Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Aðalfundur Eyþings 1998 haldinn á Húsavík
Miklar umræður um
skipulag skólamála
HÉR er verið að ganga frá uppsetningu nýja tölvukerfisins á Bæjar-
og héraðsbókasafninu á ísafirði. Frá vinstri: Björn Davíðsson, kerfis-
stjóri hjá Snerpu á Isafirði, Andrea Jóhannsdóttir, umboðsmaður
norska fyrirtækisins Mikromarc, Jens Christian Strandás frá Mikro-
marc og Jóhann Hinriksson, bókavörður á Isafirði.
Bókasöfn á
Vestfjörðum
fara á Vefinn
Húsavík - Aðalfundur Eyþings
1998, sambands sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, var
haldinn á Hótel Húsavík fyrir
skömmu.
Sigríður Þorsteinsdóttir, formað-
ur samtakanna, setti fundinn og
flutti skýrslu stjórnar. Þar kom
fram að mörg voru viðfangsefnin á
síðasta ári, sum voru fullkomlega
leyst en önnur eru í vinnslu og
nokkur liggja nú fyrir fundinum til
afgreiðslu.
Heilbrigðiseftirlit í Norðurlands-
kjördæmi eystra og tillaga að sam-
starfssamningi og erindisbréf heil-
brigðisnefndar var fyrsta málið,
sem á dagskrá var. Það var mikið
rætt og endanlega afgreitt þannig
að drög að lögum, sem stjómin
lagði fyrir þingið, voru samþykkt
með nokki-um breytingum.
Skiptar skoðanir voru um grein-
argerð starfshóps um endurskoðun
á stofnsamningi Skólaþjónustu Ey-
þings. Fyrir lá löng og greinargóð
skýrsla starfshóps, sem skipaður
var á síðasta þingi. Bragi Guð-
mundsson, Háskólanum á Akureyri,
skýrði frá athugun sem háskólinn
hafði gert á starfi og gildi skóla-
þjónustu að áliti þeirra, sem hennar
njóta. Niðurstaða háskólans var sú
að rétt mundi vera að skólaþjónust-
an starfaði áfram í svipuðu formi
næstu tvö árin, en þá væri rétt að
athuga málið frekar. Miklar um-
ræður urðu um skýrsluna og skóla-
málin almennt. Tillaga kom fram
um að leggja skólaþjónustu Ey-
þings niður frá og með 1. ágúst
næsta ár og að hvert sveitarfélag
taki við þeim verkefnum, sem henni
eru ætluð samkvæmt stofnsamn-
ingi. Um þetta urðu miklar umræð-
ur, sem enduðu með því að sam-
þykkt var að með tilliti til þess að
bæjarstjóm Akureyrar áformar að
breyta fyrirkomulagi sinnar skóla-
þjónustu yi'ði Eyþing að endur-
skoða sín mál þegar þar að kæmi.
Síðari fundardagurinn hófst með
erindi Valgerðar Magnúsdóttur um
starf landshlutanefndar um yfir-
færslu á málefnum fatlaðra til sveit-
arfélaga.
Góð reynsla af samstarfi
um málefni fatlaðra
Soffía Gísladóttir, félagsmála-
stjóri á Húsavík, sagði frá Félags-
málaþjónustu Þingeyinga og mál-
efnum fatlaðra, en sú þjónusta sem
fyrst náði aðeins til Húsavíkur hef-
ur nú verið sameinuð fyrir báðar
Þingeyjarsýslumar og taldi Soffía
að þar hefði verið stigið skref í rétta
átt.
Valgerður Sverrisdóttir alþingis-
maður skýrði fundarmönnum í fróð-
legu erindi frá þeim undirbúningi
sem átt hefur sér stað að breyttri
kjördæmaskipan og breyttum kosn-
ingalögum. Hún skýrði þær hug-
myndir sem fram hefðu komið þar
um starfandi nefnd og á hvern hátt
væri hugsað að ná meira jafnvægi
atkvæða að baki hvers þingmanns.
