semja lag við sálminn, en Sveinbjörn er í fyrstu tregur til, athugar þó vandlega textann, að sögn Matthíasar, en kveðst að svo stöddu ekki treysta sér við hann. Eftir að séra Matthí- as var farinn frá Edinborg hélt hann áfram að hvetja Sveinbjöm að reyna við sálminn eins og hann kemst að orði og segir í minningum sínum að hann hafi ort tvö síðari erindi lofsöngsins í London. Jón Þórarinsson segir m.a. svo í umfjöll- un sinni: „Fyrstu árin eftir að Sveinbjörn koma aftur til Edinborgar frá Leipzig (fram til 1880) bjó hann í húsinu nr. 15. við London Street og þar var Matthías gestur hans. London Street er litlu norðar og snýr eins og Princes Street, en þá götu þekkja allir, sem komið hafa til Edinborg- ar. Ef lagt er upp frá Princes Street aust- anverðu, er ekki nema 5-6 mínútna gang- ur þangað. Hverfíð er gamalt og heldur drungalegt ásýndum, sambyggðar raðir dökkgrárra steinhúsa, en þar eru sums- staðar falleg torg. Það er yfir því nokkur virðuleikablær þótt vafalaust megi það muna fífil sinn fegri. Húsið nr. 15 við Lundúnastræti má telj- ast íslenzkur sögustaður, því að hér birtist Matthíasi Jochumssyni sú skáldlega sýn, sem fyrsta erindi þjóðsöngsins geymir, og bak við þessa sótugu múra hljómuðu líka í fyrsta skipti þeir tónar, sem óijúfanlega eru tengdir ljóðinu. íslenzki þjóðsöngurinn varð til í þessu húsi. Brýning sr. Matthíasar hreif á Svein- björn að lokum; hann samdi lagið um vet- urinn eða vorið, hið fyrsta er hann gerði við íslenzkan texta að eigin sögn. I marz frétti hann lát móður sinnar, hún hafði andazt 8. janúar. Þetta voru honum þung- bærar fréttir, en hann tók þeim með still- ingu. Um það leyti hefur hann, ef að líkum lætur, verið að semja Ó, guð vors lands. Ef til vill hefur hann í því verki fundið styrk í sorg sinni, ef til vill hefur harmur- inn gætt hörpu hans nýrri dýpt og lyft anda hans í nýjar hæðir. Lagið, sem nú var samið, tekur langt fram öllum öðrum tónsmíðum Sveinbjöms fram að þessum tíma, og raunar heldur það alltaf sérstöðu sinni meðal verka hans.“ Þjóðsöngurinn var saminn við kvæði séra Matthíasar svo unnt yrði að syngja það á 1000 ára þjóðhátíðinni. En þá lá engan veginn fyrir að Ó, guð vors lands yrði þjóðsöngur íslands. Sveinbjörn kallaði verkið þjóðsöng. Jón Þórarinsson sýnir fram á að það hafí verið fræðimaðurinn og eldhuginn Eiríkur Magnússon sem hafí verið upphafsmaður þeirrar hugmyndar að gera Ó, guðs vors lands að þjóðsöng íslendinga. En það átti enn langt í land að sá draumur rættist. Þar komu ýmis önnur verk til greina, Eldgamla ísafold, Island ögrum skorið - og kannski hefði verið einfaldast að gera Þið þekkið fold að þjóðsöng en það er einsog andblær á íslenzku vori. En Ó, guð vors lands er þroskandi áminning um það sem okkur skortir helzt í daglegri íhugun og hvers- dagslegum upphlaupum en það eru þau sannindi sem speglast í þessum orðum Bjömstjeme Björnson að það sé þó alltént gott að eitthvað liggi svo hátt að hver maður nái því eigi. Slík áminning á ekki sízt við nú á dögum þegar enginn man neitt stundinni lengur og íjölmiðlagjálfrið er vísbending um þann glámskyggna sam- tíma sem enginn hefur lýst betur en Prédikarinn. Tæknin er að verða einhvers konar óskiljanlegt ævintýri. Hún er eins konar framhald af veruleik- anum eins og gamalt ævintýri. Minnir öðru fremur á furðuveröld f ornaldarsagna Norðurlanda. Ætli okkur geti ekki dott- ið neitt í hug sem er svo furðulegt að það verði ekki að raun- veruleika einn góðan veðurdag. Það má ætla það andspænis þessari tækni sem við erum að upplifa nú um stundir. KOTAR ERU NÆSTU NÁ- grannar okkar, ásamt Fær- eyingum. Við eram á marg- an hátt harla líkir þeim. Þeir era ólíkir Englending- um að ýmsu leyti. Það eram við einnig. Veðurfar í Skot- landi á útmánuðum getur líkzt því sem við eigum að venjast. Það er ekki síður vetur í Skotlandi en heima á íslandi í byijun marz. En það kvartar eng- inn og Skotar eyða litlum sem engum tíma í að útmála vonzku veðurguðanna Edinborg er Aþena norðursins í öllum veðram. Hún er ekki stórborg en leynir á sér. Það er gaman að kynna sér nýjungar í tölvu- tækni, ekki síður en glugga í bækur í bóka- búðum. Það era mjög góðar bókaverzlanir, bæði í Englandi og Skotlandi. Þær era að sumu leyti fínni í Edinborg en t.a.m. Lund- únum. Kaffístofumar í þessum verslunum era ekki sízt