Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Koma Keikós:
SJÁÐU bara hvað þeir innfæddu eru vinalegir, Keikó minn. Þeir eru
með alveg eins augu og allir heima.
Bókun borgarráðs vegna hávaðamengimar frá Reykjavíkurflugvelli
Vilja viðræður við flug-
málayfirvöld um aðgerðir
BORGARRÁÐ Reykjavíkur beinir
þeim eindregnu tilmælum til flug-
málayfirvalda að þau hrindi í fram-
kvæmd hið fyrsta aðgerðum til að
draga úr hávaðamengun vegna
Reykjavíkurflugvallar og óskar eft-
ir sérstökum viðræðum um þau mál.
Bókun þessa efnis var samþykkt
samhljóða á fundi borgarráðs í gær,
en tilefnið var erindi íbúasamtaka
Litla-Skerjafjarðar, þar sem mót-
mælt er hávaðamengun og ónæði
vegna flugumferðar á vellinuro.
I bókun borgarráðs er bent á að í
Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996-2016 sé kveðið á um að mark-
miðið með Reykjavlkurflugvelli sé að
flugvöllurinn verði örugg miðstöð
fyrir áætlunarflug innanlands. Þá er
minnt á tillögur nefndar samgöng-
uráðuneytisins frá 1991 um sambýli
flugs og byggðar, þar sem lagt er til
að æfinga-, kennslu- og einkaflugi
verði beint á nýjan flugvöll í
nágrenni höfuðborgarinnar og að
ferju- og millilandaflugi einkaflug-
véla verði beint til Keflavíkur.
Staðsetning í Skeijafírði
þjóðhagslega hagkvæm
„Borgaryfirvöld líta á skýrsluna
sem stefnumarkandi álit um úrbæt-
ur í öryggismálum flugvallarins. í
skýrslu Hagfræðistofnunar um
staðsetningu Reykjavíkurflugvallar
til Borgarskipulags og Flugmála-
stjórnar frá febrúar 1997 kemur
fram að það er þjóðhagslega hag-
kvæmt að Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram í Skerjafirði þótt deila
megi um ávinning þess fyrir Reyk-
víkinga. Það er skoðun borgarráðs
að ef sátt á að takast um óbreytta
staðsetningu innanlandsflugs frá
Reykjavík til frambúðar verði að
ráða bót á því ónæði og mengun
sem annað flug veldur íbúum í
nágrenni flugvallarins og skorar
borgarráð á flugmálayfirvöld að
sýna í verki vilja til að skapa slíka
sátt. Borgarráð óskar eftir sérstök-
um viðræðum við flugmálayfirvöld
um þessi mál,“ segir ennfremur í
bókun borgarráðs.
■stMthu
Gardínuefni frá 200 kf. pr. meter
Tilbúnir kappar frá 500 kr. pr. meter
Lofthá stofuefni frá 750 kf. pr. meter
Falleg ný tvíofin efni - 20% afsláttur
og margt fleira.
GARDÍNUBUÐIN
Skipholti 35 ■ sími 553 5677
Opið kl. 10-18
Opið laugardaga
kl. 10 -14
I
Forvarnadagur í Fjölbraut í Garðabæ
Fj ölbreytilegar
áherslur
í forvörnum
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Föstudaginn
11. september
verður haldinn sér-
stakur forvarnadagur í
Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ. Sigríður Hulda
Jónsdóttir, námsráðgjafi
skólans, hefur undanfarið
ár unnið að uppbyggingu
forvamastarfs á fram-
haldsskólastiginu.
„Forvarnir tengdar
vímuefnum hafa verið of
þröngt skilgreindar.
Víðtækasta forvörnin er
að búa einStaklingnum
tilveru sem hann getur
blómstrað í og aðstoða
hann við að finna heil-
brigð viðfangseftii að
takast á við.“
Sigríður Hulda segh- að
nú fari yfir 90% árgangs í
framhaldsskóla og sé
þessi hópur um margt ólíkur
þeim hópi sem var í framhalds-
skólum fyrir 15 árum. „Áður
stefndu nær allir nemendur í
framhaldsskóla á háskólanám.
Stór hópur nemenda í framhalds-
skólum stefnir ekki að því mark-
miði og margir falla úr námi. Það
þarf að vera forgangsverkefni í
skólakerfinu að efla úrræði fyrir
þennan hóp. Þetta er áhættuhóp-
ur. Einnig þarf að efla náms- og
starfsfræðslu á grunn- og fram-
haldsskólastigi. Marga unglinga
skortir raunhæf námsmarkmið.
