Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
SOCO færibandakerfið
hefur endalausa
möguleika í samsetningu
og útfærslu.
Einfalt og fljótlegt i
uppsetningu og verðið
or frábært.
- Hafðu samband -
vogir cm: úkkai: fag -
Síðumúla 13. Sími 588 2122
BLTAK
HPP - w&fetm úkkarjííg; -
t Kassalimbandsvél með ehi og
neðri Iímingu
• Dönsk gæðavara
• Auðveid í stillingu
• Frábært verð
#ELTAKH'
- vogjr cmaltkinrfng;
I Fyrir kör og bretti
• Vatnsþéttar IP-67
i Hagstættverð
9 af hverjum 10
á íslandi!
LTAK
MgJu <mr oUkarjhg
Færibandakerfi
VOGIR
ELTAK sérhæfir sig í
sölu og þjónustu á
vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum og
stórum vogum
Bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Dalvíkur, Árskógsstrandar og Svarfaðardals
V ímu varnaáætl-
un samþykkt
BÆJARSTJÓRN sameinaðs sveit-
arfélags Dalvíkur, Árskógsstrandar
og Svarfaðardals samþykkti á fundi
sínum í vikunni vímuvarnaáætlun
sveitarfélagsins fyrir tímabilið
1998-2002.
Vinna við gerð áætlunarinnar
hófst með því að bæjarstjóm Dal-
víkur skipaði starfshóp í október í
fyrra sem hafði það verkefni að gera
tillögu að áætlun þar sem m.a. átti
að leggja áherslu á markvisst for-
vamastarf, aukið samstarf og skipu-
legra samstarf milli þeima sem að
málum koma og bætta /ræðslu ung-
linga og fullorðinna. Áætlunin var
afgreidd í bæjarstjórn Dalvíkur í iok
mars, en við sameiningu sveitarfé-
laganna var hún endurskoðuð og
hefur nú verið samþykkt fyrir hið
sameinaða sveitarfélag.
Vímuvarnaáætluninni verður
dreift til íbúa um leið og hún kemur
úr prentun en einnig verður hægt
að nálgast hana á skrifstofum sveit-
arfélagsins. Innan fárra daga verð-
ur þana einnig að fínna á Netinu.
I áætluninni er lýst markmiðum
vímuvarna ásamt markmiðum og
framkvæmdaáætlun einstakra
stofnana og félaga sem hún snertir,
en hún tekur m.a. til grunnskóla,
foreldrafélags og nemendaráðs
grunnskólans, íþrótta- æskulýðs- og
menningarráðs, vinnuskóla, heilsu-
gæslustöðvar, lögreglu og félaga-
samtaka.
Markmið að draga úr neyslu
,J\Ieð áætluninni lýsir bæjarstjóm
vilja sínum til að leggja áherslu á að unn-
ið verði að forvamastarfi í vímuvömum
barna og unglinga í sveitarfélaginu og
taka þátt í verkefninu ísland án eitrn-
lyíja," segir í inngangi vímuvamaáætl-
unaiinnar. Bent er á að vímuvamir
tengjast öllum málum er varða böm og
ungmenni, fjölskyldm’, líf og starf íbú-
anna, innan heimilis og utan.
Markmið áætlunarinnar er að
draga úr neyslu ungmenna á hvers
kyns vímuefnum, tóbaki, áfengi og
öðrum vímuefnum, að auka mark-
visst forvarnastarf og samstarf, að
vímuvamir verði fastur þáttur í
starfsemi félaga, fyrirtækja og stofn-
ana sem hafa með málefni barna og
unglinga í sveitarfélaginu að gera og
þá er það markmið einnig sett að
áætlunin verði að lokum óþörf.
Landsbanki Islands og
Kaupfólag Eyfírðinga
Samningur um
skuldabréfaútboð
LANDSBANKI íslands og Kaupfé-
lag Eyfirðinga haf náð samkomulagi
um að Landsbankinn hafí umsjón
með skuldabréfaúboði Kaupfélags
Eyfírðinga að fjárhæð 300 milljónir
króna.
Skuldabréfin eru í 5 milljóna
króna einingum og eru til fimm ára
og bera 6% flata vexti og eru verð-
tryggð miðað við vísitölu neyslu-
verðs. Skuldabréfin verða seld á
ávöxtunarkröfunni 6,10 til að byrja
með og verður sótt um skráningu
skuldabréfanna á Verðbréfaþingi Is-
lands.
Kaupfélag Eyfirðinga mun verja
andvirðinu til endurfjármögnunar
sem felst í að draga úr vægi skamm-
tímaskulda en einnig verða eldri og
óhagstæðari lán greidd upp. Auk
þess verður andvirðið notað vegna
fjárfestinga félagsins í verslunar-
rekstri í Reykajvík.
Viðskiptastofa Landsbanka Is-
lands á Akureyri sér um skulda-
bréfaútboðið og var myndin tekin
þegar samningar voru undirritaðir.
Eiríkur S. Jóhannsson kaupfélags-
stjóri, t.v., og Sigurður Sigurgeirs-
son, útibússtjóri Landsbankans á
Akureyri, takast í hendur efth' und-
irritunina en fyrir aftan þá standa
Ámi Magnússon, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs, KEA og Stefán B.
