Morgunblaðið - 29.03.1998, Page 37
n T rx f
ggpr XH/M G° H,T0/-(TnMT4TJ2 9H
MORGUNBLAÐIÐ-------------------------------------------------------------------------------------------------SUNNUDAGUR 29. MARZ 1-998--37
AMNESIA náði ekki að steypa
saman ólíkum þáttum.
RÖLT í gegnum kyrrlátt út
hverfi með Spectrum.
THE Outrage bar með sér tóna
framtíðarinnar.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
SKIPHOUI50B • SÍMI552 6000 - FAX 552 6005
Opið hús í Lindasmára 37 í dag
Mjög falleg og áhugaverð 119 fm íbúð á 2. h.t.h. í glæsi-
legu fjölbýli. Ibúðin er björt og opin og herb. öll rúmgóð.
Mikið og gott skápapláss. Fallegar innréttingar og Ijóst
parket á gólfum. Frábær staðsetning. Sjón er sögu ríkari.
3677.
Rannveig og Árni sýna milli kl. 14.00—17.00.
<f ÁSBYRGI
Suðurlandsbraut 54 - Við Faxafen - 108 Reykjavík
Sími 568 2444 - Fax 568 2446
Framtíðartónar
Ljósmynd/Ema Björt
KRAFTMIKIÐ hiphop af Reykjanesi með Oblivion.
SOFANDI lék rokk með tilbrigðum.
BAD TOYS; einföld vinnukonugrip og textar
hlaðnir frumstæðri kímni.
HIT MÓSES; rokk og ekkert kjaftæði.
TÖIVLIST
HÁAGERÐI 15 - OPIÐ HÚS
I dag frá kl. 13.00—16.00 sýna Sigurþór og Þóra þér þetta fallega raðhus við
Háagerði 15. Husið er á tveimur hæðum og í því eru stórt og bjart eldhús, þrjár stofur,
4—5 svefnherb. o.fl. Eldhúsið er nýlegt. Björt og falleg stofa. Parket á gólfum. Hiti í
stéttum. Garöurinn er I mikilli rækt og ber eiganda sínum gott vitni. Húsið stendur á
góðum stað (rólegu hverfi. Sjón er sögu ríkari.
BIFRÖST FASTEIGNASALA, VEGMÚLA 2, SÍMI 533 3344.
Tónabær
MÚSÍKTILRAUNIR
Músíktilraunir Tónabæjar, þriðja tilraunakvöld. Þátt
tóku Rennireið, Oblivion, Amnesia, Hit Móses, Jah,
Spectrum, Bad Toys, The Outrage, Sofandi og
Stæner. Haldið í Tónabæ 27. mars.
Þriðja tilraunakvöld Músíktilrauna Tónabæjar var
sérdeilis skemmtilegt, enda fjölbreytni meiri en fyrri
kvöldin tvö og sveitirnar sem þátt tóku betri. Fyrsta
sveit kvöldsins, Rennireið, byrjaði með stæl með bráð-
skemmtilegri keyrslu. Liðsmenn hennar eru vart af
bamsaldri, en efnilegir í meira lagi, sérstaklega gítar-
leikari sveitarinnar, sem lék að auki á flest önnur hljóð-
færi sem heyrðist í. Fyrsta lag Rennireiðar var bráðgott,
annað síðra en þriðja lagið var einnig vel heppnað með
skemmtilegum tilbrigðum í raddsetningu.
Oblivion hét fjölskipuð piltasveit úr Keflavík sem
mætti ákveðin til leiks. Þeir Oblivion-félagar fluttu hefð-
bundið hiphop og komust vel frá sínu, utan að þeir lentu í
töluverðum tækjavandræðum framan af. Sveitin styrkt-
ist þó er á leið og þriðja lag hennar vai- bráðgott.
Amnesia hélt sig við rokkið, en náði illa að fella saman
ólíka strauma, gruggrokk með keyrslu og látum og
flúrað gítarspil. Söngurinn var ekki nógu vel heppnaður
og lögin alls ekki nógu vel samin.
Hit Móses sannaði að hart þungt rokk lifir góðu lífi á
Suðurlandi, en undanfarnar tilraunir hafa ýmsar sveitir í
þyngri kantinum komið þaðan. Keyrslan var gamaldags
og sveitarmenn náðu ekki alltaf að fóta sig á grunninum.
Jah sneri aftur til nútímans með ambient breakbeat.
Laglínur voru prýðilegar og hljóð skemmtileg, en illa
gekk þeim að enda lögin. Lítil framvinda var í öðru lagi
sveitarinnar og heldur lítið að gerast, en Jah-menn
spýttu í í lokalaginu.
Spectrum átti fyrsta leik eftir hlé og byrjaði vel með
skemmtilegum bassagangi. Þeir áttu þó í hljóðvandræð-
um og þurfa að hugsa samsetninguna betur. Dæmi um
það er annað lag sveitarinnar þegar harður taktur kom
inn með skemmtilegum hamagangi en lækkaði síðan í
dauflega stemmu; því líkast sem rölt væri í gegnum
kyrrlátt úthverfi. Þriðja lag sveitarinnar var gott.
Bad Toys lék húmorískt gítarpopp, einföld vinnukonu-
grip og textar hlaðnir frumstæðri kímni. Annað lag
sveitarinnar var meira af því sama. í lokalaginu fengu
þeir félagar þrjá „dansai-a“ á svið sem bættu litlu við.
