Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 37

Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 37
f MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 37 S AÐSENDAR GREINAR Deilan um varð- veislu sjúkraskráa FORSÆTISRAÐHERRA lét lækna heyra það, eins og frægt er orðið, um slaka varðveislu sjúkra- skráa síðustu ár og áratugi. Pær væru á glámbekk út um allt. Skyndi- könnun landlæknis á sjúkrahúsum virtist staðfesta gagnrýni ráð- herrans og vel það. Fréttir í fjölmiðlum bættu svo um betur á næsta reyfaralegan hátt. Og viti menn! Guð- mundur Björnsson, for- maður Læknafélagsins, hefur viðurkennt að geymsla skránna mætti vera betri (hádegisfrétt- ir RÚV 27. ág.). Þá bíð- um við auðvitað í ofvæni eftir auðmjúklegri af- sökunarbeiðni stjórnar Læknafélagsins til sjúk- linga f.yrir þann afleita trassaskap. Sigurður Þór Guðjónsson Annars er þetta vægast sagt ein- kennileg umræða. Sú svakalega mynd sem forsætisráðherra dró upp hefur árum saman verið á margra vitorði. Ég þekki til dæmis ræstinga- menn sem fyrir nokkrum árum skemmtu sér í skúringapásum í stóru skjalageymslunum á Lansan- um við að lesa krassandi sjúkra- skýrslur um sjálfa sig og nokkra ættingja sína og vini. Þeir kunnu nú ekki beint við að lesa skrámar um Davíð Oddsson eða önnur spennandi keis. En þeim var það í lófa lagið því þarna voru allar „læstar hirslur" opnai- upp á víða gátt. Um þetta og ýmsan annan óskunda í varðveislu sjúkraskráa var ég að skrifa fyrir heilum áratug í Mogganum. Ég sagði til dæmis frá því er ég einn mjög vondan veðurdag gekk fram á sjúkraski-á eina ofur mikla og þykka er lá si sona á afgreiðsluborði land- læknisembættisins stimpluð sem harðsvírað „trúnaðarmál“. Og hún tók sig þar alveg einstaklega freist- andi út. Ég mátti taka á honum stóra mínum til að stinga ekki á mig hinum óttalega leyndardómi og ganga með hann þegjandi og hljóðalaust út á Laugaveginn. Þá væri landlæknir enn að spá í hver andskotinn hefði eiginlega orðið af sjúkraskránni hennar „Gunnu vitlausu". Þessa sögu sagði ég í Morgunblaðinu 10. maí 1988 og það skrifaði ekki yfir sig hneykslaðan leiðara um málið eins það gerði vegna könnunar landlækn- is á varðveislu sjúkraskráa í kjölfarið á ræðu forsætisráðherra. Þó hafði verið nokkur umræða um vonda varðveislu skránna í blaðinu næstu vikur á undan. Og þá, eins og nú, vissi Davíð Oddsson, er þá var borg- arstjóri, um það hirðuleysi eins vel og ég og ýmsir fleiri. En hann gerði ekkert í málinu. Það hefði ekki farið Misræmið tíðkast reyndar víðar ef gi-annt er skoðað. Hið háa gjald fyrir veru barna í tómstundaheimilinu, er ætlað til þess að standa straum af nærfellt öllum kostnaði við rekstur þess og þar með töldum launakostn- aði starfsfólks. Bæjaryfirvöld ætla því að kosta sem minnstu til þessar- ar félags- og tómstundastarfsemi skólabarna. Ef Ingimundur, oddviti meirihlutans, ætlaði nú að vera sam- kvæmur sjálfum sér myndi hann vís- ast einnig hætta að greiða til félags- starfs unglinga í Garðalundi og eins yrði hætt að niðurgreiða aðgangs- eyri sundlaugar. Og þá yrði einnig tómstundastai-f aldraðra að standa undir sér og íþróttastarfsemi barna og unglinga á vegum Stjörnunnar nyti engra styrkja og áfram mætti telja. Þær eru um margt skrýtnar ákvarðanirnar sem teknar hafa verið í Garðabænum á þessu nýbyrjaða kjörtímabili. Ég hvet foreldra grunnskólabarna 1 Garðabæ til að halda vöku sinni og reyna af öllum mætti að fá hina fjóra fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins til að afnema síðustu gjöminga sína í skólamálum. framhjá neinum ef hann hefði lyft litla fingri, ég tala nú ekki um ef hann hefði fórnað báðum höndum. A þeim tíma var réttur sjúklinga til að sjúkraskýrslur þeirra væru ekki á glámbekk honum og ritstjórum Morgun- blaðsins ekki svo hjart- fólginn að þeim þætti ástæða til að æsa sig upp úr öllu valdi. Þeim var svo sem sama. Þótt það sé fjarri mér að ætla fólki „annarlegar hvatir“ eða sérstakan óheiðarleika þegar deilt er um hitamál eins og gagnagrunninn á heil- brigðissviði með þeim vopnum sem talin eru duga liggur það í aug- um uppi að áhugi for- sætisráðherrans og Morgunblaðsins einmitt núna á öruggri sjúkraskráa vitnar ekki varðveislu um sérlega virkan og vakandi áhuga á réttindum sjúklinga sem sjálfstæð- um mannréttindum. Hér liggur allt annað undir steini. Það hentar mjög vel um þessar mundir að taka upp þessa gagnrýni, ekki síst vegna þess að hún er svo skrambi sönn, tU að skerpa front í átakamáli gegn öðrum íronti þar sem tekist er á um allt aðra hagsmuni en þessi tilteknu rétt- indi sjúklinga. Þessari hernaðarlist er ætlað að þyngja rökin fyrir nauð- syn miðlægs gagnagrunns á heil- brigðissviði og gera þau meira sann- færandi, en veikja að sama skapi andstöðu gegn honum, en hún hefur aðallega komið fi’á læknum. Gera þá jafnvel dáh'tið tortryggilega. Og þeir liggja að mörgu leyti vel við höggi, enda er það árátta þeirra að beita „rétti sjúklinga“ sí og æ fyrir sig sem vopni til að styrkja völd sín og áhrif. Auðvitað er valdabarátta í læknaheiminum hluti af deilunum um gagnagrunninn. Ekki tjóir að neita því. En vitanlega eru það ekki þungvæg rök fyrir mikilvægi gagna- grunns, þótt varðveislu sjúkraskráa sé ábótavant, þó ekki væri nema þess vegna að þær skýrslur sem um er rætt verða áfram í notkun í upp- runalegri mynd, þótt upplýsingar úr þeim verði settar í grunninn. Sorgarsagan í málinu er hins veg- ar sú hve réttur sjúklinga hefur ver- ið og er enn léttvægur fundinn á eig- in forsendum, án tengsla við stór- kostlega og margháttaða aðra hags- muni. Uppákoman vegna ræðu Da- víðs Oddssonar ber því glöggt vitni. Og ekki má gleyma því að „réttindi sjúklinga" eru ekki réttindi einhvers Sorgarsagan í málinu er hins vegar sú, segir Sigurður Þór Guðjóns- son, hve réttur sjúk- linga hefur verið og er enn léttvægur fundinn á eigin forsendum. fámenns og afmarkaðs hóps manna. Þvert á móti eru þau almenn mann- réttindi hvers þjóðfélagsþegns frá vöggu til grafar þegar hann ratar í sérstakar aðstæður í lífinu. Áhuga- leysið um mikilvægi þessara réttinda á eigin forsendum sýnir því jafn- framt sinnuleysi um verðmæti mannréttinda yfirleitt. Það er verst af öllu. En ekkert af þessu breytir því að hugmyndin um gagnagrunn- inn er einhver mesta og flóknasta áskorun sem upp hefur komið til að íhuga mannréttindi og mannhelgi á Islandi. Höfundur er rithöfundur. LANCOME fíouge Haust- og vetrarlitirnir ’98 - ’99 Komið, sjáið og prófið... ....glimmer, mattir, blautir og þurrir. Allt er fáanlegt og allt er leyfilegt.Tískan verður rauð, meira logandi, frjálsari og kvenlegri en áður. Kynning fimmtudag, föstudag og laugardag. Viðskiptavinir fá óvaentan glaðning. www.lancome.com T HY@IA Kringlunni, s. 5334533 Laugavegi 23, s. 511 4533 Austurstrseti 16, s. 511 4511 Það lendír a morgim ♦ ♦ ♦ ♦ Höfundur er bæjnrfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.