Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
204. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Starr afhendir bandarísku fulltrúadeildinni skýrslu sína um Clinton
Deilt um hvort skýrslan
sé tilefni til málshöfðunar
Washington, Oregon, London. Reuters.
LÖGREGLUMENN bera 36
kassa með skýrslu Starrs
um Clinton Bandaríkjafor-
seta inn í þinghúsið í Wash-
ington síðdegis í gær.
Skýrslan verður geymd í
læstri geymslu þar til
dómsmálanefnd fulltrúa-
deildarinnar hefur tekið
ákvörðun um meðferð
hennar.
SKÝRSLA Kenneths StaiTs, sérskipaðs saksóknara, um rannsókn hans á
Bill Clinton Bandaríkjaforseta, var afhent Bandan'kjaþingi í gær. Skýrsl-
an er mikil að vöxtum, um 500 síður, auk viðbótarskjala, byggð á átta
mánaða rannsókn Starrs á sambandi Clintons við Monicu Lewinsky,
starfsstúlku í Hvíta húsinu. Charles Bakaly, talsmaður Starrs, sagði
skýrsluna innihalda „ábyggilegar og tráverðugar“ upplýsingar sem kunni
að vera grundvöllur málshöfðunar til embættismissis á hendur forsetan-
um, en neitaði að öðru leyti að tjá sig um hana. Sagði Bakaly skýrsluna í
höndum þingsins sem tæki ákvörðun um næstu skref. David Kendall, lög-
maður Clintons, vísaði því hins vegar á bug að efni skýrslunnar gæfi til-
efni til slíkrar málshöfðunar. Bandaríkjaforseti baðst enn einu sinni afsök-
unar á sambandi sínu við Lewinsky á almennum fundi í Flórída í gær.
Tvö eintök af skýrslunni, sem
fylla 36 kassa, voru flutt í læsta
geymslu í þinginu. Þar verður hún
geymd á meðan þing-
menn fulltrúadeildar-
innar ræða hvernig
fjalla eigi um hana.
Repúblikaninn Henry
Hyde, formaður dóms-
málanefndar fulltrúa-
deildarinnar, hét því í
gær að hann myndi
ekki taka þátt í „póli-
tískum nornaveiðum" á
hendur forsetanum. Þá
kvaðst einn nefndar-
manna búast við því að
greidd yrðu atkvæði
innan tveggja sólar-
hringa um ályktun þess
efnis að hin 500 síðna
skýrsla yrði gerð opin-
ber. Viðbótargögnin
yrðu hins vegar einungis ætluð
nefndinni.
Leiðtogar demókrata og repúblik-
ana í fulltrúadeildinni hétu því í gær
að ná samkomulagi um umfjöllun
skýrslunnar. A fundi repúblikanans
Newt Gingrich, forseta þingsins, og
Richards Gephardts, leiðtoga
demókrata, var ennfremur ákveðið
að hafa samband við skrifstofu
StaiTS, til að grennslast fyrir um
hvenær von væri á skýrslunni.
Nokkrum klukkustundum síðar
barst hún þinginu.
Lítið hefur lekið út
um innihald skýrslunn-
ar en ónefndir heimild-
armenn í tengslum við
rannsókn Starrs hafa
sagt að í skýrslunni sé
að finna afar nákvæm-
ar lýsingar á kynferð-
issambandi forsetans
við Lewinsky, svo og
ásakanir um meinsæri,
tilraun til að hindra
framgang réttvísinnar
og misnotkun forseta-
valdsins.
Fullyrt er að nú taki
við pólitísk barátta hjá
Clinton fremur en
lagaleg. Forsetanum
verði á næstu vikum
að takast að sannfæra flokksmenn
sína á þingi um að ekki sé ástæða til
málshöfðunar.
„Get engum um kennt nema
sjálfum mér“
Clinton átti í gærmorgun fund
með háttsettum demókrötum, þar
sem hann baðst afsökunar á fram-
ferði sínu. Sagt er að fundarmenn
hafi gengið hart að forsetanum og
Clinton ítrekar afsök-
unarbeiðni sína í gær.
Reuters
að fundurinn hafi verið tilfinninga-
þrunginn. Að honum loknum hvatti
David Bonior, einn leiðtoga
demókrata í fulltrúadeildinni, Clint-
on til að ftreka það að hann iðraðist
gjörða sinna.
Ljóst er að Clinton tók áskorun
Boniors til greina, því á fundi í
Flórída, til stuðnings einum fram-
bjóðanda demókrata, kvaðst Clint-
on hafa valdið fjölskyldu sinni og
þjóðinni allri vonbrigðum. „Ég er
staðráðinn í því að ekkert þessu líkt
endurtaki sig,“ sagði forsetinn.
