Morgunblaðið - 31.03.1998, Qupperneq 12
KNATTSPYRNA
y j Lottí61 k™
inn ræður
ríkjum“
EG er mjög ánægður hjá Wat-
ford. Pað er góður andi í leik-
mannahópnum og léttleikinn ræður
ríkjum hér,“ sagði Jóhann B. Guð-
mundsson, sem gekk til liðs við
Watford í sl. viku. Liðið er í efsta
sæti í 2. deild og fátt getur komið í
veg fyrir að Watford leiki í 1. deild
næsta keppnistímabil. Jóhann mun
leika sinn fyrsta leik með Lundúna-
liðinu í kvöld - með varaliðinu gegn
Millwall.
Jóhann fór í læknisskoðun sl.
fimmtudagsmorgun, en klukkan 17
sama dag rann út frestur hjá bresk-
um liðum að kaupa leikmenn á þess-
ari leiktíð. Læknir skoðaði Jóhann
vandlega í tvær klukkustundir og
sagði að eitthvað væri að öðrum
ökkla Jóhanns, sem kom af fjöllum
þar sem hann hafði ekki fundið neitt
til í ökkla. Farið var með Jóhann í
skyndi til sérfræðings, sem tók
röntgenmyndir af ökklanum ásamt
því að teygja hann og toga í rúma
klukkusund. Að því loknu kvað
læknirinn upp sinn úrskurð: „Jó-
hann er með annað liðband í ökkla
slitið“ og bætti við við: „Það er
greinilegt töluverður tími síðan lið-
bandið hefur slitnað. Vöðvarnir í
ökklanum eru sterkir og hafa tekið
við hlutverki liðbandsins. Þetta
kemur ekki í veg fyrir undirritun."
Eftir þennan úrskurð var farið á
heimavöll Watford, Vicarage Road,
þar sem samningur var undirritað-
ur. Kallað var eftir formlegu sam-
þykki frá Keflavík og Knattspyrnu-
Júlíus enn í
IOC nefndinni
JÚLÍUS Hafstein, formaður
Júdósambands íslands og fyrr-
verandi formaður Ólympíu-
nefndar Islands, situr enn í
nefnd alþjóða Ólympíunefnd-
arinnar (IOC) um íþróttir og
umhverfismál. Morgunblaðið
greindi frá því fyrir skömmu
að hann væri ekki lengur í
nefndinni, enda er hann ekki
talinn upp meðal nefndar-
manna f nýjustu handbók IOC.
„Ég er áfram í þessari nefnd.
Morgunblaðið hafði upplýsing-
ar sínar úr árbók IOC á sínum
tíma en ég kann engar skýr-
ingar á því, að nafnið mitt
skuli ekki koma þar fram, aðr-
ar en þær að um sé að ræða
einhvers konar inistök á skrif-
stofunni ytra. Um það er ekk-
ert að segja, annað en að ég
hef þegar fengið afsökunar-
bréf vegna þessa að utan þar
sem frain kemur að þetta séu
mistök. Ég sit í nefndinni að
minnsta kosti næstu tvö árin
og er mjög ánægður með það,“
sagði Július í gær.
sambandi íslands, sem barst
skömmu síðar. Jóhann var orðinn
lögiegur leikmaður með Watford
fyrir klukkan 17.
Graham Taylor, knattspymu-
stjóri Watford og fyrrverandi lands-
liðseinvaldur Englands, sagði við
fjölmiðla að með því að kaupa Jó-
hann væri hann að kaupa leikmann
til framtíðarinnar. Ég geri mér
grein fyrir að Jóhann er ekld í
leikæfingu. Hann mun leika alla
leiki varaliðsins á næstunni. Það
verður gott að hafa Jóhann tilbúinn
í síðustu leikjum okkar, ef eitthvað
kæmi uppá,“ sagði Graham.
JÓHANN B., í búningi Watford, með Graham Taylor, eftir að
hann var búinn að skrifa undir atvinnumannasamning.
GENGIÐ frá samningnum í einum af fundarsölum Watford. Ólaf-
ur Garðarsson hrl. og löggiltur FIFA-umboðsmaður, Graham
Taylor, knattspyrnustjóri Watford, Jóhann B. og Birgir
Runólfsson frá Keflavík.
