Morgunblaðið - 10.09.1998, Síða 15

Morgunblaðið - 10.09.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 15 FRÉTTIR Bandarfskir fjölmiðlar fylgdust vel með undirbúningnum fyrir ferðalag Keikós HAFT er eftir Bob Ratclif- fe, varaforseta Free Willy Keikó-sjóðsins, í dagblaðinu The Oregoni- an, sem gefið er út í borginni Portland, í gær að yfirvöldum hafi tekist að hafa upp á íslendingi sem sent hefur frá sér hótunarbréf þar sem því er hótað að Keikó verði drepinn með einum eða öðrum hætti. Ratcliffe segir í samtali við blaðið að lögreglan hafi að vísu ekki enn handsamað manninn en að búið sé að gefa út handtökuskipun á hann. Nokkuð hefur verið fjallað um brotthvarf Keikós frá Oregon i fjöl- miðlum þar vestra síðustu dagana og til að mynda er fréttastöðin CNN með sérstaka umfjöllun á heimasíðu sinni. I gær er þar greint frá síðasta degi Keikós í Oregon Co- ast-sædýrasafninu en gestum þess gafst á þriðjudag í síðasta sinn tækifæri til að skoða hvalinn áður en hann lagði af stað í langferð sína til íslands. The Oregonian segir reyndar í gær að aðsókn að sædýra- safninu hafi verið heldur dræm um síðustu helgi, og mun minni en búist hafði verið við, en nefnir sem skýr- ingu að foreldrar séu í óðaönn að búa böm sín undir nýtt skólaár. Sagt var frá því á heimasíðu CNN að gert væri ráð fyrir að Keikó yrði lyft með krana úr búri sínu, ekið í vöruflutningabfl frá United Parcel Service til móts við flutningavéla bandaríska flughers- ins á flugvellinum í Newport sem síðan flygi með Keikó til Islands. „Þegar þangað er komið mun flot- kví á stærð við fótboltavöll verða Keikos verður sárt saknað í Oregon KEIKÓ í búri sínu í Oregon. Bandaríski flugherinn um flutning Keikós Mikilvægt að kynna flugvélina BANDARÍSKI flugherinn á alls 41 C-17 herflutningavél sem daglega fljúga um allan heim í margskonar verkefnum. Settur yfirmaður bandaríska flughersins kom til Vestmannaeyja í morgun til að vera viðstaddur komu Keikós, en það er mjög sjaldgæft að æðsti yfirmaður flughersins fylgi vélunum í verkefn- um þeirra. Að sögn James Sahli, hjá al- mannatengslum flughersins, ríkir metnaður í þá átt að kynna almenn- ingi í Bandaríkjunum kosti þessara tröllauknu flugvéla og því muni þeir sæta færis að vekja athygli á flugferðinni með Keikó þar sem um sérstaka ferð sé að ræða. Hann segir að flugáhöfnin sé orðin mjög reynd, en hafi ekki fengist við flutn- ing á slíku magni af vatni eins og hér um ræðir. „Það er nokkur ögrun fólgin í því að fást við vatns- flutninga og þar bætist við reynsl- una í notkun þesara véla,“ segir James. „C-17 vélarnar eru sérsmíð- aðar fyrir flutninga með óvenjuleg- an farm og þetta er frábært tæki- færi til að fullkomna verkefni okkar sem felst í því að geta komist hvert sem er hvar sem er með hvað sem er. Það þurfum við að geta til að sanna okkur sem góðan flugher við upphaf nýrrar aldar.“ F. Whitten Peters" settur yfir- maður bandaríska flughersins kem- ur til íslands í tilefni af komu Keikós og segir James að hann sé þess meðvitaður að umfjöllun fjöl- miðla um Keikó og ferðalag hans sé afar mikilvæg fyrir C-17 vélarnar. Þar að auki mun Peters eiga sam- skipti við bandaríska sendiráðs- starfsmenn og hermenn af Kefla- víkurflugvelli. Kostnaður við flutn- ingana nemur um 26 milljónum króna og er hann greiddur af Frels- um Willy samtökunum. Samkvæmt reglum bandaríska vamarmála- ráðuneytisins um flutning gagna sem eru ekki á vegum ríkisins mega einkasamtök á borð við Frelsum Willy sækja um aðstoð hersins við ýmis verkefni að upp- fylltum vissum skilyrðum. Má nefna að verkefnið þarf að vera í þágu þjóðarhagsmuna og kostnað- ur þarf að greiðast af þeim sem sækir um aðstoð hersins. Þetta er m.a gert til að koma í veg fyrir að hver sem er geti fengið flugherinn í að þjóna sér. 24 starfsmenn vinna við verkefnið Alls eru 24 starfsmenn banda- ríska flughersins í fullri vinnu við að sinna Keikó verkefninu og þar af eru um 8 á íslandi. Þeir þiggja eftir sem áður laun sín frá bandaríska ríkinu, en Frelsum Willy samtökin leggja fram fé sem nemur launa- kostnaði vegna verkefnisins. Það er þó ljóst að bandaríski herinn kemur ekki út á sléttu vegna þessa sam- starfs og segir það sína sögu um dálæti flughersins á þessu verkefni. Sé litið þannig á hlutina telur flug- herinn sig fá nokkuð fyrir sinn snúð í formi kynningar á C-17 vélinni og aukinni reynslu í að fljúga með óvenjulegan farm. „Bandaríska þjóðin veit ekki hversu mikið C-17 vélin er notuð, nema í undantekn- ingartilfellum og hún veit ekki að hún á risastóra flugvél sem getur flutt hluti á borð við hvali, þannig að nú gefst okkur tækifæri til að koma þeim upplýsingum á fram- færi.