Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 29
LISTIR
Kúnstin er að æfa mjög hægt
Göran Söllscher.
GÖRAN SÖLLSCHER hete
leikið víðsvegar um heim og
fyrir nokkrum árum kom hann
fram á Listahátíð í Reykjavík. Ferill
hans hete' verið einkai- glæsilegur en
á þessu ári eru liðin 20 ár frá því að
hann hlaut alþjóðlega frægð og enn er
engan bilbug á honum að tena.
Söllscher, sem er fæddur á nýár-
snótt árið 1955, kynntist gítamum
mjög ungur því faðfr hans kunni
svolítið fyrir sér í gítarleik. Atta eða
níu ái'a fékk hann sína íyrstu tilsögn á
hljóðfærið en eftfr að hafa farið á
sumamámskeið hjá prófessor Per-
Olof Johnson, þá fjórtán ára gamall,
bauð Johnson honum að koma í
einkatíma til sín. Faðir Söllshers
þurfti að aka með drenginn um 300
km frá Kalmar til Malmö einu sinni í
viku um tveggja ára skeið svo að hann
gæti notið bestu kennslu sem völ var
á. Söllscher tók síðan lokapróf frá
Tónlistarháskólanum í Malmö árið
1977 og frá Tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn árið 1979 og var Per-
Olof Johnson aðalkennai'i hans við
báða skólana. Þegai' Johnson lét
nýverið af stöðu prófessors við háskól-
ann í Malmö tók svo Söllscher við af
honum. Söllscher hefur sagt að John-
son sé sá sem mest áhrif hafí haft á
sig og leitar enn til hans. „Eg var
mjög heppinn að geta hafið svo ungur
nám hjá Per-Olof Johnson. Styi'kur
hans sem kennara er að hann er mjög
mikill tónlistaiTnaðm' og leitar ekki
auðveldustu leiða í gitarleik heldur
stefnfr hann fyrst og fremst að besta
hugsanlega árangi-i tónlistarlega séð.
í starfi mínu við háskólann mun ég
hafa í heiðri þær hefðir sem hann
mótaði. Þrátt íyrh' að ég leggi enn
höfuðáherslu á eigin feiTl hef ég mikla
ánægju af því að kenna og finnst það
gefandi,“ segir Göran Söllscher.
„Sigurinn breytti lífi mínu“
Árið 1978, þá aðeins 23ja ára
gamall, vann Söllscher til fyrstu
Sænski gítarleikarinn
Göran Söllscher kemur
hingað til lands á veg-
um Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar
og spilar á tónleikum í
Seltjarnarneskirkju 12.
september kl. 17 og
heldur námskeið dag-
ana 13.-14. september í
húsnæði skólans að
Engjateigi 1. Rúnar
Þórisson ræddi við
listamanninn og kynnti
sér feril hans.
verðlauna í „Concours international
de la Guitarre“, alþjóðlegri keppni í
klassískum gítarleik í París. Efnileg-
ustu gítarleikarar heims taka jafnan
þátt í henni. Söllscher kveðst ekki
hafa gert sér miklar vonir um vel-
gengni í keppninni og því hafi hann
ekki átt von á að komast í undanúr-
slit. „En eftir að hafa gengið vel að
spila þar sá ég að ég átti möguleika
og að sjálfsögðu varð ég mjög
ánægður þegar úrslitin voru kunn-
gerð. Sigurinn bre.ytti lífi mínu svo
um munaði.“
Útgáfusamningur og
alþjóðlegur ferill
í kjölfai' sigursins fylgdi alþjóð-
legur ferill og útgáfusamningur við
hið virta hljómplötufyrirtæki
Deutsche Grammophone, en á veg-
um þess hefur hann gert fjölmargar
hljóðritanir sem allar hafa fengið
góða dóma og selst vel. Má þar nefna
hljóðritanfr á einleiksverkum eftir J.
S. Baeh og ennft'emur flutning hans
ásamt Orpheus Chamber Orchestra
á gítarkonsertum spænska
tónskáldsins Joaquin Rodrigo,
„Concierto de Ai-anjuez" og
„Fantasia para un gentilhombre“.
Þess má geta að Söllscher var valinn
til að flytja „Concierto de Aranjuez"
í Madrid árið 1991 á hátíðartónleik-
um í tilefni 90 ára afmælis höfundar-
ins. Aðrar hljóðritanir sem vakið
hafa sérstaka athygli er hljóðritun
frá 1993 þar sem hann leikur ásamt
fiðluleikaranum Gil Shaham verk
eftir Paganini. Sú komst á lista yfii'
10 söluhæstu plötumar í Bandaríkj-
unum samkvæmt úttekt Billboard
Magazine á sölu klassískra platna. I
október 1995 kom út geisladiskurinn
„Here, there and everywhere" sem
inniheldur tónlist Bítlanna, útsetta
fyrir einleiksgítar. Diskurinn seldist
mjög vel og var lengi meðal tíu sölu-
hæstu hljómdiska í Svíþjóð. Sama ár
kom einnig út diskur þar sem hann
leikur ásamt franska flautuleikaran-
um Patrick Gallois tónlist eftir
argentíska tangómeist-
arann Astor Piazzolla.
