Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Hvalirnir
sætir og
frægir
SEX Eyjapeyjar voru að busla í
sjónum þegar pramminn sem
flytja á Keikó í sjókvína sigldi
framhjá í æfingaferð sinni í gær.
„Er nokkuð kalt?“ hrópuðu
menn af prammanum. „Nei,
nei,“ svöruðu strákarnir kok-
hraustir en hríðskjálfandi. Þeir
sögðust vera fljótir að venjast
kalda vatninu, rétt eins og
Keikó verður að gera þegar
hann kemur.
Ólafur, Gísli og William, sem
eru níu ára, og Magnús, Bragi
og Ríkarð, átta ára, eru með allt
á hreinu varðandi livalinn Keikó
og ævisögu hans og hafa séð all-
ar Free Willy-myndirnar. Þeir
eru hæstánægðir með komu
hans til Vestmannaeyja, en eru
reyndar orðnir dálítið leiðir á
öllum þessum útlensku blaða-
mönnum sem eru alltaf að
spyrja um eitthvað en enginn
skilur þá.
Þeir segjast vera algerlega á
móti hvalveiðum, að minnsta ef
á að éta hvalina. Það væri
kannski í lagi ef bara á að sýna
þá. En af hveiju má ekki veiða
hvalina? „Af því að þeir eru
frægir og sætir,“ svara strák-
arnir.
HELENA Ámadóttir, eig-
andi veitingastaðarins
Café María, er farin að
bjóða upp á amerískan
morgunverð handa gestum sínum,
beikon og egg, lummur og síróp og
annað góðgæti. Hún segir að um 35
manns hafi gætt sér á þessum kræs-
ingum í gærmorgun. Starfsfólk er
sjálfkrafa farið að ávarpa gesti á
ensku og að sögn Helenu er það
jafnvel farið að svara hvert öðru
með „yes“ og „no“.
Bandai-íkjamenn eru mest áber-
andi af útlendingunum sem hópast
hafa til Vestmannaeyja. í þeim hópi
eru fréttamenn ýmissa stærstu fjöl-
miðla landsins, til dæmis sjónvarps-
stöðvanna ABC og CBS og von var á
fólki frá Fox Television og NBC.
Einnig eru í Eyjum fjölmargir
starfsmenn og stjórnendur Free
Willy-Keiko Foundation, einkennis-
klæddir fulltrúar bandaríska flug-
hersins og einnig bandaríski sendi-
herrann á íslandi ásamt sendiráðs-
mönnum.
í gær fjölgaði verulega í hópi út-
lendinganna. Um kvöldmatarleytið
var fjöldi þeirra sem höfðu skráð sig
í blaðamannamiðstöðinni sem komið
hefur verið á fót í húsinu Básum
niðri við höfnina orðinn um 165 og
stöðugt voru fleiri að hringja og
boða komu sína. Bretar, Þjóðverjar,
Svíar og Norðmenn voru í hópi
hinna nýkomnu, auk Bandaríkja-
manna, en einnig fulltrúar frá fjar-
lægari löndum, til dæmis Japan.
Einnig hafði frést af fréttamönnum
frá Ástralíu og Brasilíu.
Fjölmiðlamennimir voru í gær-
kvöldi að koma sér fyrir og undirbúa
morgundaginn. Sumir þeirra voru
örþreyttir eftir langt ferðalag til
Vestmannaeyja, en sáu þó fram á
2-3 svefnlitla sólarhringa meðan
fylgst væri með komu Keikós.
Tókýó, Vestmannaeyjar,
Kúveit, Sarajevó
Keikó og flutningur hans til Vest-
mannaeyja verður sennilega á for-
síðu japanska dagblaðsins Asahi
Shimbun annað kvöld, en það er hið
annað stærsta þar í landi. Toyokazu
Kosugi, ljósmyndari og blaðamaður,
er að eigin sögn eini fulltrúi jap-
anskra fjölmiðla á íslandi sem
mættur er til að fylgjast með þess-
um atburði, reyndar heldur hann að
japönsk sjónvarpsstöð ætli að senda
beint út frá Oregon þegar Keikó
verður fluttur þaðan. „Mér finnst
það merkilegt að ekki skuli fleiri
hafa komið, yfirleitt fylgjast fjöl-
miðlarnir vel með stórviðburðum
sem þessum. Ég er samt ánægður
Fjölmiðlar úr flest-
um heimshornum
fylgjast með Keikó
Starfsfólk frá fjölmiðlum um allan heim er komið til Vestmanna-
eyja til að fylgjast með heimkomu háhyrningsins Keikós. Ahersl-
ur í umfjöllun fjölmiðlanna eru mjög mismunandi.