“ Er hann ekki stærri en þetta? SÚ SKOÐUN hefur heyrst að með öllu tilstandinu f kringum Keikó sé verið að gera úlfalda úr mýflugu. Það eru kannski skila- boðin sem hann vildi senda hrekkjalómurinn sem festi þessa smækkuðu útgáfu af langfræg- asta sjávarspendýri jarðarinnar neðan í kranabómuna í Vest- mannaeyjum. hið nýja heimili hans þangað til menn telja óhætt að sleppa hvalnum lausum.“ Segir þar jafnframt að flutning- urinn til Islands eigi sér stað þrátt fyrir að sérfræðingar deili hart um það hvort Keikó sé fær um að bjarga sér sjálfur eftir sautján ár í umsjón manna. í dagblaðinu Albany Democrat- Herald, sem gefið er út í borginni Albany í Oregon, er viðtal við vöru- flutningabflstjórann Vann Beckner, sem hafði það verkefni við flutning- inn á Keikó frá sædýrasafninu til flugvallarins í Newport að vera til staðar með risavaxinn flutningabíl „ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis“. Jafnframt beið Beckner með bifreið sína á flugvellinum í Newport uns tvær klukkustundir voru liðnar frá brottför flugvélarinnar, því ef vart yrði við einhver vandamál innan þess tíma myndi flugvélinni verða snúið til Newport á nýjan leik. Ef einhverjir erfiðleikar kæmu upp eftir þann tíma myndi vélinni hins vegar lent í Kanada í stað þess að halda aftur til Oregon. Beckner segist sjaldan hafa haft undarlegri starfa með höndum, „en ég er stoltur af því að taka þátt í þessum atburði“, sagði hann í sam- tali við Albany Democrat-Herald. Erfitt að fylla í tómarúm Blaðamaður The Oregonian segir í grein í gær að erfitt muni reynast að fylla það tómarúm sem myndast við brottfór Keikós, slíkar hafi vin- sældir hvalsins verið. Segir blaða- maðurinn, Romel Hernandez, að menn annaðhvort botni í Keikó-æð- inu eða ekki, þar sé enginn milliveg- ur. Talin eru upp dæmi um nokkra þá sem algerlega hafa heillast af hvalnum, t.d. Keikó E. Taniguchi, sem eyddi mörgum klukkustundum á mánudag fyrir framan búr Keikós og horfði á hvalinn, íklædd svörtu og hvítu í tilefni dagsins. Taniguchi heldur því fram að hún sé í sam- bandi við hvalinn og ákvað að ferð- ast nú til Oregon frá Suður-Kar- ólínu þar sem hún er búsett til að leggja sjálf mat á hvernig Keikó liði. Og ef eitthvað er að marka Tanig- uchi er Keikó hæstánægður með að fara nú til Islands. En hún segir reyndar að hvalurinn eigi sér leynd- armál því hann sé staðráðinn í að flýja og njóta frelsis á opnu hafinu um leið og hann er kominn til norð- urslóða. „Ég veit að hann ætlar að flýja þegar hann er kominn til ís- lands, ég get fundið það,“ sagði Tanaguchi. Sue Finlayson, 61 árs hjúkrunar- kona á eftirlaunum, er öllu jarð- bundnari í ást sinni á Keikó en segir þó að hún komi til með að sakna hans mjög er hann verður á bak og burt úr sædýrasafninu í Oregon. En ef Island er heimili hans þá verður svo að vera, segir Finlayson. Newport hefur notið góðs af Keikó-æðinu í samtali við The Oregonian seg- ist veitingahúsaeigandinn Mark Jo- nes örugglega munu sakna Keikós. Fyrsta árið sem hvalurinn var í Oregon var frábært, segir Jones, enda jukust viðskipti hjá honum um 30%. Mörg veitingahúsanna tóku upp á því að auglýsa staði sína með orðunum „Keikó borðar hér“ þegar frægð Keikós stóð sem hæst. Og þótt Keikó-æðið hafi dvínað síðan þá telur Jones að Newport muni áfram njóta góðs af. „Við höf- um fengið auglýsingu í fjölmiðlun- um sem aldrei hefði verið mögulegt að fá öðruvísi. Þegar æðið hefur runnið sitt skeið á enda þá verður þetta bara góð minning sem við öll eigum. En lífið heldur áfram.“ Phyllis Bell, eigandi sædýrasafns- ins í Oregon tekur í sama streng. Þakkar hún það Keikó að fólk þekki nú sædýrasafnið og störf þess. „Keikó kom okkur á kortið og það gufar alls ekkert upp á svipstundu." Hún segir algeran óþarfa að hafa áhyggjur af framtíð sædýrasafnsins. „Auðvitað munum við sakna Keikós en við lítum samt sem áður björtum augum til framtíðarinnar.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.