Hún gat þess að í kjördæmi Norð-
urlands eystra væri gott jafnvægi.
Þar væri kjördæmið með 10% at-
kvæða og um 10% þingmanna.
Reikningar fyi'ir liðið ár voru
samþykktir. Þeir sýndu 38,5 millj.
kr. tekjur, en 36,2 millj. kr. gjöld.
Einnig var fjárhagsáætlun íyrir yf-
irstandandi ár samþykkt.
Ný stjórn var kosin, en hana
skipa: Kristján Þór Júlíusson,
Akureyri, form., Guðný Sverrisdótt-
ir, Grenivík, Gunnlaugur Júlíusson,
Raufarhöfn, Kristján Olafsson, Dal-
vík, og Skarphéðinn Sigurðsson,
Bárðardal.
Alls höfðu 46 fulltrúar rétt til
fundarsetu. Nokkrir gestir sátu
einnig fundinn, þar á meðal Stein-
grímur J. Sigfússon alþingismaðm'
og ráðherrarnir Halldór Blöndal og
Guðmundur Bjarnason.
Akveðið var að næsti aðalfundur
yrði haldinn í Grímsey.
ísafirði - Á Bæjar- og héraðsbóka-
safninu á ísafirði hefur verið tekin í
notkun tölvuskráning í tengslum við
Netið, þannig að nú getur hver sem
er flett upp í skrám safnsins á Vefn-
um og séð hvaða bækur eru til.
Búnaður þessi er frá norska fyrir-
tækinu Milö'omarc og er þetta nýj-
ung hjá almenningsbókasafni hér á
landi. Miklu fljótlegra og auðveldara
er fyrir fólk að leita að bókum á
þennan hátt en með gömlu aðferð-
inni, að sögn Jóhanns Hinrikssonar,
bókavkrðar á ísafirði, sem beitti sér
fyrir þessari nýjung. Síðan er hægt
að panta bækur í netpósti eða á ann-
an hátt. Nú er verið að vinna að
lokafrágangi kerfisins, þannig að
það vinni að öllu leyti á íslensku. í
umræddri skrá á Vefnum eru meðal
annars allar bækur 1 útlánadeild
bókasafnsins á Isafirði, einnig allt
bókasafn Grunnskólans á Isafirði og
allur bókakostur Skólaskrifstofu
Vestfjarða, en það kemur sér afar
vel fyrir skólana í fjórðungnum.
Líka eru þarna inni flest söfn gömlu
lestrarfélaganna í Isáfjarðarsýslum,
svo sem á Snæfjallaströnd, í
Reykjanesi, í Súðavík, á Suðureyri,
á Flateyri og í Holti. Sama skrán-
ingarkerfi hefur verið tekið upp í
bókasafninu í Bolungai-vík og aðeins
er spuming um ákvörðun og svolitla
peninga að bækurnar þar komist
einnig á Vefinn. Hins vegar er bóka-
safn Framhaldsskóla Vestfjarða
ekki þama með, enn sem komið er
að minnsta kosti.
AIIs eru 60 þúsund
bindi skráð
Um 60.000 bindi munu vera skráð
með þessum hætti í tölvu Bæjar- og
héraðsbókasafnsins og þar mun
vera hægt að finna því sem næst all-
ar bækur sem hafa komið út á Is-
landi síðastliðin tíu ár og margar
miklu lengi'a aftur í tímann.
Og ekki eru aðeins bækur í
skránni, heldur einnig myndbönd,
hljómplötur og tölvuforrit. Síðan er
ætlunin er að skrá þar allt héraðs-
skjalasafnið, svo og einkaskjalasöfn,
sem Jóna Símonía Bjarnadóttir
skjalavörður er tekin til við að skrá.
Loks er ráðgert að verk í eigu
Listasafns ísafjarðar komi þar inn
með tímanum, svo og ljósmynda-
safn.
Morgimblaðið/Silli
FRA aðalfundi Eyþings 1998 á Hótel Húsavík. Næsti aðalfundur verður haldinn í Grímsey.
