Morgunblaðið - 10.09.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 10.09.1998, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ v36 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 -1 Getur leiði verið hollur? Getur verið að ein ástœða þess hve mörg kjónabönd á Islandi enda með skilnaði sé sú að þegar eitthvað bjátar á eða fólki leiðist kunni það hreinlega ekki almennilega að bregðast við? M ARGT merkilegt og hagnýtt er hægt að læra í skólum. Ymislegt er hins vegar þess eðlis að erfitt er að kenna það af bókum; skóli lífsins er hinn eini sem býður upp á þá menntun sem krafist er á sum- um sviðum. Nú orðið lifir fólk allt af, nema dauðann, að því haldið hefur verið fram. Fólk lifir dauðann að minnsta kosti ekki af líkamlega, - en andlega getur verið erfitt að lifa ýmis- legt annað af. Eitt sem kemur upp í hugann er hjónaskilnaður. Þeim fjölgar VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson víst ört hér- lendis sem ákveða að rjúfa það heit sem gefið er við hjónavígslu, eru satt að segja uggvænlega margir, og ástæða til að velta hugsanlegum orsökum þess lítillega fyrir sér. Sem leikmaður og áhugamaður um mannlíf, vel að merkja, ekki sem fræðimaður. Eitt það sem ómögulegt hlýt- ur að vera að læra af bókum, a.m.k. einum saman, er sú list að takast á við leiðindi. Ymis- legt í heimi hér getur verið lam- andi leiðinlegt og allt of margir sem eiga ei-fitt með að bregðast rétt við. Nú til dags er eins og allir telji til að mynda fátt óholl- ara bömum en þeim leiðist svo mikið sem örskamma stund. „Þeim má ekki einu sinni orðið leiðast á föstudaginn langa ...“ sagði einn kunningja minna við mig í sumar. Hér í eina tíð var föstudagurinn langi opinber dagur iðjuleysis; ekkert var leyfilegt nema að fara í kirkju og ef til vill á skíði. „Nú má krakki ekki láta það uppi að honum leiðist án þess að for- eldrar eða önnur ættmenni rjúki upp til handa og fóta til hjálpar; leigi myndbandsspólu eða útvegi eitthvert annað enn æðra menningarefni," sagði þessi sami kunningi minn. Og ég spurði sjálfan mig að því hvort þetta gæti verið rétt. Kem ég svona fram við börnin mín? Sé svo, er ástæðan auðvitað væntumþykja og ekkert annað. En þegar betur er að gáð er sannleikurinn sá að börn þurfa auðvitað að læra að takast á við það vandamál að þeim leiðist, einsog hvert annað. Sú kunn- átta verður að vera fyrir hendi þegar fólk eldist, og líklega er með þetta einsog annað, að auð- veldast er að læra það á barns- aldrí. Einhvem tíma birti ég hér í blaðinu hugleiðingu þess efnis að ungum íþróttamönnum væri hollt að læra að tapa, ekki síður en fagna sigri. Iþróttamaður sigrar ekki í hverri einustu orr- ustu og verður því að kunna að bregðast við þegar hann lýtur í lægra haldi og best af öllu er að leiðbeinendur í yngi-i flokkum kenni krökkum þá kúnst nógu snemma. Ekki má eyðileggja baráttuandann og keppnisskap- ið; fólk verður að vera tilbúið að berjast í veröldinni en krakkar verða að læra að taka ósigri. Sú skepna er hluti af lífinu; þó fólk tapi má það ekki leggjast í vol- æði heldur koma tvíeflt til næsta leiks. Er ekki rökrétt að öllum sé nauðsynlegt, að sama skapi, að geta brugðist við á réttan hátt þegar hann „tapar“ í daglega lífinu; leiðist, eða mætir annarri þeirri mótspyrnu sem svo oft er staðreynd. Getur verið að þetta sé ein ástæðajiess hve mörg hjónabönd á Islandi enda með skilnaði? Að þegar eitthvað bjátar á kunni fólk hreinlega ekki almennilega að bregðast við og því rofni samböndin í mun fleiri tilfellum en ella hefði orðið. Að hlaupist sé undan ábyrgð, án þess að reynt sé