.. Morgunblaðið/Kristinn
BORNIN í Hamarsskóla fengu boli með mynd af Keikó og voru livött til að klæðast þeim utan yfir úlpurnar
þegar Keikó kemur. Fjölmiðlafólk fylgdist grannt með.
með að sitja einn að fréttinni hér á
Islandi,“ segir Toyokazu.
Toyokazu segir að skýringin á
takmörkuðum áhuga japanskra fjöl-
miðla sé hugsanlega sú að umhverf-
isvitund í heimalandi hans er ekki
mikil. „Free Willy-myndirnar voru
mjög vinsælar í Japan en það eru fá-
ir sem þekkja hvalinn Keikó og sögu
hans.“
Hugmyndin um að senda
Toyokazu til Islands kom upp með
litlum fyrirvara. Senda átti hann til
Kúveit og Sarajevo og einum
myndaritstjóra blaðsins þótti tilvalið
að hann kæmi við á Islandi, „úr því
hann væri hvort eð er í Evrópu."
Toyokazu kynnti sér málið stuttlega
á alnetinu og lagði svo af stað.
Svíar áhugasamir um nashyrn-
inga, hvali og önnur dýr
Toyokazu telur ólíklegt að Keikó
muni nokkurn tíma geta spjarað sig
án aðstoðar manna. „Flutningur
hans er samt mikilvægur atburður
því hann dregur athygi manna að
mikilvægi lífríkisins og umhverfisins
og verður til þess að fólk myndar
sér skoðun á þessum málum.“
Blaðamaður og ljósmyndari síð-
degisblaðsins Expressen eru einu
fulltrúar sænskra fjölmiðla á Is-
landi. Ulrika Hággroth blaðamaður
segir að blaðið hafi náð frumkvæði í
upphafi umfjöllunarinnar um Keikó
og haldið henni síðan. „Ég held að
Sviar vilji fylgjast með Keikó vegna
áhuga á dýrum. Veikindi nashyi’n-
ings sem fæddist með heilaskemmd-
ir fyrir um tveimur árum vakti með-
al annars svo mikla athygli að við
íylgdumst stöðugt með honum í viku
og hann rataði meira að segja inn á
síður virðulegustu morgunblaða.
Svona fréttir eru tilbreyting frá
venjulegum fréttaflutningi af ýmis
konar hörmungum." Að vísu fór svo,
segir Ulrika, að nashyrningurinn dó,
og börnin sem tekið höfðu ástfóstri
við hann grétu af sorg.
Ulriku finnst sjálfri að umstangið
í kringum Keikó sé að nokkru leyti
fáránlegt. „En samkvæmt rann-
sóknum fjölmiðlafræðinga er auð-
veldara að vekja áhuga fólks á dýr-
um heldur en hungruðum börnum í
útlöndum."
Draumasýning Bandaríkja-
manna og gagnrýnir Þjóðverjar
Kvikmyndagerðarmennirnir og
hjónin Sigurður Grímsson og Ang-
elika Andrees eru í Vestmannaeyj-
um þessa dagana á vegum þýsku
sjónvai-psstöðvarinnar ARD, sem er
í raun bandalag fjölmargra svæðis-
bundinna stöðva. Þau hjónin hafa í
sumar verið að vinna að ítarlegri
umfjöllun um Keikó og Vestmanna-
eyjar sem verður sýndur í hálftíma
fréttaþætti hjá ARD í nóvember.
Fyrir viku var einnig sýnd sex mín-
útna umfjöllun frá þeim um sama
efni.
Angelika segir að áhugi Þjóðverja
á málinu sé minni og töluvert öðru-
vísi heldur en Bandaríkjamanna
enda séu þeir fyn-nefndu mjög með-
vitaðir umhverfisverndarsinnar.
Sigurður lýsir því þannig að Banda-
ríkjamenn hafi sett upp einhvers
konar „draumasýningu" í kringum
hvalinn, en afstaða Þjóðverja sé
gagnrýnni. Einkum eigi það þó við
um opinberu sjónvarpsstöðina ARD,
en einkareknu stöðvarnar í Þýska-
landi séu líkari þeim bandarísku.
ARD ráðgerir að vera með fjórar
fréttasendingar um Keikó í dag, en
mun nota til þess myndefni frá Rík-
issjónvarpinu sem unnið verður af
þýskum sjónvarpsmanni í Reykja-
vík. Hann ætlaði þó, ef hægt væri,
að vera búinn að skreppa til Vest-
mannaeyja og kynna sér aðstæður.