Tónleikar um
allan heini
Ar hvert heldur Gör-
an Söllscher um 50 tón-
leika víðsvegar um heim-
inn. „Mér hefur alltaf
þótt mjög skemmtilegt
að leika á tónleikum.
Þeir geta reyndar verið
mjög misjafnir, það velt-
ur á áheyrendum, salar-
kynnum og fleiru. A tón-
leikum er oft hægt að
taka meiri áhættu en í
hljóðveri þar sem maður
verður að skipuleggja
vinnuna út í ystu æsar.“
Söllscher hefur m.a. leikið á tónleik-
um í Bandaríkjunum, Mexíkó,
Frakklandi, Þýskalandi, Kína, á
Spáni og á Norðurlöndum. Hann fer
reglulega til Japans þar sem hann
dvelur allt að þremur mánuðum í
senn og er undantekningarlaust afar
vel tekið. Þai' hefur hann auk ein-
leikstónleika haldið tónleika með
japanska flautuleikaranum Shigen-
ori Kudo og fiðluleikaranum Gil
Shaham.
Fyrfr fimmtán árum lék Söllscher
á Listahátíð í Reykjavík._„Mér þótti
mjög gaman að koma til Islands. Eg
var þar í viku og það er mér ógleym-
anlegt.“
Samvinna við þekkta listamenn
Söllscher hefur leikið með fjölda
þekktra hljómsveita og tónlistar-
manna, m.a. Royal Philharmonic
Orchestra, English Chamber
Orchestra, Chamber Orchestra of
Europe, Camerata Bern og Japan
Philharmonic auk þekktra
hljómsveita á Norðuriöndum. Hann
hefur unnið með hljómsveitarstjómm
á borð við Claudio Abbado, Rafael
Frubeck de Burgos, Sixten Erling og
Esa-Pekka Salonen. Auk þessa vinn-
ur Söllscher reglulega með blokk-
flautuleikaranum Michala Petri og
flautuleikaranum Manuela Wiesler
sem er Islendingum að góðu kunn.
Með þeim hefur hann haldið fjölda
tónleika í Svíþjóð og Þýskalandi.
Ný efnisskrá á hverju ári
Efnisskrá Söllschers spannar
mjög breitt svið, allt frá endurreisn-
ai'tónlist til vel þekktra gítar-
konserta og samtímaverka. „Ég
reyni að læra nýtt prógram á hverju
ári. Ég hef spilað fjölda verka í
gegnum tíðina og þau læri ég fljótt
utanbókar og gleymi þeim ekki svo
auðveldlega. Þetta er kannski góð
blanda.“
Mörg tónskáld á Norðurlöndum
hafa skrifað fyi'fr Söllseher og til-
einkað honum verk sín. Má þar
nefna Daniel Börtz, Erland von
Koch og Ulrik Neuman en þeir tveir
síðastnefndu hafa báðir skrifað gít-
arkonserta sem Söllscher hefur leik-
ið inn á hljómdiska. „Ég hef mikinn
áhuga á að spila mefra af nýrri tón-
list og þrátt fyrir vissan skort er nú
til mikið af áhugaverðu efni fyrir
hljóðfærið."
Grunnurinn verður að
vera lireinn
Enginn velkist í vafa um að
Söllscher sé meðal bestu gítarleikara
heims. Hann náði ungur alþjóðlegi'i
athygli og hefur haldið henni síðan.
En hver er lykilinn að þessum
árangri og leikstíl hans, sem er svo
tær að helst minnfr á hreinustu og
fegurstu ár íslands? „Ég reyni að
æfa eins hreint og tært og mögulegt
er alveg frá byi’jun, áður en ég vinn
með atriði eins og túlkun og skraut-
nótur. Ég verð að byrja á núllpunkti.
Kúnstin er að æfa mjög hægt þannig
að ég hafi fullkomna stjórn á öllu
sem ég geri, fraseringu, tón, túlkun
og svo framvegis. Ef ég vinn ekki á
þennan hátt verð ég aldrei ánægður
með útkomuna. Þetta er eins og með
málarann sem byrjar með hvítan
striga, ég get ekki byrjað með striga
sem þegar hefur verið málað á.
