Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðgerð á selalauginni í Húsdýragarðinum lokið
Selirnir
snúa heim
í dag
SELIRNIR í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum verða fluttir aftur
í laugina sína í Laugardalnum í
dag eftir rúmlega viku dvöl í
stærðar keri í Vogum á Vatns-
leysuströnd, þar sem þeir hafa
dvalið í góðu yfirlæti og leikið f
mynd um seli.
Að undanförnu hefur verið
unnið að viðgerðum á selalaug-
inni í Húsdýragarðinum og því
þurfti að flytja selina, þau
Snorra, Særúnu, Kobba, Hring
og kóp, sem enn hefur ekki feng-
ið nafn, þaðan burt um stundar-
sakir. I Vogunum reyndist vera
hentugt ker fyrir þá frá fiskeldis-
stöð sem ekki er lengur starf-
rækt. Páll Steingrímsson tók sel-
ina í fóstur og myndaði atferli
þeirra, en reynt var að líkja eftir
náttúrulegu umhverfi sela í ker-
inu til þess að allt yrði sem eðli-
legast. „Við bjuggum til sjávar-
botn og söfnuðum gróðri, gerð-
um sandströnd og klettaströnd
til þess að þeir gætu sjálfir kosið
hvorumegin þeir væru. Þarna
skriðu greyin á þurrt og voru f
sólbaði þegar þeir voru búnir að
fá nægju sína af loðnu og sfld.
Þeir voru greinilega hamingju-
samir með þetta, því þeir brostu
út undir eyru, sem sjást nú
reyndar ekki,“ sagði Páll.
Morgunblaðið/Porkell
SELIRNIR úr Húsdýragarðinum nutu lífsins í kerinu í Vogum á Vatns-
leysuströnd og léku meira að segja í kvikmynd hjá Páli Steingríms-
syni. Þeir snúa heim í dag í laugina sína í Laugardalnum.
Varað við leið-
um á Vatnajökli
ÞÆR breytingar hafa orðið við
Grímsfjall á Vatnajökli að leiðin
upp fjallið að austanverðu er nú
lokuð af sprungum. Er varað við
þessari hættu í nýju fréttabréfí
Jöklarannsóknafélags Islands og
segir Astvaldur Guðmundsson,
sem greinina skrifar, í samtali við
Morgunblaðið, að menn geti ekki
treyst á fyrri GPS-staðsetningar-
punkta sína vegna þessara breyt-
inga.
I grein Astvaldar segir að helstu
leiðir sem menn hafi verið að fara
upp á Vatnajökul í sumar séu upp
Skálafellsjökul, upp af Háöldu inn
af Snæfelli, upp Dyngjujökul vest-
anvert við Kistufell og upp Köldu-
kvíslarjökul. Segir hann síðast-
nefndu leiðina torfarna vegna þess
að vegslóðar hafi farið undir Há-
göngulón og nýr slóði ekki verið
lagður.
Um leiðina á Grímsfjall segir
Astvaldur að hún hafi lokast að
austanverðu þar sem þrjár stórar
sprungur hafi opnast neðarlega í
brekkunni austan við skálana. „Ef
menn eru að fara austur jökulinn
eða koma að austan er bent á leið
við suðurenda gossprungunnar,
norðan við Grímsvötn. Vel er fært
suður með Grímsvötnum að vestan
og upp á Grímsfjall. Frá Vestari-
Svíahnjúki að skálum Jöklarann-
sóknafélagsins þarf að fara suður
fyrir háhitasvæði sem hefur verið
að stækka talsvert að undanfórnu
og ná sprungur þar nú nánast fram
á brún Grímsfjalls.“
SH selur fyrir Friosur
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hefur gengið frá samningi við
fyrirtækið Friosur SA í Chile um
sölu á afurðum þeirra og nokkurra
tengdra fyrirtækja í S-Ameríku.
Heildarsala Friosur og tengdra
aðiia inn á markaðssvæði SH á síð-
asta ári nam um 1,2 milljörðum
króna. Nokkur samvinna hefur um
árabil verið milli fyrirtækisins og
nokkurra íslenskra aðila en Grandi
hf. keypti 20% hlut í félaginu 1992.
Friosui- á og rekur 4 togara og
stundar auk þess landvinnslu í
Chacabuco í Chile, auk laxaræktar.
Fyrirtæki, sem tengjast Friosur og
SH tekur að sér sölu fyrir, gera út
skip í Chile og Argentínu.
I fréttatilkynningu frá SH kem-
ur fram að áætlað er að dótturfélag
SH í Barcelone muni annast sölu á
stærstum hluta þeiiTa afurða sem
undir samninginn falla. Friðrik
Pálsson, forstjóri SH og Carlos
Vial, framkvæmdastjóri Friosur,
undirrituðu samninginn.
Samningar tókust milli starfsmanna og forsvarsmanna Technopromexport
Þriggja daga
vinnustöðvun
lauk í gærkvöldi
SAMNINGAR tókust milli for-
svarsmanna rússneska fyrirtækis-
ins Technopromexport og fulltrúa
Félags jámiðnaðarmanna, Rafiðn-
aðarsambands íslands og Verka-
lýðsfélagsins Þórs á Selfossi á ní-
unda tímanum í gærkvöldi.