Gunnlaugsson, Viðskiptastofu
Landsbankans á Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Samkeppni Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
Verkefnið „Nýja barn-
*
ið“ framlag Islands
ÞRÓUNARVERKEFNIÐ „Nýja
barnið - aukin fjölskylduvemd og
bætt samskipti" sem unnið var á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri
hefur af heilbrigðisráðuneyti verið
valið sem framlag íslands í sam-
keppni Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar, WHO, sem efnt er til í
tengslum við 50 ára afmæli stofn-
unarinnar í ár. Hvert land hefur
tilnefnt eina rannsókn til þátttöku
og verður ein þeirra síðar valin til
verðlauna.
Hugað að
áhættuþáttum
Verkefnið Nýja barnið stóð í 5
ár og lauk formlega um síðustu
áramót en nú er verið að vinna
lokaskýrslu og útbúa handbók.
Verkefnisstjórar eru þau Karólína
Stefánsdóttir fjölskylduráðgjafi og
Hjálmar Freysteinsson læknir en
handleiðslu veittu Sigmundur Sig-
fússon geðlæknir og Hulda Guð-
mundsdóttir félagsráðgjafi.
Verkefnið Nýja barnið fjallar
um mæðra- og ungbarnavemd og
var markmið þess að skapa heilsu-
vernd sem félli sem best að mis-
munandi þörfum neytenda og tók
það mið af því að góð tilfinninga-
tengsl væru undirstaða góðrar
heilsu. Hugað var að sálrænum og
félagslegum áhættuþáttum ekki
síður en líkamlegum. Tíð og reglu-
bundin samskipti í mæðra- og ung-
barnavemd vom nýtt til að greina
og skilja félagslega og tilfinninga-
lega áhættuþætti og ná samvinnu
við fjölskyldurnar um úrræði, en á
þessu mótunarskeiði fjölskyldunn-
ar er oft auðveldara en ella að ná
samstarfi um úrbætur. Með til-
tölulega einföldum aðgerðum býð-
ur þetta tímabil upp á hagstæða
möguleika til að fyrirbyggja til-
finningalega og félagslega erfið-
leika og stuðla að heilbrigðri
tengslamyndun. Betra er að taka á
málum í tíma, vinna fyrirbyggj-
andi starf áður en í óefni er komið,
en fái foreldrar styrk og stuðning
til að vinna úr erfðum málum sem
upp hafa komið geti það komið í
veg fyrir erfiðleika á síðari stigum
í uppvexti barna.
Aðrar áherslur
í heilsuvernd
„Við höfum verið að þróa aðrar
áherslur en áður í heilsuvemd. Þar
leggjum við áherslu á tilfinninga-
leg tengsl, tilfinningalega líðan
móður og barns og við reynum að
styðja við verðandi og nýorðna for-
eldra. Sérstaklega þá sem era að
glíma við áhættuþætti, eins og
óunnar kreppur, vanlíðan í sam-
böndum eða eitthvað slíkt sem get-
ur haft mikil áhrif á heilsuna, ekki
síst hjá hvítvoðungum sem eru
mjög næmir,“ sagði Karólína en
hún bætti við að forsvarsmenn
verkefnisins væra afar ánægðir
með að það hefði verið valið til
þátttöku í samkeppninni fyrir Is-
lands hönd.
AKSJÓN
Miðvikudagur 9. september
12.00^-Skjáf réttir
18.15^-Fréttaþáttur í samvinnu við
Dag. Endursýndur kl. 18.45, 19,15,
19.45, 20.15,20.45
21 .OO^-Bæjarsjónvarp Steingrímur
St. Th. Sigurðsson listmálari snarar upp
portretti eins og honum einum er lagið.
Leikfélag
Akureyrar
Fjórar
umsóknir
um stöðu
leikhús-
stjóra
FJÓRAR umsóknir bárust
um stöðu leikhússtjóra Leik-
félags Akureyrar. Ráðið
verður í stöðuna frá næstu
áramótum en þá lætur
Trausti Ólafsson, núverandi
leikhússtjóri, af störfum.
Allir umsækjendurnir fjór-
ir hafa starfað hjá Leikfélagi
Akureyrar en þeir era;
Andrés Sigurvinsson, leikari
og leikstjóri, Saga Jónsdóttir
leikari, Sigurður Hróarsson,
kennari og fyrrverandi leik-
hússtjóri, og Valgeir Skag-
fjörð, leikari, leikstjóri og
leikritaskáld.
Sigurður Hróarsson, sem
nú er búsettur í Slóveníu,
var leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar á árunum
1989-1991 en þá tók hann við
stöðu leikhússtjóra í Borgar-
leikhúsinu í Reykjavík. Hinir
umsækjendurnir þrír hafa
starfað hjá LA sem leikarar
og leikstjórar.
Valgerður Hrólfsdóttir, for-
maður Leikfélags Akureyrar,
var ánægð með þær umsóknir
sem bárast um stöðuna en
nöfn umsækjenda vora kynnt
á fundi leikhúsráðs í gær. Val-
gerður sagði stefnt að þvi að
ræða við alla umsækjendur og
hún vonast til að búið verði að
ráða í stöðuna í kringum
næstu mánaðamót.
nn *
lresmiöir
Óskum eftir að ráða trésmið við innréttingasmíði.
Helst vanan vélavinnu.
Upplýsingar í síma 462 1390.
Furuvöllum 9, Akureyri.