Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 27

Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 27
MORGUNB LAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 27 ERLENT Reuters STÚDENTAR eyðileggja skilti með mynd af B.J. Habibie, forseta Indónesíu, í borginni Surabaya í gær. Mótmæli aukast í Indónesíu Surabaya. Reuters. YFIR 2 þúsund stúdentar og verka- menn höfðu uppi mótmæli í gær er forseti Indóncsíu, B.J. Habibie, heimsótti Surabaya, næst stærstu borg landsins. Fjölmennt lið hers og lögreglu varnaði mótmælendum inngöngu í stjórnsýsluhúsið, þar sem forsetinn átti viðræður við héraðsstjóra Austur-Jövu, en ekki kom til alvarlegra átaka. Þetta eru ein mestu mótmæli sem orðið hafa gegn stjórn Habibies, sem tók við völdum fyrir þremur mánuðum. Mótmælendurn- ir kröfðust þess að Habibie segði af sér ef honum tækist ekki að stöðva gífurlegar verðhækkanir á nauð- synjavörum og koma efnahagi landsins á réttan kjöl. Fylkingar stúdenta lýstu því yfir í gær að að- gerðum yrði haldið áfram. Verð á hrísgrjónum hefur þre- faldast á undanförnu ári í Indó- nesíu. Embættismenn skýrðu frá því að hundruð manna hefðu ráðist inn í vöruhús í gær og stolið hrís- grjónum. Flest vöruhúsanna voru í eigu Kínverja, sem margir hafa notið efnalegrar velgengni f Indó- nesíu, og hafa því oft orðið fyrir barðinu á öfund og ofbeldisverk- um. Alþjóðavinnumálastofnunin varaði nýlega við því að tveir þriðju hlutar indónesísku þjóðar- innar, sem telur 200 milljónir manna, muni lifa undir fátæktar- mörkum við lok næsta árs, takist ekki að reisa við efnahag landsins. Álit Breta á Tony Blair fer þverrandi London. Reuters. Stjarna Tonys Blairs, forsætis- ráðherra Bretlands, er tekin að falla, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem birtist í enska blaðinu Guardian í dag. Hveitibrauðsdögum stjórnar Blairs er í augum þegna hennar lokið og vonsviknir kjósendur líta í auknum mæli á hann sem enn einn stjórn- málamanninn en ekki pólitískt of- urmenni, að sögn Guardian. Samkvæmt könnuninni hefur persónufylgi Blairs farið úr 80% í 60% á rösku ári, sem enn telst þó hátt. Nánustu samstarfsmenn hans munu þó hafa meiri áhyggjur af því hvernig álit almennings á Blair sem heiðarlegum, skilningsríkum og sterkum persónuleika hefur hrunið. f byrjun stjórnartíðar Blairs taldi 21% kjósenda hann hrokafullan en það hlutfall hefur nú aukist í 29%. Nú telja aðeins 42% hann sterkan leiðtoga en 57% í fyrra. Þá finnst aðeins 48% hann hafa skilning á hag almennings samanborið við 65% í fyrra. 40% færri telja Blair heiðarlegri en aðra stjórnmálamenn. í upphafi stjórnartíðar Blairs fyrir 16 mánuðum töldu 54% breskra þegna hann heiðarlegri en aðra stjórnmálamenn, en 40% þeirra sem svöruðu því til hafa skipt um skoðun, því nú telja ein- ungis 34% hann heiðarlegri en aðra stjórnmálamenn. Loks hefur þeim fjölgað úr 50% í 51% sem telja að boðskapur og stefna Blairs séu innihaldslaus. Ashdown á niðurleið og Hague sækir lítt á Könnunin náði einnig til leiðtoga hinna bresku stjórnmálaflokkanna tveggja, sem sæti eiga á þingi. Sam- kvæmt því fellur stjarna Paddys Ashdowns, leiðtoga Frjálslynda flokksins, samkvæmt öllum mæli- kvörðum könnunarinnar. William Hague, leiðtogi íhaldsflokksins, virðist ekki hafa náð augum og eyr- um kjósenda. Þótt hann komi betur út í ölium þáttum könnunarinnar er aukningin aðeins 1-5 prósentustig frá í fyrra. Virðist hann því eiga á brattann að sækja. www.mbl.is NÝR LÚXUSJEPPI Grand Vitara er alvöru jeppi. Sjálfstæð grindin og hátt og lágt drif tryggja að hann kemst þangað sem honum er ætlað að fara. Hann er byggður á traustum grunni Suzuki Vitara, bara enn betur útbúinn, breiðari og glæsilegri. Svo er hann á sérlega ánægjulegu verði: SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Simi 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SUZUKI AFLOG ÖRYGGI FULL FRAME SUZUKl SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 4E2 63 00. Egilsstaðir: Bila- 09 búvélasalan hf„ Miðási 19, slmi 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, slmi 55515 50. Isafjörður: Bllagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bílakringlan, Grðfinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bflasala Suðurlands, Hrismýri 5, slmi 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.