Morgunblaðið - 31.03.1998, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Aðeins
fyrsla
orrustan
KR-ingurinn Björgvin Reynisson
maður og þjálfari Skagama
Rúmlega
sáu leik >
PAT Riley og lærisveinar hans í
Miami Heat tryggðu sér sigur í
Atlantshafsriðlinum í NBA-deild-
inni annað árið í röð í fyrrinótt
með því að sigra Houston 109:77.
Liðið getur aldrei orðið neðar en
í öðru sæti í Austurdeildinni. Það
er aðeins Chicago Bulls sem get-
ur komist upp fyrir Heat sem
hefur unnið 51 leik og tapað 21.
„Það er mjög mikilvægt að sigra í
riðlinum," sagði Riley þjálfari.
„Það var eitt fyrsta markmiðið
sem við settum okkur fyrir tíma-
bilið.“
Indiana komst á spjöld sög-
unnar með því að gera aðeins 55
Njarðvfldngar
betri í ná-
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1998
W ®
Fyrsti leikur liðanna i unclanúrslitum,
leikinn i Njarðvík 29.mars 1998
Njarðvík Keflavík
grannaslagnum
„VIÐ lékum ekki eins og við getum best, en okkur tókst að sigra í
leiknum og það skipti öllu máii,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, eftir að lið hans sigraði Keflvíkinga 105:98 í fyrsta
leik liðanna í undanúrslitum í Ljónagryfjunni ( Njarðvík á sunnu-
dagskvöldið. Leikurinn var bæði harður og spennandi þar sem
Keflvíkingar byrjuðu miklu betur og virtust þeir um tíma ætla að
kafsigla heimamenn. En Njarðvíkingar náðu að rétta úr kútnum og
tókst síðan að tryggja sér sigur með góðum leik í síðari hálfieik. í
hálfleik var staðan 48:45 fyrir Keflavík.
höfðu afar góðar gætur á Teiti Ör-
lygssyni og tókst honum ekki að
setja 3ja stiga körfu að þessu sinni.
Maurice Spiller og Falur Harðarson
voru atkvæðamestir í liði Keflavík-
ur. Guðjón Skúlason lék vel í fyrri
hálfleik og Fannar Ólafsson var
einnig ágætur.
105 Skoruð stig 98
32/38 Vítahittni 24/29
3/21 3ja stiga skot 8/26
32/47 2ja stiga skot 25/47
22 Varnarfráköst 24
13 Sóknarfráköst 14
20 Boltanáð 14
20 Bolta tapað 26
32 Stoðsendingar 16
20 Villur 24
Keflvíkingar hófu leikinn með
sannkallaðri leiftursókn. Þeir
léku á als oddi en ekkert gekk hjá
Njarðvíkingum og um
Björn tíma virtust Keflvíking-
Biöndal amir ætla að kafsigla
skrifar Njarðvíkinga. En þessi
góða byrjun Keflvíkinga
kostaði þá margar villur og um miðj-
an hálfleikinn urðu þeir að taka lyk-
ilmenn útaf, þar á meðal Maurice
Spiller sem hafði leikið sérlega vel.
Þessi umskipti nýttu Njarðvíkingar
sér og áður en fyrri hálfleikur var
úti hafði þeim næstum tekist að
vinna upp 16 stiga forskot Keflvík-
inga.
Njarðvíkingar voru jafnákveðnir í
síðari hálfleik en Keflvfkingum virt-
ist brugðið og ekki leið á löngu þar
til þeir höfðu náð forystunni í leikn-
um. Þetta virtist setja Keflvíkinga
úr jafnvægi, þeim gekk illa að hitta
og fyrir vikið misstu þeir Njarðvík-
inga of langt framúr sér og þar með
möguleikann á sigri.
„Við lentum því miður strax í
villuvandæðum og þurftum að taka
lykilmenn útaf sem varð til þess að
þeir komust inn í leikinn að nýju.
Annars fannst mér þeir fá að leika
alltof fast í síðari hálfleik og fyrir
vikið urðum við að taka skot úr
slæmum færum. Annars ætlum við
okkur sigur í næsta leik, annað
kemur ekki til greina," sagði Sig-
urður Ingimundarson þjálfari Kefl-
víkinga.
Petey Sessoms, Friðrik Ragnars-
son, Orlygur Sturluson og Páll
Kristinsson voru bestu menn Njarð-
víkinga í leiknum. Keflvíkingar
Morgunblaðið/Einar Falur
PETEY Sessoms átti góðan leik með Njarðvíkingum gegn Keflavík.
Hér hefur hann sloppið framhjá Maurice Spiller og setur knöttinn
í körfuna.