ánægjuleg viðbót við bækurn- ar. Nú eru komnir út margir nýir geisladisk- ar fyrir tölvur og þeir álitlegustu til fróð- leiksauka. Fátt er eins skemmtilegt og bæta alin við ófullkomna þekkingu. Nú er hægt að fá geisladiska um sögu mann- kyns frá aldaöðli, dýralíf, jörðina og raun- ar allt milli himins og jarðar. Það eykur áhugann á tölvum ekki síður en alnetið eða fréttavefur Morgunblaðsins sem er nánast ómissandi ef dvalizt er í útlöndum. Encarta er stórmerkileg alfræði fyrir tölv- ur. Hún veitir manni bæði tækifæri til að lesa og hlusta. í þessari alfræði er hægt að hlusta á skáld lesa ljóð sín. Þá er stóra brezka alfræðiorðabókin einnig komin út á geisladiskum og fæst á góðu verði. Þetta rit sem kallar á álitlegan bókaskáp tekur nú minna pláss en lítil Ijóðabók. Annars er hún í yfir 30 stórum bindum. Tæknin er að verða einhvers konar óskiljanlegt ævintýri. Hún er eins konar framhald af veruleikanum eins og gamalt ævintýri. Minnir öðru fremur á furðuver- öld fornaldarsagna Norðurlanda. Ætli okk- ur geti ekki dottið neitt í hug sem er svo furðulegt að það verði ekki að raunveru- leika einn góðan veðurdag. Það má ætla það andspænis þessari tækni sem við erum að upplifa nú um stundir. Það er engin ástæða til annars en fagna því. Á frum- byggja- slóðum ■ ÞAÐ ER ANÆGJU- legt að glugga í bækur í bókaverzl- unum í Bretlandi og þá ekki sízt í Skotlandi. Þar er lögð sérstök áherzla á skozkar bókmennt- ir. Þeir leggja ekki síður mikla áherzlu á skozka sögu. Þar rekst maður á bækur eins og Early Medieval Ireland 400-1200 en þar koma frumbyggjar Islands við sögu því þar er fjallað um írzka munka sem komu til landsins á 9. öld. Það er að vísu alkunna. Ari fróði nefnir þá í sínum ritum. Það er algengt í þessum sögubókum að vitnað sé í Landnámu þegar rætt er um Orkneyjar, Hjaltlandseyjar eða Suðureyjar og sögu þeirra. Norræn áhrif hafa verið endingargóð þar um slóðir, allt fram á 18. öld. í fyrrnefndu riti segir að írskur munk- ur, líklega í klaustrinu Jona, Dicuil að nafni, hafi haft þær upplýsingar frá írskum presti að Thule eða Island, hafi verið vel kunnugt írskum munkum sem þangað fóru á öndverðri 9. öld og dvöldust þar frá febr- úar og fram í ágúst, eða um hálfs árs skeið. Presturinn hafði hitt þessa munka þremur áratugum áður en hann sagði Dicuil frá þessari reynslu sinni. Sjálfur hafði hann verið um skeið á eyjunum norð- ur af Bretlandi en þangað var tveggja sólarhringa sigling að hans sögn. Sem sagt, þarna er kominn í leitirnar prestur sem hitti írska munka_ sem höfðu haft margra mánaða dvöl á íslandi löngu áður en víkingar hófu ferðir sínar þangað. Norrænir víkingar töldu sér það ekki sízt til tekna ef þeir gátu rakið ættir sínar til fornra konunga. Þeir lágu svo sannar- lega ekki á slíkum ættfærslum. Þess konar REYKJAVÍK URBRÉF Laugardagur 28. marz snobb hefur loðað við okkur fram á þennan dag og í fyrmefndu riti er þess m.a. getið að fyrir því séu heimildir að landnámsmenn hafí rakið ættir sínar til Kjarvals írlands- konungs sem heitir svo sérkennilegu nafni á írskri tungu að það hvarflar ekki að nokkram manni að leggja það á tölvuna að skila því óbjöguðu og bezt að láta það liggja milli hluta. Tölvan er harla viðkvæm þótt hún kalli ekki allt ömmu sína og hún getur farið í kerfí ef á hana er lagt meira en þanþolið leyfir. Menn skyldu ekki leggja of mikið á tilfínningalíf tölvunnar, minnug- ir þess hvemig fór fyrir lækninum í sögu Vonneguts sem varð ástfanginn af sam- starfskonu sinni en var svo óheppinn að tölvan hafði einnig orðið ástfangin af þess- ari sömu konu og gerði sér lítið fyrir og kálaði lækninum án þess depla auga(I). ÞÓ AÐ SUMT í Edinborg minni sérstaklega á ís- land eins og þjóð- söngur okkar sem Sveinbjörn Svein- björnsson samdi í þessari fallegu borg á sínum tíma, þá má ætla að eitt dragi at- hygli íslendingsins að sér öðru fremur en það er aðalglugginn í St. Giles-dómkirkj- unni við þingtorgið í gamla bænum; sólin efst, græn jörðin neðst eins og til að minna á umhyggju okkar fyrir umhverfinu sem Jónas kallaði hugarveröld guðs, en það eru engin meðvituð áhrif frá honum í þessum gluggum heldur Robert Burns, þjóðskáldi Skota sem er dýrkaður á þessum slóðum meir og sterkar en nokkur annar; að Þjóðsöngur- inn og tilurð hans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.