Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 E l'S
A
Útboð
KÓPAVOGSBÆR
á
skolpdælustöðvum
Kópavogsbær óskar eftirtilboðum í byggingu
tveggja skólpdælustöðva, annars vegarvið
Hafnarbraut og hins vegar við Sunnubraut í
Kópavogi.
Verktaki skal sjá um jarðvinnu, uppsteypu, nið-
ursetningu á dælum og fullnaðarfrágang á .
stöðvunum og skila þeim tilbúnum til gang-
setningar.
Dælustöð við Hafnarbraut er um 140 m2 að
grunnfleti og dælustöð við Sunnubraut er um
90 m2 að grunnfleti.
Verklok: Skolpdælustöð við Hafnarbraut skal
lokið 1. mars 1999.
Skolpdælustöð við Sunnubraut skal lokið 1.
mars 1999.
Heimilt er að bjóða í annað verkið eða bæði.
Útboðsgögn verða afhent á Tæknideild Kópa-
vogs, Fannborg 2, 3. hæð, gegn 10.000 kr.
skilatryggingu
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 10. júní 1998 kl. 11.00.
Tæknideild Kópavogs.
KEIMNSLA
Innritun á haustönn 1998
Innritun nýnema á haustönn 1998 ferfram
í skólahúsinu á Reykjavíkurvegi 74
dagana 2.-5. júní frá kl. 8.30 til 17.00.
Innritað er á eftirtaldar brautir:
Nám fyrir samningsbundna iðnnema.
Grunndeildir, rafiðna- og tréiðna.
Málmtæknibraut (grunndeild málmiðna).
Hársnyrting, 1. og 3. önn.
Rafeindavirkjun 3. önn.
Framhaldsdeild byggingariðna.
Hönnunarbraut.
Tækniteiknun.
Útstillingarbraut (ný námsbraut, teknir verða
inn 10-12 nemendur. Þreyta þarf inntöku-
próf til að komast á þessa braut).
Fornám.
Meistaraskóli.
Við innritun skulu nemendur hafa með sér
grunnskólaskírteini eða staðfest prófskírteini
frá fyrri skóla.
Nemendursem innritast þurfa í fornám þurfa
að mæta til viðtals og væri æskilegast að for-
eldri eða forráðamaður mæti með nemandan-
um. Allar nánari upplýsingarog ráðgjöf eru
veittar á skrifstofu skólans.
Skólameistari.
IÐNSKÓLINN í HAFNARFIRÐI,
Reykjavíkurvegi 74 og Flatahrauni
220 Hafnarfirði,
sími 555 1490, fax 565 1494,
Netfang: idnhafn@ismennt.is
Heimasíða: http://www.ismennt.is/vefir/idnhafn
Flensborgarskólinn
í Hafnarfirði
Innritun í
Flensborgarskólann
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði er framhalds-
skóli sem starfar eftir áfangakerfi. í skólanum
er hægt að stunda nám á öllum helstu náms-
brautum til stúdentsprófs og auk þess á nokkr-
um skemmri námsbrautum.
Innritun nýrra nemenda og nemenda sem hafa
gert hlé á námi sínu ferfram í skólanum þriðju-
daginn 2. og miðvikudaginn 3. júní kl. 9.00—
17.00 báða dagana, en síðustu forvöð til að skila
inn umsóknum um skólavist verða föstudaginn
5. júru' 1998.
Skólameistari
H9NSKÓUNN í REYKJAVÍK
Innritun í dagnám á
haustönn 1998
2.-5. júní kl. 10.00-18.00
Nauðsynlegt er að umsókn fylgi staðfest afrit
af gögnum um fyrra nám, þar með taldar síð-
ustu einkunnir í íslensku, stærðfræði, ensku
og dönsku. Gefinn verður kostur á stöðuprófi
í nokkrum áföngum.
Innritað er í eftirtalið nám:
Grunndeildir
Bíliðnir, málmiðnir, múrsmíði,
rafiðnir, tréiðnir.
Framhaldsdeildir:
Húsasmíði, húsgagnasmíði,
rafeindavirkju n, rafvéla-/rafvirkjun.
Bókiðnir 1. og 3. önn.
Hársnyrtiiðn 1., 3. og 4. önn (samningur fylgi).
Hönnunarbraut.
Klæðskurður/kjólasaumur.
Samningsbundið iðnnám (samningur fylgi).
Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi).
Tækniteiknun.
Tölvufræðibraut.
Almennt nám.
Fornám.
Innritað er með fyrirvara um þátttöku í
einstökum deildum og áföngum. Innritun í
meistaranám og öldungadeild er í ágúst.
Nánar auglýst síðar.
Iðnskólinn í Reykjavík,
sími 552 6240, fax 551 4122,
heimasíða www.ir.is
textavarp síða 631 og 632.
G
Innritun
er hafin í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ fyrir
haustönn 1998. Boðið er upp á nám á þessum
brautum:
Nám til stúdentsprófs:
Eðlisfræðibraut (EÐ)
Félagsfræðibraut, félagsfræðilína (FÉ5)
Félagsfræðibraut, fjölmiðlalína (FÉ7)
Félagsfræðibraut, sálfræðilína (FÉ6)
Hagfræðibraut (HA1)
Hagfræðibraut, markaðslína (HA2)
Hagfræðibraut, tölvulína (HA3)
íþróttabraut (ÍÞ)
Málabraut (MB6)
Myndmennta- og handíðabraut (MH)
Náttúrufræðibraut (NÁ)
Tónlistarbraut (TÓ)
1 —3 ára nám:
Myndlistarbraut (MLB)
Rafsuða (RS9)
Ritarabraut (Rl)
Uppeldisbraut (UP)
Verslunarbraut (VI)
Umsóknir um skólavist skal senda í
Fjölbrautaskólann í Garðabæ, Skólabraut, 210
Garðabæ. Skrifstofa skólans er opin alla virka
daga kl. 8.00—16.00. Símanúmerið er
520 1600.
