Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 44

Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 44
Jf 44 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR þakkir og samúðarkveðjur frá Framsóknarfélagi Mýrasýslu. Missir fjölskyldu Kristínar er mikill, að sjá á bak eiginkonu, móð- ur og ömmu sem alltaf átti ráð og gæsku til að deila með hverjum sem með þurfti. Við hjónin vottum Hall- dóri föður Kristínar, Guðmundi, börnum, barnabörnum svo og systkinum hennar innilega samúð okkar og biðjum góðan guð að veita þeim styrk í sorg sinni. Helga og Guðmundur Guðmarsson. Að morgni miðvikudags 2. sept. hringdi ég í Borgarnes og í lok þess samtals komu þessi orð. „Nú er sorglega fréttin eftir. Hún Ki’istín Halldórsdóttir dó í nótt.“ „Hvaða Krístín?“ spurði ég. „Hún Kristín á Kveldúlfsgötunni." Þegar ég áttaði mig kom ég ekki upp nokkru orði og líkami minn dofnaði um stund, þetta var svo fjarri að ég neitaði með sjálfum mér að samþykkja þessa fregn. Síðan hefur hugur minn verið hjá Kristínu svo ég verð að skrifa þessar línur. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir um það bil þremur áratugum ^Sr er við störfuðum bæði sem kennar- ar við grunnskólann í Borgarnesi. Þar kynntist ég fyi'st þeirri ein- stöku geðprýði og hlýju sem Kristín bar með sér. Síðan höfum við átt svo margvíslega samvinnu að þar væri frekar efni í bók en stutta grein og þar hefur aldrei borið skugga á. Vil ég hér rifja upp örfáa þætti sambands okkar. Segja má að samband hennar við skólann rofnaði aldrei þó að hún hætti kennslu og ber þar hæst hennar jákvæða hug- arfar í öllum hennar störfum sem tengdust skólanum. Hún var mörg ár trúnaðarprófgæslumaður í sam- ræmdum lokaprófum skólans. Eðli- lega ríkir alltaf spenna meðal nem- enda á slíkum öriagadögum en það má segja að Kristín færði með sér ró og frið í prófsalinn með sinni ljúfu framkomu sem vafalítið hefur oftar en ekki lægt hjartslátt hinna ungu próftaka og hjálpað þeim við einbeitinguna. Þáttur hennar sem foreldris var einnig mjög stór, fyrir utan vh-k af- skipti í foreldrafélagi skólans voru v böm hennar mjög kærir nemendur ' skólans sem báru foreldrunum og heimilinu fagurt vitni. Við sátum mörg ár saman í sókn- arnefnd Borgarneskirkju og var hún þar sem annars staðar góður liðsmaður. Eg minnist þess hve sér- staklega ljúflega hún bar fram til- i lögur eða gagnrýni og notaði þá gjarnan orðin: „Finnst ykkur ekki betra að hafa þetta svona?“ Auðvitað hafði hún rétt fyrir sér enda vom tillögur hennar alltaf vel hugsaðar og miðuðu að því að bæta hag sem flestra. Eitt af því sem tengdi okkur Kristínu saman var að dætur okkar urðu mjög góðar vinkonur og bjuggu saman á námsárum sínum í Reykjavík. Þar með eignaðist ég hlutdeild í Áslaugu dóttur Kristínar jL og Guðmundar og hefur mér alltaf fundist að hún gengi næst mínum eigin börnum. Það er mikill missir að Kristínu, hún átti svo margt ógert í þessu lífi öðrum til hamingju og gagns. Hennar skarð verður ekki fyllt og söknuðurinn er sár. Eg vil biðja góðan Guð að styrkja fjölskyldu hennar og við hjónin sendum hér okkar innilegustu samúðarkveðjur til eiginmanns hennar, bama, tengdabarna og barnabarna. Vertu sæl, Kristín, Guð geymi þig alla tíma, minninguna eigum við eft- W- ir og varðveitum hana. Guðmundur og Hildur. Fyrstu merki haustsins vora farin að sjást. Skólinn var að hefja starf- semi sína. Um leið og nemendur mættu til sinna starfa