Sá sem ekki hefur markmið get-
ur ekki verið mjög metnaðar-
gjarn.“
Undanfarin tvö ár hefur
Sigríður Hulda setið í nefnd á
vegum menntamálaráðuneytisins
sem fjallar um framkvæmd for-
vama í skólakerfinu. í íyrravetur
var hún síðan beðin um að vinna
að uppbyggingu forvarnanám-
skeiðs fyrir framhaldsskóla um
allt land.“
- Lagðir þú til nýjar áherslur á
námskeiðunum?
„Já, meðal hugmynda sem ég
setti fram var að innan hvers
framhaldsskóla þyrfti að vera
einn forvarnafulltrúi í forsvari
fyrir stefnumörkun og fram-
kvæmd forvarna. Hann á að
stuðla að því að forvarnir í
víðtækum skilningi séu hluti af
daglegu lífi skólans. Sem dæmi
má nefna að skólinn bjóði upp á
fjölbreytt og heilbrigt félagslíf án
vimuefna og um leið sé hlúð að
heilbrigðum lífsstfl nemenda.“
Sigríður Hulda segir mikilvægt
að foi-varnir séu fléttaðar inn í all-
ar kennslugreinar. „Þannig geta
raungreinai- fjallað um áhrif efna
á líkamann meðan aðr-
ar greinar eins og sam-
félagsgreinar geta t.d.
fjallað um lífsstíl, jafn-
ingjaþrýsting, jákvætt
lífsviðhorf,
sjálfsvirðingu og sjálfsöryggi.“
-Eru þessar tillögur komnar
til framkvæmda í einhverjum
skólum?
„Já, flestir skólar eru komnir af
stað í einhverri forvarnavinnu. í
nokkrum skólum er búið að ráða
forvarnafulltrúa, m.a. hér í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ.
Skólastjórnendur hér eni mjög
jákvæðir gagnvart uppbyggingu
forvama, einnig bæjarfélögin sem
að skólanum standa Garðabær og
Bessastaðahreppur. Slík
jákvæðni er geysilega mikilvæg."
Sigríður segir að Elísabet
Siemsen forvamafulltrúi hafi sent
kynningarbréf til forráðamanna
nemenda skólans þar sem starf
hennar var kynnt og
►Sigríður Hulda Jónsdóttir er
fædd árið 1964 og uppalin í S-
Þingeyjarsýslu. Hún lauk námi
sem uppeldisfræðingur með
kennsluréttindi frá Háskóla Is-
lands árið 1989 og lauk námi í
námsráðgjöf frá sama skóla árið
1991. Sigríður Hulda hefur
starfað sem námsráðgjafi og
samfélagsgreinakennari við
Fjölbrautaskólann í Garðabæ
frá árinu 1989 og verið í
fræðslunefnd Félags náms- og
starfsráðgjafa um skeið. Hún
hefur oft farið utan í náms- og
kynnisferðir tengdar sínu fagi.
Sigríður Hulda hefur sinnt
ýmsum störfúm á vegum
menntamálaráðuneytisins í sam-
bandi við forvarnir og var til-
nefnd af menntamálaráðherra í
Áfengis og vímuvarnaráð.
forráðamönnum nemenda boðið á
fræðslufund. „Þá hefur starfsfólki
boðist fræðsla og nokkrir kennar-
ar eni þegar famir að taka for-
vamir inn í námsefnið."
-Er forvarnadagurinn í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ ekki
nýjung?
„Jú, þetta er nýbreytni. Allur
undfrbúningur hefur verið unninn
af forvarnafulltrúa, for-
varnateymi og stjóm nemenda-
félags.“
Sigríður Hulda segir að mark-
miðið með forvamadeginum sé að
efla samstöðu meðal nemenda og
kennara um að í skólanum sé heil-
brigt starf í námi og leik. „Þetta
er einn leikur af mörgum til að
staldra við og minna menn á að
hafa fjölbreyttar áherslur í skóla-
starfinu. Fræðslan ein skilar okk-
ur aldrei alla leið í for-
vamastarfi, efla þarf
lífsleikniþætti,
sjálfsvirðingu og
hjálpa unglingnum að
setja sér markmið og
finna sér farveg í tilverunni."
- Hvað verður gert í skólanum
í tilefni dagsins?
„Kennsla fellur niður frá klukk-
an 10 og þá verður boðið upp á
dagskrá fýrir nemendur og kenn-
ara. Nemendur fá fyrirlestur og
Bubbi Morthens kemur og verður
með tónlistarflutning og ræðir
um forvamfr og unglinga. í lok
dagsins verðui- grillveisla."
Sigríður Hulda segir að boðið
verði upp á námskeið í viðtal-
stækni og hlustun fyi-ir kennara.
Markmiðið er að þeir verði betur í
stakk búnir til að mæta nemend-
um á persónulegum nótum.
Hækkaður sjálfræðisaldur kallar
á aukna tengingu kennara við
nemendur og heimili.
Fræðslan ein
skilar okkur
aldrei alla leið