Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 14

Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Möguleikar Keikós betri hér en á öðrum stöðum NOLAN Harvey hefur um- sjón með flutningi há- hyrningsins í Vestmanna- eyjum. Hann sagði að vel hefði gengið að venja Keikó við að borða lifandi flska. I raun væri ekki um það að ræða að verið væri að æfa hvalinn. Fiski væri hent í laug- ina til hans án þess að láta hann vita og ekkert væri gert til að draga at- hygli hans að bráðinni eins og gert hefði verið í upphafi þegar þjálfarar hans notuðu bhstrur til að benda á hana. Á tímabili hefði ekki ver- ið ljóst hvort þjálfa þyrfti hvalinn til að veiða sér til matar, en á endanum hefði þjálfurum hans orðið ljóst að besta leiðin væri að láta hann læra það upp á eigin spýtur. „Við létum hann þróa í sér veiðieðlið á sínum eigin hraða,“ sagði hann. „Við komumst að þeirri niður- stöðu að við þyrftum að treysta á Keikó til að gera þetta sjálfur og honum tókst það. Það sem var erf- iðast fyrir okkur var að gera okkur grein fyrir því að við erum ekki lengur að þjálfa hann, við erum að af- þjálfa hann. Hann þarf að læra að gera hlutina sjálfur því að þannig verður það verði honum sleppt lausum í hafið.“ Nolan sagði að vel hefði gengið að þjálfa hann, hval- urinn væri orðinn 10 þús- und pund og vöðvabygg- ingin góð: „Það er kominn tími til að senda íþróttamanninn út á leik- vanginn." Hann sagði að reyndar hefði þurft að breyta mataræði hvalsins upp á síðkastið vegna flutningsins þannig að hann hefði ekki eingöngu borðað lifandi fisk. Ástæðan væri sú að samtökin vildu tryggja að holda- far hans væri rétt fyrir flutninginn. Keikó orðinn ferðavanur Harvey sagði að ekki væri ástæða til að ætla að Keikó myndi valda vandræðum með bægslagangi á leiðinni. Hann væri orðinn ferða- vanur eftir að hafa verið fluttur á land á fslandi, frá íslandi til Kanada, þaðan til Mexíkó, síðan til norðvesturstrandar Bandaríkjanna og nú til íslands. „En að sjálfsögðu er maður ekki áhyggjulaus yflr því að vera að flytja dýr af þessu tagi, að ég tali nú ekki um yfir hálfan hnöttinn," sagði hann. „En áhöfnin hefur reynslu og ég vona að gert hafí verið ráð fyrir öilu. Þegar ég lít yfír stöðuna núna, sérstaklega hér í Vestmannaeyjum, sýnist mér að við séum tilbúin." Hann sagði að farið hefði verið yflr öll helstu atriði á þriðjudags- kvöld og á fundi í gærmorgun hefði niðurstaðan verið sú að ekkert væri að vanbúnaði. Flutningur hvalsins er flókinn og hófst upp úr hádegi í gær að staðartíma í Newport í Oregon. Þá átti að setja hann í litla skoð- unarlaug við hliðina á stóru laug- inni, sem hann hefur dvalið í frá þvJ hann kom tii Newport frá Mexíkó- borg. Þar var komið fyrir tveimur hliðum, sem halda vatni, og vatninu smám saman hleypt úr lauginni. Síðan var notaður krani og nokk- urskonar hengirúm sem gert er úr segldúk látið síga í laugina og hann síðan látinn synda inn í það. Þar var hann vigtaður og smurður raka- kremi. Þaðan var hann fluttur í flutningagám með vatni og ís, flutt- ur á flugvöllinn og settur um borð í flutningavél bandaríska flughersins. Um borð í vélinni var fullur vatnstankur, en