SBOBHHBBKI
mmmmmmma
___________________________Starfsmenn: Sverrir Kristinsson Iðgg. fasteignasali, sölustiórt,
Þorleifur St.Guðmundsson.B.Sc., sðlum., Guömundur Sigurjónsson löafr. og Iðgg.fasteignasali. skjalagerö.
Stefán Hrafn Stefánsson Iðgfr,; sðlum., Magnea S. Sverrisdóttir, Iðgg. msteignasali, sölumaður,
Stefán Arnl Auðólfsson, sðlumaöur, Jóhanna Valdimarsdóttir, auglysingar, gialdkeri, Inga Hannesdóttir.
slmavarsla og ritari, Olöf Steinarsdóttir, ðflun skjala og gagna, Ragnheiður D. Agnarsdóttir.skrifstofustórf. íl
Sími 588 0090 • Fax 588 9095 • SÍOiinmla 2 I
Þjónustuíbúð við Hrafnistu Reykjavík
IGIæsileg og rúmgóð 2ja herb. íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi fyrir
eldri borgara. Glæsileg sameign, samkomusalur o.fl.
Verð tilboð. 8143
VANTAR - VANTAR
Höfum ákveðna kaupendur að eftirtöldum
eignum. Sterkar greiðslur í boði fyrir rétta eign,
jafnvel staðgreiðsla.
Einb. í Þingholtum, vesturborginni eða miöbænum (allt að 30 millj.)
Einbýli, parhús eða raðhús í Fossvogi.
Einbýli, parhús eða raðhús á Seltjarnarnesi.
Sérbýli í vesturborginni um 150 fm.
Sérbýli í Smáíbúðahverfi.
90-140 fm íbúð (Leitum, vesturbæ eða Seltjarnarnesi.
Hæö og ris í vesturborginni, 130-160 fm.
- Hæð í vesturbæ, Hltðum eða austurbæ.
, 4ra-5 herb. íbúð I Háaleitishverfi.
Höfum kaupendur að íbúðum í Smára- og Lindahverfi.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Vegna mikíllar sötu á atvinnuhúsnæði undanfarið vantar okkur nú flestar
gerðir af atvinnuhúsnæði. I sumum tilvikum er um fjárfesta að ræða
sem eru tilbúnir að kaupa eign er má kosta allt að kr. 500 millj.
Staðgreiðsla kemur til greína.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
ÞINGFLOKKUR og framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins í steingarðinum við Vagninn á Flateyri.
Framsókn í hjartalaga garði
Flateyri - Þingflokkur og fram-
kvæmdastjórn Framsóknar-
fiokksins var nýverið á ferð um
Vestfirði. Tilgangur fararinnar
var vegna landsfundar framsókn-
armanna á Isafirði.
Á milli þingstarfa notuðu fund-
armenn tækifærið og heimsóttu
firðina. Sól og blíða var þegar
framsóknarmenn renndu í hlað á
Flateyri og tóku hús á vertinum
á Vagninum og þáðu hádegismat.
Að afloknum hádegisverði
brugðu menn sér út í blíðuna
bakatil í nýjum steinlögðum bak-
garði Vagnsins og hlýddu á fyrir-
lestur um sögu Flateyrar. Að því
loknu var stefnan tekin á Þing-
eyri.
Garður þessi sem er nýtilkom-
inn hefur vakið mikla eftirtekt
fyrir útlit sitt, en hann er eins og
hjarta í iaginu og er efnið í stein-
gólfið og steinvegginn sótt víða
um Vestfírði. Hönnun garðsins
var í höndum Björns G. Björns-
sonar hönnuðar og Afrek ehf á
Flateyri sá um vinnuna við garð-
inn. Menn hafa haft það í flimt-
ingum að loks sé kominn kjörinn
staður til að falla á „skeljarnar"
fyrir framan sína heittelskuðu og
bera upp hina eilífu spurningu.