Morgunblaðið - 29.03.1998, Page 34
34 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda-
faðir, fósturfaðir, afi og langafi,
VIGFÚS VIGFÚSSON,
Sléttuvegi 17,
leigubílstjóri,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 31. mars kl. 13.30.
Jóhanna Halldórsdóttir,
Þór Vigfússon, Bára Andersdóttir,
Pétur A. Vigfússon, Sigurrós Sigurðardóttir,
Jóna Vigfúsdóttir, Kjartan Kjartansson,
Hallfríður Vigfúsdóttir, Skúli H. Oddgeirsson,
Nils Nilssen, Edda Waage,
Sigurður Þórsson, Jóna Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR BERGSTEINSDÓTTUR,
Hraunkambi 6,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameins-
deild Landspítalans.
Lárus Kr. Lárusson, Svandís G. Magnúsdóttir,
Stefán Lárusson, Guðný Runólfsdóttir,
Sigríður Lárusdóttir, Magnús Sigurðsson,
Guðný Lárusdóttir, Viðar Guðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA GERÐUR GUNNARSDÓTTIR
BERGMARK,
er látin.
Bálför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum starfsfólki hjúkrunardeildar 2B á
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir alla þá umhyggju og
elskulegheit sem þið sýnduð henni og okkur.
Lára Jóhanna Bergmark,
Karl Bergmark, Sara Bránnström,
Ingrid Anna Bergmark.
+
Móðir mín og tengdamóðir,
HREFNA JÓNSDÓTTIR,
Ránargötu 5a,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 20. mars sl., verður
jarðsungin frá Litlu kapellunni í Fossvogi
mánudaginn 30. mars kl. 13.30.
Kristján Tómasson, Anna Guðnadóttir.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
ÞORSTEINS ÞÓRIS ALFREÐSSONAR,
Suðurbraut 3,
Kópavogi.
Hann lést á heimili sínu miðvikudaginn 11. mars
og var jarðsettur í kyrrþey fimmtudaginn 19. mars frá Kópavogskirkju.
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir,
Sturlaugur Þorsteinsson, Helga Lilja Pálsdóttir,
Valdimar Óli Þorsteinsson, Katrín Guðmundsdóttir,
Steinar Þór Sturlaugsson, Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir,
Stefán Örn Sturlaugsson, Ann Kristine Thorsteinsson,
Þorsteinn Óli Valdimarsson.
SIGURÐUR
ELÍASSON
+ Friðrik Sigurður
Ástráður Elíasson
fæddist á Krosseyri
við Geirþjófsfjörð 9.
september 1914.
Hann lést 18. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar lians voru Elías
bóndi þar Jónsson
Helgasonar og k.h.
Guðný Friðriksdóttir
bónda á Klúku í Ket-
ildölum og síðar við
útgerð á Krosseyri
Sveinssonar.
Kona Sigurðar 4.
des. 1943 var Anna
Ólöf, f. 10. júlí 1919, píanókenn-
ari, Ólafsdóttir legsteinasmiðs í
Give á Jótlandi Guðnasonar og k.
h. Nínu, fædd Christiansen. Faðir
hennar var norskur, en móðirin
dönsk. Börn þeirra: Nína Björk
Elíasson, cand mag. í músík,
menntaskólakennari, f. 23. júní
1946, gift Carsten Heilmann,
lækni í Khöfn. Edda Elíasson, f.
15. des. 1949, iðjuþjálfí, gift Niels
Hald. Dr. Örn Elíasson, f. 1. sept.
1951, læknir í Bandaríkjunum.
Sigurður stundaði nám í hér-
aðsskólanum á Laugarvatni
1935-1936 og aftur 1937-1938.
Búfræðingur frá Hvanneyri
1937. Búfræðikandfdat frá Bún-
aðarháskólanum í Kaupmanna-
höfn 1941. Námsferðir um Norð-
urlönd og Þýskaland. Aðstoðar-
maður við tilrauuastöðina Studs-
gaard í Danmörku 1941 og hjá
danska heiðafélaginu 1941-1942.
Landsráðunautur í
sauðfjárrækt í Dan-
mörku 1943-1946.
Tilraunasfjóri á
Reykhólum frá stofn-
un tilraunastöðvar
þar 1946 til 1963.