flutningagámurinn ✓ Nolan Harvey hefur verið á Islandi frá því í byrjun ágúst að undirbúa flutning Keikós til Vestmannaeyja. Hann kvaðst í samtali við Karl Blöndal síst hafa áhyggjur af því að háhyrningnum of kalt í Klettsvík, veðrið væri yrði hans helsta áhyggjuefni. Morgunblaðið/Kristinn NOLAN Harvey, þjálfari Keikós, er bjartsýnn á að allt gangi vel. sjálfur átti aðeins að vera hálffullur af vatni til þess að koma í veg fyrir vandamál í flugtaki. Þegar vélin hafði rétt sig við eftir flugtak var ætlunin að dæla vatninu úr tankn- um í gáminn þannig að hvalurinn væri umlukinn vatni og gæti flotið á leiðinni til íslands. Hann myndi hins vegar enn vera í segldúknum og ætlunin hefði verið að hann gegndi hlutverki öryggisbeltis á leiðinni. Tvisvar á að taka eldsneyti í 30 þúsund feta hæð á leiðinni. Klukku- stundu fyrir lendingu verður byrjað að dæla vatni úr hvalagámnum aft- ur og í vatnstank- inn þannig að staðan verði sú sama og við flug- tak. Eftir lend- ingu verði síðan bætt vatni og ís í tankinn. Það tek- ur að sögn Har- veys um hálftíma að ferja Keikó frá flugvellinum í Vestmannaeyjum niður á höfnina þar sem hann verður settur á pramma og fluttur í kvína, sem komið hefur verið fyrir í Klettsvík. Að sögn Harveys gæti farið svo að lenda verði í Keflavík. Hann sagði að það ylti á skyggni, en spáin væri góð að því leyti. Það gæti hins vegar tafið komu hvalsins til Eyja um flmm klukkustundir. Síst áhyggjur af hitastigi sjávar Harvey kvaðst ekki hafa af því áhyggjur að sjórinn við Vestmanna- eyjar yrði of kaldur fyrir Keikó. Hitastigið væri um 10 gráður þar sem hann væri nú og hitastig sjáv- arins hér væri svipað. Sjávarhiti við Eyjar gæti farið niður í 4 gi'áður á selsíus og það myndi ekki hafa áhrif á hann því að hann hefði kynnst slíkum aðstæðum í Oregon. „Hann myndi þá einfaldlega þurfa að borða meira og hreyfa sig meira, en hann hefur nægt spik til að þola kuldann," sagði Harvey. dJJ )> KEIKO tíll EYJA „Þegar hann var fluttur frá Mexíkó hafði hann verið í milli 20 og 25 gráðu heitu vatni og margir höfðu áhyggjur af því, en það hafði síður en svo áhrif á heilsu hans. Þannig að ég hef síst áhyggjur af sjávarhit- anum.“ Hann kvaðst einna helst hafa áhyggjur af veðri og vindum í Vest- mannaeyjum. Gerir sér far um að skrifa gegn Keikó-stofnuninni Grein eftir bandaríska blaða- manninn John Griffith birtist í Morgunblaðinu í gær og þar er því haldið fram að ástæða sé til að hafa áhyggjur af papilloma- veirunni, sem valdið hefur húð- sjúkdómi í Keikó. Harvey sagði að papilloma- veiran hefði ekki fundist í háhyrn- ingnum og bætti við að Griffith gerði sér far um að skrifa gegn Frelsið Willy Keikó-stofnuninni. „Griffíth hefur af einhverri ástæðu ákveðið að einhvers staðar í heiminum sé samsæri og við hljót- um að vera hluti af því,“ sagði hann. „Hann hefur rétt á að hafa sínar skoðanir eins og allir, en yfirdýra- læknir á íslandi kom til Newport, skoðaði Keikó, fór yfir læknaskýrsl- umar, lét okkur gera sérstök próf, sem voru gerð, hann fékk allar nið- urstöðurnar í hendur og niðurstað- an var sú að hann sagði að Keikó yæri heilbrigður og mætti koma til íslands. Staðan er því sú að yfír- dýralæknir, allir okkar dýralæknar og allir sérfræðingarnir eru sam- mála um að ekki stafí hætta af Keikó. Ég er enginn sérfræðingur, en þegar allir þessir hámenntuðu menn reynast sammála er erfítt að vera ósammála. Griffith fær mikið af sínum upplýsingum frá fólki, sem hefur verið andvígt Keikó-verkefn- inu frá upphafí, þannig að hann skrifar frá hinum herbúðunum. Hann hefur verið að skrifa gegn okkur síðan í fyrravor, þannig að þetta kemur mér ekki á óvart.