í neinni alvöru að leysa vandann. Tími er eitt þeirra fyrirbæra sem gert geta kraftaverk; „það mikilvægasta sem við getum gefið börnum okkar er tími; okkar eigin tími,“ sagði prestur við skírnarathöfn sem ég var viðstaddur í sumar. Þetta eru mikil sannindi; en því miður sannindi sem of fáir geta praktíserað. Sjaldgæft er að ein fyrirvinna dugi fyrir fjölskyldu, börn fá þar af leiðandi takmark- aðan tíma með foreldrunum, en benda má á að þó tími virðist stundum ekki mikill er hægt að nýta hann vel. Eins er það með hjón; þau verða að gefa sér tíma til að vera saman. Hittist þau aðeins við morgunverðarborðið og síðan aftur seint að kvöldi, er ekki víst að þetta merkilega band endist lengi. Mikilvægast er í því tilfelli, eins og prestur- inn sagði varðandi börnin, að gefa tíma; sinn eigin tíma. Krökkum finnst ekki alltaf gaman í skóla, en allir vita að þeim er hollast að takast á við þau verkefni sem þar er við að glíma. Það gagnast þeim síðar. Það er heldur ekki alltaf gaman hjá krökkum í vinnuskóla; ég man að eitt af „skemmtilegu" verkefnunum á þeim bæ i den tid var að reyta arfa og njóla. Það þótti heldur ekki alltaf gaman að moka flórinn í sveit- inni, a.m.k. ekki fyrstu dagana að vori, en það varð einfaldlega ekki umflúið. Og á endanum var það orðið jafnsjálfsagt og að fara í gúmmískóna áður en farið var í fjósið; varð einn af þessum hversdagslegu hlutum, hvorki leiðinlegum né skemmtilegum, sem hespað var af áður en hægt var að snúa sér að einhverju vinsælla, einsog að leika við hundana. Líf fullorðna fólksins er held- ur ekki eilífur dans á rósum. Því leiðist auðvitað stundum í vinnu og utan hennar, eins og gengur. Flestum finnst lífíð þó sem bet- ur fer oftast yndislegt fyrir- bæri. En fyrirkomulagið á ver- öldinni er hins vegar þannig, sé miðað við reynsluna hingað til, að ekki getur öllum liðið vel alltaf, alls staðar. En það er hægt að vinna sig út úr því. Þegar öllu er á botninn hvolft getur líklega verið rétt, að öll- um sé hollt að leiðast pínulítið annað slagið. Það er örugglega þroskandi að vinna sig út úr þeim vanda. AÐSENDAR GREINAR Norðlingaöldulón - áform og rannsóknir Á ÁRUNUM 1970- 1973 var unnið að áætl- un um virkjunarkosti og miðlanir í Efri- Þjórsá. Var þar gert ráð fyrir allstóru miðl- unarlóni sem sökkt hefði stærstum hluta Þjórsárvera. Kom strax fram veruleg gagnrýni á þessar fyrirætlanir sem leiddi til þess að á árinu 1980 var gerð ný áætlun um virkjanir á Þjórsár-Tungnaársvæð- inu. Þar var lagt til að veita austurkvíslum Þjórsár og efstu upp- takakvíslum árinnar til Þórisvatns um skurði og vötn, svokallaða Kvíslaveitu, sem unnið var að á árunum 1981-1985 og 1996-1997. Með því móti reyndist hægt að nýta Efri-Þjórsá til orku- framleiðslu með hagkvæmum hætti án þess að stór hluti Þjórsárvera færi undir vatn. Með Kvíslaveitu var talið að miðlunarþörf í Efri-Þjórsá við Norðlingaöldu mundi minnka það mikið að aðeins vatnaði inn á neðsta hluta veranna (581 m y.s.). Sam- komulag var gert við Náttúruvemd- arráð um þessa áætlun og einnig var samið um að Landsvirkjun kostaði rannsóknir á því hvort slík lóns- myndun væri framkvæmanleg án þess að náttúruverndargildi Þjórsár- vera rýrnaði óhæfilega. I kjölfar þessa samkomulags voru Þjórsárver friðlýst með reglugerð árið 1981 og í auglýsingu menntamálaráðuneytis- ins um friðlýsingu veranna segir m.a. um Norðlingaöldulón: „Ennfremur mun Náttúravernd- arráð fyrir sitt leyti veita Lands- virkjun undanþágu frá friðlýsingu þessari til að gera uppistöðulón með stíflu við Norðlingaöldu í allt að 581 m y.s., enda sýni rannsóknir að slík lónsmyndun sé framkvæmanleg án þess að náttúruverndargildi Þjórsár- vera rýi-ni óhæfilega að mati Nátt- úruverndarráðs.