Samningurinn felur m.a. í sér að
fjöldi vinnustunda starfsmanna fyr-
irtækisins fari ekki undir ákveðið
lágmark, þannig að ekki verði hægt
að láta starfsmennina hætta fyrir-
varalaust eins og oft vildi verða, að
sögn Guðmundar Gunnarssonar,
formanns Rafiðnaðarsambandsins.
Þá var tryggt að aðbúnaður starfs-
manna fyrirtækisins yrði bættur, til
dæmis varðandi mat, en mötuneyti
fyrirtækisins á Selfossi var lokað
öðra sinni í gærmorgun. í samn-
ingnum er einnig lögð áhersla á
fagréttindi rafiðnaðarmanna hjá
fyrirtækinu og að sögn Ingibjargar
Sigtryggsdóttur, formanns Verka-
lýðsfélagsins Þórs, féllu yfnmenn
Technopromexport frá hugsanlegri
skaðabótakröfu á hendur starfs-
mönnum fyrirtækisins vegna vinnu-
stöðvunarinnar. Samningurinn var
borinn undir íslenska starfsmenn
fyrirtækisins um klukkan hálfníu í
gærkvöldi og var hann samþykktur
samhljóða, að sögn Ingibjargar. St-
arfsmennirnir munu því mæta til
vinnu í dag eftir að hafa iagt niður
vinnu í þrjá daga.
Samningaviðræður milli forsvars-
manna fyrirtækisins og fulltrúa ís-
lenskra starfsmanna þess hófust í
gærmorgun og um hádegisbil í gær
sagði Nikolai Rudometkin fram-
kvæmdastjóri rússneska fyrirtækis-
ins að málið væri því sem næst í
höfn og að fyrirtækið myndi sam-
þykkja flestar kröfur íslensku
verkalýðsfélaganna. Hann tók jafn-
framt fram að launakjör rússnesku
starfsmannanna væru þau sömu og
þeirra íslensku. Fulltrúa Techno-
promexport og JÁ Verktaka, undir-
GUÐMUNDUR Gunnarsson og Örn Friðriksson
ganga af samningafundi um hádegisbil í gær.
Morgunblaðið/Jim Smart
NIKOLAI Rudometkin framkvæmdastjóri rússneska
fyrirtækisins, tii hægri, ásamt rússneskum túlki.
verktaka þeirra, greindi hins vegar
á um ákveðin atriði á fundunum í
gær og því var ekki gengið frá end-
anlegum samningi fyrr en í gær-
kvöldi.
ASÍ mótmælir
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands (ASÍ) lýsti í gær fullri ábyi-gð
á hendur íslenskum stjómvöldum
og verkkaupum vegna þeirrar
stöðu sem upp væri komin gagn-
vart rússneska fyrirtækinu og
sagði m.a. í ályktun sinni að yfir-
völdum vinnumála bæri að sjá til
þess að ekki væri verið að brjóta
réttindi á innlendu og erlendu
starfsfólki.
hvers sé ætlast af fyrirtækinu í út-
boðsgögnunum og síðan í samn-
ingnum.
Aðspurður segir Þorsteinn að
Technopromexport hafi ekki verið
með verkefni á íslandi áður, en ít-
rekar að samningar sem Lands-
virkjun geri við fyrirtæki séu ekki
gerðir nema eftir miklar viðræður
og kannanir á viðkomandi fyrirtæki.
„Technopromexport hefur lagt tugi
þúsunda kílómetra af háspennulín-
um víða um heim. Þannig að þetta
er verulega stór aðili. Þeir hafa hins
vegar mest lagt línu í þeim löndum
sem tilheyrðu Sovétríkjunum fyrr-
verandi, en hafa ekki mikla reynslu
í Vestur-Evrópu.“
Landsvirkjun undirritaði samn-
ing við Technopromexport um
framleiðslu og uppsetningu mastra
og leiðara fyrir Búrfellslínu 3A í lok
febrúar sl. og segir Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, að rússneska fyrir-
tækið hafi bæði verið með lægsta og
hagstæðasta tilboðið í verkið. „Fyr-
irtækið uppfyllti þau skilyrði og
aðrar kröfur sem voru gerðar í út-
boðsgögnum og lögðu fram viðeig-
andi tryggingar," segir hann og get-
ur þess einnig að í útboðsgögnunum
séu skýr ákvæði um að fyrirtækið
þurfi m.a. að fara að íslenskum lög-
um og samningum við verkalýðsfé-
lög. Það liggi því alveg fyrir til
Sérblöð í dag
www.mbl.is
12SÍDUR
viDsiapn MVINNUIÍF
RÁÐNINGAR
Reykur-
inn út
Fékk 10%
launahækkun/C4
HLUTABRÉF
Trygginga-
miðstöðin
Fyrsta trygginga-
félagið á þing/C6
MEÐ MORGUNBLAÐINU
í dag fylgir átta síðna
auglýsingablað fyrir
G&G veitingar á Hótel
Loftleiðum „Haust sin-
fónía“. Blaðinu er
dreift í Reykjavík og
nágrannabæjum, Suð-
urnesjum, Hveragerði,
Selfossi, Akranesi og
Borgarnesi.
; Ríkharður Daðason dýrasti
; leikmaður í sögu Viking / B1
t ••••••••••••••••••••••••••••
; Mark McGwire sló 37 ára
; met Rogers Maris / B2