“ I grein Griffíths segir einnig að í Bandaríkjunum þurfi að sækja um leyfi til bandarísku sjávarútvegs- stofnunarinnar til að sleppa dýri lausu aftur út í náttúruna og miðað sé við að dýr hafí verið í haldi í hálft ár eða ár í mesta lagi. Keikó hefur verið undir manna höndum í 19 ár. „Þessar reglur breytast og það stendur ekkert skrifað um sjávar- spendýr," sagði Harvey. „Við tökum þetta mjög alvarlega og við erum ekki viss um að Keikó verði sleppt. En við mynd- um aldrei komast að því ef hann yrði áfram í lauginni I Newport í Oregon. Sú laug gefur ekki sömu möguleika og víkin hér. En við þurfum að sjá hvernig Keikó geng- ur að laga sig að aðstæðum. Það gæti gengið hratt fyrir sig, en kannski tekur það nokkur ár og tekst kannski aldrei. En þetta er besti staðurinn fyrir hann eigi hann að eiga möguleika.“ Harvey sagði augljóst að fólk skiptist í tvo hópa í þessu máli, væri ýmist hlynnt eða andvígt því að hvalurinn yrði fluttur. „í mínum huga ber Keikó því hins vegar vitni að við vit- um hvað við erum að gera sem manneskjur,“ sagði hann. „Við vitum meira um hafið og umhverfið og við erum að lofa börnum heimsins að við viljum gera eitthvað fyrir þau. Við getum lært mikið af þessu og nú fylgist allur heimurinn með Keikó. Okkar mat var að ein og hálf milljón manna hafi fylgst með því þegar Keikó var fluttur frá Mexíkó og það þótti okk- ur ótrúlegt. Nú eigum við von á því að einn og hálfur til tveir milljarðar manna muni fylgjast með því þegar Keikó kemur til íslands. Og fólk verður ekki aðeins einhvers vísari um Keikó heldur einnig um ísland.“ Mikið hefur borið á þeirri gagn- rýni að Keikó muni bera með sér sjúkdóma til íslands, en minna fjall- að um það hvort hann geti tekist á við veirur Atlantshafsins. „Við munum fylgjast með því,“ sagði Harvey. „Fyrirbyggjandi heilsugæsla er hluti af okkar starfi hér. En Keikó hefur sennilega aldrei verið heilbrigðari. Onæmis- kerfi hans er mjög sterkt um þessar mundir, en þegar hann kom frá Mexíkó var það í molum þannig að ég held að honum eigi eftir að ganga vel, hann þarf bara tíma.“ Hótanir ekki nýmæli Nokkrar hótanir hafa borist þar sem bréfritari hefur sagst ætla að eitra fyrir háhyrningnum. Hai-vey sagði að hótanir væru ekkert nýtt fyrir sér, enda hefði hann annast sjávarspendýr svo árum skipti. Hins vegar væri öryggiskerfi til staðar og gripið hefði verið til ým- issa ráðstafana í samvinnu við yfir- völd á staðnum. Klettsvíkinni yrði lokað með neti eftir að háhyrningn- um hefði verið komið fyrir, en vita- skuld yrði ekki hægt að gera það fyrr þar sem pramminn þyrfti að komast að kvínni. Oryggismál væra tekin alvarlega. Harvey hefur verið á íslandi frá fyrstu vikunni í