Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rannsókn Swissair-slyssins við Nova Scotia
Hitaskemmdir finnast
á braki úr stjórnklefa
BRAK úr stjómklefa MD 11-þotu
svissneska flugfélagsins Swissair,
sem fórst við Nova Scotia í síðustu
viku, ber merki hitaskemmda. Vic
Gerden, sem hefur yfirumsjón með
rannsókn slyssins, sagðist í gær
ekki vilja geta sér til um ástæður
hitaskemmdanna eða hversu víða
þær væri að fínna í flugvélinni.
Að merki um hitaskemmdir
skyldu hafa fundizt á stjómklefa
vélarinnar hefur að sögn Gerdens
þó aukið mönnum von um að hægt
verði að komast til botns í því hvers
vegna þéttur reykur umlukti flug-
mennina áður en þotan hrapaði í
hafið með þeim afleiðingum að allir
um borð, 229 manns, fórast.
Kafarar em enn að reyna að
heimta hljóðrita vélarinnar upp af
hafsbotni, sem á að geyma upptöku
af samskiptum flugmannanna og
fjarskiptum þeirra við flugumferð-
arstjóra á jörðu niðri. I fyrradag
var birt ítarlegri uppritun á hljóð-
ritun þess sem fór í milli flugmann-
anna og flugtumsins í Mockton í
Nýja Brúnsvíkurríki í Kanada, en
flugumferðarstjórarnir þar beindu
Swissair-þotunni til lendingar á al-
þjóðlega flugvellinum við Halifax á
Nova Scotia.
Meðal þess, sem kemur fram í
skráðum samskiptum flugmanna
Swissair-þotunnar við flugumferð-
arstjóra skömmu áður en vélin
fórst, er að flugmennirnir tilkynntu
að þeir settu upp súrefnisgrímur og
að þeir yrðu að fljúga vélinni hand-
virkt, án aðstoðar sjálfstýringar.
Mikill hluti samtalsins fjallaði um
að koma þotunni yfír auðan sjó þar
sem hægt væri að losa hana við
eldsneyti til að létta hana fyrir
nauðlendingu í Halifax.
Ekki endilega allsherjar
rafmagnsleysi
Frumskoðun á gögnum af flug-
rita þotunnar bendir til þess að bil-
anir hafí orðið í rafkerfí hennar.
Stöðvaðist starfsemi flugritans er
þotan var að lækka sig í um 10.000
feta flughæð. Gerden sagði að þetta
þyrfti ekki endilega að þýða, að
þotan hefði orðið rafmagnslaus með
öllu þvi rafkerfið væri þrefalt og
þannig hannað, að brygðist eitt
þeirra tæki annað við. Hann sagði
að rannsókn á flugritanum benti þó
til þess að ýmis kerfí þotunnar
hefðu verið farin að starfa óeðli-
lega.
Reuters
Skólaúlpur í Spörtu
Norður-
Kórea fagnar
50 ára afmaeli
NORÐUR-Kóreubúar fögnuðu
þvi' í gær að fímmtíu ár voru liðin
frá stofnun ríkisins. í höfuðborg-
inni Pyongyang fór fram til-
komumikil hátíðarathöfn, þar
sem þúsundir hermanna gengu
fylktu liði í skrúðgöngu til heið-
urs Kim Il-sung, forseta landsins
frá stofnun þess til dauðadags ár-
ið 1994. Fyrir skrúðgöngunni fór
prammi með risavaxinni styttu af
Kim. Sonur Kim Il-sungs, Kim
Jong-il, var síðastliðinn laugar-
dag formlega kjörinn leiðtogi
landsins. Forsetaembættið var
hins vegar lagt niður og Kim II-
sung lýstur „forseti að eilífu“.
Kaupin á United
gætu komið
Blair í vanda
London. Reuters.