ISHOKKI
SA vann fyrsta leikínn
LIÐ Skautafélags Akureyrar sigr-
aði lið Iþróttabandalags Reykjavík-
ur 7:6 í fyrsta úrslitaleiknum um Is-
landsmeistaratitilinn í íshokkí.
Leikið var í skautahöllinni í Laug-
ardai á sunnudag.
Rúnar Rúnarsson gerði þrjú
mörk fyrir Akureyringana, Eggert
Hannesson tvö og þeir Jón Gíslason
og Sigurðsson eitt hvor. Ágúst
Torfason gerði þrennu fyrir
Reykjavíkurliðið og þeir Helgi P.
Þórisspn, Styrmir Karlsson og Kri-
stján Óskarsson gerðu eitt hver.
Silk Cut með
forystu í hnatt-
siglingu
BRESKA skútan Silk Cut kom
fyrst í mark á sjötta áfanga
Whitbread-hnattsiglingarinnar,
sigldi inn í höfnina í Fort
Lauderdaule undir stjórn skip-
stjórans Lawrie Smith á sunnu-
dag. Áfanginn hófst í Sao
Sebastiao í Brasilíu og var
4.750 mílur. Lauk Silk Cut sigl-
ingunni á 15 döguin, 19 stund-
um, 55 minútum og 9 sekúnd-
um. Næsta skúta, EF Langu-
age frá Svíþjóð undir stjórn
Bandaríkjamannsins Pauls Ca-
yards, átti 20,7 mflur ósigldar
til Fort Lauderdale er breska
skútan fór yfir marklínuna.
Sjöundi og síðasti áfanginn er
frá Flórída til Englands.
„Blatter er
strengja-
brúða“
LENNART Johansson, forseti
knattspyi-nusambands Evrópu,
UEFA, segir Sepp Blatter vera
strengjabrúðu í höndum Joao
Havelanges, forseta alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA
Blatter, sem er framkvæmda-
stjóri FIFA, greindi Havelange
frá ákvörðun sinni um að sækjast
eftir embætti forseta FIFA sl.
fóstudag, en hefur opinberlega
ekki sent frá sér tilkynningu enn
sem komið er. Havelange lætur
af störfum í sumar eftir 24 ár í
forsetastólnum. Áður hafði Jo-
hansson, sem er Svíi, tilkynnt að
hann sæktist eftir embættinu.
Ymsir þeir sem hafa horn í síðu
Svíans hafa látið í veðri vaka að
hann væri strengjabrúða Þjóð-
verja og gengi erinda þeirra.
„Mér er spurn, hver er
strengjabrúða og hver ekki?“
sagði Johansson í viðtali við
þýska vikublaðið Sonntags Zeit-
ung. „Blatter tilkynnti ekki sjálf-
ur um framboð sitt, það gerði for-
setinn sjálfur. Blatter greinir frá
framboði sínu síðar. Þetta mál er
orðið að farsa,“ bætti Johansson
við.
Blatter vildi ekki svara Johans-
son um helgina, sagðist aðeins
hafa átt við hann gott samstarf
og Johansson hefði góðan skiln-
ing á vanda knattspyrnuhreyfmg-
arinnar. „í þessu efni erum við
samstíga."
Kosning forseta FIFA verður
8. júní nk. Blatter sagði í samtali
við SonntagsZeitung að nokkur
knattspyi-nusambönd hefðu heit-
ið sér stuðningi, en að knatt-
spyrnusambönd Evrópu væru
ekki þar á meðal. „í mínum hópi
eru þjóðir Asíu, Afríku og frá
Norður- og Suður-Ameríku.“
í viðtalinu sendir Johansson
keppinauti sínar kaldar kveðjur
og segir Blatter hafa haldið
mönnum í óvissu í langan tíma
um hvort hann hygðist hella sér
út í slaginn eða ekki, en sjálfur
tilkynnti Svíinn um framboð sitt
fyi'ir ári. En þrátt fyrir að honum
fyndist Havelange hafa of mikil
afskipti af framboði Blatters
sagðist hann bera virðingu fyrir
Havelange og störfum hans sem
forseti FIFA í tæpan aldarfjórð-
ung. „Havelange var réttur mað-
ur á réttum tíma.“
Johansson sagði að þrátt fyrir
allt vonaðist hann eftir heiðar-
legri og málefnalegri kosninga-
bai’áttu á milli sín og Blatters á
þeim stutta tíma sem væri fram
til kosninga.