ágúst og verður til 1. október. Þá fer hann í mánuð til Bandaríkjanna, en snýr síðan aftur. Starfsbróðir hans í Bandaríkjunum er Jeff Foster og hefur hann haft yfirumsjón með flutningnum þaðan. Foster og Harvey munu hafa yfir- umsjón með Keikó hér. Alls verða hér 10 manns á vegum Keikó-stofn- unarinnar vegna hvalsins. Húsleit gerð vegna hótana LÖGREGLAN á Eskifirði sagði í gær að húsleit hefði ver- ið gerð á heimili mannsins, sem var yfirheyrður á þriðjudag vegna hótana um að drepa há- hyrninginn Keikó. Maðurinn var látinn laus, en málið er enn í rannsókn. Ekki kom fram hjá lögreglu hvað hefði fundist við húsleitina og var sagt að ekki væri vitað hvort hótanirnar tengdust sama manninum eða hópnum eða hvort þær kæmu hver úr sinni áttinni. Hótanir sagðar tengjast Hallur Hallsson, sem starfar fyrir Keikó-samtökin, sagði hins vegar á blaðamannafundi, sem haldinn var í húsi Kiwanis- samtakanna í Vestmannaeyjum í gærkvöldi, að talið væri að hótanirnar tengdust. Hann sagði einnig að lögreglan fylgd- ist með ákveðnum einstakling- um. Hótanirnar eru nú orðnar fjórar alls og var sú síðasta póstlögð á mánudag. I henni sagði að eitthvað ætti að gerast í dag. Hallur sagði að í bréfmu hefðu verið ruddaleg ummæli um Davíð Oddsson forsætisráð- herra, Árna Johnsen þingmann og hann sjálfan. Aðdráttarafl fyrir ákveðna jaðarhópa Diane Hammond, blaðafull- trúi Keikó-samtakanna, sagði að þetta væri ekki í fyrsta skipti, sem hótanir bærust. Það hefði einnig gerst í Oregon. Há- hyrningurinn virtist hafa að- dráttarafl fyrir ákveðna jaðar- hópa. Öryggisviðbúnaður væri hins vegar mikill og þau mál í góðum höndum. I fyrstu þrem- ur hótunarbréfunum sagði að reynt yrði að eitra fyrir há- hyrningnum. Á blaðamanna- fundinum kom fram að matur Keikós væri rannsakaður reglulega hvort eð er til að kanna næringargildi hans. Þá væri stefnan að setja upp kví til að rækta fisk handa Keikó. Nolan Harvey, sem hefur yfir- umsjón með flutningi Keikós hingað til Vestmannaeyja, kvaðst á fundinum telja að nægilega vel væri fylgst með fæðu háhyrningsins. Ahugi á heimasíðu um Keikó MIKIL aðsókn hefur verið að heimasíðu sem Nyvidd multi- media hefur sett upp á Netinu um Keikó. Fyrirtækið hefur einkarétt á nafninu „keiko.com" og fá allir sem slá inn orðið keiko í leitarvélar síð- una upp á skjáinn. 96% allra sem skoða síðuna eru útlend- ingar og telur Ólafur Ragnars- son, hjá Nyvidd, að síðan feli í sér mikla jákvæða auglýsingu fyrir Island. Frá því að heimasíða Ny- viddar var sett upp 1. septem- ber sl. hafa um 12 þúsund manns skoðað hana. Svo mikil aðsókn var að síðunni í gær að Skíma þurfti að grípa til sér- stakra ráðstafana til að tryggja að engir tæknilegir erfiðleikar yrðu á að skoða hana. Á síðunni er hægt að fræðast um Keikó og væntanlegt ferðalag hans til íslands. Hægt er að fá upplýs- ingar um veður í Vestmanna- eyjum, hvenær hann kemur til landsins, hvaða þýðingu þetta ferðalag hefur fyrh' hvalinn o.s.frv. Ólafur sagði að Nyvidd hefði búið til heimasíðu um Keikó til að notfæra sér áhuga á hvalnum til að draga athygli umheimsins að íslandi sem ferðamannalandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.