Morgunblaðið - 31.05.1998, Síða 20
§0 E SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐXÐ
ÍRSKI
Ieikstjórinn
Neil Jordan.
fyrir nýjustu myndina sína.
NEIL Jordan gerir stórar
myndir og hann gerir
litlar myndir og það
verður að segjast eins og
er að litlu myndirnar eru undan-
tekningarlaust betri. Stóru mynd-
irnar eru tröll eins og Viðtal við
vampíru eða „Interview With the
Vampire", sæmilega hrollvekjandi
blóðsugusaga með Tom Cruise í
aðalhlutverki; maður getur ímynd-
að sér að hvaða leikstjóri sem er í
Hollywood hefði getað afgreitt
\?ana með svipuðum hætti. Önnur
stórmynd er Michael Collins, ópus
hans um írsku frelsisbaráttuna frá
sjónarhorni hryðjuverkamannsins
Collins; myndin eyðilagðist nokk-
urn veginn alveg þegar Julia Ro-
berts steig inn í hana.
Betri myndir heima
Jordan gerir betri myndir heima
á írlandi en í Hollywood. Litlu
myndimar sem hann gerir í heima-
landinu eru nánast fullkomnar og
sagt hefur verið um þá nýjustu,
„The Butcher Boy“, að hún sé
hreinlega meistaraverk og besta
mynd hans frá því hann sendi frá
sér Mónu Lísu árið 1986. Þess má
geta að Jordan gerði „The Crying
Game“ eftir Mónu Lísu svo eitt-
hvað virðist spunnið í nýju mynd-
ina. Hún er gerð fyrir tíu milljónir
dollara, sem þykir ekki mikið þeg-
ar myndir eru famar að kosta 200
milljónir, og hún segir af því hvern-
ig ungur drengur verður smám
saman geðveikur.
Jordan gerði stóra myndirnar
sínar, Viðtalið og Collins, hjá
Warner Bros.-kvikmyndaverinu í
JJollywood og þótt nýja myndin
hans virðist við fyrstu sýn ekki
vera að efni og umfangi neitt sem
risastórt kvikmyndaver vestra
hefði áhuga á fékk hann engan frið
fyrir þeim. Wamer vildi fyrir alla
muni gera þessa mynd með honum.
Það kom Jordan mjög á óvart þeg-
ar hann fann fyrir áhuga þeirra.
„Ég ætlaði að framleiða þessa
mynd með óháðum aðilum, utan
stóra kvikmyndaveranna, eins og
ég hafði gert „The Crying Game“.
Þegar ég lauk við Michael Colhns
spurðu þeir mig hjá Warner hvað
ég ætlaði að gera næst og ég sagði
þeim að ég væri með þessa Mtlu
mynd í huga sem væri í ________
a&uninni ekkert fyrir þá
og eftir því sem ég sagði
það oftar og hamraði á
því, því meiri áhuga
fengu þeir á myndinni.
Svo ég sagði þeim frá
efni hennar og hug-
myndum mínum um
REA og drengurinn Owens
Jordans, „The
EAMONN Owens
þykir sérstaklega
góður í hlutverki
drengsins. Gerir
betri myndir heima
á írlandi en í
Hollywood; Jordan.
í hlutverkum sínum í mynd
Butcher Boy“.
Besta mynd
hans frá
því hann sendi
frá sér
Mónu Lísu
1996
hana og þeir sögðust endilega viija
gera hana. Ég hikaði enn vegna
þess að ég hafði á tilfinningunni að
myndin væri ekkert sem Wamer
mundi botna í sem stórfyrirtæki,
þú veist hvað ég meina? En þeir
«»ögðu: Við viljum virkilega fá að
vera með í þessu. Við getum gert
litlar myndir alveg eins og við get-
um gert stórar myndir og loksins
féllst ég á það.“
Drengur missir vitið
„The Butcher Boy“ gerist á sjö-
unda áratugnum og segir frá 12
%-a gömlum dreng sem aUst hefur
upp við fátækt og vanhirðu í þorpi
nokkru á Irlandi og missir
smámsaman vitið, verður geðveik-
ur. Söguþráðurinn minnir á
kanadísku myndina Léolo, sem
fjallar af stakri snUld um dreng í
samskonar sporam. Mynd Jordans
er byggð á skáldsögu eftir Patrick
_______ McCabe og þykir helsti
kosturinn við hana, ef
marka má umsögn í
bandaríska kvikmynda-
tímaritinu Premiere, að
Jordan predikar hvorki
né lætur söguna
drakkna í óþarfa tilfinn-
ingasemi. Söguhetja
myndarinnar, drengurinn Francis,
kallar aldrei svo mjög á samúð
áhorfandans, hann er hrekkjóttur
með afbrigðum, svo ekki sé meira
sagt, og þykir jafnvel nokkur
skemmtun fólgin í því sem fyrir
hann kemur. Ekki er þar með sagt
að Jordan komi sér undan að fjalla
um sársaukann og þjáninguna og
hryllinginn sem blasir við drengn-
um. Sagan er sögð frá sjónarhóU
hans allan tímann og þykir strák-
urinn sem fer með hlutverkið skila
sínu frábærlega. Hann heitir
Eamonn Owens og hefur aldrei
leikið áður en Jordan segir að það
hafi skipt öllu máli að finna rétta
drenginn í hlutverkið og það virðist
hafa tekist. Stephen Rea leikur
fóður hans, en Rea fór áður með
aðalhlutverkið í „The Crying
Game“.
