Morgunblaðið - 10.09.1998, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLEIFUR
RUNÓLFSSON
+ ísleifur Runólfs-
son fæddist 24.
apríl 1927 á Kornsá
í Vatnsdal, Austur-
Húnavatnssýslu.
Hann lést í Land-
spítalanum að
kvöldi 2. september
síðastliðins. For-
eldrar hans voru
Alma Alvilda Anna
Jóhannsdóttir Möll-
er, f. 1.5. 1890, d.
5.7.
ur
19.1. 1887, d. 7.8.
1963. Systkini hans
voru: 1) Álfhildur, f. 21.5. 1915,
d. 22.11. 1981. 2) Birgir, f. 2.1.
1917, d. 5.5. 1970. 3) Jóhann Ge-
org, f. 2.2. 1920, d. 11.1. 1947. 4)
Ingunn, f. 7.9. 1921, d. 22.5.
1990. 5) Ásgerður, f. 26 7. 1924,
d. 15.1. 1993. 6) Þormóður, f.
9.10. 1931, d. 30.8. 1977. Hálf-
systur hans samfeðra eru:
Hulda, f. 6.4. 1915, Guðrún Ár-
dís, f. 17.5. 1950 og Árdís, f.
21.5. 1947, d. 23.7. 1950.
ísleifur kvæntist 10. maí 1952
eftirlifandi konu sinni Ólafíu
Sigríði Guðbergsdóttir, f. 4.12.
1931, Börn þeirra eru 1) Steinar
Berg, f. 21.7. 1952, maki Ingi-
björg Pálsdóttur. Börn þeirra:
Páll Arnar, Alma og Dagný. 2)
Ólafur, f. 28.8. 1953, fv. maki
Sigríður Rósa Finnbogadóttir.
Börn þeirra: Sig-
valdi Búi Þórarin-
son, Finnbogi Már,
Ollý Björk og Eydís
Björk. Nv. sambýl-
iskona Helga
Guðrún Eiríksdótt-
ir. Barn þeirra:
Krislján Theodór
Sigurðsson. 3)
Alma, f. 21.11. 1954,
maki Þór Hreiðars-
son. Börn þeirra: Is-
leifur Birgir Þór-
hallsson, Þór Tjörvi
og Davíð (d. 23. maí
1982). 4) Guðberg-
ur, f. 11.11. 1960, maki Halla
Hauksdóttir. Börn þeirra:
Þórunn Ella Pálsdóttir, Ágúst
Snorri, Pétur Andri, Tómas
Haukur, Þyrí Ásta, María (d.
19.3. 1993) og Markús (d. 23.3.
1993). Isleifur stundaði nám við
Reykjaskóla í Hrútarfirði. Hann
starfaði í upphafi starfsævi
sinnar við fjölbreytt störf m.a.
sem sjómaður. Hann var fram-
kvæmdastjóri Vöruflutninga-
miðstöðvarinnar hf. árið
1961-1975, átti svo og rak fyrir-
tækið Iðnverk hf. til ársins
1989. Seinustu árin starfaði
hann sem vaktmaður hjá Pósti
og sima.
Útför ísleifs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Hann pabbi minn er dáinn. Eftir-
sjá og harmur hefur hellst yfir huga
minn og í hjarta mínu hefur sorgin
knúið dyra því ástkært líf hefur
glatast. Vitund mín veit samt að
engu er hægt að glata, þvi mun
brátt rofa til á ný. Sá neisti Guðs
sem lýsti upp sálu pabba míns hefur
nú samlagast Ijósi heimsins, okkur
sjálfum og mun því áfram lifa í
hjörtum okkar, fjölskyldu og ást-
vina hans.
Sjúkrasaga pabba míns er eins og
leiftur nú þegar hugsað er til baka.
Hann hafði greinst með krabba-
mein í þvagblöðru skömmu fyrir 71.
afmælisdag sinn í apríl síðastliðnn.
Sú greining var þannig að góðar lík-
ur voru taldar á að geislameðferð
leiddi til bata. Allt virtist ganga vel
þar til að hann veiktist skömmu eft-
ir að meðferðinni lauk. Þau veikindi
' voru þó talin tímabundin og ekki
stafa af meininu heldur með-
> ferðinni. Annað kom í ljós. Eins og
hamarshögg kom sú frétt að illvígt
meinið hafði öllum að óvörum komið
sér fyrir í lungum og að enginn
mannlegur máttur gæti ráðið við
það. Jafnvel þá gat engum dottið í
hug að vikurnar sem eftir væru
yrðu ekki nema rúmlega þrjár.