Skólastjóri unglinga-
skólans þar frá stofn-
un hans 1959 til
1962. I Tilraunaráði
jarðræktar 1948-
1965. Varaformaður
sljórnar Rannsókna-
stofnunar landbún-
aðarins 1965-1969. Á
árunum 1969-1971
var hann stundakennari við ýmsa
skóla: gagnfræðaskólann við
Vonarstræti, Hagaskóla, Voga-
skóla, Kennaraskóla Islands,
Menntaskólann á Laugarvatni og
Iþróttakennaraskólann þar. Skip-
aður kennari við Menntaskólann
við Tjörnina 1972. Kenndi þar og
í Menntaskólanum við Sund til
1980. Ritstörf: Ritstjóri danska
tímaritsins Tidskrift for Faareavl
1943-1946 og skrifaði þar grein-
ar. Samdi tilraunaskýrslur fyrir
Tilraunastöðina á Reykhólum og
Ágrip íslenskra jarðræktartil-
rauna 1947. Þýddi ásamt Hann-
nesi Jónssyni sænskar kennslu-
bækur í efnafræði með námsvís-
um ætlaðar menntaskólum og
fjölbrautum. Þýddi og umsamdi
kennslubækur í efnafræði og eðl-
isfræði.
Útför Sigurðar fór fram frá
Langholtskirkju 23. mars.
Þegar ég kom fyrst í Reykhóla-
sveit sumarið 1955, þá vöktu fljótt
athygli mína hjón á góðum aldri.
Það voru hjónin Sigurður Elíasson
tilraunastjóri og kona hans Anna
Elíasson, en hún átti danska móður
og austfirskan föður, Ólaf Guðna-
son, legsteinasmið í Danmörku.
Ættfólk Önnu er margt á Austur-
landi og man ég eftir Sveini Guðna-
syni, ljósmyndara á Eskifirði. Hann
var glæsimenni með mikinn per-
sónuleika.
Fljótlega tókust góð kynni með
okkur Sigurði og fjölskyldu hans, en
Tilraunastöðin á Reykhólum er
næsti bær við Miðhús. Sigurður var
fluggreindur, opinn fyrir öllum
framfórum og vöktu strax athygli
mína jarðræktartilraunirnar vegna
þess hve vel þær voru unnar og af
mikilli nákvæmni. Þar naut Sigurð-
ur Sæmundar Bjömssonar frá Hól-
um í Reykhólasveit, en hann er
manna vandvirkastur og nákvæm-
astur í öllum störfum. Eins og
stundum vill verða er hugurinn
sjaldan við eitt atriði. Sigurður
beitti sér fyrir því að koma á fót
fjárbúi og var markmiðið að fá vel
hvítan ullarfjárstofn. Þar varð Til-
raunastöðinni vel ágengt. Þessa
stöð lögðu svo ráðamenn niður, en
stofninn er áfram vel varðveittur,
og er hann kominn víða og meðal
annars austur á land. Hestur í
Borgarfirði er nú helsta stöð lands-
ins í tilraunastarfsemi í sauðfjár-
rækt.
Sigurður var mikill félagshyggju-
maður og hugurinn allopinn í þeim
málum. Hann rakst illa í flokld, en
það er stórsynd í augum stjórn-
málamanna. Um heiðarleik Sigurð-
ar efast ég ekki.
Nokkru áður en ég fluttist í
Reykhólasveit var Sigfús Halldórs-
son tónskáld þar vestra. Saman
sömdu þeir Sigurður „Litlu flug-
una“; Sigurður átti ljóðið en Sigfús
lagið.
Lækur tifar létt um máða steina,
lítil fjóla grær við skriðufót.
Bláskel liggur brotin milli hleina,
í bænum hvflir íturvaxin snót.
Ef ég væri orðin lítil fluga,
ég inn um gluggann þreytti flugið mitt,
og þó ég ei til annars mætti duga
ég eflaust gæti kitlað nefíð þitt.
Þetta Ijóð var sungið við útfór
Sigurðar í Langholtskirkju.
Fyrir um 43 árum var ég á náms-
ferð um Norðurlönd með Guðmundi
Jónssyni, skólastjóra Bændaskól-
ans á Hvanneyri, sem fararstjóra. Á
þeim veitingastöðum þar sem var
lifandi tónlist var „Litla flugan“
langvinsælasta lagið. Þegar komið
er í nýtt umhverfi er ótrúlega mikill
ávinningur að eignast góðan
granna, en fyrir utan að vera góður
granni var Sigurður lyftistöng fyrir
byggðarlagið í heild. Mikilhæfur
maður er genginn. Þökk sé honum
fyrir samfylgdina.
Sveinn Guðmundsson frá
Miðhúsum.
HREFNA
JÓNSDÓTTIR
+ Hrefna Jónsdóttir
var fædd á Tröð í
Kolbeinsstaðahreppi
20. júlí 1913. Hún lést
á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur hinn 20. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Jón
Jónsson og Guðný
Árnadóttir frá Leiti á
Skógarströnd.