The Outrage bar með sér tóna framtíðarinnar og stóð
sig frábærlega. Sveitin lék drifandi drum ‘n bass með
skemmtilegum lögum; langbesta drum ‘n bass-sveitin í
tilraununum að þessu sinni. Sérstaklega var fyrsta lagið
gott, uppfullt með skemmtilegum hugmyndum, en það
þriðja var líka gott.
Snúið var aftur í rokkið í næsta skammti; Sofandi lék
rokk með tilbrigðum. Útsetningar voru hugmyndaríkar
og skemmtilegar og tónlistin spunakennd. Sérstaklega
var annað lag Sofandi vel heppnað,
með fyrirtaks hljóðfæraleik og
skemmtilegum sprettum.
Hafnfirska sveitin Stæner lék kraft-
mikið popp, ekki ýkja frumlegt en
vandað. Stæner-menn misstu dampinn
í miðju upphafslaginu en náðu sér á
strik í öðru laginu og komust á flug í
því þriðja, vel studdir af diggeridoo.
Rennireið sigraði nokkuð örugglega
úr sal, en Stæner og Jah í atkvæða-
greiðslu dómnefndar.
I upptalningu á liðsmönnum
Oblivion á föstudag var rangt fai-ið
með nöfn. Davíð Baldursson sá um
hljóðsmala, Haukur Hauksson skrám-
aði, Tómas Viktor Young lék á tromm-
ur og Arnar F. Jónsson, Oddur I.
Þórsson og Elvar Sturluson sungu.
í umsögn i gær var rangt stafsett
nafn hljómsveitai-innar Phantasmag-
oria. Einnig birtist mynd af Dúnmjúk-
ar kanínur en stóð Phantasmagoria
undir.
Ámi Matthíasson
BORGARTÚN
290 fm verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði á jarðhæð í Borgartúni 33.
Möguleiki á að leigja með 250 fm góðu lagerhúsnæði, með innkeyrslu-
dyrum í kjallara. Langtímaleigusamningur. Laust strax.
LAUFBREKKA - GOTT HÚS
Mjög gott 192 fm einbýli á tveimur
hæðum með stórri sólstofu og
heitum potti. Arinn. Gott útsýni.
Flísalagt baðherb. Verð aðeins 13,5
millj. 11772
Framkvæmdir eru hafnar að nýju iðnaðahúsnæði á tveimur hæðum, góð aðkoma
og innkeyrslu inná báðar hæðir. Sex einingar á hvorri hæð. Góð lofthaað. Húsið
afhendist í september '98 Teikn. og allar nánari uppl. á skrifst. SALA EÐA LEIGA.
9038
OP/Ð í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 12 - 15.
Sími 533 4040 Fax 588 8366
Armúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.
BLIKAHJALLI 3-7-11,
SUÐURHLÍÐUM KÓPAVOGS.
Glæsileg raðhús á tveimur hæðum m/innb. bílskúr. Stærð ca. 200 fm. Húsin verða
seld í núverandi ástandi, fullbúin að utan, en fokheld að innan. Frábær staðset-
ning. Verð frá 10,9 m. Áhv. húsbréf. Allar uppl. og teikn. á skrifstofu. 8675
_______________Nýbyggingar
JORFALIND - KOP. Eigum aöeins eitt raðhús eftir sem er á tveimur hæðum
m/innb. bílsk. fallegt útsýni. 3-4 herb. Stærð 178 fm. Húsið afhendist tilbúið að
utan, en fokhelt að innan, verð 8,8 millj. eða tilbúið undir tréverk að innan á 11,3
millj. Teikn. á skrifst. 8878.
HRINGBRAUT - HF. Efri sérhæð og ris á rótgrónum stað til afh. strax og
afhendist tilbúið að utan, en fokhelt að innan. Góð staðsetning. Stærð 219 fm
samtals. Verð 8,9 millj. Teikn. á skrifst. 6652
RaÐHÚS / 5-6 HERBERGJA
LINDASMARI - KÓP. Mjög gott og vel staðsett parhús sem er hæð og ris ásamt
innb. bílsk. 3 svefnherb. góðar stofur. Parket. Góðar innr. Ris er óinnréttað. Stærð
163,8 fm. Lóð er afgirt og fullfrágengin. Áhv. 2,9 m Verð 13,9 millj. 9055
JÖKLASEL. Mjög gott endaraðhús á 2 hæðum ásamt risi og innbyggðum bílsk.
4 svefnherb. 2 stofur. Góðar innr. og gólfefni. Stærð 216,8 fm. Hús í topp-
standi. Áhv. 5,6 millj. Verð 13,2 millj. 8963
BÓLSTAÐARHLÍÐ - SKIPTI Rúmgóð og björt 5-6 herb. endaíb. á 3. hæð ásamf
sérb. bílskúr með gryfju. Tvennar svalir, útsýni. Hús og sameign mjög snyrtilegt.
Verð 8,5 m. ATH: SKIPTI Á 2 - 3 HERB. ÍBÚÐ Á 1. EÐA 2. HÆÐ. 7859
BJARTAHLIÐ - MOS. - ÚTSÝNI. Stóglæsileg og vönduð 131 fm endaíb. á 3.
hæð (efstu.) 3 svefnherb. Rúmg. og bjartar stofur. Þvhús í íb. Sérlega vandaðar
kirsjuberjainnr. Parket og flisar. Stórglæsilegt útsýni. Hægt að fá bilsk. keyptan.
Áhv. 4 m. Verð 11,2 m. 9046
ATVINNUHUSNÆÐI
ASKALIND - Kópavogi.