Morgunblaðið - 29.03.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
rithöfunda má nefna að nú njóta
nokkrir rithöfundar heiðurslauna
Alþingis. Þess má reyndar geta að
alþingismenn hafa undanfaiin þrjú
ár trassað að úthluta heiðurslaun-
um til hefðbundinnar endumýjunar
í heiðurslaunahópnum, því kalda-
stríðsmenn í menntamálanefnd sjá
ævinlega rauða slikju í pólitískum
þvagprufum helstu kandídata.
Það er fyrir löngu kominn tími tii
að breyta skipulagi sem hefur
gengið sér til húðar.
Þessi breyting þýddi að menn
treystu því í alvörunni að lýðræði
sé bókmenntum hollara betur held-
ur en þriggja manna nefndir og út-
hlutunarsovét. Og því skyldi ekki
mega tala um perestrojku héma á
Fæti undir Fótarfæti?
Þeir sem vilja leggja fyrir sig rit-
störf gætu gengið að því eins og
starfi en ekki eins og happdrætti.
Trúlega munu einhverjir hafa
áhyggjur af því hvort setja eigi list-
rænt samasemmerid milli skálda og
matreiðslubókahöfunda. En það er
ekki meiningin. Ljóðskáld verða
áfram ljóðskáld. Og matreiðslu-
bókahöfundar verða áfram mat-
reiðslubókahöfundar. Góðar bækm-
halda áfram að vera góðar bækur.
Og vondar bækur munu ekki
skána. Þetta snýst ekki um snobb,
status, kokteilboð og merkilegheit.
Allir mega halda áfram að þjóna
sinni lund. Þetta snýst um launa-
greiðslur og peninga. Þegar kemur
að peningum og höfundarrétti verð-
ur að viðurkenna að ein lög skuli
gilda fyrir alla, en á því byggist
friður í landinu. Hvort sem einstak-
ir höfundar em ljóðskáld eða eitt-
hvað annað skulu þeir allir vera
jafnir fyrir lögunum.
Bókmenntafræðingar munu hafa
nóg að starfa eftir sem áður, þótt
hætt verði að fá þá til að setjast í
nefndir til að ákveða hverjir eigi að
fá borgað fyrir að skrifa og hversu
mikið. Það er þjóðarinnar að
ákveða það. Það er hins vegar rit-
höfundanna sjálfra að ákveða hvaða
bækur þeir skuli skrifa.
Og ef þú ætlar að fara að koma
því að, að einhver hafí átt að brjóta
á þér höfnðið hér á okkar heimili
þar sem allir eru þér góðir, þá ætla
ég að segja þér að það er ekki okk-
ar verk að skrifa þá sjúkdómslýs-
ingu.
Svipaðar reglur á að setja um
Kvikmyndasjóð íslands. Þar þarf
að leggja niður úthlutunamefndir
og greiða kvikmyndaframleiðend-
um ákveðna upphæð til viðbótar
hverri krónu sem markaðurinn hef-
ur gefið af sér. Þannig verður hægt
að framleiða íslenskar myndir sem
geta staðið undir sér.
En fyrsta skrefið er þó að efla
Kvikmyndasjóð Islands og viður-
kenna þar með í verki að þjóðin eigi
kvikmyndagerðarmönnum skuld að
gjalda fyrir að hafa á eigin kostnað
tekið umtalsverðan þátt í að halda í
það sem við eigum eftir af íslenskri
menningu og íslenskri tungu.
Það er erfitt að þjóna tveimur
herrum sem hvor hefur sínar mein-
ingar.
Spurningin er ekki bara hvort
húsbændumir heita Júst og Nasi
eða Almenningur og Úthlutunar-
nefnd.
Þetta er líka spurning um hvar
og hvenær hundar dilla rófunni.
Kannski er þetta þó fyrst og
fremst spumingin um hvort það er
hundurinn sjálfur sem á að dilla
rófunni, eða hvort það er rófan sem
á að dilla hundinum?
Leggjum niður þetta gatslitna
sovétskipulag svo að fólk þurfi ekki
að skrifa fleiri greinar í Morgun-
blaðið um að einhverjar úthlutunar-
nefndir geti neitað Gyrði Elíassyni
og Margréti Rún og öðmm ágæt-
um rithöfundum og kvikmynda-
gerðarmönnum um réttlæti og hver
uni glaður við sitt.
P.S. Skáletraðir kaflar em úr rit-
verkinu Heimsljós eftir Halldór
Laxness.
Höfundur er fyrrv. formaður Rit-
höfundasambands fslands og Félags
kvikmyndastjóra.
Sjálfshjálparhópar fyrir
fólk með geðsjúkdóma
SJÁLFSHJÁLPARHÓPAR hafa
verið starfandi hjá Geðhjálp með
góðum árangri. Á miðvikudags-
kvöldum milli kl. 20 og 21.30 hittist
fólk með fælni og vinnur eftir 12
sporakerfi EA (Emotional
Ánonymus).
Miðvikudaginn 1. apríl kl. 18
verður stofnaður sjálfshjálparhóp-
ur fyrir fólk með geðhvörf. Leið-
beinandi verður með hópnum
fyrstu skiptin og kynnt verður
EA-12 sporakerfið. Aðstandendur
hafa einnig nýtt sér sjálfshjálpar-
hópana og er nýr hópur í undir-
búningi ef þátttaka verður næg.
Geðhjálp hvetur fólk með geð-
sjúkdóma og aðstandendur þeirra
til þess að mynda sjálfshjálpar-
hópa til að fá stuðning og leiðbein-
ingar í baráttu sinni við sjúkdóm-
inn. Félagið leggur til aðstöðu,
leiðbeiningar og aðra þá aðstoð
sem óskað er eftir. Sjálfshjálpar-
hópar hafa starfað um allan heim
og hafa þeir bundist samtökum til
þess að miðla af reynslu sinni og
þekkingu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Sjálfshjálparhóparnir hittast í
félagsmiðstöð Geðhjálpar,
Tryggvagötu 9, Hafnarbúðum og
eru þeir opnir þeim sem hafa
áhuga.
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 31^
Nýr tjöruhreinsir hefur verið tekinn í notkun á öllum
sjálfvirkum þvottastöðvum ESSO, mun umhverfisvænni
en sá sem notaður hefur verið hingað til. Tjöruhreinsirinn
er lyktarlaus, með lágt innihald aromatískra kolvetna og
er í samræmi við leiðbeiningar Hollustuvemdar ríkisins
um olíu- og tjöruhreinsiefni fyrir olíuskiljur.
Þvottastöðvar ESSO
• Gagnvegi í Grafarvogi
• Stórahjalla Kópavogi
• Skógarseli í Breiðholti
• Lækjargötu Hafnarfirði
• Aðalstöðinni Keflavík
• Skútunni Akranesi
• Veganesti Akureyri
Renndu bílnum í gegn
Esso)
Olíufélagið hf