bárast okkur þau sorglegu tíðindi til eyma að Kristín Halldórsdóttir væri látin. Þó að fyrstu merki þessa hausts væru byrjuð að gera vart við sig bar ekki á þeim í lífí Kristínar. Hún var allt of snemma kölluð til æðri máttarvalda. Haustið 1969 kom hún til starfa við Barna- og gagnfræðaskólann í Borgarnesi, þá 21 árs að aldri. Hún kenndi hér við skólann í tvo vetur og sinnti kennslunni af mikilli alúð og samviskusemi. Á þessum árum eignaðist hún sín fyrstu böm. Vorið 1971 hætti hún störfum við skólann en var eftir það viðloðandi skóla- starfið á ýmsan hátt. Veturinn 1977-78 tók hún að sér stunda- kennslu við Iðnskólann sem þá var rekinn í sama húsnæði og undir sömu stjóm og Barna- og gagn- fræðaskólinn. Til fjölda ára var hún trúnaðarmaður menntamálaráðu- neytisins í samræmdum prófum hér við skólann. í prófum þessum er gjarnan mikil spenna og taugatitr- ingur. Kristín hafði róandi áhrif á nemendur og kennara með hæversku sinni. Störf hennar ein- kenndust af kjörorðinu „aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Þó að Kristín væri formlega hætt störfum við skólann var hún einn af velunnurum hans og ávallt reiðu- búin að starfa íýrir hans hönd. Hún sat til margra ára í skólanefnd og foreldrafélagi skólans. Að leiðarlok- um vill skólinn þakka fyrir vel unnin störf að skólamálum í Borgamesi. Sendum við aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um þeim blessunar. Fyrir hönd Gmnnskólans í Borg- arnesi. Hilmar Már Arason. Miðvikudaginn 2. september sl. bárast út þau sorgartíðindi að kær vinkona mín og samstarfsmaður til margra ára, Kristín Halldórsdóttir, hefði látist þá um nóttina. Fréttin var þvílíkt reiðarslag að hún var sem högg - kona á besta aldri tekin burt frá fjölskyldu, ættingjum og vinum. Kynni okkar Kristínar spanna yfír tvo áratugi og hófust þegar Kristín réðst til starfa hjá Mjólkursamlagi Borgfirðinga á ár- inu 1978 og störfuðum við þar sam- an þar til Mjólkursamlagið var lagt niður í lok árs 1995. Kristín var síð- an starfsmaður Engjaáss ehf. sem stofnað var í kjölfar lokunar Mjólk- ursamlagsins og starfaði þar til dauðadags. Kristín lagði mikla alúð í störf sín en hún sá um bókhald, samskipti við viðskiptavini, bréfaskriftir og önnur störf sem til féllu á skrifstofu fyrir- tækjanna. Mikið öryggi var í því að hafa Kristínu við hlið sér og geta leitað til hennar með ýmis mál, stór og smá, og geta alltaf treyst því að þau mál sem um var fjallað væru jafn vel geymd hjá henni og hjá sjálfum sér. Fáir eru þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga slíkan samstarfs- mann sem Kristín var og vil ég þakka það. Kristín starfaði mikið að félags- málum m.a. fyrir Framsóknarflokk- inn og sat í bæjarstjórn á árunum 1990-1994. Einnig sat hún í sóknar- nefnd um árabil og lagði hún mikla rækt við starf sitt innan kirkjunnar og vil ég sem samstarfsmaður henn- ar þar þakka henni fyrir öll þau góðu ráð og ábendingar sem hún lagði inn í umræðu og ákvarðanir um málefni kirkjunnar. Kristín var mikill samvinnumaður og starfaði að málefnum Kaupfélags Borgfirðinga um áratuga skeið, sem fulltrúi á aðalfundum, sem fulltrúi starfsmanna í stjórn félagsins og sem varamaður í stjóm um árabil. Kristín starfaði af miklum heilind- um að málefnum Kaupfélags Borg- firðinga alla tíð og eftir að hún sagði af sér öllum trúnaðarstörfum hjá félaginu í kjölfar mikilla deilna um málefni Mjólkursamlags Borg- firðinga og lyktir