Þegar ég hugsa tii baka um sam-
band mitt við pabba minn á ég ein-
göngu góðar minningar. Hann var
drengur góður, sem hjálpaði mér
þegar ég þurfti á því að halda. Eg
minnist t.d. haustdaganna fyrir
réttum tuttugu og þrem árum. Ég
hafði hafíð útgáfustarfssemi á ís-
lenskum hljómplötum og var í
nokkru reiðileysi með starfsemina
og sjálfan mig. Hann rýmdi til á
skrifstofu sinni í Iðnverki hf. og út-
vegaði mér þá aðstöðu sem ég
þurfti til að fara í gegnum þessi
fyrstu útgáfujól mín. Þessi stuðn-
ingur var ómetanlegur og hefur
vafalaust ráðið miklu um lífshlaup
mitt.
Það var með tilhlökkun sem við
horfðum til ævikvölds hans. Hann
var vel á sig kominn og ljóst að eftir
að starfsævinni lauk og um hægðist
sköpuðust auknir möguleikar á
samvistum og útiveru. Því fór hann
oft með okkur bræðrum og tengda-
syni í veiðiferðir á síðasta ári og
LEGSTEINAR t Marmari
Islensk framleiðsla Granít
Vönduð vinna, gott verð Blágrýti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1
sími 5871960, fax 5871986 1
é
LEGSTEINAR
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
ÍB S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
hafði hlakkað mikið til sumarsins og
haustsins í ár. En ekki varð af
ferðunum þeim og fyrir honum átti
eftir að liggja annað og óvæntara
ferðalag.
Ég byrja reisu mín,
Jesú, í nafni þín,
hönd þín helg mig leiði,
úr hættu allri greiði,
Jesús mér fylgi í friði
með fógru englaliði.
(Hallgr. Pét.)
Það veit enginn nema sá sem
reynt hefur hvernig það er að fá úr-
skurð um að vera dauðvona. Hann
pabbi minn bar sig samt vel, var
sáttur við líf sitt og vildi miklu
fremur ræða um velferð mömmu og
okkar hinna að sér gengnum. Tvö
okkar systkyna voru stödd erlendis
þegar okkur bárust þær fregnir að
hann hefði veikst heiftarlega aðeins
nokkrum dögum eftir að hann hafði
fengið að fara heim af sjúkrahúsinu.
Af einskærum styrk hélt hann í líf-
sneistann þar til við komum til baka
sólarhring síðar. Þannig gaf hann
okkur börnum sínum, mökum okkar
og mömmu tækifæri á því að dvelja
með sér síðasta kvöldið í lífi sínu. Sú
stund mun aldrei líða okkur úr
minni. Hún var átakanleg en um
leið friðsæl.' Hann gaf upp andann í
fullri sátt og vissu um sterk fjöl-
skyldubönd, sem hann hafði reynd-
ar bundið enn traustari hnútum
með hetjulegri baráttu sinni og
æðruleysi á ögurstund.
Fyrir því er sá maður vitur sem
þjáist. Við, fjölskylda mín munum
láta þá þjáningarfullu reynslu sem
veikindi pabba hafa verið, verða til
þess að efla visku okkar. Viska er
hvorki orð né spakmæli heldur
útsýn á andartaki reynslunnar.
Þessi lærdómur reynslunnar mun
því styrkja okkur öll. Þannig hefði
hann líka viljað hafa það.
Hvíl þú í friði, elsku pabbi minn.
Steinar.
Kæri pabbi. Ég vil þakka þér fyr-
ir samfylgdina í gegnum lífíð. Ég vil
þakka þér fyrir að hafa alltaf elskað
mig og fyrir að standa alltaf þétt við
bak mér. Ég þakka þér íyrir að hafa
aldrei brugðist mér, sama hvað á
hefur bjátað.
Ég vil þakka þér fyrir allar ferð-
irnar í Vatnsdalinn og fyrir að hafa
kennt mér að elska þennan fallega
dal og fallegu ána sem um hann
rennur. Ég vil þakka þér fyrir að
hafa haldið í höndina á mér þegar
við fórum að sofa og fyrir að hafa
alltaf verið góður við mig. Ég þakka
þér fyrir áhugann og virðinguna
sem þú gafst mér og allan skilning-
inn sem þú sýndir mér. Ég vil
þakka þér fyrir mitt eigið líf og ég
þakka þér fyrir börnin mín.
Elsku pabbi. Mig langar til að
þakka þér fyrir allt og allt. Og þótt
sorgin sé þung og eftirsjáin mikil þá
vil ég að leiðarlokum þakka þér fyr-
ir að gefa mér eilífa minningu um
góðan og traustan mann og góðan
pabba.
Hafðu það fínt, pabbi minn.
Bergur.