“ Komið var á fót ráðgjafarnefnd Landsvirkjunar, N áttúruverndar- ráðs og þeiira sveitarstjórna sem hagsmuna áttu að gæta á svæðinu til að annast framangreindar rannsókn- ir. Gengur þessi nefnd undir nafninu Þjórsáiveranefnd. Liður í rannsókn- unum var samningur sem undirritað- ur var hinn 1. mars 1981 milli Lands- virkjunar og Líffræðistofnunar Há- skólans um rannsóknir í Þjórsárver- um. Markmið þeirra var m.a. að kanna áhrif vatnsstöðubreytmga á svæðinu á gróður og jarðveg og finna leiðir til að draga úr óæskileg- um áhrifum miðlunarlóns. Þóra El- len Þórhallsdóttir prófessor annaðist og stjórnaði þessum rannsóknum sem stóðu samfellt yfir á árabilinu 1981-1991. Líffræðistofnun skilaði lokaskýrslu _um rann- sóknirnar „Áhrif miðl- unarlóns á gróður og jarðveg í Þjórsárver- um“ í maí 1994. I niðurstöðum skýrsl- unnar er fjallað um um- hverfisáhrif miðlunar- lóns, þ.á m. áhrif á sífrera veranna og jarð- vatnsstöðu, strand- myndun og hugsanleg- an uppblástur úr lóni. Einnig er þar fjallað um aðgerðir sem gætu dregið úr óæskilegum áhrifum lónsins og gerðar tillögur um frekari rannsókn- ir vegna fyrirhugaðs miðlunarlóns. Loks eru gerðar tillögur að rann- sóknum eftir myndun hugsanlegs miðlunarlóns við Norðlingaöldu. í grein Elínar Pálmadóttur blaða- Rannsóknir Lands- virkjunar hafa beinst að því, segir Halldór Jónatansson, að finna leið til að nýta orku- lindir þjóðarinnar á Þjórsársvæðinu á sem hagkvæmastan hátt og í sem mestri sátt við umhverfið. manns í Morgunblaðinu 2. septem- ber sl. gætir þess misskilnings að miðlunarlón við Norðlingaöldu hafi ekki verið hluti af samkomulagi Náttúruverndarráðs og Landsvirkj- unar frá 1981 þó svo að ákveðnir fyr- irvarar hafi verið settir í friðlýsing- arákvæðin eins og að ofan greinir. Hið rétta er að meginhluti rann- sókna Líffræðistofnunar beindist, eins og Þjórsárveranefnd ætlaðist til, að því hvort verndargildi veranna væri í hasttu af völdum Norðlinga- öldulóns. í skýrslu Þóru Ellenar er hvergi staðhæft að verndargildi ver- anna rýrni óhæfilega með tilkomu lónsins. Jafnframt bendir hún á margvísleg atriði sem kunna að hafa ýmist neikvæð eða jákvæð áhrif á líf- ríki Þjórsárvera. Einnig setur hún fram tilgátur um hættu á uppblæstri við strandlínu lónsins og öldurofi sem þurfi að skoða nánar. Frá því að skýrsla Líffræðistofn- unar kom út hefur Landsvirkjun unnið að rannsóknum á þessum þátt- um og fjölmörgu öðru er snertir um- hverfisáhrif Norðlingaöldulóns. Með gildistöku laga um mat á umhverfis- áhrifum árið 1994 varð ljóst að fram þyrfti að fara mat á umhverfisáhrif- um lónsins. Rannsóknir og skýrsla Líffræðistofnunar er vitaskuld einn veigamesti gi’unnurinn að slíku mati. Að auki hafa 20-25 sérfræðingar unnið að rannsóknum og greinar- gerðum vegna matsins og er þess að vænta að frummat á umhverfisáhrif- um Norðlingaölduveitu verði lagt fram um næstu áramót. I viðtali við Gísla Má Gíslason, prófessor og formann Þjórsái’vera- nefndar, í Morgunblaðinu 29. júlí sl. voru höfð eftir honum eftirfarandi ummæli um þetta rannsóknarstarf Landsvirkjunar. „Mér finnst það dónaskapur hjá Landsvirkjun að eft- ir að hafa kostað tíu ára rannsóknir sem þeir véfengja ekki eru þeir samt að leita til fólks, oft á tíðum með miklu minni menntun en Þóra, til að reyna að fá fram annað álit. Þetta sýnir að mörgu leyti hvernig þeir starfa." Staðreyndin er sú að Lands- virkjun hefur ekki sýnt Þóru Ellen meiri dónaskap en það að taka alvar- lega