þess máls kom best í ljós hæfileiki hennar til að skilja á milli ágreinings í félagsmál- um og þess að rækta áfram gott samstarf við einstaklinga þrátt fyrir ágreining á hinu félagslega sviði. Mörgum fleiri málum lagði Kristín lið og verður hennar sárt saknað af þeim fjölmörgu sem nutu umhyggju hennar og hlýju. Þrátt fyrir stutta ævi lætur Kilstín eftir sig mikinn fjársjóð, góð og mann- vænleg böm sem minna vel á það sem hún var, og ljúfar minningar hjá fjölmörgum, bæði úr leik og starfi. Fyrir hönd samstarfsfólks Kristínar þakka ég fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman, bæði í gleði og sorg. Einnig þakka ég og konan mín fyrir allar þær ánægjulegu ferðir sem við fórum saman um héraðið til að njóta tón- leika og kórsöngs, en Kristín var mikill unnandi góðrar tónlistar. Munum við ætíð minnast hennar og sakna. Við vottum Guðmundi, börnum og öðrum nákomnum okkar dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur og leiða. Indriði Albertsson. „Líf hvers manns er ævintýri skráð af fingri Guðs,“ ségir H.C. Andersen í einni af mörgum sögum sínum. Oft er lífsins ævintýri allt of stutt og engar vísbendingar gefnar um að það sé senn á enda runnið. Við lífsins gátu eigum við mannanna börn fá svör og okkur er ekki ætlað að vita hvað dagurinn ber í skauti sér. Ekkert benti til að Kristín Hall- dórsdóttir ætti ekki langt líf fyrir höndum. Eg hitti hana á fögrum sólskinsdegi í sumar, glaða og hressa, og þá eins og ávallt streymdi frá henni hlýja og jákvæð- ir straumar. Hún Kristín var merkileg kona íyrir margra hluta sakir. Henni vora gefnar óvenju góðar gáfur í vöggugjöf. Hún var auk þess góður skipuleggjari og góð verkmann- eskja og móðir eins og best verður á kosið. Það fór ekki framhjá þeim sem vora í návist þeirra hjóna Kristínar og Guðmundar að þar fóru samhent hjón. Hún vakti yfir velferð sinna nánustu og hæglát og yfirveguð kom hún meiru í verk en margur sá er hraðar virðist fara. Hún var tilfinningamanneskja án þess að bera það á torg og einlægur vilji hennar til að koma góðu til leið- ar einkenndi öll hennar störf og all- ar hennar athafnir. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni heldur leita hins jákvæða í fari sam- ferðamannsins. Það kom af sjálfu sér að eftir því var sóst að hún tæki að sér ýmis trúnaðarstörf. Hún var meðal ann- ars bæjarfulltrúi fyrir framsóknar- menn í Borgarnesi um árabil og hefur setið í ráðum og nefndum fyr- ir flokkinn. Ég kynntist henni fyrst á þeim vettvangi en fljótt kom í ljós við nánari kynni að margt ættfólk hennar í móðurætt þekkti ég náið frá bernsku og þau tengsl gerðu það að verkum að við höfðum um fleira að spjalla en stjórnmál. Það var gott að vera í návist hennar og ég er þakklát fyrir okkar góðu kynni, fyr- ir hennar mikilvægu störf og þann einlæga stuðning sem hún veitti mér. Sorg og söknuður ríkir yfir Borg- arbyggð sem hefur misst eina af sínum bestu dætram. Hin stóra fjöl- skylda sem að Kristínu stendur hef- ur misst mikið. Eiginmanni hennar, börnum og aðstandendum öllum sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning góðrar konu. Ingibjörg Pálmadóttir. Nú er skarð fyrir skildi, hún Kristín Halldórsdóttir er dáin, löngu fyrir aldur fram. Ung fjölskylda flytur í Borgar- nes til að starfa við tónlistarskólann í bænum. Fljótlega kemur til tals að stofna kór og leitað er til nýju tónlistarkennaranna. Kórinn er stofnaður af áhugasömu fólki