KAUP BSkyB, fjölmiðlafyrirtæk-
is Ruperts Murdochs, á knatt-
spyrnufélaginu Manchester
United hafa ekki einungis valdið
titringi í bresku knattspyrnu- og
viðskiptalífí. Yfírtakan á
Manchester United er jafnframt
talin hafa pólitísk áhrif og koma
Tony Blair forsætisráðherra í
erfiða stöðu. Fjölmargir fót-
boltaunnendur eru mjög reiðir
yfír kaupum Murdochs á félaginu
en flestir þeirra eru kjósendur
Verkamannaflokksins. Murdoch
hefur hins vegar einnig verið
hallur undir Blair og Verka-
mannaflokkinn á síðustu árum og
ekki talið líklegt að stjórnin vilji
stefna því sambandi í hættu.
Ríkisstjórnin verður á næst-
unni að taka afstöðu til þess,
hvort leyfa eigi yfírtöku BSkyB,
sem Murdoch á 40% hlut í, á
þekktasta knattspyrnufélagi
Bretlands, Manchester United,
sem jafnframt er tekjuhæsta
knattspyrnufélag Evrópu.
Nokkrir kostir
Ríkisstjórnin hefur nokkra
kosti í stöðunni. Hún getur
samþykkt kaupin án nokkurra
athugasemda, hún getur sam-
þykkt kaupin en með skilyrðum
eða þá vísað málinu til sam-
keppnisyfirvalda. Þá yrði gerð
ítarleg rannsókn á kaupunum og
áhrifum þeirra er væntanlega
myndi taka fjóra til fimm mán-
uði. Það sem helst þykir mæla
gegn því að leyfa kaupin er að
BSkyB hefur samið um útsend-
ingarétt frá leikjum ensku
úrvalsdeildarinnar.
Sumir stjórnmálaskýrendur í
Bretlandi eru þeirrar skoðunar
að málið komi stjórninni í bobba
sama hver niðurstaðan verður á
endanum. Verði kaupin sam-
þykkt má búast við að andstæð-
ingar Murdochs og samkeppnis-
aðilar muni saka ríkissljórnina
um að ganga erinda fjölmiðla-
kóngsins.
Verði hins vegar ákveðið að
fresta kaupunum eða skilyrða
þau má telja líklegt að það hafi
slæm áhrif á tengsl Murdochs og
Verkamannaflokksins. Stuðning-
ur fjölmiðlaveldis Murdochs í síð-
ustu kosningum er talinn hafa átt
mikinn þátt í sigri Verkamanna-
flokksins í síðustu kosningum og
þá ekki síst stuðningur síðdegis-
blaðsins The Sun.
Eftir að Blair tók við sem leið-
togi flokksins lagði forysta
Verkamannaflokksins mikla
áherslu á að bæta tengslin við
Murdoch. Er talið að þátttaka
Blairs í ráðstefnu á Hayman-eyju
við Ástralíu árið 1995, sem hald-
in var af fyrirtæki Murdochs,
News Corporation, hafí ýtt undir
sinnaskipti af hálfu Murdochs. í
kosningunum 1997 sneri Sun við
blaðinu en önnur dagblöð Mur-
dochs, The Times, The Sunday
Times og News of the World
voru hins vegar tvístígandi í af-
stöðu sinni.
Blair hefur áfram haldið góð-
um tengslum við Murdoch og
fyrr á árinu sætti hann gagnrýni
eftir að í Ijós kom að hann hefði
m.a. talað máli Murdochs í sam-
ræðum við Romano Prodi, for-
sætisráðherra Italíu. Þá flutti
Gordon Brown ræðu á fundi hjá
News Corporation í Bandaríkjun-
um fyrr á árinu og Tim Allan,
einn nánasti ráðgjafí Blairs,
hætti um svipað leyti störfum á
skrifstofu forsætisráðherrans og
gerðist yfirmaður upplýsinga-
mála hjá BSkyB.
Ekki einhugur
Ekki ríkir þó einhugur innan
Verkamannaflokksins um ágæti
tengslanna við Murdoch. I rit-
stjórnargrein í dagblaðinu The
Guardian í gær segir Hugo
Young að Murdoch hafi hættuleg
áhrif á breskt stjórnmálalíf.