„Þetta hafa verið erfiðustu dagar
lífs míns en þeir kunna að reynast
mér og fjölskyldu minni þeir dýr-
mætustu. Ég get engum um kennt
nema sjálfum mér.“
Ahyggjur í Evrópu
Leiðtogar margra Evrópuríkja
hafa af því áhyggjur að vandræði
Clintons heima fyrir hafi veikt stöðu
hans á alþjóðavettvangi. Háttsettir
heimildarmenn í nokkrum Evrópu-
ríkjum segja stjórnvöld þar einkum
óttast að verði höfðað mál á hendur
Clinton, muni það koma í veg fyrir
að hann takist á við brýn vandamál,
svo sem í Kosovo og Mið-Austur-
löndum. Margt bendi raunar til
þess að það hafi þegar gerst, svo
hafi að minnsta kosti virst í nýlegri
för hans til Moskvu og Norður-Ir-
lands.
Kommúnistar bjóðast til að axla ábyrgð og mynda ríkisstjórn í Rússlandi
Jeltsín lætur ekkert uppi
Moskvu. Reuters.
Reuters
UNGUR Moskvubúi horfir löng-
unaraugum á sætabrauð í bak-
arísglugga í gær. Farið er að
bera á matvælaskorti víða í
Rússlandi.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti lét í
gær ekkert uppi um hvern hann
myndi tilnefna sem forsætisráð-
herraefni sitt fyrir þriðju atkvæða-
greiðslu dúmunnar, neðri deildar
rússneska þingsins, um málið. Búist
hafði verið við þvi að Jeltsín til-
kynnti um ákvörðun sína í gær en
hann lét sér nægja að funda með
starfandi forsætisráðherra, Viktor
Tsjernomyrdín, og Jevgení Príma-
kov utanríkisráðherra, á sveitasetri
sínu fyrir utan Moskvu. Ráðgjafar
Jeltsíns og öryggisráð forsetans
kynntu í gær neyðaráætlun til að
takast á við efnahagsvandann í land-
inu. Virðist áætlunin ekki tengjast
drögum að efnahagsáætlun sem
Tsjernómyrdín hefur lagt fram.
Dúman beið þess í allan gærdag
að Jeltsín tilkynnti um frambjóð-
anda sinn en hún hefur í tvígang
hafnað Tsjernomyrdín. Kommúnist-
ar, sem hafa tögl og hagldir í
dúmunni hafa sagst myndu sætta sig
við nokkra aðra frambjóðendur, m.a.
Prímakov og Júrí Lúshkov, borgar-
stjóra í Moskvu, en sá síðai'nefndi
sagðist í gær telja að Jeltsín myndi
tilnefna Tsjemomyi'dín þriðja sinni.
Þá er ónefndur Júrí Masljúkov,
kommúnisti og viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra síðustu ríkisstjómar. Hann
hefur átt viðræður við Tsjernomyrd-
ín en hefur ekki verið boðið embætti
forsætisráðheiTa.
Ekki hvatt til uppreisnar
Þrýstingurinn á Jeltsín jókst enn
er kommúnistar tilkynntu í gær að
þeir væru reiðubúnir að „axla
ábyrgð“ til að takast á við efnahags-
vandann. Stjórnmálasérfræðingar
sögðust þó telja að kommúnistar
gerðu sér engar grillur um mögu-
leika sína á því að mynda stjórn og
Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm-
únista, lagði á það áherslu í gær að
hann hygðist ekki hvetja til upp-
reisnar gegn Jeltsín.
Neyðaráætlun ráðgjafa Jeltsíns
sem kynnt var í gær þykir laus í
reipunum og óljós. í henni er eig-
endum bankareikninga þar sem
innistæður hafa verið frystar, heitið
úrbótum, lofað að vísitölubinda laun
og ellilífeyri, og fjárstuðningi við
einkafyrirtæki heitið.
Lebed bíður átekta
Alexander Lebed, héraðsstjóri í
Krasnojarsk í Síberíu, hefur útilok-
að að hann taki við forsætisráð-
herrastólnum. Hann ýjaði hins veg-
ar að því í gær að hann stefndi
hærra; kvaðst myndu axla ábyrgð ef
ástandið versnaði enn og sagði að
Jeltsín ætti að láta af völdum.
Þá varaði Lebed við því að
drægist stjórnarkreppan á langinn,
myndi það leiða til ólgu og uppþota.
Ef allsherjarverkfall, sem boðað
hefur verið 7. október, skylli á,
myndu stjórnvöld missa alla stjórn á
ástandinu.
Matvæla-
skortur í
Kinshasa
Kinshasa. Reuters.
í KINSHASA, höfuðborg Lýð-
veldisins Kongó, era birgðir
matvæla og lyfja á þrotum. Ekki
hefur verið hægt að fljúga með
neyðaraðstoð til borgai-innar
vegna ótta við að flutningavélar
verði skotnar niður, en erlendir
stjórnarerindi'ekai' reyna nú að
fá yfirvöld til þess að tryggja ör-
yggi flugs með brýnustu nauð-
þurftir. Talsmaður Barnahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna telur að
matvæli og lyf muni endast
borgarbúum, sem eru fimm
milljónir talsins, út vikuna.
Aðalfiutningaleiðin frá hafn-
arborginni Matadi til Kinshasa
hefur verið lokuð vegna átak-
anna á milli stjórnarhersins og
uppreisnarmanna. Lyfjabirgðir
á sjúkrahúsum hafa einnig
skemmst vegna rafmagnsleysis
en mörg bóluefni þarf að geyma
í kæli.