og með hjálp verkalýðsfélagsins í bæn- um. Fáir höfðu nokkra reynslu af kórsöng og söngstjórinn litla sem enga reynslu af kórstjórn. Fljótlega kom í ljós að ýmsu þarf að huga og valin er stjórn fyrir kórinn. For- maðurinn er kosin Kristín Hall- dórsdóttir og kemur þá strax í ljós að hún er enginn nýgræðingur í félagsmálum, hún leiðir söngfélagið áfram styrkri hendi og er þessum nýja kór leiðarljós þótt ekki beri mikið á því hve mikið hún vinnur fyrir hann. Kórinn fær síðar nafnið Kveldúlfskórinn. Þegar kórinn fer að kljást við fjölbreytt viðfangsefni á ýmsum tungumálum reynum við að kafa í Ijóðin og skilja innihald þeirra svo að við séum þess verð að flytja og túlka efnivið hinnar dýra listar. Þá kemur í ljós að Kristín Halldórsdóttir getur skýrt hvert orð og efni hvers kvæðis, frá Eddu- kvæðum til latneskra messutexta. Hún kann íslenskar ljóðabók- menntir frá upphafi, er mjög víðles- in og fróð um laust mál og bundið hvar sem gripið er niður. Hún gef- ur okkur með sér það sem hún á af örlátu hjarta, af miklum skilningi og ást á því sem gott er og fallegt. Það er okkur öllum í kórnum óg- leymanlegt atvik, sem þó er aðeins ein dæmisaga um hæfileika hennar á þessu sviði að við vorum eitt sinn fyrir löngu í upptöku í Reykjavík. Eftir langan og strangan vinnudag borðum við saman á veitingahúsi. Galsi kemur í söngfólkið og einn kastar fram vísu og skorar á hvert borð að gera það sama. Kristín hef- ur orð fyi'ir sínum sessunautum og flytur okkur Smávinir fagrir úr Hulduljóðum Jónasar Hallgríms- sonar, öll erindin, utanað og óundir- búið. Þetta kvæði var henni mjög kært, því hún unni landinu og gróðri jarðar. Sá sem ferðaðist með Kristínu fékk líka að njóta þess með henni hve vel hún þekkti land- ið, og hvernig hún fagnaði og þekkti grösin og blómin við hvert fótmál. Eftir því sem ég kynntist Kristínu betur skildist mér smátt og smátt að hún hafði kosið að helga starfskrafta sína fyrst og fremst fjölskyldu sinni og bömum, þó að hún hefði eflaust getað valið sér hvaða starfsgrein sem var, slíkir sem hæfileikar hennar og gáfur voru. Börnin voru augljóslega alin upp við mikið ástríki foreldranna, vel ræktuð og studd til góðra verka með ráðum og dáð. Ég veit núna að verðugra verkefni er ekki til og missir eiginmanns, barna og barna- barna er þungur og illbærilegur. En Kristín var skær stjarna sam- ferðamönnum sínum á lífsleiðinni og við megum ekki gleyma því að hún lýsir okkur enn þó að sorgin sé sár. Fyrir nokkrum áram féll frá löngu fyrir aldur fram söngfélagi okkur úr Kveldúlfskómum, Friðjón Sveinbjörnsson og varð öllum mikill harmdauði. Kórinn flutti Sálumessu eftir franska tónskáldið Gabriel Fauré í minningu hans. Kristín Halldórsdóttir þýddi textann úr latínu til að prenta í efnisskránni og langar mig að enda þessi fátæklegu orð á þýðingu hennar á sjöunda og síðasta kafla sálumessunnar: Leiði þig englar Guðs inn í Paradís. Hinir útvöldu taki á móti þér, er þú kemur þangað, og fylgi þér inn í helga Jerúsalemborg. Englakórinn fagni þér, að þú megir öðlast þar eilífðarfrið ásamt Lasarusi, sem áður var snauðastur allra. Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Mér fannst eins og dimmdi í lofti á annars fallegum og hlýjum haust- morgni hinn 2. september þegar ég frétti að mín góða vinkona og sam- starfskona í 17 ár væri skyndilega horfin frá okkur. Það er margs að minnast frá þessum góðu árum í samstarfi okkar Kristínar Halldórs- dóttur, bæði í starfi og leik, því við starfsfélagarnir áttum margar góð- ar samverustundir utan vinnutíma, og fórum þá í ýmsar ferðir saman. Þetta var góður tími, sem aldrei kemur aftur því eftir að mjólkur- samlagið hætti starfsemi kom los á þennan samhenta hóp, ýmsir hættu og miklar breytingar urðu. Eitt það minnisstæðasta, sem við Kristín gerðum saman, var að fara til Reykjavíkur og fá áheym hjá land- búnaðarráðherra, í framhaldi af mót- mælaaðgerðum okkar starfsfólksins. Þetta var tilraun til að reyna að halda í mjólkursamlagið, sem því miðm' mistókst. Kristín var mikil starfs- kona og einhvem veginn varð það svo, að hún var sú sem flestir leituðu til, ef fá þurfti góð ráð eða hjálp við einhver verkefni. Hún var svo traust, heilsteypt og hjartahlý og mér fannst alltaf best að ræða við hana ef ein- hver vafamál komu upp. Kristín var líka mikið í félagsmál- um, og tók virkan þátt í starfi verkalýðsfélagsins, var um tíma í bæjarstjóm, kórstarfi, sóknamefnd o.m.fl. Kristín átti miklu fjölskyldu- láni að fagna og átti fallegt heimili, sem bar vitni um handbragð hennar, því hún var líka mikil handavinnu- kona. Hún eignaðist fjögur einkar myndarleg og mannvænleg börn, sem nú ásamt eiginmanni syrgja sárt sína góðu móður og eiginkonu, en nú tala ég sem amma, því sárast tekur mig til litlu bamabamanna hennar Kristínar, sem hún var svo stolt af og hamingjusöm að eignast. Að hún skyldi ekki fá að njóta þess að sjá þau vaxa og þroskast, og þau að missa sína góðu ömmu svona ung. Þetta era fátækleg orð, en efst í huga mér er þakklæti fyrir að hafa átt því láni að fagna að kynnast þessari konu og starfa með henni í öll þessi ár, og sorg, að hún skuli vera horfin frá okkur, svona langt um aldur fram. Ég bið góðan guð að vera með ástvinum hennar, gefa þeim styrk í sorginni og hjálpa þeim að hugga sig við allar góðu minning- arnar sem við eigum öll sem þekkt- um hana Kristínu. Vertu svo guði falin, góða vin- kona. Sigurbjörg Viggósdóttir. Mig langar með örfáum orðum að minnast Kristínar Halldórsdóttur. Ég hef þekkt Kristínu frá því ég man eftir mér, mér finnst hún alltaf hafa átt heima á Kveldúlfsgötunni. Þó kynntist ég henni ekki vel fyrr en nú á seinni árum er ég fór að starfa í Borgarnesi að námi loknu. Kristín söng með í Kveldúlf- skórnum og í Noregsferð kórsins 1989 vorum við saman í herbergi fjórar, Kristín, Guðný Erla, mamma og ég. Þetta var einstaklega vel heppnuð ferð og oft var mikið hlegið þegar komið var í kojur á kvöldin. Kristín tók oft svo skemmtilega til orða og saman voru þær vinkonurn- ar óborganlega skemmtilegar. Kristín starfaði í skólanefnd Tón- listarskóla Borgarfjarðar fyrstu ár- in mín sem skólastjóri þar og fannst mér mikill stuðningur að henni. Mér fannst gott að vera í návist hennar og ég man hvað mér fannst hún ótrúlega minnug. Kristín hefur alltaf sýnt mér og fjölskyldu minni einstaka hlýju og góðvild. Þegar dætur okkar fædd- ust kom hún t.d. með heklaða kjóla handa þeim. Og síðast nú í ágúst heimsótti hún mig 1 tilefni af afmæli minu og kom færandi hendi. Ég vil þakka Kristínu fyrir allar góðu samverustundirnar og hlýjuna í okkar garð. Ég mun minnast hennar sem sérstaklega elskulegrar og góðrar konu. Ég og fjölskylda mín vottum Guðmundi, fjölskyldu hans, Hall- dóri föður Kristínar og ástvinum öllum okkar innilegustu samúð. Theodóra Þorsteinsdóttir. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.