VIÐUREIGN KR og ÍA í undanúrslitum úrvaisdeildarinnar í
körfuknattleik virðist ætla að verða jöfn og spennandi, ef marka
má fyrsta leik liðanna á Seltjarnarnesi á sunnudag. Leikurinn var
æsispennandi og eftir að Skagamenn höfðu knúið fram framieng-
ingu skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma, náðu KR-ingar frum-
kvæðinu á ný og sigruðu 82:80. KR-ingar unnu því fyrstu orrustuna
en stríðið er hvergi nærri búið.
Heimamenn byrjuðu mun betur og
náðu snemma góðu forskoti.
Skagamenn hittu mjög illa í fyrri
hálfleik og gekk erflðlega
BorgarPór að skaPa sér Sóð kski-
Einarsson færi gegn sterkri vöm
skrifar KR-inga. Forskot heima-
manna var mest 15 stig
og var staðan í leikhléi 41:29.
En Skagamenn mættu grimmir til
leiks eftir hlé og náðu með góðum leik
að vinna upp forskot KR-inga og
komast yfir í leiknum, 50:51, með
glæsilegri þriggja stiga körfu Elvars
Þórólfssonar. Eftir þetta var leikur-
inn í járnum en KR-ingar héldu þó
frumkvæði sínu og 3-7 stiga forskoti.
Síðustu mínútur leiksins sóttu Skaga-
menn hart að KR-ingum og náði
Damon Johnson að jafna leikinn með
körfu fjórum sekúndum fyrir leiks-
lok. KR-ingar voru ótrúlega nálægt
því að tryggja sér sigurinn í blálokin
en ævintýralegt skot Ósvalds Knud-
sen lenti á körfuhring gestanna.
Framlengingin var æsispennandi
og fóru leikmenn beggja liða á kost-
um. Liðin skiptust á að gera þriggja
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1998
Fyrsti leikur liðanna i undanúrslitum,
leikinn á Seltjarnamesi 29. mars 1998
KR ÍA
82 Skoruð stig 80
14/20 Vítahittni 17/19
10/22 3ja stiga skot 7/28
19/46 2ja stiga skot 21/43
24 Varnarfráköst 23
12 , Sóknarfráköst 5
15 Bolta náð 17
15 12
25 Stoðsendingar 18
19 Villur 23
stiga körfur og þegar rúm ein mínúta
var til loka framlengingarinnar, og
staðan 78:76, reyndi Damon Johnson
skot úr þröngu færi sem geigaði og
KR-ingar geystust fram og gerðu
þrjú stig. Þrátt fyrir ágætar tilraunir,
náðu Skagamenn ekki að jafna og
KR-ingar fógnuðu mikilvægum sigri.
Lið KR var brokkgengt í þessum
leik og það kom bersýnilega í ljós að
leikmenn liðsins geta ekki leyft sér að
slaka á gegn Skagamönnum. Sóknar-
leikur liðsins var nokkuð þunglama-
legur á köflum og vörnin ekki nægi-
lega gi'imm. En í heildina stóð liðið
sig vel og sýndi mikinn styrk á
lokamínútunum. Jón Sigurðsson,
þjálfari KR, sagði sína menn hafa
slakað of mikið á í síðari hálfleik: „Við
vissum að við þyrftum að spila mjög
vel til að vinna Skagamenn og við
bárum fulla virðingu fyrir þeim. Það
kom í ljós að það má ekki gefa þuml-
ung eftir gegn Skagamönnum, þá eru
þeir komnir í hælana á manni.“ Bestir
í liði KR voru Keith Vassel, Ósvaldur
Knudsen og Baldur Ólafsson.
Skagamenn byrjuðu leikinn illa og
gekk sóknarleikurinn afleitlega lengi
vel. En þegar leikmenn ÍA hrukku í
gang sýndu þeir að liðið er til alls lík-
legt. Bestir í liðinu voru Elvar Þór-
ólfsson, Alexander Ermolinskíj og
Damon Johnson. Þegar þessir þrír
leikmenn ná sér á strik mega and-
stæðingar ÍA vara sig. Elvar Þórólfs-
son, fyrirliði ÍA, var bjartsýnn á
framhaldið þrátt fyrir tap í fyrsta
leik: „Við erum búnir að lenda í ýmsu
í vetur og ég hef trú á að þetta komi
allt með kalda vatninu. Við þurfum að
vinna einn leik á útivelli en sigurinn
datt ekki okkar megin í kvöld.“
Fylkir í 1. deild
FYLKIR úr Árbæ sigi’aði í 2. deild
karla í körfuknattleik sem lauk um
helgina. Árbæingar leika því í þeirri
fyrstu næsta vetur. Fylkir vann IV
85:68 í úrslitaleik 2. deildar. Léttir
hafnaði í þriðja sæti eftir sigur á
Skotfélagi Akureyrar, 82:70.