Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 39
AÐSENDAR GREINAR
Af hæfni kennara
MORGUNBLAÐIÐ hefur að
undanförnu gert kennaramenntun
að umtalsefni og fagnar því nú síð-
ast í leiðara sínum, að nýjar áhersl-
ur skyldu verða teknar upp varð-
andi hana. Hér er átt
við, að dregið verði úr
vægi uppeldis- og
kennslufræða en aukin
áhei-sla lögð á sjálfar
kennslugreinarnar, þ.e.
fagið sem tilvonandi
kennari kennir í skóla.
Blaðið bendir á, að
þriggja ára nám grunn-
skólakennara er metið
til 90 eininga, en af
þessum fjölda hefur
kennari, sem velur til
dæmis stærðfræði að
sérgrein, einungis 12,5
einingar í því -fagi.
Þetta er skelfilega lítil-
fjörlegt, enda hefur
umfjöllunin undanfarna
mánuði gengið út á það, að lélegur
námsárangur íslenski-a barna í
raungi-einum sé að hluta til sökum
skorts á hæfum kennurum. Sjálf
þyrði ég aldrei að fara að kenna fag
sem ég hefði ekki fleiri en 12,5 ein-
ingar í, ef ég hefði ekki aflað mér
aukaþekkingar annars staðar frá.
Eg get þó ekki verið samþykk
þeim ályktunum, sem dregnar hafa
verið af þessum staðreyndum. Til að
fjölga kennurum með meiri sér-
þekkingu í sjálfum kennslugreinum
hefur ráðuneytið ákveðið að draga
úr kröfum þeirra kennarakandídata,
sem koma úr háskóla. Þannig þurfa
þeir ekki að ljúka fleiri en 15 eining-
um eða eins misseris námi í uppeld-
is- og kennslufræðum, í staðinn fyr-
ir 30 áður. Það er af sem áður var,
má ef til vill segja, því ekki eru tíu
ár liðin frá því að íhugað var að
breyta þessu námi þannig að kenn-
arakandídatar yi'ðu að ljúka 60 ein-
ingum eða tveggja ára námi í upp-
eldis- og kennslufræðum. Svona
geta (skóla)pólitískir vindar blásið í
mismunandi áttir.
Þeir kennarar sem útskrifast úr
Kennaraháskóla íslands hafa allvíð-
tækt nám í uppeldisfræðum að baki.
En á að draga úr því? Það er vert að
benda á, að ef kennaranám hér á
landi væri jafnlangt og t.d. í Dan-
mörku, fjögur ár, þá væri möguleiki
á að bæta 30 einingum í sérgreina-
nám, þannig áð stærðfræðikennar-
inn hefði 42,5 einingar í staðinn fyr-
ir 12,5 í sérgrein sinni - án þess að
skerða hlut uppeldisfræða.
En af hverju er það mikilvægt
fyrir tilvonandi kennara að vera vel
að sér í uppeldisfræðum? Því er
auðsvarað:
Vegna þess að kennarastarfíð er
meira en bara miðlun þekkingar.
Séi'staklega í grunnskóla er það í
jafnmiklum mæli uppeldisstarf. Þó
að erfðir og heimili barna hafí mest
áhrif á sjálfsmynd þeiiTa og þroska
getur góður kennari leikið afgerandi
hlutverk í lífi margra þeirra.
í nútímaþjóðfélagi, þar sem mörg
börn á skólaaJdri virðast beinlínis
ganga sjálfala á götunum og hafa
lítil samskipti við fullorðið fólk, ann-
að en kennara sinn, er sú fyrirmynd
sem góður kennari veitir ennþá
mikilvægari. Áhrifa hans gætir jafn-
vel á fullorðinsárum og hann getur
gefíð gott veganesti fyrir alla ævi.
Að sama skapi getur óhæfur kenn-
ari eyðilagt jafnmikið.
Þegar grunnskólaböm nútímans
eyða löngum stundum fyrir framan
sjónvaipið og horfa á ofbeldismynd-
ir er enn brýnna, að skólinn og
kennarinn séu í stakk búnir að fylla
í þessa eyðu sem annars myndast.
Obeint geta kennarar haft áhrif á
viðhorf barna til lífsins, gildismat
þeirra svo og framtíðarvinnubrögð.
Með hegðun sinni get-
ur kennarinn innprent-
að það samsJdpta-
munstur hjá nemanda
sínum, sem hann telur
æskilegt fyrir heil-
steyptan einstakling.
Þess vegna, þegar
við tölum um „hæfan“
kennara, eigum við
ekki að tala einungis
um hæfan í lagaskiln-
ingi, heldur i þeirri
merkingu sem fjallað
var um hér að framan.
Góðum kennara þyk-
ir vænt um nemendur
Marjatta sína og hlutverk sitt
ísberg sem fræðara. Hann
leitast sífellt við að
auka þekkingu sína og finna nýjar
leiðir til að mæta þörfum bamsins
og samfélagsins um leið.
I erindisbréfi kennara, sem ég
Kennarastarfið er mik-
ið uppeldisstarf, segir
Marjatta fsberg. Því er
mikilvægt að kennarar
séu vel að sér í uppeld-
isfræðum.
fékk í hendurnar við útslcrift mína
fyrir mýmörgum ámm, var fyrsta
málsgrein svohljóðandi:
„Kennara ber að vera nemendum
sínum til fyrirmyndar." Mér fínnst
þessi málsgrein enn hafa fullt gildi,
þó að allt umhverfí okkar hafi gjör-
breyst á árunum sem liðin era síðan.
Þess vegna væri nær, að í staðinn
fyrir að draga úr námi í uppeldis- og
kennslufræðum yrði öllum væntan-
legum kennaranemum skylt að fara
í sálfræðilegt hæfnispróf. Enn frem-
ur, að öllum kennurum yrði tryggð
regluleg framhalds- og endur-
menntun á kostnað vinnuveitenda,
líkt og er í samningum margi-a ann-
arra stétta.
Höfundur er kennari og þriggja
barna móðir.
ara
verslunarinnar
, Hjörtur Nielsen
veitum við 20-45 % afslátt
dagana 10.-13. september.
liimntud. 10.00-18.00
Foslud. 10.00-18.30
Laugard. 10.00-18.00
Sunnud. 12.00-18.00
Bláu húsin við Faxafcn ♦ Suðurlandsbraut 52 ♦ sími 5536622
Skiptir besta verðið máli? - Þegar bragðgæðin og besta verðið fylgjast að er vaiið engin spurning!
10 góðir
saman
Bestu
kaupin!
Á10
góðum
stöðum
PUTéner
jféttUT'
i
Upplýsingasíða á Internetinu: http://come.to/gilde.info
Akureyri, Borgarnes, Egilsstaðir, Eiðistorg, Hannover, Holtagarðar, (safjörður, Mjódd, Seifoss, Stuðlaháls