„Tony Blair ætti að spyija sjálfan
sig hvort að það fari ekki að
verða vandræðalegt hversu vil-
hallur hann er Murdoch," segir
Young m.a. Annar dálkahöfund-
ur blaðsins sagði að fullyrðingar
um að kaupin myndu ekki bitna á
fótboltanum og fótboltaunnend-
um væru þær hjákátlegustu frá
því að Munchen-samkomulaginu
var hampað á sínu tíma. Síðdeg-
isblaðið The Mirror birti mynd af
rauðum, liyrndum Murdoch á
forsíðu undir fyrirsögninni
„Rauði skrattinn".
Þá eru margir þingmenn
Verkamannaflokksins ósáttir við
mikil áhrif Murdochs.
Blair sjálfur er sagður hafa
miklar áhyggjur af því að dag-
blöð Murdochs skuli áfram halda
uppi harðri gagnrýni á áformin
um sameiginlegan evrópskan
gjaldmiðil. Fyrr á árinu kom upp
orðrómur í fjölmiðlum um að
Murdoch kynni að láta af and-
stöðu sinni gagnvart sameigin-
Iega gjaldmiðlinum en stuttu
seinna birti Sun mynd af Blair á
forsíðu sinni og spurði í fyrir-
sögn hvort að þar færi „hættu-
legasti maður Bretlands". Var
þetta túlkað sem skilaboð til for-
sætisráðherrans um að hann
gæti ekki gengið að stuðningi
Murdochs vísum.
Blair er milli tveggja elda í
Manchester United-málinu. Hann
er sjálfur mikill fótboltaunnandi
og stuðningsmaður liðs
Newcastle. Nú er hins vegar tal-
in hætta á að fótboltaáhugamenn
reiðist sljórninni fyrir að leyfa
kaupin þar sem að þeir óttast að
í stað þess að geta fylgst með
þeim án endurgjalds í sjónvarpi
verði þeir í framtíðinni að kaupa
aðgang að útsendingum í gegn-
um fjölmiðlaveldi Murdochs.
Malta sækir um á ný
Panda vattúlpa
(á mynd Þórunn)
Litir: Svart, rautt,
kongablátt, gult
Nr. 2 til 12 Verð 4.990
Úlpa Mountain
(á mynd Hilmar og Lárus)
Litir: Svart/grátt,
rautt/blátt, blátt/ljósblátt
Nr. 4 til 14 5.990
Nr. XS-XXL 7.990
ATH. PÓSTSENDUM
Lager útsalan heldur áfram
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Valletta. Reuters.
Á FYRSTA fundi nýrrar ríkisstjórnar
Möltuvar í gær tekin ákvörðun um að
endumýja umsókn landsins um aðild
að Evrópusambandinu (ESB). Um-
sóknin var fyrst lögð inn í júlí 1991, en
ríkisstjóm Alíreds Sants, leiðtoga
Verkamannaflokksins á Möltu, lagði
hana á hOluna þegar hún komst til
valda fyrir tveimur árum.
Sant vék fyrir Eddie Fenech Adami, leiðtoga Þjóðern-
issinnaflokksins, um síðustu helgi eftir að sigur hins síð-
amefnda í þingkosningunum sem þá fóru fram varð ljós.
Guido de Marco, utanríkisráðherra, tilkynnti í gær að
formlegt bréf með ákvörðun ríkisstjórnarinnar yrði taf-
arlaust sent til höfuðstöðva ESB í Brussel.
„Við erum pólitískt staðráðnir í að tryggja ESB-aðild
Möltu eins fljótt og unnt er, og við
munum leggja hart að okkur til að
vinna upp þann tíma sem tapast hefur
síðustu tvö árin,“ tjáði de Marco
fréttamönnum að loknum ríkisstjórn-
arfundinum í Valletta.
Árið 1996 hafði Malta fengið vilyrði
fyrir að teknar yrðu upp viðræður um
ESB-aðild eyjarinnar samtímis því að slíkar viðræður
hæfust við þau ríki önnur, sem metin hefðu verið komast
næst því að uppfylla pólitísk og efnahagsleg skilyrði að-
ildar, en viðræður hófust í marz á þessu ári við Kýpur og
sex ríki Mið- og Austur-Evrópu en ekki Möltu.
Hin nýja stjórn Þjóðernissinnaflokksins hefur heitið
því að væntanlegur samningur um aðild eyjarinnar að
sambandinu verði borinn undir þjóðaratkvæði.