Jordan hóf feril sinn sem rithöf-
undur. Hann er fæddur í
Sligosýslu á Irlandi árið 1950 og
hafði skrifað tvær skáldsögur og
nokkrar smásögur áður en hann
dreif sig í kvikmyndirnar sem ráð-
gjafi við mynd John Boormans,
„Excalibur", árið 1981. Fyrsta
myndin sem Jordan gerði var
„Angel“, spennumynd sem gerðist
á Norður-írlandi, en meiri athygli
vakti myndin „In Company of
Wolves“ þremur áram síðar, nk.
endursögn ævintýrisins um Rauð-
hettu Utlu fyrir fuUorðna. A eftir
henni kom önnur spennumynd,
Móna Lísa, sem fjallaði um smá-
krimma er féll fyrir vændiskonu í
undirheimaUfi Lundúna; Bob
Hoskins fór á kostum í myndinni
sem krimminn lánlausi.
Þar með hafði Jordan vakið at-
hygU kvikmyndaveranna í
Hollywood sem fluttu hann yfir
hafið til þess að gera Mklega tvær
verstu myndir sem hann hefur
í gert, „High Spirits", gamanmynd
um yfirnáttúraleg efni, og „We’re
No Angels“, gamanmynd um
presta á flótta; báðar áttu líklega
að vera fyndnar en áttu heima í
raslakistunni. Hann hrökklaðist
aftur til heimalandsins og gerði
Kraftaverkið eða „The Miracle" og
loks fékk hann uppreisn æra með
„The Crying Game“ árið
1992, frábærlega gerðan
trylli sem innihélt ákaf-
lega óvenjulega ástar-
sögu; hann heppti Oskar
fyrir handritið. Síðan
komu stórmyndirnar
Viðtal við vampíra og
Michael Collins, en eins ......—
og áður þegar Jordan snýr sér að
einhverju sem er minna í sniðum
og persónulegra, er hann í essinu
sínu.
Áhugi á óháðum
„Þegar myndirnar kosta mikinn
pening er mikill þrýstingur á leik-
stjóranum," segir hann, „en ég hef
alltaf reynt að gera myndirnar eft-
ir mínu eigin höfði. Ég hef lent í
vandræðum vegna afskiptasemi og
þess háttar. Ég læt ekki bjóða mér
neitt slíkt lengur."
Mestu vandræðin sem hann lenti
í áður sneri að gerð myndarinnar
Hafa stóru
kvikmyndaver
in komið sér
upp deildum
fyrir slíka
framleiðslu
„High Spirits" árið 1988, sem voru
skelfileg mistök. Jordan segir að
hún hafi verið kUppt án þess að
hann kæmi þar nálægt og hún
hefði ekki verið neitt líkt því sem
hann hafði hugsað sér. Hann segist
ákaflega ánægður með samstarfið
við Warner Bros.
Mjög er í tísku núna, sennilega
eftir að Quientin Tarantino sló svo
heiftarlega í gegn, að gera það sem
kallast óháðar myndir þ.e. ódýrar
myndir án afskipta kvikmyndaver-
anna í Hollywood. Hafa stóra kvik-
myndaverin komið sér upp sér-
stökum deildum fyrir slíka fram-
leiðslu eða keypt áberandi kvik-
myndafyrirtæki sem hafa sérhæft
sig í dreifingu óháðra mynda eins
og Miramax. Warner Bros. tekur
þátt í leiknum og það má vera að
áhugi þeirra á „The Butcher Boy“
endurspegli vilja þein-a til þess að
hella sér út í samkeppnina á óháða
markaðinum.
„Ég held að þeir séu af fullri al-
vöra að leita leiða til þess að koma
sér inn á óháða markaðinn,“ er haft
eftir Jordan. „Þeir era að leita
leiða til þess að starfa með leik-
stjóram sem standa utan við meg-
instraumana í kvikmyndagerð risa-
veranna vegna þess að þeir þekkja
ekki sjálfir hvemig þeir eiga að
fóta sig í óháða geiranum.
________ Stephen Woolley er
framleiðandi, sem unnið
hefur með Jordan árum
saman. Hann segir:
„Warner gerði margar
af þessum ógleyman-
legu myndum sem við
ólumst upp við eins og
——Bonnie og Clyde og
„The Wild Bunch“. Þeir hafa ekki
verið að gera slíkar myndir á und-
anfómum áram og það væri frá-
bært ef „The Butcher Boy“ næði
að slá í gegn til þess að hamla á
móti þeirri stefnu að gera margra
milljarða króna stórstjömumyndir,
sem virðast þrátt fyrir allt ekki
vegna alltof vel í miðasölunni."
Með einni stórri undantekningu -
sem er Titanic. En það skiptir ekki
máli í rauninni hvort menn geri
stórar myndir eða smáar ef þeir
bara gera góðar myndir og það
virðist Neil Jordan vera að gera
með „The Butcher Boy“.
Stórar mynd-
ir og litlar
írski leikstjórinn Neil Jordan hefur sent frá sér litla mynd
sem gerist á Irlandi og segir af ungum dreng sem verður geð-
veikur, segir í grein Arnalds Indriðasonar. Jordan er ásamt
v Jim Sheridan fremsti leikstjóri Ira og hefur fengið mikið lof