BLAK / LANDSLEIKIR
Sá stærsti frá upphafi
i
slenska karlalandsliðið í blaki
gerði sér lítið fyrir og skellti fær-
eyska karlalandsliðinu þrívegis um
helgina. Róðurinn var þungur hjá
færeyska liðinu sem tapaði öllum
þremur viðureignunum enda liðið
sennilega að leika við eitt sterkasta
landslið Islands í langan tíma.
Á laugardaginn áttust liðin við
öðru sinni í Austurbergi og það var
háðuleg útreið sem frændur vorir
þurftu að þola en þeir töpuðu í
þremur hrinum gegn engri, 15:3,
15:0! og 15:0!, í leik sem stóð aðeins
í 46. mínútur. íslenska iiðið fór
hreinlega hamföium í leiknum og
leikmenn liðsins, allir sem einn,
skiluðu sínu besta og liðið hreinlega
yfirspilaði gestina. Það voru
vonsviknir leikmenn færeyska liðs-
ins sem gengu af vellinum enda
þurftu þeir að sætta sig við að verpa
tveimur eggjum eins og það heitir á
blakmáli þegar lið fær ekkert stig.
Klæmint Isaksen, þjálfari færeyska
liðsins, sagði eftir leikinn að þetta
hefði verið einstefna og það hefði
bara verið eitt lið á leikvellinum,
það íslenska.
Á sunnudaginn áttust liðin síðan
við í þriðja sinn, nú í Digranesi, og
það var greinilegt frá upphafi að
færeyska liðið ætlaði sér meira en í
fyrri viðureignum enda veittu gest-
irnir verulega mótspyrnu í fyrstu
hrinu sem endaði 16:14 fyrir Island.
Islands vann aðra hrinuna létt og
það var í þeirri þriðju að Færeying;
ar náðu takmarkinu, vann 15:6. I
framhaldinu skipti landsliðsþjálfar-
inn Ólafur Árni Traustason byrjun-
arliðinu inn á og fjórða hrinan
kláraðist létt, 15:4.
í heildina var íslenska liðið mun
betra en það færeyska eins og úr-
slitin gefa til kynna en það eru ekki
mörg ár síðan íslendingar áttu í
basli með Færeyinga á blakvellin-
um. Upp úr stendur þó frábær
frammistaða á laugardeginum þeg-
ar stærsti sigur frá upphafi vannst.
Nicas Joensen, formaður færeyska
blaksambandsins, var líka mjög
ánægður með liðið og undirstrikaði
að þetta væri besta íslenska iið sem
hann hefði séð.
Tvöfalt hjá konunum
Silfurlið Islands frá síðustu Smá-
þjóðaleikum gerði það ekki síður
gott á móti Færeyingum og vann
báða leikina örugglega í þremur
hrinum gegn engri á laugardegin-
um og 3:1 á sunnudeginum. Jó-
hannes Karl .Jia, sem stýrði liðinu
einnig á Smáþjóðaleikunum, mætti
heldur meiri mótspyrnu en karla-
liðið en hann lét alla leikmennina
spila og yngri leikmennirnir sem
voru að leika sína fyrstu landsleiki
fengu ágæta reynslu út úr leikjum
helgarinnar. Birna Baldursdóttir
úr KA og Fríða Sigurðardóttir úr
Þrótti, eru aðeins 18 ára og léku
þarna sína fyrstu landsleiki sem og
Guðrún Ása Kristleifsdóttir úr
Þrótti og Hjálmdís Zoéga úr Þrótti
N. og sýndu stúlkurnar að þar eru
leikmenn framtíðarinnar á ferð-
ENGLAND; 121 112 121 11X2
ITALIA: X 2 X X X 1 11X 21X1