Ég átti því láni að fagna fyrir
tuttugu og þremur árum að kynnast
ísleifí Runólfssyni, tengdaföður
mínum, er ég og AJma dóttir hans
hófum sambúð. Vandfundinn er
betri tengdafaðir og ekki var hann
síðri sem afí, en í því hlutverki hef-
ur hann farið á þvílíkum kostum að
ekki verður fundinn jafnoki. ísleifur
hafði einstakt lag á að ná sambandi
við fólk, börn sem fullorðna. Hann
gaf barnabörnunum margar óg-
leymanlegar stundir með ýmsum
fróðleik og ber þar hæst sögurnar
af Búkollu og fleiri ævintýrum, sem
tóku breytingum í hvert sinn er
hann sagði þær. Þar naut kímnigáfa
hans sínj því alltaf var stutt í
glensið. Isleifur var myndarlegur
maður, þrekinn og sterkbyggður og
mikið snyrtimenni. Allir hlutir voru
í röð og reglu og reikningar ávallt
greiddir fyrir gjalddaga. Isleifí var
einkar hugleikið allt sem viðkom
Vatnsdal. Hann kunni ótal sögur og
frásagnir frá þessum fagra dal. Ég
naut þess mjög að hlusta á hann
segja frá æskuminningum úr daln-
um, fannst mér stundum eins og ég
hefði búið þar á sama tíma og hann.
Þegar við Alma ferðuðumst fyrir
norðan og hittum „gamla“ eftir
ferðina var alltaf spurt: „Fóruð þið
ekki fram í dal?“ Ógleymanlegar
eru veiðiferðirnar í gegnum árin
með Isleifí, sonum hans og fleiri
góðum mönnum. Nú stefnir í
sjóbirtingsveiðina og þar verður
skarð ísleifs ekki fyllt. Hann hélt
öllu í röð og reglu, það óð enginn
inn í veiðihús á skítugum skónum
nema einu sinni. Hann fór aldrei út í
á að veiða nema allt væri tandur-
hreint og frágengið í húsinu. „Þið
hljótið að sjá það sjálfír strákar
hvað það er miklu skemmtilegra að
koma í húsið þegar allt er hreint og
snyrtilegt.“ Isleifur var ákaflega
næmur á íslenska náttúru. Þær
voru margar og ógleymanlegar
stundirnar sem við áttum á
ferðalögum.
Elsku Ollý, ég veit að Guð styrkir
þig eins og okkur hin í sorginni. Það
er aðdáunarvert hvað þú hefur
staðið sterk við hlið ísleifs í veikind-
um hans og hefur styrkur þinn eflt
okkur hin. Guð blessi minningu vin-
ar míns og tengdapabba, ísleifs
Runólfssonar.
Þór.
Nú legg ég augun aftur,
ó Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson.)
Mig langar í örfáum orðum að
minnast tengdapabba míns, Isleifs
Runólfssonar, sem við fylgjum nú
síðasta spölinn í dag. Það er aðeins
ríflega ár síðan ég kom inn í fjöl-
skylduna. Alveg frá upphafi tók ís-
leifur mér sem dóttur og litlum syni
mínum sem viðbót við afabarnahóp-
inn.
Isleifur var yndislegur maður
sem gott var að vera nálægt. Hann
var skarpvel gefinn og kunni frá
mörgu að segja. Mikið þótti honum
gaman þegar við komum úr veiði-
ferðum að hlusta á veiðisögurnar og
átti þá gjarnan nokkrar sjálfur sem
hann rifjaði upp. Hann var listagóð-
ur veiðimaður og hafði einmitt ráð-
gert að koma með okkur í veiðitúr í
kvöld. En Drottinn hefur endanlegt
vald yfír öllum okkar ferðum og
hann hafði ætlað fsleifí annað ferða-
lag. ísleifur var mjög sterkur skák-
maður og hafði gaman af að tefla.
Honum þótti því ekki ónýtt að
heyra að stelpan hefði gert svolítið
af því sjálf og mætti eitt kvöldið í
heimsókn með taflið í poka. Við tók-
um tvær skemmtilegar skákir, sem
hann vann að sjálfsögðu báðar, og
ákváðum að gera meira af því að
hittast til að tefla. Ekkert varð þó
úr þeim áformum því fljótlega fór
að bera á veikindum þeim sem
drógu hann til dauða á svo skömm-
um tíma.
Ég kveð nú tengdapabba með
söknuði, ást og virðingu ásamt
miklu þakklæti fyrir þann yndislega
tíma sem ég náði að þekkja hann.
Öllum ástvinum hans votta ég mína
dýpstu samúð.
Helga Guðrún Eiríksdóttir.
Jæja gamli minn, þá ertu farinn
og allt of snemma að mínu mati.