Þeir sem þess óska geta fengið send umsókn-
areyðublöð. Umsóknir þurfa að berast skólan-
um fyrir 6. júní nk. Umsóknum skal fylgja afrit
af einkunnum úr samræmdum prófum og
skólaprófum 10. bekkjar grunnskóla.
Námsráðgjafar verða til viðtals í skólanum frá
kl. 9.00-15.00.
Vakin er athygli á því að skólinn starfar í nýju
og mjög glæsilegu húsnæði með fullkomnum
kennslubúnaði, s.s. tölvubúnaði. Vegna vænt-
anlegrar mikillar aðsóknar í skólann er mjög
mikilvægt að allar umsóknir verði sendar beint
í Fjölbrautaskólann í Garðabæ á réttum tíma.
Skólameistari.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
FJÖLBRAUTASKÓLINN
VIÐ ÁRMÚLA
Innritun á haustönn
— Faglegt nám til framtíðar
— Starfsréttindi og stúdentspróf
Innritun fyrir haustönn fer fram 2.-5. júní í
skólanum. Tekið verður við umsóknum á skrif-
stofu skólans, sem er opin kl. 8.00—15.00, sími
581 4022, bréfasími 568 0335. Með umsókn
skal fylgja afrit af prófskírteinum. Einnig verður
tekið á móti umsóknum á sameiginlegum inn-
ritunarstað framhaldsskólanna í Reykjavík
2.-3. júní í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Skólayfirvöld, kennslustjórar og námsráðgjafar
eru til viðtals á skrifstofutíma.
Almennar námsbrautir skólans eru þessar:
Uppeldisbraut (tveggja ára nám)
Viðskiptabraut (tveggja ára nám)
Nám til stúdentsprófs:
Félagsfræðibraut með vali í félagsfræði eða
sálfræði
Hagfræðibraut
Upplýsingatækni- og margmiðlunarbraut
Náttúrufræðibraut með vali í raungreinum
eða heilbrigðisgreinum
íþróttabraut
Nýmálabraut
Auk þess er boðið upp á 5 starfsmenntabrautir
í Heilbrigðisskólanum, sjá auglýsingu hér
fyrir neðan.
Við skóíann starfa rúmlega 50 kennarar með full réttindi. 750 nemend-
ur eru að jafnaði i skólanum, sem er búinn tölvum og margmiðlunar-
búnaði eins og best verður á kosið. Allir nemendur eiga kost á netfangi
og eigin heimasvæði. Tölvuverið er rekið i góðum tengslum við bóka-
safn skólans.
HEILBRIGÐIS- *
SKÓLINN .
Ármúla 12, 108 Reykjavík • Simi 581 4022 • Bréfasími: 568 0335
Heimasba: www.fa.is
í Heilbrigðisskólanum er boðið upp á fimm
námsbrautir.
Sjúkraliðabraut. Þriggja og hálfs árs nám
með starfsþjálfun sem veitir lögvernduð starfs-
réttindi. Greið leið til stúdentsprófs af heil-
brigðisvali náttúrufræðibrautar.
Tanntæknabraut. Hálfs annars árs nám í
skólanum, síðan níu mánaða starfsþjálfun og
bóknám í Tannlæknadeild Háskóla Islands.
Tanntæknar hafa umsvifalaust fengið vinnu
á tannlæknastofum. Lokapróf veitir lögvernduð
starfsréttindi. *-
Lyfjatæknabraut. Fjögurra ára nám að lokn-
um grunnskóla og 10 mánaða starfsþjálfun
í apóteki. Nemendur með stúdentspróf fá
metnar almennar greinar. Lokapróf veitir lög-
vernduð starfsréttindi og eftirspurn eftir lyfja-
tæknum er mikil.
Námsbraut fyrir nuddara. Þriggja ára nám
að loknum grunnskóla. Nemendur með stúd-
entspróf eða aðra menntun fá almennar grein-
ar metnar. Að loknu námi hérfara nemendur
í Nuddskóla íslands í verklegt nám einn vetur,
og eru síðan brautskráðir eftir 1000 tíma vinnu
hjá meistara.
Læknaritarabraut. Þriggja anna nám í skól-
anum og sex mánaða starfsþjálfun á heilbrigð- 1
isstofnunum. Krafist er stúdentsprófs eða sam-
bærilegrar menntunar. Námið veitir lög-
vernduð starfsréttindi og atvinna er trygg.
Fjamám. í samvinnu við Verkmenntaskólann
á Akureyri verður boðið upp á fjarnám í ýms-
um áföngum Heilbrigðisskólans í haust. Hafið
samband við kennslustjóra í síma 581 4022
til þess að fá frekari upplýsingar.
Upplýsingar um lánshæfni náms fást hjá
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Námsvísir skólans er á heimasíðu hans:
http://www.fa.is
Skólameistari.
Heilbrigðisskólinn við Ármúla er sérstök deild við Fjölbrautaskólann
við Ármúla og lýtur stjórn skólameistara hans og skólanefndar.
Sérstakt fagráð heilbrigðisstétta og ráðuneyta er skólameistara til
halds og trausts þegar námsframboð er skipulagt. Nám við skólann
er hnitmiðað og lokapróf af flestum brautum veitir lögvernduð starfs-
réttindi. Skólinn skipuleggur endurmenntun isamvinnu við einstök
stéttarfélög. Heilbrigðisskólinn er rekinn i samræmi við lög um fram-
haldsskóla hverju sinni og fjárveitingar til hans eru af fjárlagalið
Fjölbrautaskólans við Ármúla.