tilgátur hennar um hættu á öldurofi og uppblæstri og þess vegna hafið rannsóknir á því hvort þær standist og hvernig best sé að fyiir- byggja slíka hugsanlega röskun af völdum lónsins. Með þeim viðbótar- rannsóknum sem Gísli vísar hér til er því síður en svo verið að leitast við að hnekkja niðurstöðum Þóru Ellen- ar, hvað þá að kasta rýrð á rann- sóknir hennar, heldur að auka þekk- ingarforðann til að öðlast skýi-ari heildarmynd. Að lokum ber að leiðrétta þann misskilning Elínai’ Pálmadóttur að Norðlingaöldumiðlun tengist beinlín- is byggingu Vatnsfellsvirkjunar. Norðlingaöldumiðlun hefur allt frá 1981 verið hugsuð sem sjálfstæð miðlun fyrii’ virkjun í Efri-Þjórsá en Vatnsfellsvirkjun var upphaflega hönnuð fyrir núverandi rennsli um Þórisvatn. Á árinu 1994 var hætt við sérstaka virkjun í farvegi Efri-Þjórs- ái- enda bæði hagkvæmara og um- hverfisvænna að miðla úr Norðlinga- öldulóni til Þórisvatns. Með því móti nýtist vatnið frá Norðlingaöldulóni ekki aðeins Vatnsfellsvirkjun heldur einnig öllum öðrum virkjunum í Þjórsá og Tungnaá. Eins og sjá má af framangreindu hafa rannsóknir Landsvh’kjunar á undanförnum áratugum beinst að því að finna leið til að nýta orkulindir þjóðaiúnnar á Þjórsársvæðinu á sem hagkvæmastan hátt og í sem mestri sátt við umhverfið. Höfundur er forstjóri Lands- virkjunar. Halldór Jónatansson Vísir að skóla- gjöldum í Garðabæ MIKLAR breytingar era að verða á ytri um- gjörð skólastarfs, eftir að sveitarfélögin tóku við rekstri grannskól- ans. Þessar breytingar eru m.a. fólgnar í ein- setningu, lengingu skóladags í áfóngum og tilraunum til tengingar skóla og tómstunda- starfs barnanna. Allt er þetta liður í því að koma til móts við samfélags- gerð nútímans með því að „vinnutími“ barna og unglinga í skólum falli sem næst vinnutíma for- eldranna, ásamt kröf- unni um aukna menntun á grannskólastigi. Bæjarstjóm Garðabæjar hefm’ samþykkt starf- rækslu tómstundaheimilis í tengslum við gi-unnskóla á yngra stigi í bænum. Þar er boðið upp á leik og starf gegn gjaldi frá því að skóla lýkur um kl. 14 til kl. 17. Það grunngjald sem innheimt verður fyrir alla þrjá tímana, fimm daga vikunnar verður 9.900 krónur á mánuði. Gjaldið hækkar eftir því hvað nemendur taka þátt í mörgum námskeiðum sem í boði era s.s. íþróttum, dansi og skák svo eitthvað sé nefnt. Einn er sá liður í starfi tómstundaheimil- isins sem ónefndur er, en það er aðstoð kenn- ara við heimanám sem börnunum stendur til boða. Þar verða foreldr- ar rukkaðir um 200 krónur fyrir hverja klukkustund. Fari svo að nemandi læri „heima“ undir handleiðslu kennara þrisvar í viku kostar það foreldrana um 17.000 krónur allt skólaárið. I eðli sínu er ekki mikill munur á Einar Sveinbjörnsson aðstoð kennara við lausn heimaverk- efna í tómstundaheimilinu og venju- legri kennslu. Því má með sanni segja að foreldrar séu í raun að kaupa viðbótarkennslu fyi’h’ börn sín. Þessi braut, sem nú hefur verið vörðuð af Ingimundi Sigurpálssyni bæjarstjóra og hans liðsmönnum í Sjálfstæðisflokknum, er að mínu mati brot á almennri jafnræðisreglu. Möguleikar til náms eiga að vera Því má með sanni halda fram, segir Einar Sveinbjörnsson, að for- eldrar séu í raun að kaupa viðbótarkennslu fyrir börn sín. sem jafnastir, m.a. óháðir fjárhags- getu foreldra. I Garðaskóla, sem starfar á ung- lingastigi (7.-10. bekkur), hefur heimanám undir handleiðslu kenn- ara lengi verið hluti skólahalds og það vitanlega án þess að sérstök greiðsla komi fyrir. Því er einnig verið að innleiða misræmi eftir skólastigum í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.