Grunnurinn verður að vera hreinn.“
Nýjar hljómplötur
Tuttug’u lög eftir
Arna Gunnlaugsson
ÞÚ fagra vor er heiti á hljómplötu
og tónsnældu sem á eru tuttugu lög
eftir Ái-na Gunnlaugsson frá Hafn-
arfirði. Flytjendur eru Elín Osk
Óskarsdóttir, Alda Ingibergsdóttir,
Kjartan Ólafsson, Kristín Sædal
Sigtryggsdóttir, Jóhanna Linpet,
Guðmundur Þór Gíslason, Arni
Gunnlaugsson, Kamma Karlsson og
Atli Guðlaugsson, Kór Bústaða-
kirkju, Carl Möller, Hrönn Geir-
laugsdóttir, Guðni Þ. Guðmunds-
son, Lúðrasveit og Léttsveit Akur-
eyrar.
Á hljómplötunni eru ýmis lög, allt
frá einsöngslögum, sálmalögum,
kórlögum, lúðrasveitartónlist og
léttsveitartónlist, segir í fréttatil-
kynningu.
Hljómplötuna helgar Ái'ni ald-
arminningu móður sinnar,
Snjþlaugar G. Árnadóttur.
Árni Gunnlaugsson stendur sjálf-
ur að útgáfu og sölu hljómplötunn-
ai'. Kynningarverð er 1.500 kr.
Hljóðvinnslu og samsetningu
annaðist Halldór Víkingsson en
Gunnar Þór Halldórsson sá um
hönnun bæklings. Hljómplatan er
framleidd í Salzburg, Austurríki, en
tónsnældan hjá Hljóðrita, Reykja-
vík. Filmuvinnsla var í Prisma
Prentbæ. Kápumynd gerði Bjarni
Jónsson listmálarí.
Systur á
tónleikum á
Ísafírði
SYSTURNAR Rannveig Sif Sig-
urðardóttir sópransöngkona og
Hólmfríður Sigurðardóttir, píanó-
leikari, halda tónleika í sal Grunn-
skóla Isafsjarðar, í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru
sönglög eftir ýmis eldri tónskáld,
s.s. Purcell, Fauré og de Falla, en
einnig eftir ísfirsku tónskáldin
Hjálmar Ragnarsson, Jónas Tómas-
son og Ragnar H. Ragnar. Tónleik-
arnir eru sérstaklega tileinkaðir
minningu Ragnars, en 28. septem-
ber eru liðin 100 ár frá fæðingu
hans.
Rannveig Sif og Hólmfríður eru
fæddar og uppaldar á ísafirði og
hófu báðar tónhstarferil sinn við
Tónlistasrskóla Isafjarðar. Rann-
veig Sif býr nú í Hollandi og syngur
þar og víðar í Evrópu með litlum
sönghópum og barokkhljómsveit-
um, en hún hefur lagt sérstaka
stund á tónlist þessa tíma. Hólm-
fríður hefur víða komið fram sem
einleikari og meðleikari, en á und-
anförnum árum hefur hún aðallega
leikið með söngvurum og starfað við
Söngskólann í Reykjavík.
Tónleikarnir eru á vegum Tón-
listarfélags ísafjarðar.
----------------
Verk úr ís-
lenskri náttúru
í Lóuhreiðri
NÚ stendur yfir sýning í Lóu-
hreiðri, Laugavegi 59, á skreyting-
um úr þurrkuðum trjáberki og
fleiru úr íslenskru náttúru. Verkin
ei'u eftir Báru Ingvarsdóttur. Á
hverja skreytingu er ritaður máls-
háttur.
Verð í lausasölu
499 kr.
álft
Lífið sjálft
Áskrift og dreifing
í síma 544 8070.
Erfitt að velja???
Veldu...lífið sj
3. tbl. tímaritsins er
Tímaritið fæst í öllum
helstu bókaverslunum
landsins, í völdum
verslunum Olís,
Nýkaupa og
Hagkaups og víðar.
Áskriftartilboðið
stendur enn!
Árs áskrift (6 blöð) og bók
að eigin vali —
aðeins kr. 2.000.
komið út.
Merkilegt forsíðuviðtal við
Ingibjörgu Pálmadóttur,
heilbrigðisráðherra.
Gnægtarhorn
grænmetisgarðsins.
Kynferðisleg áreitni kvenna.
Upplýsingar og hjálpargögn um
vistvæna byggð.
Ofvirkni og magakveisur.
Þorgrímur Þráinsson skrifar.
Húna seiðmenning.
Friðarsamtök WPPS.
Ananda Tara Shan á íslandi.
Notaðu heilann til tilbreytingar.
Steinar Berg lítur inná við.
Tantra yogaæfingar.
Dagleg stjörnuspá fyrir
september og október.
...vítamín, yogastaðan,
kristallar, dæmisagan,
myndasaga og
margt margt fleira.