Þeir dagar sem liðnir eru frá andláti
þínu hafa verið mjög skrýtnir og ég
á mjög erfitt með að sætta mig við
þetta. Minningar um samveru-
stundir okkar hafa reikað um hug
minn nánast hverja einustu
sekúndu undanfarna daga og þá
varð mér enn betur ljóst hversu
góður afi þú hefur verið mér og öðr-
um barnabörnum þínum. Á þeim
myndum sem ég á af þér ertu nán-
ast undantekningarlaust að leika við
okkur krakkana og það er það sem
ég virði mest við þig. Þú gafst þér
alltaf tíma til þess að leika við okk-
ur, spjalla og jafnvel fíflast. Þú ert
eini afí sem ég hef átt og þú stóðst
þig hreint frábærlega í því hlutverki
og vel það. Þá er óhætt að segja að
þú hafir sýnt mér hvemig afar eiga
að vera og ég er stoltur af að hafa
átt þig að afa. Ég veit að þú ert
kominn á annan betri stað núna og
ert sjálfsagt búinn að segja Davíð,
litla bróður mínum, söguna af
Búkollu. Ég vil þakka fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig og hvíldu í
friði elsku afí minn.
Þór Tjörvi.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauóans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt aó skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
ídauðans dimmum val.
Ur inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(Vaid. Briem.)
Takk fyrir allt, elsku afí,
þín
Ollý Björk.
Elsku ísleifur afí. Við eigum eftir
að sakna þín sárt. Þótt veikindi þín
væru alvarleg og við fengjum okkar
tækifæri til að kveðja þig var samt
sárt að heyra að þú værir dáinn. Þú
átt alltaf eftir að vera hjá okkur.
Hjá okkur systrum muntu aldrei
gleymast og alltaf varðveitast í
hjarta okkar. Sofðu vel, afi, og
hvíldu þig hjá Guði.
Alma og Dagný.
Elskulegi afi minn hefur nú mætt
sínu endadægri. Hann hefur fengið
hvíld frá veikum líkama og haldið
inn á andlegjú svið.
Á slíkum stundum virðist allt sem
mennirnir sýsla óttalegt prjál. Hið
endalausa daglega amstur sem skil-
ur ekkert eftir sig en veldur því eigi
síður að maður lætur undir höfuð
leggjast að greina kjarnann frá
hisminu. Kjarnann sem felst í að
gefa sér tíma fyrir sína nánustu og
rækta við þá sambandið.
Ég minnist ótal stunda með Is-
leifi afa mínum. Hann var mikill
barnamaður, undir sér vel með
barnabörnum sínum og naut ég
góðs af því. Þegar þau afí og amma
áttu heima í Kópavoginum þar sem
ég ólst upp dvaldist ég iðulega hjá
þeim. Afi átti alltaf tíma aflögu fyrir
lítinn gutta, hvort heldur hann
vantaði leikfélaga, ráðleggingar eða
einhvern til að spyrja spjörunum úr
um allt milli himins og jarðar. Þeg-
ar ég dvaldist hjá þeim um helgar
munaði afa ekki um að rífa sig á
fætur á mjög svo ókristilegum tíma
til að skutla þessum pjakki á knatt-
spyrnuæfingar. Sérstaklega er mér
minnisstætt atvik þegar æfíngu var
aflýst en afí var lagður af stað heim.
Ég tók til fótanna og var kominn
heim á undan afa, fór inn bakdyra-
megin og kom til dyra þegar afi
sneri heim aftur. Honum varð um
að sjá mig, hélt ég hefði verið að
hrekkja sig og kallaði mig villing.
Eftir á hlógum við lengi að þessu og
seinna meir rifjuðum við þessa sögu
oft upp, okkur til gamans.
Afí hafði gajnan af því að segja
okkur sögur. í sérstöku uppáhaldi
hjá mér var sagan um Búkollu sem
hann las alltaf með óskaplega mikl-
um tilþrifum. Hann var alltaf til í að
fíflast í okkur barnabörnunum og
taka þátt í hvers kyns uppátækjum
til að gleðja okkur. Hann gaf okkur
öllum mikið af sér og kenndi okkur
margt gott. Hjá afa lærði ég að
reima skóna mína og tefla skák.
Hann var réttsýnn með eindæmum
og allt óréttlæti fór í taugarnar á
honum. Það var honum mikilvægt
að við krakkarnir lærðum að þekkja
góð gildi og breyta rétt. Þegar við
uxum úr grasi fylgdist hann vel með
hvað við höfðum fyrir stafni og fátt
gladdi hann eins og velgengni
barnabarna sinna. Handleiðslu hans
lýkur ekki hér við dægurstund held-