Sambýlismaður Guð-
nýjar síðar var Ólaf-
ur Jónsson í Skuld.
Systkini Hrefnu voru:
Rósa Pálsdóttir, fædd
19.1. 1922, og Krist-
ján Ólafsson, sem nú er látinn.
Hrefna giftist 9. mars 1941
Tómasi Þorsteinssyni, fæddur
1.3. 1895, dáinn 22.10. 1968, og
átti með honum einn son, Krist-
ján Ólaf, fæddur 18.1. 1942. Hans
sambýliskona er Anna Guðna-
dóttir, fædd 20.7. 1944, frá
Engjabakka við Eskifjörð.
Utför Hrefnu fer fram frá Litlu
kapellunni í Fossvogi mánudag-
inn 30. mars og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Langri ævi er nú lokið. Á morg-
un, mánudag, fer útför frænku
minnar, Hrefnu Jónsdóttur, fram,
en hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur 20. þessa mánaðar.
Með örfáum orðum langar mig til
að minnast þessarar góðu konu.
Ekki ætla ég að rekja ættir hennar
hér, en aðeins að þakka henni alla þá
vináttu og umhyggju sem hún sýndi
mér og minni fjölskyldu. Hún var
alltaf boðin og búin að hjálpa til ef
einhver þarfnaðist aðstoðar, það var
sama hver átti í hlut af samferðafólk-
inu, þar var enginn undanskilinn.
Hrefna var af þeirri
kynslóð sem man tím-
ana tvenna og þær stór-
fenglegu breytingar
sem hafa orðið á öllum
lifnaðarháttum og hugs-
unarhætti fólks. Hún
ólst upp með móður
sinni Guðnýju Ama-
dóttur og var sérlega
kært með þeim mæðg-
um. Hrefna byrjaði
snemma að vinna fyrir
sér, var meðal annars
kaupakona hjá foreldr-
um mínum fyrstu bú-
skaparár þeirra og hélt
mikilli tryggð við þau upp frá því.
Árið 1941 gekk hún að eiga
Tómas Þorsteinsson sem þá bjó á
Ránargötu 5A í Reykjavík ásamt
móður sinni og bróður og þar var
heimili þeirra hjóna alla tíð, en
Tómas er nú látinn fyrir allmörgum
árum. Þau eignuðust soninn Krist-
ján sem búið hefur með móður
sinni, sambýliskona hans er Anna
Guðnadóttir frá Engjabakka við
Eskifjörð og reyndist hún Hrefnu
vel. Þess má geta að bróðir Tómas-
ar, Jóhann, bjó allan sinn aldur á
heimili þeirra Hrefnu og Tómasar.
Hrefna var ákaflega dugleg og
má segja að henni hafi aldrei fallið
verk úr hendi og ber hennar fallega
heimili vott um það. Þar var gott að
koma og voru þau Tómas samhent í
að taka vel á móti gestum. Hún var
mikil handavinnukona og var gam-
an að skoða hennar fallegu hann-
yrðir, það er með ólíkindum hvað
liggur mikið eftir hana, ekki aðeins
á hennar heimili endur eru þeir ekki
ófáir sem eiga útsaumaða mynd,
teppi eða heklaðan dúk eftir hana.
Hrefna var mjög félagslynd og
þrátt fyrir mikla vinnu gaf hún sér
tíma til að fara út á meðal fólks.
Hún spilaði brids og gerði þó nokk-
uð af þvi hin síðari ári og það var
ekki ósjaldan sem hún brá sér á
bingó.
Undanfarin ár hefur Hrefna kom-
ið til mín að haustinu og verið í rétt-
unum, dvaldi hún þá um tíma og
fórum við þá í heimsóknir til frænd-
fólks og kunningja, það voru
ánægjulegar stundir. Hrefna var
vel ættfróð, stálminnug og hafði frá
mörgu að segja, það var hægt að
sækja margan fróðleikinn til henn-
ar. Nú er kveðjustund og söknuður
er mér í huga er ég kveð frænku
mína. Hafi hún þökk fyrir allt og
allt.
Það er marklaust að minnast þess nú,
þegar moidin er yfir þig breidd.
Ég átti þér ógoldna skuld,
aldrei verður hún greidd.
(Guðm. Böðvarsson.)
Eg og fjölskylda mín sendum
Kristjáni, Onnu og Rósu systur
Hrefnu og hennar fjölskyldu sam-
úðarkveðjur.
Guðrún Sigurðarddttir.
0
|
5
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifœri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120
0
0
0immmm&i0